Morgunblaðið - 05.02.2000, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 05.02.2000, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 5. FEBRÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Telja nýjar tillögur um löggæslu skerða þjónustu Þekking lög- reglu á staðhátt- um nauðsynleg Breytingar sem sýslu- maðurinn í Keflavík hef- ur lagt til á löggæslu á Suðurnesjum hafa vakið talsverða óánægju með- al íbúa Grindavíkur. íbúar Grindavíkur fjöl- menntu á borgarafund um málið. Eiríkur P. Jörundsson fylgdist með umræðum. Morgunblaðið/Þorkell Gísli Guðjónsson og Sólveig Pótursdóttir voru á fundinum í Grindavík. RINDVÍKINGAR fylltu samkomusalinn í Festi á borgarafiundi á fímmtu- dagskvöld. Þar voru kynntar fyrirhugðar breytingar á löggæslu í bænum, sem sýslumaður- inn í Keflavík hefur tilkynnt að taki gildi 1. mars nk. Tortryggni ríkir augljóslega meðal bæjarbúa og bæj- arstjómar í garð nýrrar tilhögunar í löggæslu í Grindavík. Ljóst er að íbúar telja að verið sé að skerða lög- regluþjónustu og brjóta niður það forvarnarstarf sem unnið hefur verið í bænum með þátttöku lögreglunnar. Einng telja menn að ekki sé tekið tillit til stærðar bæjarfélagsins og uppgangs þar, auk þess sem horft sé framhjá landfræðilegri sérstöðu Grindavíkur á Suðurnesjum. Með breytingunum verður lög- regluliðið í Grindavík fært yfir í varðstofuna í Keflavík. Núverandi aðstoðaryfirlögregluþjónn í Grinda- vík mun verða áfram í lögreglustöð- inni þar og starfa sem forvamarfull- trúi. Lögregluyfirvöld á Suðumesjum telja að breytt fyrirkomulag muni bæta löggæslu í umdæminu, ekki síður í Grindavík en á öðram stöðum. Dómsmálaráðherra og ríkislögreglu- stjóri hafa tekið undir með sýslu- manninum í Keflavík og era sam- mála því að breytingar í löggæslu á Suðumesjum muni efla starf lög- reglunnar í umdæminu. Á fundinum sagðist Jón Eysteinsson sýslumaður binda miklar vonir við nýtt skipulag. „Þær meginbreytingar sem ég hef lagt áherslu á er að sólarhringsvakt verði komið á í öllu umdæminu og að löggæslu verði jafnað í umdæminu. Lögregluliðið verður sameinað í eitt öflugt lið. Fjölgað verður um tvo lög- reglumenn á vöktum en fækkað um einn í skrifstofuliði. Þá verða settar ýmsar verklagsreglur sem tengjast stjómun og miða að bættri yfir- stjóm.“ Á fundinn mættu dómsmálaráð- herra og fulltrúi rfldslögreglustjóra ásamt mörgum þingmönnum kjör- dæmisins. Mikil ólga er meðal bæj- arfulltrúa vegna málsins og sagðist Sólveig Pétursdóttir, dómsmálaráð- herra, undrast þau stóryrði sem við- höfð hefðu verið í umræðunni og taldi að þau væra ekki byggð á traustum granni. Hún sagði að þegar gerðar væra skipulagsbreytingar á starfsemi lögreglunnar væri því mið- ur sú tilhneiging oft til staðar hjá þeim sem breytingamar varða, að slá því föstu að verið sé að skerða löggæsluna. Ráðherra taldi þetta algeran mis- skilning í þessu tilvfld, enda væri það mat ríkislögreglustjóra að breyting- ar þær, sem sýslumaðurinn í Kefla- vik hefði sett fram, væra af hinu góða og ekki tfl þess fallnar að skerða þjón- ustu við Grmdvíkinga. „Era þær í fullu sam- ræmi við þá stefnu sem ríkislögreglustjóri hef- ur sett í umboði dóms- málaráðherra, að sam- nýta beri mannafla lög- reglunnar sem best með markvissari stjómun og nýtur sýslumaður trausts míns í því efni.