Morgunblaðið - 05.02.2000, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 05.02.2000, Blaðsíða 54
V>4 LAUGARDAGUR 5. FEBRÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR + Einar Þór Ein- arsson fæddist í Reykjavík 9. júní 1972. Hann lést í Grindavík 27. janúar síðastliðinn. Foreldr- ar hans eru hjðnin Kristín Guðlaugs- dóttir, f. 4.10. 1936, og Einar Þór Garðarsson, f. 25.7. 1936. Einar Þór var næstyngstur barna þeirra en eftirlifandi systkini hans eru Guðný Pála, f. 1956, maki Bárður Guð- laugsson; Þórunn, f. 1959, maki Guðbjörn Sigurvinsson; Garðar, f. 1960, maki Anna Oddný Helga- dóttir; Sigríður Hanna, f. 1962, maki Samúel Ingi Þórarinsson; Guðlaugur, f. 1964, maki Gyða Sigurðardóttir; Anna Kristín, f. Ekkert í þessum heimi getur und- irbúið mann fyrir fréttir eins og þær sem okkur bárust að morgni dags 27. janúar að Einar Þór, yngsti bróðir okkar, væri látinn. Hann hafði látist fyrr um nóttina og erfitt var að trúa því að við ættum aldrei eftir að hitt- ast, spjalla eða heimsækja hann. Vantrúin, sársaukinn og sorgin yf- ir að hafa misst elskulegan bróður, vin og góðan félaga svona langt fyrir aldur fram var lamandi. Engin orð ná 1 raun að lýsa því sem okkur býr í brjósti á þessari stundu en mikið munum við sakna hans Einars okkar og mun minningin um hann ylja okk- ur um ókomna framtíð. í allri sorginni læðist að manni ■«»reiði. Hvaða sanngirni var í því að svo ungur maður væri fallinn í valinn, rétt tæplega 28 ára gamall, maður sem hafði allt það til brunns að bera sem prýtt getur einn mann. En okkar huggun felst í því að vita af honum hjá algóðum Guði sem við biðjum um að geyma hann Einar okkar. KaDiðerkomið kominernústundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinimirkveðja vininn sinn látna, er sefr hér hinn síðsta blund. (V. Briem.) Það var um miðjan júní 1972 sem við biðum spennt eftir því að litli bróðir kæmi heim vestur á Framnes- veg með mömmu af fæðingardeild- inni. Hann var bjartur yfirlitum og fallegur drengur og fangaði fljótlega athygli allra á heimilinu. Einar var fjörugur og uppátektarsamur dreng- ur og þar sem systkinahópurinn var stór var ýmislegt brallað. Einar gekk í Vesturbæjarskóla og var þar til 12 ára aldurs og lauk síðan gagnfræða- prófi úr Hagaskóla vorið 1988. Einar vann við ýmis störf þar til hann flutti til Grindavíkur árið 1993 en þar stundaði hann vinnu til sjós og lands. Snemma árs 1994 kynntist hann ynd- islegri stúlku, Onnu Kristínu Hjálm- arsdóttur, og þann 28. ágúst sama ár trúlofuðu þau sig, en þennan dag var einmitt bikarúrslitaleikur KR gegn ' Grindavík. Einar mætti að sjálfsögðu í KR-búningi enda eldheitur stuðn- ingsmaður og Anna Stína klæddist að sjálfsögðu búningi liðs Grindavík- ur. Einari til mikillar gleði sigruðu KR-ingar og var trúlofun og bikar- úrslitum fagnað á Rauða Ijóninu. Einar og Anna Stína komu sér upp fallegu heimili á Hellubraut 2 í Grindavík.Til þeirra var ávallt gott að koma enda höfðingjar heim að sækja. Önnu Stínu, mömmu, pabba og fjölskyldum þeirra, sendum við okk- . ar innilegustu samúðarkveðjur. UVlissir ykkar og okkar allra er mikill. Megi góður Guð veita okkur styrk á sorgarstund. Elsku Einar, við þökkum þér fyrir allar góðu stundirnar sem við áttum saman. Hvíl í friði. Margseraðminnast, , margterhéraðþakka. •* Guði sé lof fyrir liðna tíð. 1966, maki Hannes Guðmundsson; og Erna Margrét, f. 1973. Unnusta og sam- býliskona Einars Þórs er Anna Kristín Hjálmarsdóttir, f. 21. 4. 