Morgunblaðið - 05.02.2000, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 05.02.2000, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. FEBRÚAR 2000 49^ MARGMIÐLUN Fyrir alla fjölskylduna taka margfaldast.“ Sigurjón segir að tilboð og fyrir- spumir hafi komið víða að. „Meðal annars seldum við bíl til Danmerk- ur, það var partasali þar sem frétti af vefnum og sendi inn tilboð í vöru- bifreið. Hann flaug svo hingað dag- inn eftir og gekk frá kaupunum og til baka seinnipartinn. Tilboðin eru nú þegar komin vel á annað þúsund á viku. Ég sé fyrir mér að þeim fjölgi nokkuð á næstunni," segir Sigurjón. Sigurjón segir að fyrir fæmi tæknistjóra vefjarins, Sigurjóns H. Ingólfssonar, gangi breytingar og þróun hratt fyrir sig og þannig megi svara óskum notenda mjög fljótt. „Við höfum stundum heyrt frá tilboðsgjöfum að þeir muni ekki í hvaða bíla og hversu hátt þeir buðu. í síðustu viku opnaðist sá möguleiki fyrir þá sem hafa aðgang að Tryggingabankanum að sjá sín tilboð og sína stöðu gagnvart út- boðinu. Þá erum við að vinna að WAP-útgáfu vefjarins í samvinnu við Tölvumyndir og þá geta menn boðið í og skoðað stöðu útboðsins á símanum sínum.“ Lucas Leaming, dótturfyrirtæki leikja- og kvik- myndarisanns Lucas Arts í eigu Georges Lucas, gaf nýlega út nýjan púslleik fyrir yngri kynslóðina. Leik- urinn ber heitið Pit Droids og er í tvívídd. í PIT Droids, sem byggist á figúrum úr Star Wars-heiminum, taka spilendur sér hlut- verk skipuleggjanda sem þarf að koma þús- undum viðgerðarvél- menna frá geimskipi í gegnum málun og til Pod-Race-vallar þar sem þeir eiga að vinna. Vandamálið er að vél- mennin hlýða bara skipunum frá sérstöku segulsviði í jörðinni og þar sem slíkir segulf- letir eru af skornum skammti á Tatooine, þar sem leikurinn ger- ist, er mjög snúið að koma þeim á rétta staði. Grafík leiksins er með ágætum þótt hún sé ekki mikilvægasti hluti hans. Hægt er að stækka hluta skjásins og minnka og fylgastvel með hvar vélmennin rekast hvert á annað og brotna í litla bita. Betra gæti það varla verið. Tónlist og hljóð leiksins eru frábær, þó sérstaklega tónlistin. Flottar fönk-djass ballöður halda spilendum í réttu stemmningunni í marga klukkutíma og þar sem leikurinn hefur meira en þrjú hundruð borð er best að byrja ekki að spila seint á kvöldin. Pit Droids er afar flottur leikur og helst fyrir þá sem hafa nóg af frítíma. Ef leikurinn sjálfur klárast einhverntímann er einnig hægt að búa til sín eigin púsl sem geta verið eins stór og spilandinn telur að hann ráði við. Einnig er hægt að spila hann yfir Netið og þó þarf ekki mjög hratt módem tíl. Fyrir alla þá sem hafa gaman af púsl- eða ævintýraleikjum gæti Pit Droids ekki verið betri. Greinarhöfundur hefur sjálfur aldrei haft mjög gaman af púslleikjum, ekki fyrr en hann prófaði þennan. Leikur sem er vel peninganna virði og passar fyrir alla fjölskylduna. Ingvi M. Árnason Sjóvá-Almennar 'iafa rekið um tíma útboðsvef á slóðinni www.sjova.is/ forvam- ir_og_tjon/ tjonabil- ar.HTM, en þar eru haldin útboð á tjónabflum yfir vefinn í hverri viku. Myndir eru birtar af bflunum frá öll- um sjónarhomum og geta menn gert tilboð í bílana hvað- anæva úr heimi sem er. Vefn- um hefur verið vel tekið og berst vel á annað þúsund til- boða í bfla á viku hverri. Um- sjónarmaður útboðsvefjar Sjó- vár-Almennra heitir Sigurjón Andrésson og er reyndar lærður bakari, fimmti ættliður bakara í fjölskyldunni að hann segir. „Það má því kannski segja að ég sé að svíkja lit með því að halda mig ekki við baksturinn,11 segir Sigurjón og bætir við að