Morgunblaðið - 05.02.2000, Qupperneq 2
2 LAUGARDAGUR 5. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Könnun á campylobacter-mengun í ferskum kjúkling-um
Niðurstöður kannana heilbrigðiseftirlita
sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu á
Campylobacter-mengun í fersku fuglakjöti
Hlutfall mengaðra sýna í könnunum:
Framleiðandi r v- c Sept. 1998 Maí 1999 Des. 1999 Jan. 2000
Ferskir kjúklingar ehf. 50% 20% 0% 27%
Reykjagarður hf. 90% 60% 36% 38%
ísfugl ehf. 0% 0% 0% 0%
MEÐALTAL: \ w ^ 59% 31% 19% 28%
Klámmyndum af konu með villandi
texta dreift á Netinu
Málið kært til
lögreglu
28% sýna
reyndust
menguð
SYKILLINN campylobacter reynd-
ist vera í 28% sýna úr ferskum kjúkl-
ingum eða 8 af 29 í könnun sem heil-
brigðiseftirlitin á höfuðborgarsvæð-
inu stóðu í sameiningu að dagana
17.-25. janúar síðastliðinn. Flest
menguð sýni voru frá fyrirtækinu
Reykjagarði eða fimm sýni af þrett-
án, sem jafngildir 38%, en engin
mengun fannst í kjúklingum frá Is-
fugli, sem er í samræmi við fyrri
kannanir heilbrigðiseftirlitanna á
svæðinu. Pá fannst engin salmonellu-
sýking í könnuninni.
Á fundi Heilbrigðisnefndar
Reykjavíkur í gær er lýst yfir mikl-
um vonbrigðum með þessar niður-
stöður, þar sem þær sýni að „litlar
breytingar hafi orðið á tíðni camp-
ylobacter-mengunar í ferskum
kjúklingum á markaði hjá framleið-
endunum Ferskir kjúklingar ehf. og
Reykjagarður hf., en þeir selja
kjúklinga undir merkjunum Móar,
Ferskir kjúklingar og Holtakjúkl-
ingar. Engir eldishópar kjúklinga
hafa reynst jákvæðir í fjögurra
vikna eftirliti það sem af er árinu og
eni því miklar líkur á að sýkillinn
berist í kjúklingana á síðasta hluta
eldistímans þ.e. í fuglatínslunni, í
flutningum eða í sláturhúsi. Á sama
tíma staðfestir könnunin þann ár-
angur sem hægt er að ná í barátt-
unni við campylpbacter-sýkingar en
framleiðandinn ísfugl ehf. sem selur
undir merkjunum Isfugl og Kjúlli
mælist enn á ný án campylobacter--
mengaðrar framleiðslu. Árangri Is-
fugls ehf. ber sérstaklega að fagna“,
segir í samhljóða bókun nefndarinn-
ar, en fulltrúi atvinnurekenda í
nefndinni sat hjá við afgreiðslu henn-
ar, að því er fram kemur í fréttatil-
kynningu frá Heilbrigðiseftirliti
Reykjavíkur.
Ennfremur samþykkir nefndin að
fela heilbrigðiseftirlitinu að gera aðra
könnun í þessum efnum þegar í lok
þessa mánaðar. Sýni niðurstöður
þeirrar könnunar ekki fram á veru-
legan árangur af aðgerðum framleið-
enda muni nefndin í samræmi við
skyldur sínar taka ákvarðanir um að-
gerðir til vemdar neytendum segir
ennfremur.
Mengun finnst ekki
lengur í húsunum
Þá kemur fram að heilbrigðiseftir-
litin á höfuðborgarsvæðinu hafa staðið
saman að fjórum könnunum í þessum
efnum og hafa fundist campylobacter-
mengaðir fuglar í þeim öllum. Flestir
mengaðir fuglar hafi verið frá Reykja-
garði hf. en ekki hafi fundist mengaðir
fuglar frá ísfugli.