1976. Foreldr- ar hennar eru Ragn- heiður Guðmunds- dóttir, f. 1944, og Hjálmar Haraldsson, f. 1942, búsett í Grindavík. Einar Þór ólst upp á Fram- nesvegi og gekk í skóla þar. Hann fluttist til Grinda- víkur 1993 og bjó þar þangað til hann lést. Hann starfaði lengst af við sjómennsku. títför Einars Þórs fer fram frá Grindavíkurkirlgu í dag og hefst athöfnin klukkanl4. Margseraðminnast, margseraðsakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem.) Kveðja frá systkinum. Þórunn, Garðar, Sigrfður, Guðlaugur, Anna Kristín og fjölskyldur. Elsku litli bróðir minn er dáinn. Það er erfitt til þess að hugsa að þú sért farinn frá mér. Það er margs að minnast. Eg man hvað ég var hreyk- in þegar þú fæddist, mér fannst þú fallegasta barn sem ég hafði séð. Það voru ófáir dagar sem ég fór með þig í bæinn þegar þú varst á fyrsta ári bara til að monta mig yfir hvað ég væri með fallegt barn. Þú varst alltaf kátur og brosandi. Þegar ég átti mitt fyrsta bam varstu bara tveggja ára og þú varst orðinn stóri frændi sem Telma Björk leit mjög upp til. Það voru ófáar stundimar á Framnesvegi sem þú sagðir brandara og varst með fífla- gang en litla frænka hló að öllu sem þú sagðir og gerðir. Við fóram stund- um öll fjölskyldan í ferðalög saman og minnist ég sérstaklega þegar við fóram í Skaftafell árið 1980 í sól og blíðu. Þá var spilaður fótbolti fram á nótt og þú leyfðir litlu frændsystkin- unum alltaf að vera með. Þú varst mjög bamgóður og þolinmóður við systkinaböm þín og fannst þeim þú alveg rosalega flinkur þegar þú fékkst áhuga á breikdansi og sýndir á skemmtunum og í sjónvarpi. Þegar þú eltist fórstu að hafa mikinn áhuga á músík og æfðir á trommur hinu heimilisfólkinu til lítillar ánægju, þegar búið var að æfa lengi. Þér var ekki skemmt þegar við eldri systkin- in voram að stríða þér á fyrirsætu- störfum þínum, en þú varst í nokkr- um auglýsingum fyrir íþróttaföt og fermingarföt. Þú fórst til vinnu í Grindavík árið 1993 og komst til Reykjavíkur í öllum þínum fríum, en skyndilega fór þessum ferðum að fækka. Þá skildum við að það var komin stúlka í líf þitt. Það var brosað yfir nafni stúlkunnar sem þú kynntir okkur fyrir því að hún var nafna Önnu Kristínar systur okkar. Anna Stína varð strax ein af okkur og féll vel í hópinn, þið voruð alltaf nefnd í sama orði, Einar og Anna Stína. Heimilið ykkar í Grindavík er mjög fallegt enda þið miklir fagurkerar og ég tala nú ekki um hennar listrænu hendur sem gerðu það svo hlýlegt. Gjafmildi þín var einstök þú þekkt- ir ekki orðið níska, Við minnumst allra ferðanna á völlinn. Þar hittumst við oft, þú máttir helst ekki sleppa KR-leik. Þegar einhverjir úr fjöl- skyldunni komu til Grindavíkur að horfa á KR-leiki var alltaf veisla hjá ykkur eftir leiki og ég dáðist að Önnu Stínu fyrir hvað hún var þolinmóð og töfraði fram veitingar handa þessum gallhörðu KR-ingum. Elsku Anna Stína, þú varst ljósið í lífi hans. Hugga þú faðir, Qölskyldu hans sem fmnur ei ró í hjarta. Blessaðu sál hins unga manns og láttu ljósið þitt bjarta vekja hann með sól að morgni vekja hann með sól að morgni. Farðu í friði, vinur minn kær, faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær, aldrei þér skal ég gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni, svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens.) Elsku Anna Stína, Guð gefi þér styrk í þessari þungu raun. Guðný Pála Einarsdóttir. Lítill fugl sem flýgur til himins. Minnir okkur á eilífðina. Lækurinn sem h'ður niður hlíðina. Blóminspringaút fyrirþig. Þytur hjánna segir þér frá leyndardómi lífsins. Að lifa er að finna til. Að gráta yfir vegvilltum fugli, eðavisnuðulaufi. Að gleðjast yfir útsprungnu blómi, eða lífgandi dögg. Aðlifaeraðfinnatil. (Halla Jónsdóttir.) Þín systir Ema Margrét. Elsku mágur og frændi, okkur langar til að þakka þér þær stundir sem áttum við með þér. Við munum geyma minninguna um glettnina, gáskann og fallega brosið þitt í hjarta okkar um leið og við kveðjum þig. Loks er dagsins önn á enda úti birtan dvín. Byrgðu fyrir blökkum skugga þjörtuaugunþín. Eg skal þerra tár þíns trega, tendrafalinneld, svo við getum saman vinur syrgt og glaðst í kveld. Lífið hefur hendur kaldar, hjartaljúfurminn. Allir bera sorg í sefa, sárinblæðainn. Tárin falla heit í