“ Lögreglan í Grindavík lögð niður Grindvíkingar telja aftur á móti að efling löggæslu í umdæminu öllu leiði tfl skerðingar á þjónustu lögreglunnar í þeirra heimabyggð, en þar hefur verið starfrækt lögreglustöð frá 1959. Þegar bærinn fékk kaupstað- arréttindi árið 1974 varð fjárveiting til lögreglunnar í Grindavík sérstak- ur liður á fjárlögum. Árið 1992 var þessi fjárliður var settur inn í heild- arfjárveitingu til allrar löggæslu í umdæmi sýslumannsins í Keflavík. Telja Grindvfldngar að frá og með þeim tíma hafi staða lögreglunnar í Grindavík smám saman farið halioka og nú verði hún lögð niður. Hallgrímur Bogason, forseti bæj- arstjómar Grindavflcur, sagði nötur- lega staðreynd að því meira sem fólki fjölgaði í bænum virtust lögregluyf- irvöld skera niður þjónustu. „Arið 1992 var felld niður sérstök fjárveiting til lögreglunnar í Grinda- vík og hún sameinuð fjárveitingu löggæslunnar í Keflavík. Hefst þar með hið eiginlega niðurskurðar- og hnignunartímabil, sem náði hámarki þegar bakvaktir vora teknar af á síð- asta ári. Síðan stendur til að láta höggið ríða til fulls 1. mars nk. þegar lögreglan í þeirri mynd sem við þekkjum á að leggjast niður. Ég segi nei, það verður aldrei.“ I máli Hallgríms kom fram að ekki mætti gleyma því að 25 kílómetrar væra að lögreglustöðinni í Keflavík. f snjókomu og hálku gæti það síðan jafngilt helmingi lengri vegalengd. Enda væri það svo að þegar útkall ætti sér stað utan vaktatíma lög- reglunnar í Grindavík, væri lög- reglan frá Keflavík 10-20 mínútum á eftir sjúkrabifreið og slökkviliði Grindavíkiu- á staðinn. Séra Jóna Kristín Þorvaldsdóttir, sóknarprestur í Grindavík, taldi margt mæla gegn breytingum lög- regluyfirvalda. í Grindavík réði upp- gangur ríkjum óg þar hefði verið mesta íbúafjölgun á Suðumesjum á síðasta ári. Að auki hefði mörg hundrað skipverja og vertíðarfólks viðkomu í bænum tfl lengri og skemmri tíma. Grindavik hefði sérstöðu vegna stað- setningar og þyrftu bæjarbúar því að vera sjálfum sér nægir um grannþjónustu, ein þeirra væri löggæsla. „Það að líta á það sem hagræðingu fyrir Grindavíkurbæ í lög- gæslumálum að færa lögregluna frá okkur, fjarstýra henni frá Reykjanesbæ, gengur engan veginn upp. Miklu nær og brýnni þörf er að efla lög- regluna á staðnum, ekki síst með tilliti til fyrirbyggjandi þáttar löggæslunnar.“ Grindvfldngar lögðu áherslu á það í málflutningi sínum að viðvera og nánd lögreglunnar á staðnum væri mfldlvæg og að þekking lögreglunn- ar á staðháttum væri nauðsynleg. Pálmi Ingólfsson, bæjarfulltrúi, hafði áhyggjur af forvamarstarfi lögreglunnar og sagði það lykilinn að vel heppnaðri grenndarvörslu og for- vömum að borgararnir ættu greiðan aðgang að lögreglumönnunum og vinsamleg samskipti við þá. Endurskoðun efdr reynslutíma Undir lok fundarins lagði Sólveig Pétursdóttir fram tillögu sem hún sagðist vona að gæti orðið til þess að leysa þetta ágreiningsmál. „Ég geri að tillögu minni að eftir ákveðinn tíma, segjum sex mánuði, þá muni ríkislögreglustjóri gera úttekt á því hvemig þetta breytta fyrirkomulag hafi reynst og ég vfl leyfa mér að vona að menn líti á þessa tfllögu sem ákveðna lausn í þessu máli.“ Árni Mathiesen sjávarútvegsráð- herra tók undir tillögu dómsmála: ráðherra og vfldi bæta um betur. „í þeim umræðum sem fram munu fara á milli sýslumanns og bæjaryfirvalda leitist þessir aðilar við að nálgast hvor annan og finna lausn sem getur fallið að sjónarmiðum beggja, og að sú niðurstaða verði sett í reynslu- tímabil sem síðan verði skoðað að ákveðnum tíma loknum, annars veg- ar af hálfu ríkislögreglustjóra og hins vegar af hálfu bæjaryfirvalda.