Morgunblaðið - 05.02.2000, Blaðsíða 48
MÓRGUNBLAÐIÐ
•\Í8 LAUGARDÁGUR 5. FEBRÚAR! 2000
MARGMIÐLUN
't
Nýir Intel-örgjörvar
Ford gefur
starfsmönn-
um tölvur
STÓRFYRIRTÆKI vestan
hafs treysta æ meir á rafræn
samskipti við starfsmenn sína
og meðal annrs miðla þau upp-
lýsingum yfir Netið í æ ríkari
mæli, enda er það ódýr og
skilvirk leið. Til að bæta enn
sambandið við starfsmenn sína
hefur Ford bflaframleiðandinn
ákveðið að gefa öllum stars-
fmönnum sínum tölvur og gefa
þeim kost á óýrri netttengingu.
Starfsmenn Ford um allan
heim eru um 350.000 og býðst
að fá gefins tölvu frá Hewlett-
Pacard og prentara að auki. Til
viðbótar gefst þeim síðan kost-
ur á nettenginu sem kostar um
400 kr. á mánuði. Byrjað verðu
á að tölvuvæða starfsmenn
Fords í Bandaríkjunum, en ön-
ur lönd fylgja í kjölfarið innan
skamms.
Tölvumar verða 500-Mhz
Celeron örgjörva, 64 MB innra
minni, 4,3 GB hörðum disk,
geisladrifi 15" skjá og mótaidi.
Með í netpakkanum er vef-
svæði fyrir hvem og einn með
10 MB rými.
Aldrei ganga örgjörv-
ar of hratt, eins og
þeir þekkja sem á
annað borð fást við
tölvur. Undanfarið
hefur hraðvirkasti ör-
gjörvi á markaði ver-
ið 700 MHz Athlon
frá AMD, en þó Intel
hafí einnig kynnt slík-
an örgjörva er erfítt
að komast yfír hann.
Intel er aftur á móti
ekki á því að leggja
árar í bát og kynnir
miðvikudag nýjar
gerðir örgjörva sem
sumir keyra á 1.000
MHz hraða eða 1
GHz.GHz örgjörvi
Intel kallast Willa-
mette og er meðal
annars ætlaður í
vinnustöðvar, en í heimilistölv-
umar fara örgjörvar sem kallast
Timna. Þriðji örgjörvinn sem Int-
el hyggst kynna við þetta tæki-
færi er svo Itanium, sem kemur í
stað Xeon og er fyrir vefþjóna og
álfka þungavinnuvélar. Willamet-
te og Timna eru 32 bita en Itan-
ium 64 bita.
Fyrstu gerðir Willamette verða
vel yfir GHz að sögn talsmanns
Intel en gagnavinnsla verður
einnig hraðari vegna endur-
skipuiagningar gagnabrauta, sem
era 128 bita og þannig keyrir
kerfisbrautin á 200 MHz. Ór-
gjörvinn er því nokkuð frábrugð-
inn Pentium III en að sögn keyrir
hann nánast allan sama hugbún-
að. Willamette verður framleidd-
ur á 0,18 míkróna flögu með 423
pinna, sem er heldur fleiri pinnar
en á núverandi örgjörvum. Nýtt
gjörvasett verður kynnt um svip-
að leyti sem styður viðbætur í ör-
gjörvanum og kallast Tehama.
Fyrstu Timna örgjörvamir
verða 600 MHz.
Eins og getið er er Itanium,
sem áður kallaðist Merced, 64
bita örgjörvi og all frábrugðinn
fyrri örgjörvum Intel. Tölvufróðir
hafa gert því skóna að útbreiðsla
hans eigi eftir að vera hæg og 64
bita örgjörvar frá Intel ekki ná al-
mennum vinsældum fyrr en næsti
slíki örgjörvinn, McKinley, kemur
á markað á næsta ári. Því er aftur
á móti spáð að Willamette, sem
kemur á markað síðar á þessu ári,
eigi eftir að velta Pentium III úr
sessi á skömmum tíma, aukinheld-
ur sem Timna, sem er með grafík-
vinnslu og minnisstýringu inn-
byggða, muni leysa Celeron
örgjörva fyrirtækisins af hólmi á
tiltölulega skömmum tíma.
SÉRÐU FRAM
ÁVEGINN? *
m
- öryggi í umferð!