hljóði, heimureiþausér. Sofna,vinur,svefnljóð meðan syng ég yfir þér. Þreyttir hvílast, þögla nóttin þaggardagsinskvein. Felurbráttífaðmisínum fagureygðan svein. Eins og hljóður engill friðar yfirjörðufer. sofþúværanvinur, égskalvakayfirþér. (Kristján frá Djúpalæk.) Anna og Einar Þór. Þar sem englamir syngja sefur þú, sefurídjúpinuværa. Við hin sem lifum lifum í trú aðljósiðbjartaskæra veki þig með sól að morgni, veki þig með sól að morgni. Hugga þú, faðir, fjölskyldu hans semfinnureiróíþjarta. Blessaðu sál hins unga manns og láttu Ijósið þitt bjarta vekja hann með sól að morgni, vekja hann með sól að morgni. Farðu í friði, vinur minn kær, faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær, aldrei þér skal ég gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni. Svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens.) Samúðarkveðjur til ykkar allra sem eigið um sárt að binda. Haraldur Hjálmarsson og fjölskylda. Elsku Einar minn. Þegar ég rifja upp kynni okkar fyrir tæpum sex ár- um þegar þú komst með Ónnu Stínu, systur minni, í heimsókn til mín fannst mér mjög gott að kynnast þér, þú varst alltaf svo hress og yndisleg- ur drengur og þetta fallega bros sem skein úr augum þínum, svo hristist þú allur þegar þú hlóst og smitaðir alla með þér. Þú varst hörkudugleg- ur til vinnu, bæði á sjó og í landi. I Vísi unnum við saman, það var alveg sama hvað þú varst beðinn um að gera, þú gast unnið hvað sem var og oft í hádeginu komst þú og Anna með mér heim. Þú komst oft með Önnu heim á kvöldin og við sátum stundum lengi yfir kaffispjalli. Ég sakna þess að sjá þig ekki lengur. Þú varst auga- steinninn hennar Ragnheiðar minn- ar, hún átti til að spyrja mig á kvöldin uppi í rúmi: „Hvar er Einsi?“ eins og húnkallaði þig stundum. Og Einar, það vora öll böm sem hændust að þér, þú varst svo góður við alla. Það er sárt að hugsa til þess að svona góð- ur vinur sé farinn. Ég gæti skrifað margt um allar þær góðu stundir sem við áttum öll saman. Við voram hepp- in að fá að kynnast dreng eins og þér. Einar minn, ég bið góðan Guð að geyma þig og styrkja foreldra þína, Önnu Stínu, systkini þín, tengdafor- eldra og alla aðra ástvini þína. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lifsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, semgleymisteigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnastþér. (Ingibj.Sig.) Þín mágkona, Kristín Guðrún. Herra Jesú, ég hrópa á þig, hjartans því kraftar dvína, bænheyr þú drottinn mildur, mig, fyrir miskunnsemina þína. (Hallgrímur Pétursson.) Mig langar að minnast hér í fáum orðum góðs drengs, Einars Þórs Ein- arssonar, sem kvatt hefur þetta jarð- neska líf, langt um aldur fram. Hon- um kynntist ég fyrst fyrir tæpum sex áram, er hann og Anna Stína komu til mín á gistiheimilið sem ég rak og fengu leigt herbergi hjá mér, þar til þau fyndu stærra og hentugra hús- næði. Það var oft glatt á hjalla þann stutta tíma sem þið bjugguð þar. Þú komst mér þá fyrir sjónir sem frekar feiminn og hlédrægur strákur, en glaðvær og brosmildur. Brosið fannst mér einkenna allt þitt líf, það var sama á hverju gekk, alltaf var stutt í brosið. En kynni okkar áttu eftir að verða nánari. Þegar ég og Kristín hófum búskap vorað þið Anna Stína oft og tíðum daglegir gestir á heimili okkar. Leiðir okkar lágu víða saman. Ekki bara heima hjá hvor öðram eða hjá tengdafólki, heldur unnum við oft saman eða hjá sama fýrirtækinu, lengst af hjá Vísi hf. í Grindavík, þar sem þú varst búinn að vera af og til í tíu ár með ein- hverjum hléum. Hjá Vísi tókstu að þér ýmis störf, bæði til sjós og lands. Hjá mér varstu um nokkurra mán- aða skeið við garðyrkjustörf, en þú réðst þig í vinnu hjá mér og víðar með þeim skilyrðum að ef Hjálmar tengdapabba okkar vantaði afleys- ingamann á Oddgeir þá fengirðu að fara á sjóinn þá túra þegar vantaði mann. Þú varst ósérhlífinn og bón- góður og hörkuduglegur