Morgunblaðið - 05.02.2000, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 05.02.2000, Blaðsíða 26
26 LAUGARDAGUR 5. FEBRÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI Hvfta húsið hlýtur verðlaun á Epica-auglýsingahátíðinni vegna herferðar fyrir Mastercard Auglýsing samofín _ vörumerki AUGLÝSINGAHERFERÐ fyrir Mastercard-kreditkort frá Europay á íslandi hlaut nýlega fyrstu verð- laun í flokki auglýsingaherferða íyr- ir fjármálafyrirtæki á evrópsku auglýsingahátíðinni Epica. Herferð- in er unnin af auglýsingastofunni Hvíta húsinu og tóku forsvarsmenn auglýsingastofunnar við kristals- píramítanum 21. janúar sl. við athöfn í Dublin. Herferð Mastercard hér á íslandi samanstendur af yfir 10 prentuðum auglýsingum sem sýna merki Mastercard í ýmsum útfærslum, hringlaga form sem skerast, annars vegar gult og hins vegar rautt. Markmiðið með auglýsingunni er að byggja upp ímynd vörumerkisins en auglýsingin er samofin því, að sögn Sverris Bjömssonar, hönnunar- stjóra Hvíta hússins, sem er í for- svari fyrir vinnuhópinn sem hannaði herferðina, ásamt þeim Stefáni Ein- arssyni, grafískum hönnuði, Þóroddi Bjarnasyni textasmiði og Halldóri Guðmundssyni, framkvæmdastjóra Hvíta hússins. Auglýsingin keppir til úrslita á annarri hátíð Á Epica-hátíðina voru sendar þrjár auglýsingar innan herferðar- innar; „Örugg samskipti“, „Gleðilegt sumar“ og „Leikur einn“. Á hinni fyrstnefndu sjást rauður og gulur smokkur mynda merki Mastercard. Þessi auglýsing hefur nú komist í úr- slit í keppninni Eurobest, en verð- launahátíð þeirrar keppni verður haldin nú í febrúar. Alls sendu sex íslenskar auglýs- ingastofur 22 auglýsingar og auglýs- ingaherferðir í Epica-keppnina í ár. Þátttaka í keppninni vex ár frá ári og alls voru innsendar auglýsingar 5.752 talsins, frá 786 fyrirtækjum í 37 löndum. Hvíta húsið hefur þrisvar hlotið viðurkenningar í Epica- keppninni, en ekki unnið til verð- launa fyrr. Þetta er jafnframt í fyrsta skipti sem íslensk auglýsinga- stofa vinnur til verðlauna á þessari hátíð. Viðræður hafnar við Europay International I samtali við Morgunblaðið segir Sverrir Björnsson, hönnunarstjóri Hvíta hússins, verðlaunin mikla við- urkenningu fyrir Hvíta húsið. „Her- ferðin er árangur hópvinnu innan Hvíta hússins og viðurkenningin gef- ur til kynna að íslenskar auglýsingar eiga fullt erindi á alþjóðamarkað." Alþjóðlega fjármálafyrirtækið Europay International hefur sýnt áhuga á að taka auglýsingar úr her- ferð Hvíta hússins til þróunar og notkunar víða um heim. Að sögn Sverris eru viðræður nú á frumstigi. „Það er of snemmt að segja til um hvort Europay Intemational kaupir herferðina eða hvort Hvíta húsið myndi leggja til starfsmenn í sam- eiginlegan vinnuhóp til að þróa út- færslur á hugmyndinni til notkunar á erlendum markaði." Hjá Hvíta húsinu er nú 21 starfs- maður. Eigendur auglýsingastof- unnar, auk Sverris, eru Halldór Guðmundsson framkvæmdastjóri, Magnús Loftsson, Hrafnhildur Júl- íusdóttir, Kristinn Ámason og Páll Bragi Rristjónsson. Sverrir segir það ekki á döfinni að erlendir fjár- festar komi að Hvíta húsinu, þrátt fyrir áhuga alþjóðafyrirtækis á auglýsingum frá auglýsingastof- unni. Tilgangur Epica að hvetja tíl skapandi starfs Andrew Rawlins er stjórnarfor- maður Epica og stofnandi keppninn- ar. Hann segir tilgang keppninnar að bæta orðspor auglýsingafyrir- tækja um alla Evrópu og hvetja til skapandi starfs alls staðar í álfúnni. Hann segir að verðlaunahátíðir eins og Epica færi fólk alls staðar að úr Evrópu nær hvert öðm og auglýs- ingar