Morgunblaðið - 05.02.2000, Blaðsíða 62

Morgunblaðið - 05.02.2000, Blaðsíða 62
^2 LAUGARDAGUR 5. FEBRÚAR 2000 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ CE-merkið tryggir óheftan markaðs- aðgang og öryggi AÐ VARA teljist lögleg á markaði Evrópska efnahags- svæðisins (EES) getur oltið á því að hún sé merkt með CE-merk- inu. Þar sem Island til- heyrir EES á þetta 'einnig við hérlendis, hvort sem um er að ræða íslenskar fram- leiðsluvörur eða inn- fiuttar. Framleiðendur og innflytjendur ættu að huga að þessum málum; ganga úr skugga um hvort vörur Hjörtur sem þeir flytja inn eða Hjartarson framleiða fyrir markað Evrópska efnahagssvæðisins eigi að bera CE-merkið eða ekki. Viðskiptahindrunum rutt úr vegi Forsaga málsins er sú að árið 1985 tók Evrópusambandið upp —nyja aðferð til að ryðja úr vegi tæknilegum viðskiptahindrunum á Evrópska efnahagssvæðinu. Hindr- anirnar fólust í því að mismunandi reglur og staðlar giltu í hverju Evrópulandi fyrir sig og þurftu framleiðendur að laga vörur sínar að mismunandi kröfum eftir því til hvaða lands vörurnar voru seldar. Samkvæmt „nýju aðferðinni" sem svo hefur verið kölluð (á ensku The New Approach), gefur Evrópusam- bandið út tilskipanir sem skylda er a^að lögleiða í öllum ríkjum EES. Þegar hefur verið gefin út 21 til- skipun yfir jafnmarga vöruflokka en þeim kemur til með að fjölga smátt og smátt. Tilskipanimar hafa að geyma ófrávíkjanlegar grunn- kröfur um að varan sé örugg í notk- un og valdi hvorki heilsutjóni né umhverfisspjöllum. f mörgum til- vikum er síðan vísað í samræmda Evrópustaðla um nánari útfærslu á kröfunum. Kjarni hinnar nýju aðferðar felst annars vegar í skýrum leikreglum og ábyrgð framleiðenda og hins vegar öryggi neytenda og umhverf- is. Beri vara CE-merki, þ.e. upp- fyllir allar kröfur viðeigandi tilskip- unar, er hægt að markaðssetja hana “T.indrunarlaust á öllu Evrópska efnahagssvæðinu. Samræmismat Fyrsta skrefið er að athuga hvort vöruna þurfi yfirhöfuð að merkja með CE-merkinu, þ.e. hvort varan falli undir einhverja af tilskipunun- um. Sé svo, er mismunandi hvemig ber að sýna fram á samræmi við kröfur tilskipunar eftir því um hvaða vöru er að ræða. í mörgum tilfellum getur framleiðandi séð um samræmismatið sjálfur. Hann met- ur þá áhættu af notkun vörunnar og gefur út yfirlýsingu um að hún sé í samræmi við ákvæði tilskipunarinn- ar. Síðan setur framleiðandinn CE- --»merki á vöruna. í öðrum tilvikum er þess krafíst að varan sé prófuð, skoðuð eða vottuð af óháðum aðila. Þeir sem stunda prófanir, skoðanir og vottun eiga að fullnægja ákvæð- um Evrópustaðla um samræmis- mat. Stjómvöld tilkynna fram- kvæmdastjórn ESB eða EFTA-skrifstofunni í Brussel hverjir fullnægja þessum kröfum í landi sínu og eru þeir kallaðir „til- nefndir aðilar“. Með þessu móti á að skapa það gagnkvæma traust sem er nauðsyn- legt til að prófanir, skoðanir og vottanir í einu landi séu viður- kenndar í öðrum lönd- um sambandsins. Upplýsingar hjá Staðlaráði Fyrirspurnum um CE-merkingar hefur fjölgað mjög, enda um stórmál að ræða fyrir framleiðendur og inn- flytjendur. Hjá Staðl- aráði hefur því verið tekið saman upplýs- ingarit um CE-merk- ingar. Jafnframt verður farið af stað með námskeið um CE-merk- ingar og vélatilskipun Evrópusamb- Staðlar Hjá Staðlaráði hefur því verið tekið saman upp- lýsingarit, segir Hjörtur Hjartarson, um CE- merkingar. andsins í þessum mánuði, sérstak- lega sniðið að vélaframleiðendum og innflytjendum véla. Fjallað verð- ur um ábyrgð framleiðenda og inn- flytjenda, ávinninginn af CE-merk- ingu og tilgang, vélatil-skipunina, CE-ferlið, prófanir, vottanir, skoð- anir