hann hafi ekki verið mikið að velta Netinu fyrir sér fyrr en hann byrj- aði hjá Sjóvá-Almennum fyrir tveimur árum. Sigurjón segir að hugmyndin að útboðsvefnum hafi kviknað hjá Sig- urði Emi Karlssyni, deildarstjóra hjá Sjóva-Almennum, fyrir tveimur ámm. í upphafi hafi vefurinn verið skipulagður og settur saman í sam- vinnu við Intranet, en nánast ein- göngu er stuðst við Microsoft-lausn- ir. Vinnan við vefinn gekk hratt fyrir sig og þá strax um vorið var hægt að bjóða í bfla á vefnum. Sigurjón segir að aðsóknin hafi ekki verið neitt sérlega mikil framan af, en þó hafi nokkuð stór hópur fólks notað vefinn í upphafi og ekki skipt minnstu að nú sátu notendur af landsbyggðinni við sama borð og borgarbúar. „Þegar Sjóvá-Almenn- ar opnuðu svo nýjan vef í júlí var mikil vinna lögð í bifreiðaútboðssíð- una. Síðan þá hefur umferð og þátt- Bflaútboð á N etinu LEIKIR afík vopnum sínum og fara svo út í erfiðari verk- efni. Því miður er þetta ekki alveg svo einfalt, , spilendur verða að kaupa sérstök mynda- kort með stigum sem fást fyrir hvert klárað verkefni. Hljómar einfalt en það er galli á gjöf Njarðar; engin leið er til að vita hvort maður fær nýtt borð eða bara einhverja mynd af persónum leiksins. Oft kemur það fyrir að spilendur eyða öllum stigunum sín- um í eitthvert rugl og þurfa svo að klára sömu borðin aftur og aftur til að safna stig- um upp á nýtt. Grafikin í Soul Calibur er ótrúleg. Þegar leikurinn kom fyrst út komst enginn annar leikur nálægt honum í grafík en hugsanlega hefur hann verið sleginn út nú þegar önnur kynslóð Dreamcast-leikja er að koma út. Fá mynd- bönd eru í leiknum en þau sem eru til staðar líta út eins og bíómyndir, ekki eitthvað sem _ var teiknað. Það er eiginlega ekki hægt að kvarta yfir hljóðinu í leiknum þrátt fyrir ótrúlega leið- inlega tónlist, öll bardagahljóð eru flott og vel gerð. Þótt Soul Calibur hefði mátt vera miklu fjölbreyttari er hann samt einn af flottustu og bestu bardagaleikjum til þessa. Þeir sem fíla bardagaleiki virkilega mikið ættu þó að bíða frekar eftir Tekken Tag Tournament og spila þennan bara í búð- inni. Ingvi M. Árnason« Otriil Calibur og er slagsmálaleikur í þrívídd. Minniskort er nauðsynlegt til að komast áfram í leiknum. SOUL Calibur er í raun framhald hins geysivinsæla Soul Edge, slagsmálaleiks sem gefinn var út fyrir bæði PlayStation og Sega Saturn á sínum tíma. Söguhetjur leiksins eru flestar þær sömu og voru í Soul Edge en þar sem Namco ákvað að blanda saman bestu þáttum bæði Tekken 3 og Soul Edge má einnig finna persónur eins og Yoshimitsu og Hworang sem hefur þó ver- ið breytt töluvert. Ólíkt Soul Edge er sögu- þráðurinn ótrúlega flókinn og í raun er engin leið til þess að vita hvað er í gangi fyrr en leikurinn hefur verið spilaður heillengi. Vandamálið við flesta slagsmálaleiki er að þeir eru ekki nógu fjölbreyttir. Oftast ýtir fólk bara á alla takkana þangað til stóra skrímslið í lokin er unnið og svo þegar það er búið að gera það sama með öllum persónum leiks- ins er leiknum ýtt undir næstu hillu og honum gleymt. Soul Calibur og Soul Blade fóru aðra leið en venjulega í að reyna að lengja endingu leiksins með því að höfða til æv- intýraþrár fólks og bættu við nokkurn veg- inn hlutverkaleiksanda í allt saman, Spilendur verða að byrja í þjálf- un þar sem þeir læra grundvallaratriði LEIKIR Namco, einn stærsti og besti leikjaframleið- andi í heimi, gaf út frumraun sína fyrir Dreamcast-tölvu Sega-fyrirtækisins ílok síðasta árs. Leikurinn ber heitið Soul
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.