Bjami Ásgeir Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Reykjagarðs, sagði að
það sem breyst hefði frá fyrri könn-
unum væri að mengunin fyndist ekki
lengur í húsunum heldur í verslunun-
um. Nú væri því verið að yfirfara
slátrunina, en hænum og öndum væri
einnig slátrað í sláturhúsunum og
komið hefði í Ijós campylobacter-
mengun í varphænum. í þessari viku
hefði síðan verið ákveðið í samráði við
dýralækni alifuglasjúkdóma að það
kæmu engir fuglar til slátmnar nema
þeim fylgdi campylobacter-vottorð.
Þannig yrði hægt að stýra slátmninni
og ef einhveijir fuglar væm mengað-
ir yrði þeim slátrað í lok viku þannig
að tækfiæri gæfist til að hreinsa hús-
in sérstaklega.
„Við emm að finna leiðir til þess að
þetta nái ekki að menga kjúklingana.
Við emm búnir að ná húsunum fríum.
Eins og hefur komið fram hefur á
þessu ári ekki verið kjúklingahópur í
eldi þar sem hefur fundist campyl-
obacter.
Mengunin kemur frá öðmm fugl-
um og það verður tekið á því til að
reyna að komast fyrir hana. Að öðr-
um kosti verður að smíða sérslátur-
hús fyrir aðra fugla,“ sagði Bjami Ás-
geir ennfremur.
KLÁMMYNDUM af konu, sem
svipar til Ágústu Johnson, fram-
kvæmdastjóra Hreyfingar, hefur
verið dreift á Netinu með texta, þar
sem sagt er að viðkomandi sé
Ágústa. Agústa sagðist í samtali við
Morgunblaðið ekki ætla að sitja und-
ir því að persóna hennar væri bendl-
uð við þessar myndir og því hefði
hún kært dreifinguna til lögreglu.
„Ég skil eiginlega ekki hvers kon-
ar fólk það er sem vill mér svo illt að
dreifa þessum myndurn," sagði
Ágústa. „Ég á tvö böm og fólk verð-
ur að átta sig á því að með svona
ófögnuði er mjög auðvelt að særa
aðra - ég vona því bara að fólk hugsi
sig tvisvar um áður en það gerir eitt-
hvað þessu líkt aftur.“ Ágústa sagði
að vissulega væm þessi mál, sem
tengdust þessari nýju tækni, erfið
fyrir lögregluna, en hún sagði það
jafnframt alveg ljóst að það varðaði
við lög að dreifa klámi á Netinu.
Karl Steinar Valsson aðstoðaryf-
irlögregluþjónn staðfesti að málið
væri til rannsóknar hjá löreglunni í
tengslum við ákvæði hegningarlaga
um dreifingu á klámefni. Þá sagði
hann að einnig væri verið að athuga
hvort málið varðaði æmmeiðingar-
ákvæði. „Fólk verður að átta sig á
því að þegar það er að senda svona
póst áfram á Netinu er það strangt
tiltekið að dreifa klámi,“ sagði Karl
Steinar. Hann sagði lögreglu ekki
hafa fengið nákvæmlega svona mál
inn á borð til sín áður.
Refsingar við barnaklámi
verða hertar í lög’iim
SÓLVEIG Pétursdóttir dómsmálaráðherra
lagði fram frumvarp til breytinga á hegningar-
lögum á ríkisstjórnarfundi í gær. Gerir það ráð
fyrir að refsingar við vörslu barnakláms verði
hertar, en einnig er í því að finna ákvæði um
vitnavernd, sem styrkir verulega stöðu vitna
fyrir og eftir skýrslutöku.
Sólveig sagði að til að skipulögð glæpastarf-
semi gæti þrifist þyrftu þeir sem byggju yfir
vitneskju um slíka starfsemi að gæta þag-
mælsku gagnvart lögreglu og dómstólum. Þetta
ætti ekki síst við um misferli með eiturlyf. Það
væri þekkt að brotamenn reyndu með ýmsum
aðferðum að hindra að upp um þá kæmist, t.d.
með því að hóta vitnum eða beita þau ofbeldi.