“ Jón Eysteinsson tók undir tillög- umar og sagðist myndu stefna að því að funda með bæjarstjómarmönnum þar sem farið yrði yfir málin fram til 1. mars. Hallgrímur Bogason taldi hins vegar nokkurra mánaða reynslutíma ekki leysa neinn vanda og vildi að fyrirhuguðum breytingum yrði frestað þar til viðunandi lausn fengist sem Grindvíkingar gætu sætt sigvið. Jón Eysteinsson, sýslumaður í Keflavík. Grunnskólafulltrúi í Garðabæ um mis- ræmi starfsdaga í nýrri skólaskipan Mannleg mistök Garðabær ODDNÝ Eyjólfsdóttir, grannskóla- fulltrúi í Garðabæ, segir það hafa verið mannleg mistök að starfsdag- ar og foreldrafundir í Hofsstaða- skóla og Flataskóla fóra ekki fram sömu daga. Foreldrar tveggja telpna, sem ekki ganga í sama skóla vegna breytinga á skólaskip- an í Garðabæ, hafa krafið bæjaryf- irvöld um greiðslu vegna vinnutaps þar sem ekki hafi verið staðið við yfirlýsingar um að samræma starf skólanna tveggja að þessu leyti. Ingimundur Sigurpálsson, bæj- arstjóri í Garðabæ, vísaði á skóla- skrifstofu bæjarins, þegar leitað var viðbragða hans við kröfu for- eldranna og skýringa á því hvers vegna sex börn, sem áttu eldri systkini í Flataskóla, fengu ekki að ganga í þann skóla þegar skóla- skipan bæjarins var breytt sl. vor og hverfi þeirra, sem áður var milli skólahverfa, var fært undir Flata- skóla. „Þetta era mistök, sem enginn hefur neitað að gangast við, og uppgötvuðust ekki hér á skrifstof- unni fyrr en í óefni var komið. Kennarar í báðum skólum vora búnir að boða foreldra skriflega til foreldraviðtala,“ sagði Oddný um það að foreldrafundir og starfsdag- ar Hofsstaðaskóla og Flataskóla féllu ekki saman þannig að for- eldrar þurftu að gera ráðstafanir í fjóra daga en ekki tvo til þess að gæta barnanna. „Við vöknuðum upp við vondan draum þegar for- eldrar vöktu athygli okkar á að þeir hefðu fengið boðanir sitthvorn daginn frá skólunum. Það var reynt að samræma þetta en það tókst ekki vegna þess hversu seint þetta uppgötvaðist, enda átti þetta ekki að verða og það var gengið út frá því að sömu dagar yrðu nýttir í báðum skólunum." Boðin þjónusta í Hofsstaðaskóla „Þetta vora mannleg mistök og til að lágmarka óþægindi fólks vegna þeirra fengu allir bréf heim þar sem sú leið var boðin, til að börnin lentu ekki á hrakhólum eða foreldrar þyrftu að taka sér frí, að sex ára börnin fengju að vera í Hofsstaðaskóla, skólanum sínum, þótt það væra foreldrafundir og starfsdagur kennara. Forstöðu- maður tómstundaheimilis skólans ætlaði að sinna þörfum barnanna og gæta öryggis þeirra. Nokkrir af þessum foreldram þágu það og hafa þakkað skólastjóra Hofsstaða- skóla, Hilmari Ingólfssyni, fyrir að gera þó það, sem hægt var að gera, til að draga úr óþægindunum. Mér þykir afskaplega miður að þau skyldu ekki geta nýtt sér þetta,“ sagði hún og vísaði þar til fjölskyldu Ásmundar Jónssonar, sem hefur krafist endurgreiðslu vegna vinnutaps, en kona hans, sem vinnur sjálfstætt, hafði afboð- að viðskiptavini sína umrædda daga þegar tflboðið barst. Að sögn Ásmundar, sem sent hefur bæjarstjórn Garðabæjar reikning upp á tæplega 35.000 krónur vegna vinnutaps sem þau hjónin urðu fyrir vegna þess að skóladagatölin vora ekki sam- ræmd, er