frá mismunandi löndum fái tækifæri á góðri kynningu utan heimalandsins. Rawlins stofnaði Ep- ica fyrir 13 áram en vann áður sjálf- ur í auglýsingabransanum. Hann segir það í raun merkilegt hve ís- lendingar hafi náð langt í keppninni, ekki síst þegar litið er til þess að inn- sendar auglýsingar frá Islandi eru tæplega hálft prósent af þeim fjölda Útlit hjá Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. EFTIR þriðja góða árið í röð er af- koma Nokia enn á uppleið og engar hindranir í augsýn. Eftir erfitt ár virðist Ericsson hafa sigrast á erfið- leikunum og framtíðin blasa björt við. Þetta kom fram er fyrirtækin lögðu fram ársskýrslur sínar nýlega. En meðan allir búast við öllu því besta af Nokia ríkir enn nokkur tortryggni á skrið Ericsson. Hagnaður Nokia 1999 nam 33 miHjörðum sænskra króna, um 330 HAFÐU ÞITT ÞURRU! BB - öryggi í umferð! Hjá Olís færðu alla þá þjónustu sem snýr að öryggi bílsins í umferðinni. www.olis.is Morgunblaðiö/Þorkell Halldór Guðmundsson, framkvæmdastjóri Hvita hússsins, Sverrir Bjömsson, hönnunarstjóri, Þóroddur Bjarna- son, textasmiður og Stefán Einarsson, grafískur hönnuður. „Hver einstaklingur þarf að meðaltali að vinna úr 1800 skilaboðum á dag og það dugir ekkert miðjumoð til að koma skilaboðum áleiðis!" segir Sverrir Björasson. Auglýsing úr herferð Hvíta hússins fyrir Mastercard- kreditkort: „Öragg samskipti“. Auglýsingin hefur verið valin til úrslita í Eurobest auglýsingahátíðinni. auglýsinga sem taka þátt ár hvert. „Ég held að ísland sé án efa fámenn- asta landið í Evrópu til að sigra í þessari keppni,“ segir Andrew. Hann segir að sérstaða Epica- keppninnar felist m.a. í samsetningu dómnefndarinnar en hún er skipuð 30 fréttamönnum frá jafnmörgum auglýsingatímaritum frá mismun- andi Evrópulöndum. „Þetta gerir það að verkum að dómnefndin er 100% sjálf- stæð. Maður hefúr rekið sig á það að þegar fólk sem er sjálft í bransan- um er í dóm- nefndum endar það alltaf með því að helming- urinn af vinn- ingsauglýsing- unum kemur frá þeirra eigin stofum,“ segir Rawlins. Auglýsinga- hátíðin í Cannes er að sögn Sverris hin óopinbera heimsmeist- arakeppni í auglýsingagerð. Vonast er eftir góðum árangri í þeirri keppni eins og í Evrópukeppnunum tveimur. Sérstaðan felst í einfaldleikanum Sverrir segir sérstöðu Master- card-herferðarinnar felast í einfald- leikanum. „Auglýsingarnar flytja skilaboðin með hreinum og tæram hætti og kalla á að viðtakandinn taki þátt í auglýsingunni. Markmiðið er að byggja upp ímynd vöramerkisins og auglýsingin er samofin því.“ Um tiidrög og gerð verðlauna- auglýsingarinnar segir Sverrir að hafist hafi verið handa eftir að Euro- pay á íslandi óskaði eftir því að vöru- merkinu Mastercard yrði komið á kortið með áberandi hætti. „Þeir báðu meira að segja um verðlauna- herferð!" segir Sverrir og lýsir ánægju með slíka djörfung hjá við- skiptavinum. „Það er nauðsynlegt að vera stórhuga. Hver einstaklingur þarf að meðaltali að vinna úr 1.800 skilaboðum á dag og það dugir ekkert miðjumoð til að koma skilaboðum áleiðis.