Morgunblaðið - 05.02.2000, Blaðsíða 78
.78 LAUGARDAGUR 5. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Baldur Trausti Hreinsson leikur í verkinu Djöflunum sem sýnt er í Borgarleikhúsinu
Fj allstoppnum
verður aldrei náð
„AF HVERJU er ég dsemdur til að
trúa á þig um aldir alda? Ég get ekki
slitið þig burt úr hjarta mínu, Nikol-
aj Stavrogín. Ég mun kyssa fótspor
þín þegar þú ferð.“
Svo mælir Shatov, samferðamað-
ur Nikolaj Savrogín í leikritinu
Djöflunum eftir skáldsögu Fjodor
Dostojevskí sem nú er sýnt á fjölum
Borgarleikhússins. Skáldsagan
Djöflarnir kom fyrst út í Rússlandi á
síðari hluta 19. aldar og segir frá
ungum mönnum með háleitar hug-
myndir um framtíð lands síns. Shat-
ov, sem leikinn er af Ellerti Ingi-
mundarsyni dýrkar vin sinn og
aðalpersónu verksins, Nikolaj, líkt
og flestir þeir sem á vegi hans verða.
En hver er hann þessi máttugi mað-
ur?
Dýrkaður og dáður af öllum
„Nikolaj er mjög margbreytilegur
maður og það er erfitt að átta sig á
‘ '’því hvar hann stendur," segir Baldur
Trausti Hreinsson sem fer með hlut-
verk Nikolaj en um hann snýst allt
*
Ast, vonbrigði, vald og glæpur er meðal
þess sem Djöflar Rússans Fjodors Dosto-
jevskís fjalla um. Sunna Ósk Logadóttir
brá sér í Borgarleikhúsið og ræddi við
Baldur Trausta Hreinsson leikara sem
segir að leikhús sé ekki eintóm skemmtun,
þar eigi áhorfendur líka að þjást.
leikritið. „Þegar leikritið byrjar er
gripið niður í ævi hans þegar hann er
búinn að ganga í gegnum helvíti.
Hann kemur heim til Rússlands eftir
að hafa ferðast víða til þess eins að
drepa sig, eða þá að hann heldur í
vonina um að það sé einhver sem geti
bjargað honum.“
Nikolaj og félagar hans byija í
Sviss að ræða hugmyndir sínar um
þjóðfélagsbreytingar og koma síðan
■*-
Líttu á verðið
Canova
Rúnaöar huröir
80 cm tiiboðsverö 26.394
90 cm tilboðsverð 26.394
Adria
Sturtuhorn
70-80 cm tilboðsverð 18.585
80-90 cm tilboðsverð 19.322
Sturtuhorn 45°.
90 cm tllboðsverð 19.529
Zenith
Rennihuröir 70—112 cm
tilboðsverö frá 16.135
Hliöar 68—90 cm
tilboðsverð frá 8.811
Hert gler
Segullokun
Hurð heil opnun
tilboðsverð frá 12.749
Föst hlið
tilboðsverð frá 10.358
Boreas
Hurð samanbrotin
80 cm tilboðsverð 14.352
90 cm tilboðsverð 14.898
Orion door
Baökershurö
165-170 tilboðsverð 20.159
170-175 tllboðsverö 20.459
Gafl, tilboðsverö frá 8.167
VATNS VIRKINN ehf
heim til Rússlands tilbúnir í slaginn.
„Þetta er gömul saga og ný, sem
segja má að gerist enn um allan heim
í einhverri mynd. Litlir hópar líkt og
sá sem fjallað er um í leikritinu
spruttu víða upp fyrir byltinguna í
Rússlandi, svona eldhúshópar sem
höfðu stórar hugmyndir."
En hvernig myndi Baldur lýsa
Nikolaj ef þeir væru félagar í sam-
tímanum? „Ef ég þekkti hann í dag
þá hugsa ég að ég myndi dýrka hann,
líkt og persónur verksins gera.
Margir hafa reynt að finna fyrir-
mynd hans í Rússlandi eins og marg-
ar aðrar persónur í verkinu eiga en
án árangurs. Sumir hallast þó að því
að hann sé einna líkastur Dostoj-
evskí sjálfum."
Er hann geðsjúklingur
eða ljúflingur?
„Einhvern tímann sagði ég við
Borodín [leikstjóra] að Nikolaj væri
geðveikur en hann var ekki sammála
því heldur sagði hann ósköp eðlileg-
an, ungan mann.“
Nikolaj er óhræddur við að fram-
kvæma það sem honum sýnist og
heillar félaga sína með djúpstæðum
hugmyndum um lífið, trúna og þjóð-
félagið. „Aðrir tileinka sér
síðan hugmyndir hans en
þá snýr hann sér að öðru,
finnst hann búinn að af-
greiða þær.“
í Djöflunum er velt upp
eilífðarspurningunum um
siðferði, frelsi og trú,
spumingum sem enn er
ósvarað og því eiga Djöfl-
amir erindi til fólks í dag.