um að ræða sex börn, sem synjað var um að fylgja eldri systkinum sínum í Flataskóla sl. haust. Um ástæður þess að ekki var tal- ið hægt að koma til móts við óskir þessara fjölskyldna segir Oddný að skólahverfi í Garðabæ hafi frá 1995 verið skipulögð í svokölluð innri svæði Flataskóla og Hofs- staðaskóla auk millisvæðis, þar sem umrædd börn búa. Sú skipan hafi byggst á skýrslu um uppbygg- ingu vegna einsetningar í ljósi áætlana um þróun íbúafjölda í bænum. „Þar er þessi skipting grundvölluð og hugmyndin er sú að þetta millisvæði sé breytilegt til að hámarka nýtingu fyrirliggjandi skólahúsnæðis, eftir því hvernig íbúafjöldinn er í innri svæðum Flataskóla og Hofsstaðaskóla,“ sagði Oddný. Uppbygging Ásahverfís Oddný sagði, að börn úr milli- svæðinu hefðu að mestu leyti farið í Flataskóla þar til síðasta haust. „Vegna uppbyggingar í Ásahverfi, þrengsla í Flataskóla og þess, að í Hofsstaðaskóla var verið að taka í gagnið fjórar nýjar stofur í þriðja áfanga skólans, lá það fyrir að þar var meira rými haustið 1999. Þetta var í samræmi við skýrsluna frá 1995 og þá stefnu, sem tekin var af hálfu bæjaryfirvalda í kjölfar henn- ar,“ sagði Oddný og sagði að það hefði verið ljóst frá 1995 að milli- hverfið yrði látið færast milli skóla- hverfa í takt við íbúaþróun. „Fólk er mjög kröfuhart um að bekkjar- deildir séu ekki stórar, sérstaklega í yngstu bekkjunum, og það hefur verið reynt að hafa bekkina eins fá- menna og fyrirliggjandi húsnæði gefur nokkra möguleika á þannig að þetta varð niðurstaðan," sagði Oddný. Ásmundur Jónsson segir að auk starfsdaga og foreldrafunda fylgi því daglegt óhagræði að hafa 6 og 9 ára gamlar telpurnar ekki í sama skóla. Um það hvers vegna breyt- ingarnar hefðu ekki verið látnar ganga yfir á nokkrum áram í stað þess að innleiða þær að öllu leyti sl. haust sagði Oddný, að séð hefði verið fram á að fólk úr hverfinu, sem ætti börn sem kæmust á skólaskyldu á næstu áram, vildi líka láta þau fara í Flataskóla. Það hafi þurft að ákveða hvenær breyt- ingarnar ættu að taka gildi, og það hefði ekki síst verið uppbygging Ásahverfis sem ýtti undir breyt- ingar sl. haust. Um það hvort Flataskóli gæti í framtíðinni sinnt 1.300 manna byggð í Ásahverfi sagði Oddný, að í upphafi hefði verið gert ráð fyrir að Flataskóli annaði Ásahverfi miðað við að millihverfið flyttist í Hofsstaðaskóla. Fellt í bæjarráði Bæjarstjórn Garðabæjar hefur áður fjallað um mál barnanna sem óskað var eftir að fengju að fylgja systkinum sínum í Flataskóla. Breytingar á skólaskipaninni voru staðfestar í bæjarstjórn í vor og eftir að kvartanir og umsóknir for- eldra um undanþágur komu fram lagði Einar Sveinbjörnsson bæjar- fulltrúi til í bæjarráði að veitt yrði undanþáta til að börnin fengju að fara í Flataskóla með systkinum sínum en ekki Hofsstaðaskóla. Bæjarráð fjallaði um málið á tveimur fundum í ágúst sl. Á fyrri fundinum gerði forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs grein fyrir sjónarmiðum sem lögð vora til grandvallar við skiptingu bæjar- ins í skólahverfi vegna skólasóknar sex ára barna og á hinum seinni kom fram í greinargerð forstöðu- manns fræðslu- og menningarsviðs bæjarins að skólastjórnendur mæltu gegn frekari fjölgun í bekkj- ardeildum sex ára barna. Með vís- an til þessa felldi meirihluti bæjar- ráðs tillöguna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.