og fleira. Markmiðið námskeiðsins er að gera þátttakendur færa um að greina hvort vara falli undir vélat- ilskipun Evrópusambandsins og hvernig á að bera sig að við að CE- merkja slíka vöru. Höfundur er kynningarstjóri Staðla- ráðs fslands. Þankagangur frá Danaveldi EFTIR að hafa fengið á síðustu árum fregnir _af hóflausri eyðslu íslendinga, á tímum góðærisins, hef ég oft hugleitt hversu mikill munur sé á hugsunarhætti þess- ara náskyldu þjóða, Dana og íslendinga. Auðvitað er þetta al- hæfing en þó er ég viss um að þarna sé að finna grundvallarmun. Munur sem lýsir sér í nægjusemi Dana og eyðslusemi íslend- inga. Aftur alhæfing en sannleikskornið er þar samt að finna. Dönsk vinkona mín sem dvaldi á íslandi í tvö og hálft ár og kunni sérdeilis vel við sig þar sagði að það væri gaman að velta fyrir sér hvernig Danir annars vegar og ís- lendingar hins vegar hugsuðu um peninga. Máli sínu til stuðnings sagði hún að hún væri nú alveg viss um að ef hún gæfi íslendingi mil- ljón þá væri eins víst að hann færi strax og eyddi peningunum í al- gjöran lúxus en hins vegar ef hún gæfi Dana sömu upphæð, væri það nánast öruggt að hann færi í ferða- lag og nyti lífsins á hófsaman hátt en stærsta hluta milljónarinnar myndi hann setja í banka og ávaxta peningana skynsamlega. Þannig væri bræðrunum best lýst, eyðslu- semi annars vegar og hófsemi hins vegar. A þessum árum sem við höfum búið hér í Danaveldi, höfum við eins og gefur að skilja átt mikið af vin- um sem farið hafa og komið frá ísl- andi á sumrin og á hátíðum. Öllum finnst gott að koma til föðurlands- ins og hitta þar vini og ættingja og njóta alls þess góða sem ísland hef- ur upp á að bjóða og það er nú ekk- ert lítið. Margir tala um söknuð og trega og er það hið eðlilegasta mál þegar maður býr svona langt frá þeim sem kærastir eru manni. En þó finnst mér allir hafa haft á því orð hvað Island hafi breyst mikið síð- ustu 3-4 árin. Allt er svo flott, svo flott, hraðinn svo mikill og stressið ógnvænlegt, fólk svo flott í klæða- burði og bílarnir á göt- um Reykjavíkurborg- ar nánast „allir“ nýir. Já, og ekki má gleyma umferðinni í Reykja- vík, það er svo langt Margrét síðan það var pláss á Þráinsdóttir götunum fyrir alla þessa bíla sem fólk er búið að sanka að sér, en það er nú önnur saga. Enginn hefur tíma fyr- ir neitt nema að vinna enda ekkert skrýtið þegar fólk er búið að fjár- festa í nýju húsnæði þar sem allt þarf að vera svo flott og pottþétt. Nýr bfll, eða öllu heldur nýir bílar, og öll hugsanleg tæki og tól og lífs- þægindi þurfa að vera til staðar. Það þarf jú að standa undir þess- um flottheitum en það getur reynst mörgum erfitt. Allt er svo slétt og fellt á yfirborðinu en á bak við tjöldin er oft allt á lánum og mikil vanlíðan hjá lántökunum. Já, og ekki gleyma börnum lántakenda, þau eru örugglega ekki öfundsverð í sínum fínu og flottu merkjafötum með gemsann í vasanum ef þau þyrftu nú að heyra í foreldrunum sem aldrei eru heima. Þau sjá eðli- lega minnst af foreldrunum sem þeytast úr einni vinnunni í aðra, yf- irvinnunni og svo má lengi telja. Allt til að þéna peninga, meiri peninga, þvi það er svo dýrt að draga andann á íslandi. Ég veit ekki hverjum þetta á að þjóna, þetta gagnar ekki börnun- um, svo mikið er víst. Þau verða ekki ánægðari við að búa við þessar allsnægtir, þetta lífsgæðakapp- hlaup nærir ekki sálartetur þeirra þótt síður sé. Það sem þau óska er Þjóðfélag Margir hafa haft á því ----------7----------- orð hvað Island hafí breyst mikið síðustu 3-4 árin. Margrét Þráins- dóttir skrifar hér um eyðslusemi og nægju- -------7-------------- semi, Islendinga og