„Nikolaj veltir þessum
spumingum fyrir sér en
veit ekki hverju hann á að
trúa. Það er enginn sem getur sann-
fært hann um að Guð sé til. Er
Rússland Guð eða er maðurinn
Guð?“
Einstakt að vinna með Borodin
Baldur þekkti lítið til skáldsög-
unnar Djöflanna er hann hitti leik-
I3ICMIEGA
E-vítamín
Við máttum
aldrei þykjast,
allt sem við
sögðum á svið-
inu átti að
koma f rá hjart-
anu. Hann sá
strax ef það
var ekki þannig
Morgunblaðið/Þorkell
Baldur Trausti Hreinsson: „Ef ég þekkti Nikolaj í dag hugsa ég að ég
myndi dýrka hann, líkt og persónur verksins gera.“
stjóra verksins, Rússann Alexei Bor-
odín, í fyrsta sinn síðastliðið vor.
„Það er mjög sérstakt að vinna með
honum og einstakt tækifæri sem mér
hlotnaðist. Það var mikill skóli og
það er engin spuming að ég mun búa
að þessari reynslu til frambúðar,"
segir Baldur og lýsir að-
ferðum Borodíns á
þessa leið: „Við byrjuð-
um á því að lesa bókina
og í maí hófst vinnan
sem fólst í því að við sát-
um saman við borð og
hann [Borodín] fór í
gegnum söguna með
okkur og kynnti vel
hverja einustu persónu.
Þetta tók þrjár vikur en
svo í nóvember tókum
við upp þráðinn þar sem
810MÍ6Á
i ítamín
Sindurvari sem verndar
frumuhimnur líkamans.
Fæst í næsta apóteki.
Ármúla 21
Sími 533 2020
108 Reykjavík
Bréfsími 533 2022
Om«ga Farma
frá var horfið. Við unnum á sviðinu
frá 10. desember til 21. janúar, sem
okkur fannst kannski ekki langur
tími en ég fann að undirbúningsvinn-
an skilaði sér fljótt, vinnan á sviðinu
varð miklu auðveldari hvað textann
varðaði."
Aðferðir Borodíns má rekja til
hins áhrifamikla leikhúsmanns Stan-
íslafskí því Júrí Zavadskí var nem-
andi hans og síðar kennari Borodíns.
„Borodín fannst mikilvægast að
við lékum af ástríðu," segir Baldur
með áherslu. „Við máttum aldrei
þykjast, allt sem við sögðum átti að
koma frá hjartanu. Hann sá strax ef
það var ekki þannig. Við áttum aldrei
að flýta okkur, þá myndum við tapa
meiningunni."
Og Borodín er kröfuharður leik-
stjóri. „Að hans mati á maður að
leggja sig allan fram í leikhúsi og
aldrei að slaka á, aldrei að gera sér
vinnuna létta, sama hvaða hlutverk
um ræðir. Hann líkir því við fjall sem
maður er að klífa en það er enginn
toppur. Sumir vilja jafna fjallið við
jörðu þegar þeir eru orðnir sáttir en
það vill hann ekki sjá, við eigum allt-
af að halda áfram að klifra."
Áhorfendur eiga að þjást
Baldri er það minnisstætt er hann
gekk í fyrsta sinn inn í leikmyndina á
sviðinu en gerð hennar er í höndum
félaga Borodíns, Stanislav Benedikt-
ov sem einnig sá um búninga. „Mér
fannst ég í fyrsta sinn vera kominn
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Nikolaj Stavrogín (Baldur
Trausti) og Marja Lebjadkína
(Halldóra Geirharðsdóttir) í
hlutverkum sfnum í Djöflunum.
inn í þetta eiginlega leikhús," rifjar
hann upp. „Þetta sem maður sá á
gömlum ljósmyndum og sýningum í
sjónvarpinu frá London. Þetta sést
varla í dag.“
Djöflamir er óneitanlega átakan-
legt verk en þó er mikill húmor í því
og lífleg dansatriði og fjörleg tónlist
koma einnig við sögu. „Þetta er
spennandi saga og hún er sorgleg.
Það eru tuttugu leikarar sem taka
þátt í sýningunni og segja í samein-
ingu söguna sem er erfitt en verður
að ganga upp. Textinn er frábær en
áhorfandinn þarf að fylgjast vel með.
Svona leiksýningar verða að vera í
íslensku leikhúslífi því það eru svo
margar sýningar í gangi sem hafa
skemmtana- og afþreyingargildið að
leiðarljósi. í leikhúsi eiga áhorfend-
ur að þjást, það á ekki endilega að
vera eintóm skemmtun og allt mjög
fyndið.“