Morgunblaðið - 05.02.2000, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 05.02.2000, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 5. FEBRÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Búið að fanga um tuttugu ketti í átaki Reykjavikurborg-ar Kettimir sem fangaðir hafa verið eru fluttir í Kattholt. Píanó- tónleikar í dag í DAG, laugardaginn 5. febr- úar, heldur píanóleikarinn Martino Tirimo einleikstón- leika í íslensku óperunni klukkan 14.30. Tónleikarnir eru haldnir á vegum íslandsdeildar EPTA, Evrópusambands píanókenn- ara, og eru á dagskrá menn- ingarborgar Reykjavíkur. A efnisskrá eru píanósónöt- ur op. 7 og op. 109 eftir Beet- hoven og allar 24 prelúdur Chopin op. 28. Sunnudaginn 6. febrúar heldur Tirimo námskeið fyrir píanónemendur í sal Tónlist- arskólans í Reykjavík kl. 10- 18. BÚIÐ er að fanga um tuttugu ketti í tengslum við átak hjá Reykjavíkur- borg sem miðast að því að fækka flækingsköttum í borginni. Flestir kattanna, sem fangaðir hafa verið, eru hins vegar heimiliskettir og hafa eigendur kattanna getað vitj- að þeirra í Kattholti. Guðmundur Bjömsson, verk- stjóri hjá Meindýravöraum Reykja- víkurborgar, segir að samanlagt hafi starfsmenn Meindýravama eytt um tveimur sólarhringum í kattaátakið sem hófst um mánaða- mótin. Flytja þeir sig um set á mánudaginn og leita fanga í mið- bænum en meiningin er að eyða viku í hverju hverfi borgarinnar. Auglýst var á sínum tíma í dag- blöðum að efna ætti til átaksins og Guðmundur sagði það von manna að fólk gegndi þeim tilmælum að hafa heimilisketti inni við á meðan átakið varði. Þeir kettir sem rötuðu í búr meindýravamarmanna væm nefni- lega álitnir flækingsdýr og undan- Oftast um merkta heimilis- ketti að ræða tekningalaust fluttir í Kattholt. Hitt sagði Guðmundur vera ann- að mál að margir sem týnt hefðu köttum sínum undanfarin misseri vonuðust til að þeir kæmu í leitirn- ar í þessu átaki. Því væri allt eins líklegt að átakið skilaði mörgum villtum kettinum til sinna heima- húsa. Aðspurður sagði Guðmundur þau mótmæli, sem nokkuð hefur borið á vegna átaksins, ekki snerta sig Morgunblaðið/Þorkell beint. Ákveðið hefði verið af yfir- völdum borgarinnar að efna til þessa átaks og hann framfylgdi ein- faldlega því starfi sem honum hefði verið falið þar til annað væri ákveð- ið. Verður vonandi til þess að fólk hugsi betur um ketti sína Sigríður Heiðberg, forstöðumað- ur Kattholts, upplýsti í samtali við Morgunblaðið að meirihluti þeirra dýra sem fönguð hefðu verið væru merktir heimiliskettir. Sagði hún að fólk hefði verið beðið um að hafa ketti sína inni við en allur gangur væri á því hvort eftir því væri farið. Hún sagði ekki síst verið að hugsa um að fanga þá ketti sem væru í reiðileysi, hefðu týnst að heiman og enginn hirti um. „Ég hefði aldrei gengið að þessu nema af því ég hef trú á því að þetta skili því að fólk fari að merkja kettina sína og hugsa betur um þá. Annars hefði ég ekki tekið þátt í þessu,“ sagði Sigríður. Niðurstöður umfangsmikillar könnunar á náttúru Hvalfjarðar kynntar Mengun á Grundartanga undir viðmiðunarmörkum ÁHRIF frá iðnaðarsvæðinu á Grundartanga á umhverfið er und- ir þeim viðmiðunarmörkum sem gilda og ekki verður vart neinna neikvæðra áhrifa á þá umhverfis- þætti sem voru skoðaðir. Þetta er meginniðurstaðan í umfangsmikl- um rannsóknum á náttúru Hval- fjarðarsvæðisins sem Norðurál hf. og íslenska járnblendifélagið hafa staðið að frá því á miðju ári 1997 í samráði við Hollustuvernd. Niðurstöðurnar voru kynntar á fyrsta umhverfisdegi Norðuráls sem var í gær, einu ári eftir að gangsetningu kera álversins lauk. Rannsóknirnar hafa verið fram- kvæmdar af Iðntæknistofnun, Raunvísindastofnun, Náttúrufræð- istofnun, Rannsóknastofnun land- búnaðarins, Rannsóknastöðinni að Keldum og Verkfræðistofunni Vistu hf. Markmið rannsóknanna var að fá samanburð við rannsóknir sem gerðar voru áður en starfsemi ís- lenska járnblendifélagsins hófst og við upphaf rekstrar þess, að skoða stöðu umhverfisins áður en verk- smiðja Norðuráls tók til starfa og í framhaldi af því að vakta umhverf- isþætti sem tengjast rekstri á iðn- aðarsvæðinu. Tómas M. Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri tækni- og umhverf- issviðs Norðuráls, segir að fylgst verði með mengun í lofti, gróðri, vatni og búfénaði svo lengi sem ál- verið verður starfrækt. Hann segir að engin náttúruleg uppspretta flúors sé á svæðinu og því mátti búast við aukningu flúors í lofti þegar Norðurál var gangsett og einnig við frekari stækkanir ál- versins. í niðurstöðum umhverfisrann- sóknanna segir að rannsóknir í lofti sýni að iðnaðarsvæðið á Grundartanga sé aðaluppspretta brennisteinstvíoxíðs og flúors á því svæði þar sem rannsóknirnar voru gerðar en jafnframt sé Ijóst að meginuppspretta svifryks er ekki á iðnaðarsvæðinu heldur utan þess. Niðurstöður rannsókna á fer- skvatni sýni að ekki hafi orðið aðr- ar breytingar á styrk flúors, brennisteins og klórs en þær sem fylgja eðlilegri sveiflu vegna ár- stíða. Þó hafi orðið tímabundin aukning í flúorstyrk næst iðnaðar- svæðinu í júní-ágúst 1998 þegar verið var að hefja gangsetningu ál- vers Norðuráls. VMSI vísar viðræðum til sátta- semjara SAMNINGANEFND Verkamanna- sambandsins og Landssambands iðnverkafólks hefur ákveðið að vísa kjaradeilum samtakanna við Samtök atvinnulífsins til ríkissáttasemjara. I bréfi samninganefndar samtakanna til sáttasemjara segir að þetta sé gert til að koma á markvissum og skipulögðum vinnubrögðum við samningsgerðina. Samninganefndin sé með þessu að stuðla að því að samningar geti náðst á sem skemmstum tíma. Samninganefndir VMSÍ og Sam- taka atvinnulífsins hittust í gær hjá sáttasemjara. Bjöm Grétar Sveins- son, formaður VMSÍ, segir að lítið hafi gerst á fundinum. Búið sé að skipa starfshópa til að skoða einstök mál, en eiginleg samningavinna sé rétt að hefjast. Það liggi þó fyrir að mikið beri í milli. Formannafundur VMSÍ og LÍ, sem haldinn var í síð- asta mánuði, gerði sérstaka sam- þykkt um að hafi samningaviðræður ekki skilað árangri fyrir 10. mars verði samninganefndinni falið að undirbúa aðgerðir til að þrýsta á vinnuveitendur. Björn Grétar sagði að við þá dagsetningu yrði staðið. Til að hægt sé að boða verkfall verður kjaradeilunni að hafa verið vísað til sáttasemjara og hann verð- ur að hafa gert tilraun til sátta. Þeg- ar sáttatilraun hefur reynst árang- urslaus getur stéttarfélag lagt tillögu um verkfallsboðun fyrir fé- lagsmenn. Ekki er lengur um það að ræða að félagsmenn geti veitt stjóm eða samninganefnd heimild til verk- fallsboðunar. Eftir breytingar á vinnulöggjöfinni, sem gerðar vom 1996, verður tillaga um verkfallsboð- un að fela í sér tiltekna dagsetningu um upphaf verkfalls. ----------------- Tuttugu tvígengisbíl- ar á leið til landsins TUTTUGU bílar sem geta bæði brennt metangasi og bensíni koma til landins á næstu vikum. Olíufélag- ið hefur ákveðið að setja upp dreif- ingarbúnað fyrir metangas á bensín- stöð íyrirtækisins við Bíldshöfða í Reykjavík á næstunni og segir Og- mundur Einarsson, framkvæmda- stjóri Sorpu, að þar með hafi skapast forsenda fyrir almenning að reka bíla sem ganga fyrir metangasi. Bílarnir sem koma til landsins eru af gerðinni Volkswagen. Sorpa hf- hefur ákveðið að kaupa tíu bíla, Efnamóttakan hf. tvo, Reykjavíkur- borg tvo og tveimur er óráðstafað. Ögmundur segir að bílarnir geti bæði gengið fyrir bensíni og metan- gasi. Þegar gasið sé búið taki bensín- ið við. Um sé að ræða gamla tækni sem hafi fyrst verið þróuð í seinna stríði. Nú séu um tvær milljónir bfla af þessari gerð í notkun í heiminum- Sorpa hefur um skeið safnað gasi á urðunarsvæði fyrirtækisins á Álfs- nesi. Fram að þessu hefur gasinu verið brennt, en nú hefur verið ákveðið að nýta það sem orkugjafa. í dag em þessir bílar um 500 þús- und krónum dýrari en venjulegir bíl- ar. Geir H. Haarde fjármálaráðherra lagði í gær fyrir ríkisstjórn frumvarp um breytingu á lögum um vörugjald af ökutækjum. Frumvarpið snýst um að lækka vörugjald á tvíorka bílum, en það eru umhverfisvænir bílar sem geta notað annað eldsneyti en bens- ín. Frumvarpið kveður á um að vör- ugjaldið verði áfram hið sama en tvíorka bílar fá 120 þúsund króna af- slátt af því. Ögmundur segir að þetta þýði að bílarnir verði eftir breyting- una u.þ.b. 300 þúsund krónum dýrari en bensínbílar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.