Hjá Olís færðu alla þá þjónustu sem snýr að öryggi bílsins (umferðinni.
www.olis.is
Kosningabar-
átta á Netinu
UNDIRBÚNINGUR fyrir for-
setakosningar vestan hafs er haf-
inn með skoðanakönnunum og for-
kosningum og tilheyrandi
hamagangi. Margir halda því fram
að peningar skipti öllu máli í kosn-
ingabaráttunni og sá sigri sem
digrasta á sjóðina. Annað kom á
daginn í kosningum í New
Hampshire í vikunni og mál manna
að þar hafi sigurvegarinn í slag
repúblikana beitt Netinu með góð-
um árangri. Það kostar sitt að taka
þátt í stjómmálastarfi í Bandaríkj-
unum; dýrt að reka baráttu með
fjölda aðstoðarmanna sem eru á
ferð og flugi um landið þvert og
endilangt mánuðum saman, útgáf-
umál kosta sitt og geypidýrt að
auglýsa. Fyrir vikið þótti mörgum
ljóst að George W. Bush, ríkistjóri í
Texas, stæði með pálamann í hönd-
unum þar sem honum tókst að
safna talsvert meira fé en John
McCain, helsti keppinautur hans. í
forkosningunum í New Hampshire,
þar sem McCain sigraði með mikl-
mn yfirburðum, nýtti McCain aftur
á móti Netið með góðum árangri og
náði þannig til mun fleiri kjósenda
en Bush fyrir mun minna fé.
Meðal vandamála sem frambjóð-
endur standa frammi fyrir er
hversu dýrt það getur reynst að
safna fé. Þegar leitað er til almenn-
ings um stuðning eru fjárframlögin
frá hverjum og einum oft svo lítil að
varla svarar kostnaði að safna þeim
saman. Einnig skiptr miklu máli
fyrir framboð að safna fé hratt og
örugglega og þar kom Netið að
góðum notum, því í stað þess að
það tæki á þriðja mánuð fyrir pen-
inga að komast til skila eins og oft
vill gerast voru þeir komnir í kosn-
ingasjóðinn nánast um leið og þeir
voru gefnir og þannig tókst fram-
boðinu til að mynda að safna fimm-
tán milljónum króna á einum degi í
einu átakinu.
Sjálfboðaliðar sáu einnig um
skoðanakannanir fyrir McCain og
þannig hringd hver og einn í tíu
manns og leitaði álits og skilaði síð-
Reuters
an niðurstöðunum til setursins yfir
Netið. Með því að skrá hvaðan nið-
urstöðumar komu gat McCain
kortlagt stuðning sinn í ríkinu og
þá lagt áherslu á þá staði þar sem
þörfin var mest.
George W. Bush er einnig með
vefsetur, en ólíkt McCain er það
helgað kosningaslagorðum og al-
mennu spjalli. Vefstjórar McCain
leggja aftur á móti áherslu á að nóg
sé að lesa á setrinu og auðvelt að
finna það sem leitað er að. Á setr-
inu var einnig sérstakur fréttavef-
ur með fréttum úr New Hamp-
shire-rfld sem dró að gesti.
McCain hefur nefnt slóðina á
vefsetur sitt, www.mccain-
2000.com, í nánast hverri einustu
ræðu og hvatt fólk til að nýta það,
en einnig er hana víða að sjá á
veggspjöldum og skrauti. Hann
hyggst einnig nýta Netið betur til
að ná til almennings og þannig
heldur hann netspjall á næstunni,
þar sem hann flytur ræðu sem send
verður út á Netinu og svarar svo
spuringum gesta á vefsetrinu jafn-
harðan.
I skoðanakönnunum eftir kosn-
ingar kom fram að ríflega helming-
ur kjósenda McCains nýtir sér
Netið reglulega, en um þriðjungur
kjósenda Bush.
ntium®
gation AheMna
Frí Internet áskrift
COMPUTERS
Stórmyndin MATRIX
Á DVDfylgirpakkanum!
fslenska kennslubókin
INTERIUETID Á
EICIN SPÝTUR
FRf Internet áskrift
Meö sameiningu Fujitsu
og Siemens er orðinn til risi á tölvumarkaðnum. Alvöru
margmiðlunarvélar fyrir heimilið. Taktu enga áhættu. Veldu risa!
rsugnunaaar-
pakklnn sem fylgir
myndi kosta amk. kr. 20.000
ef hann væri kevDtur sér!
16MB Ati 2000 skjákort
Mús með skrunhjóli
64 radda hljóðkort
Fujitsu hátalarar
56KV90 mótald
2 USB tengi
Öflugur hugbúnaðarpakki
17 Fujitsu skjár
500MHz Intel Pentium III
512 K L-2 og 100Hz bus
64MB innra minni
8,4GB harður diskur
3,5" disklingadrif
6X DVD mynddiskadrif
ef hann væri keyptur sér! ■ í,, '
• Win 98SE • Word 97
• Works 4.5 ’Traáte'
• Publisher 98
• Midtown Madness ™4:r..
• Encarta Atlas
\pm
oWorldcup.l
:ótbolta- ygm
ieikurinn
?árántegu verði'yj
SHARP
Iftra
E00
wott
5 hitastillin
Snúningsdis
BT Skeifunni - S: 550-4444 • BT Hafnarfirði - S: 550-4020 • BT Kringlunni - S: 550-4499 • BT Reykjanesbæ - 5: 421-4040 • BT Akureyri - S: 461-5500