Morgunblaðið - 05.02.2000, Blaðsíða 70
’ 70 LAUGARDAGUR 5. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLADIÐ
Grettir
GERÐU SVO VEL. LU8BI. E9
VZSSI /\6 E9 FINDI H/ANN
Ljóska
Ferdinand
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Maður o g kona
aldarinnar
Frá Tryggva V. Líndal.
NÚ þegar 20. öldin er að heita liðin,
og ný þúsöld að hefjast, munu marg-
ir landsmenn vera að velta fyrir sér
hverja megi telja vera helstu Islend-
inga 20. aldarinnar. Eg held að svar-
ið liggi ljóst fyrir:
í fyrsta lagi held ég að best sé að
einskorða sig við rithöfunda: vegna
þess að þeir eru nátengdari við þjóð-
arímjmd almennings en aðrir hópar,
og vegna þess að þeir eru helstu
túlkendur þjóðlegasta arfs íslend-
inga; fombókmenntanna og tung-
unnar.
Einnig af því gera má ráð fyrir að
þeir muni öðrum fremur lifa í verk-
um sínum með næstu kynslóðum;
vegna sérlegrar getu skáldskapar-
verka til að lýsa höfundum sínum.
Rétt er að sleppa úr úrtaki okkar
þeim rithöfúndum er voru á þeim
aldri að rithöfundaferill þeirra virt-
ist ætla að verða; eða hafa orðið; að
verulegu leyti utan 20. aldarinnar;
skáld sem mætti því réttilegar
flokka sem aldamótaskáld; eða
tveggja alda skáld.
Nú tel ég valið vera orðið einfalt:
Ég mun flokka þá sem eftir eru eftir
bókmenntaverðlaunum sem þeim
hafa hlotnast.
í fyrsta sæti nefni ég Halldór
Laxness; því hann fékk Nóbelsverð-
launin.
í öðru sæti nefni ég þá höfunda
sem hafa fengið Bókmenntaverð-
laun Norðurlandaráðs; en það eru
Ólafur Jóhann Sigurðsson, Thor Vil-
hjálmsson og Fríða Á. Sigurðardótt-
ir. (Einar Má Guðmundsson tel ég
hér fremur til aldamótaskálda;
vegna ungs aldurs hans).
En hverjar mætti þá með svipuð-
um rökum kalla Konur aldarinnar?
í fyrsta sæti nefni ég hina áður-
nefndu Fríðu Á. Sigurðardóttur.
í öðru sæti nefni ég Svövu Jak-
obsdóttur, og hina löngu látnu
Huldu (Unni B. Bjarklind); en þær
fengu báðar mikilsverð verðlaun.
Lengi má deila um val af þessu
tagi. T.d. held ég að margfalt fleiri
Ijóðskáld en skáldsagnahöfundar
muni lifa löngu framhaldslífi í safn-
ritum íslendinga í framtíðinni; m.a.
vegna þess hve Ijóð eru að jafnaði
miklu styttri en sögur, og því með-
færilegri í sýnisbókmenntum hvers-
konar.
Væri nú gaman að heyra frá les-
endum Morgunblaðsins um hvort
þeir hafi aðrar tillögur betri en hér
að ofan greinir. Nefna má nokkra
tugi skálda í viðbót sem eru eða voru
bæði þjóðfræg, verðlaunuð og
afkastamikil. Eg hef hætt við að
telja þau upp; vegna þess að ég sá
fram á að því fleiri sem ég nefndi,
því fleiri gætu legið mér á hálsi fyrir
að skilja sig eftir útundan. Því hef ég
valið þá leið sem farin var hér að of-
an; af því hún er sú sem liggur bein-
ast við. En min persónulega dóm-
nefnd hefur hér með lokið störfum.
Gleðilega þúsöld!
TRYGGVIV. LÍNDAL.
Ég er kristinn maður
Frá Einari Ingva Magnússyni:
ÞANNIG er að ég er staddur úti í
Slóvakíu þessar vikur og get því ekki
afgreitt að svara tveimur greinum
sem birtust í Morgunblaðinu og í DV
sem skyldi.
í Morgunblaðsgreininni skrifar
Þorsteinn Sch. Thorsteinsson um
Moon-hreyfinguna og tiltar mig þar
aðstoðarkirkjuleiðtoga þeirrar
hreyfingar á Islandi, sem ég er ekki
og hef aldrei verið. Ég hef hins vegar
kynnt mér þeirra trú og hef verið
tengdur moonistum heima og er-
lendis, kannski fyrst og fremst
vegna þess, að eiginkona mín hefur
starfað mikið í hreyfingu þeirra.
í DV-blaðagrein sem ég sendi les-
endum hafði ég sent mynd af mér í
moonistakirkju með blaðagreininni.
Blaðamaður birtir myndina með
annarri grein sem ég sendi um
mannlífið í Slóvakíu, en ekki þá grein
sem fylgdi myndinni og bar nafnið: I
fjötrum trúarofstækis, þar sem ég
rek reynslu mína af moon-trúnni. Af
myndbirtingu blaðamanns DV og
grein mátti skylja að bréfritari væri í
kirkjuhreyfingu moonista sem hann
er ekki. Þvert á móti gagnrýni ég í
grein minni viss atriði, sem sýna
skýrt fram á villutrú Moons í ljósi
kristindómsins. Meðal annars er
hann tilbeðinn á altari í kirkjum og
heimahúsum meðlima. Auk þess hef-
ur hann lýst því yfir að Jesú Kristi
hafi mistekist hjálpræðisverk sitt.
Hann segist vera kristur hinna síð-
ustu daga og fær ríkulega tilbeiðslu
frá meðlimum. Jesús Kristur sagði
hins vegar skýrt að fylgjendur sínir
ættu að tilbiðja Guð og þjóna honum
einum. Moonistar hafa gerst sekir
um persónudýrkun, þar sem þeir til-
biðja sköpunina, Moon, en gefa ekki
Guði Föður óskipta tilbeiðslu. Auk
þess hefur Moon tekið upp á afláts-
sölu, þar sem hann segist selja
syndaaflausnir fyrir peninga. Afláts-
söluna harma ég hvort sem á í hlut
séra Moon eða páfinn í Róm, sem
gerði aflátssöluna fræga á öldum áð-
ur.
Fölsun og ófagmennska í blaða-
mennsku DV og staðhæfing Þor-
steins í Morgunblaðsgreininni hafa
valdið mér og þeim sem þekkja mig
ój)ægindum og óþarfa vangaveltum.
Eg er fyrst og fremst kristinn mað-
ur, sem trúir á Jesúm Krist, sem
frelsara mannkynsins fyrir fórnar-
dauðann á krossinum og vil ekki fara
út fyrir kenningar Biblíunnar í trú-
ariðkun minni. Eg trúi að hún sé al-
ger og endanlegur mælikvarði á trú
hins kristna manns, sem játar trú á
Guð Föður frelsara sinn Jesú Krist.
EINARINGVIMAGNÚSSON,
Sokolíkova 15, SK-84101
Bratislava Slovakia.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.