Dani. samvera við foreldrana, minna stress og meiri tími til að njóta lífs- ins saman. Auðvitað er ástandið víða svona hér í Danmörku, ekki dettur mér í hug að halda að þetta sé algjört sæluríki en hins vegar er þjóðfélagið þannig byggt upp að fólk á þess kost að geta verið með börnunum sínum og er ekki neytt til vinnuþrælkunar. Fólk á val og þar liggur munurinn á þessum ann- ars skyldu þjóðfélögum. Danmörk er einfaldíega fjölskylduvænna þjóðfélag, vænna á þann hátt að fólk getur lifað þokkalegu lífi á venjulegum tekjum, en það er víst ekki hægt á landinu fagra, íslandi. Ekki kemur mér til hugar að vera með einhverja dómhörku og setja mig á háan hest og dæma þetta þjóðfélagsmynstur sem skap- ast hefur á íslandi; það velur hver fyrir sig hvernig hann vill lifa lífinu, svo einfalt er það. Hins vegar get ég ekki að því gert að mér finnst kominn tími til að staldra aðeins við og leita ann- arra verðmæta en þessara efnis- legu sem hvort eð er færa manni ákaflega skammvinna sælu. Leiðin- legt ef fólk uppgötvar það alltof seint! Höfundur er móðurmálskennari og túlkur í Árósum. Kostnaður af tannlækning- um barna Útgjöld þjóðarinnar til tannlækninga barna ___________árin 1983-1998 Útgjöld Tryggingastofnun ríkisins Útgjöld p heimilanna UTGJÖLD þjóðar- innar til tannheilsu- mála barna er unnt að meta út frá útgjöldum Tryggingastofnunar ríkisins og teikna má upp það súlurit sem hér fylgir. Hver súla táknar útgjöld þjóðar- innar til tannheilsu- gæslu barna það árið. Fyrir árið 1990 eru súlurnar heilar og tákna samanlögð út- gjöld TR og sveitarfé- laganna. Eftir árið 1990 skiptast súlurnar í tvennt því þá var hluta kostnaðarins við á Sigurður Rúnar Sæmundsson m Stórhólda 17, við Citillinbní, simi SC>7 4844. wvvw.llisC" fíis.is • nclfang: fíisC''itn.is ÉSP 3 hreinsunin sími 533 3634, gsm 897 3634 Allan sólarhringinn. tannheilsugæslu barna velt yfir heimilin og endur- greiðsla til foreldra lækkaði úr 100% í 75%. Stærð súlnanna er leiðrétt fyrir verð- bólgu. Hver súla táknar því aurana sem fór úr þjóðar- buddunni til tann- heilsugæslu barnanna okkar það árið. Súluritið sýnir að útgjöld voru um miðj- an níunda áratuginn nokkuð stöðug og á ári voru þau um 900 milljónir á núvirði. Kostnaðurinn fór síðan hækkandi eftir miðjan níunda áratuginn og náði hámarki árið 1989. Þeir sem sinna tannheilsumálum vita að það sem þarna gerðist var átak í vörn- um gegn tannskemmdum. Tann- verndarsjóður var efldur, ráðinn var tannlæknir í heilbrigðis- og tryggingaráðuneytið, tannlæknar flúorpensluðu tennur meira en áð- ur, skorufyllur tanna voru auknar mikið og fleiri börn komu til tann- læknis en áður. Þjóðin gerði skurk '83 '84 '85 '86 '87 '88 '89 '90 '91 '92 '93 '94 '95 '96 '97 '98 Tannvernd Hægt er að sýna svart á hvítu hvernig varnir gegn tannsjúkdómum spara þjóðinni fé, segir Sigurður Rúnar Sæ- mundsson. Þjóðin spar- ar með tannvernd. í sínum málum og forvarnir voru auknar. Árangurinn lét ekki á sér standa. Kostnaðurinn við tann- heilsugæslu barna lækkaði á næstu átta árum um helming! Bókhaldarar þjóðarbuddunnar sjá á þessari mynd að varnir gegn tannátu borga sig og það fljótt. Þeir sem skynsamlega um aurana halda munu því vilja leggja aukna áherslu á varnir gegn tann- skemmdum en ekki takmarka varnirnar. Framtíðin björt eða svört? Á næstu árum ræðst hvort við náum að standa meðal nágranna- þjóða okkar í tannheilsu. Heil- brigðisyfirvöld verða nú að horfa langt fram á veginn og setja stefn- una á þá lausn sem gagnast mun best börnum landsins, varnir gegn tannsjúkdómum. Höfundur er tannlæknir, MPH, PhD.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.