til allra verka sem þú að þér tókst. Til marks um ósérhlífni og dugnað kom það oft fyrir að þú fórst á sjóinn að kveldi eftir langan og strangan vinnudag í landi og svo beint í vinnu aftur þegar þú komst í land og búið var að landa, það var sama þótt hvíld hefði verið lítil og róðurinn erfiður. Ég þakka þér þessi ár sem ég fékk að njóta návistar, hjartagæsku og góðvildar þinnar. Elsku vinur, þín á eftir að verða sárt saknað hér við eldhúsborðið á Túngötunni þar sem við sátum oft löngum stundum. Síðustu daga ævi þinnar komstu oft hér á Túngötuna til mín, bæði að degi og kveldi. Ég skildi það ekki þá, en skil það nú, að þú varst að biðja okkur um hjálp og styrk í þínum miklu erfiðleikum. Elsku Einar, ég veit þú fyrirgefur * EINAR ÞOR EINARSSON mér þessa yfirsjón. Þegar fundum okkar ber saman næst veit ég að við munum halda áfram okkar góðlát- lega spjalli og brosum að öllu saman eins og við gerðum svo oft í þessu jarðlífi. Megi góður Guð vemda þig og styrkja, og ég veit að vel hefur verið tekið á móti þér. Ég bið þig, góði Guð, að styrkja þau og vemda sem eiga um sárt að binda við fráfall þessa góða drengs, þó sérstaklega Önnu Stínu, foreldra hans, systkini, tengdaforeldra og aðra ástvini. Svo að lifa, ég softú hægt, svo að deyja, að kvöl sé bægt, svo að greftrast, sem guðs bam hér, gefðu, sætasti Jesú mér. (Hallgrímur Pétursson.) Þinn vinur, Eiríkur. Mig langar að minnast besta vinar míns, Einars Þórs Einarssonar. Elsku Einar, það geta engin orð því lýst hve bragðið mér var þegar hringt var í mig og mér sagt að þú værir dáinn. Nú sit ég hér og minn- ingar streyma um huga mér. Það er svo margs að minnast. Það sem stendur upp úr er gleðin sem ávallt fylgdi þér. Mig langar að þakka þér fyrir allar góðu stundimar sem við áttum saman. Ég finn það nú, að það var höggvið stórt skarð í hjarta mér. Megi Guð taka vel á móti þér. Elsku Anna mín, ég sendi þér og öðram ástvinum mínar innilegustu samúðarkveðjur á þessari erfiðu stundu. Margseraðminnast, margterhéraðþakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margserað minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem.) Guð blessi þig, Einar. Þinn vinur, Þröstur. Elsku Einar. Mér fannst mjög gaman í bíó með þér. Þú varst mjög skemmtilegur. Mér fannst gaman með þér á rúntinum. Ég bið að heilsa öllum hjá Guði. Ég sakna þín. Ég elska þig. Þinn Hjálmar Haraldsson. Einar var mjög góður maður. Allt- af var hann í góðu skapi. Hann hélt upp á KR, Man. United og Prinsinn. Honum fannst gaman að fara á rúnt- inn. Þegar ég fékk fréttimar að hann væri dáinn leið mér mjög illa. Ég vona að honum líði vel núna. Samúðarkveðjur til Önnu, mömmu hans og pabba og fjölskyldu. Hafdís Osk Haraldsdóttir. Elsku frændi. Minningamar era margar en mig skortir orð. Orð sem í raun era innantóm þegar brotið hjarta horfir á eftir riddara sínum. í texta stendur „Eitt sinn verða allir menn að deyja“, en ekki þú, svona ungur og fallegur í blóma lífsins. Að hafa fengið að þekkja þig í 25 ár af þínum 27 er dýrmæt minning sem fyllir upp í skarð hjartans. Kæri frændi, ég þakka þér yndis- legar samverastundir sem engin orð fá lýst. Eftir stendur minningin ein. Elsku Anna Stína, takk fyrir að vera til. Telma Björk. Mig langar til að kveðja vin minn Einar sem nú er dáinn langt fyrir aldur fram. Leiðir okkar lágu saman í 11 ára bekk Vesturbæjarskóla og urðum við fljótt mjög góðir vinir. Þegar ég lít til baka rifjast upp mörg skemmtileg uppátæki. Lengi vel vor- um við breikdansarar af lífi og sál og öll tilveran snerist um að afla okkm- viðurværis með þessum undarlega dansi og varð okkur stundum nokkuð ágengt í þeim efnum. En við uxum frá þessari þráhyggju okkar um leið og við byrjuðum í Hagaskóla og aðrir hlutir fengu forgang. Önnur uppátæki skjóta upp kollin- um í huga mínum er ég sit og skrifa
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.