“ Sverrir leggur áherslu á að öll upplýsingadreifing um samfélagið sé að breytast mjög hratt. „Ný tækni breytir landslaginu en það má ekki gleyma því að allt snýst þetta um manneskjur, burtséð frá því hvort þær fá skilaboð í dagblöðum eða á Netinu. Það era hin mannlegu sam- skipti sem gera þetta fag svo skemmtilegt." fyrir bjarta framtíð Nokia og Ericsson miljjörðum íslenskra króna, meðan hagnaður Ericsson var 16,4 milljarð- ar sænskra króna, 164 milljarðar ís- lenskra króna. Nokia er nú stærsti farsímaframleiðandi í heimi með markaðshlutdeild upp á 28,5 prósent, seldi 78,5 milljónir farsíma 1999. Næst kemur hið bandaríska Motorola með 20 prósent og loks Ericsson með tólf prósent, seldi 31 milljón farsíma. Nokia getur sýnt fram á áhrifa- miklar tölur eins og að af hveijum hundraðkrónuseðli fyrir farsíma sína renna 25 krónur til Nokia, en af far- símasölu renna aðeins 5,60 til Erics- son. En styrkur Ericsson era far- símakerfin, ekki farsímamir sjálfir, þó fyrirtækið stefni að sjálfsögðu á betrihlutþar. Erícsson á réttri leið -aðeiginsögn „Við eram á réttri leið,“ var fyrsta fullyrðing Lars Ramqvist forstjóra Ericsson, þegar hann kynnti árs- reikninga Ericsson. Ramqvist varð forstjóri eftir að Sven-Christer Nils- son var látinn hætta í júlí, þar sem honum þótti ekki hafa tekist að koma fyrirtækinu á góðan skrið. Volvo-for- stjórinn fyrrverandi ætlaði þó aldrei að sitja lengi og nú mun Kurt Hell- ström taka við af honum. Vissulega var árið í fyrra mun betra en stefndi í fram á mitt ár og síðasti ársfjórðungur sló öll met, hvort sem litið er á hagnað, veltu, pantanir eða sölu. í Svenska Dag- bladet er bent á að fyrir nokkram mánuðum hafi stjóm Ericsson sagt að í árslok myndi hafa náðst 10 prós- ent hagnaður af hveijum seldum far- síma, en niðurstaðan sé aðeins 5,6 prósent. Nú er stefnt á tíu prósent í árslok. Einnig er stefnt á að ná fyrrum markaðshlutdeild á farsímamarkaðn- um, 15 prósentum, en blaðið er van- trúað á það markmið. Hér er ekki að- eins við Nokia að keppa, sem hefur náð markaði frá bæði Ericsson og Motorola, heldur stefnir síðastnefnda fyrirtækið markvisst á að verða aftur stærst á farsímamarkaðnum. Af heildarhagnaði upp á 16,4 miHjarða sænskra króna skilaði farsímafram- leiðslan aðeins 250 milljóna hagnaði. En á símakerfamarkaðnum stend- ur Ericsson styrkum fótum, hefúr 30 prósent markaðshlutdeild þar og stefnir enn hærra. En meðan far- símaframleiðslan gengur ekki betur en raun ber vitni hefur Ericsson ekki sannað að erfiðu árin séu að baki. Nokia stefnir að 30% markaðshlutdeild Síðasta ár er þriðja árið í röð með metafkomu. Það hljómaði því sann- færandi þegar Nokia-forstjórinn, Jorma Ollila, fúllyrti að nú væri stefnt á að ná 30 prósenta markaðshlutdeild. Af hagnaði upp á 33 miHjarða sænskra króna komu 26,6 milljarðar frá farsímaframleiðslunni. Hagnaðar- hlutfall upp á 25 prósent gæti þó minnkað niður í 20 prósent, því Nokia mun vísast þurfa að lækka verðið í baráttunni um aukna markaðshlut- deild. Eins og í fleiri hátæknigeiram gæt- ir í farsímaframleiðslu skorts á hrá- efni, öllu heldur einstökum hlutum í farsíma. Fyrir því hafa bæði Motorola og Ericsson fúndið illilega, ekki Nok- ia. Með stærð sinni stendur Nokia vel að vígi í baráttunni um birgjana, auk þess sem stærðin auðveldar þeim að ná fram góðu verði. í leit að tengíngum við framtíðina Bæði fyrirtækin keppast um að vera með á nótunum þegar ekki verð- ur lengur aðeins um að ræða farsíma heldur samtengingu farsíma og Nets- ins. í Financial Times segir að fjölm- iðlakóngurinn Rupert Murdoch stjómarformaður News Corporation hafi heimsótt Nokia-menn í Helsinki og átt við þá viðræður. Ollila segir samræðumar hafa snúist um hvemig samskiptum fyrir- tækja á sviði símaþjónustu annars vegar og þeirra sem selji efni hins vegar geti verið háttað. Um hugsan- legar viðræður við America Online sagði Ollila að ekki væri óeðlilegt að þessi fyrirtæki ræddu saman, en sagði ekkert um hvort sú væri raunin.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.