Slík háttsemi væri vitanlega refsiverð eftir ýms-
um ákvæðum hegningarlaga.
„Brot gegn vitnum hafa ákveðna sérstöðu þar
sem brotið beinist ekki eingöngu gegn vitninu
heldur einnig gegn þeim almannahagsmunum
sem felast í því að halda uppi lögum og rétti. Af
þessum ástæðum er lagt til í þessu frumvarpi að
brot gegn vitnum verði sérstaklega lýst refsi-
verð í hegningarlögum og við lagðar þungar
refsingar," sagði Sólveig.
Dómsmálaráðherra sagði að brot gegn vitnum
gætu hvort heldur sem er gerst áður en vitni
gæfi skýrslu, og miðaði þá að því að hafa áhrif á
vitnisburð, og eins gæti brot átt sér stað eftir að
vitnið hefði gefið skýrslu og þá væri um að ræða
hefnd gegn vitninu. Frumvarpið miðaði að því
að veita vitni vernd gegn slíkum brotum. f
frumvarpinu er einnig að finna ákvæði þess efn-
is að það geti leitt til refsilækkunar ef brota-
maður greinir frá aðild annarra að broti. Sólveig
sagði að þetta miðaði að því að rjúfa þann þagn-
armúr sem oft ríkti um brotastarfsemi.
Refsing við barnaklámi verður
allt að tveggja ára fangelsi
Samkvæmt 2. málsgrein 210. gr hegningar-
laga varðar það sex mánaða fangelsi að búa til
eða flytja inn í útbreiðsluskyni, selja eða útbýta
á annan hátt klámefni. Sólveig sagði að þetta
ákvæði gerði engan greinarmun á því hvort
klámefni sýndi fullorðna eða börn. í frumvarp-
inu væri lagt til að refsingar við slíkum brotum
yrðu þyngdar þannig að refsiramminn yrði allt
að tveggja ára fangelsi. Þetta væri gert til að
vernda börn gegn því ofbeldi sem fælist í barna-
klámi.
í 4. málsgrein 210. gr. hegningarlaga er að
finna refsiákvæði við því að hafa í sinni vörslu
barnaklám. Sólveig sagði að þetta ákvæði varð-
aði eingöngu „neytendur“ barnakláms en ekki
framleiðslu eða dreifingu slíks efnis. Hún sagði
að þetta væri viss annmarki á ákvæðinu og á
það hefði reynt í framkvæmd. Þannig hefði ver-
ið lagt hald á barnaklám sem var á leið til lands-
ins, en þar sem efnið var ekki komið til viðtak-
anda hefði ekki verið talið unnt að sækja
viðkomandi til saka. Með frumvarpinu væri tek-
ið á þessu þannig að ákvæðið um barnaklám
yrði ekki bundið við vörslu heldur næði einnig
til innflutnings.
„Ég tel að í þessu frumvarpi sé að finna mjög
mikilvæg atriði sem horfa til þess að bæta rétt-
arstöðu fólks, sérstaklega gagnvart skipulagðri
glæpastarfsemi eins og fíkniefnamálum. Eins er
afskaplega mikilvægt að vernda börn sérstak-
lega gagnvart barnaklámi. Hér hafa komið upp
mál sem varða barnaklám og er full ástæða til
að bregðast við þeim,“ sagði Sólveig.
í frumvarpinu er einnig lagt til að ákvæði um
almennt sektarhámark hegningarlaga verði af-
numið. Samkvæmt gildandi ákvæði er sektar-
hámarkið 4 milljónir króna. í Danmörku var
sektarhámark afnumið 1930 og í Noregi 1946.
Roni Horn, til hægri, á spjalli við
Eddu Jónsddttur í i8, við opnun
sýningarinnar í Listasafni
Islands í gær.
Sýning
Roni Horn
opnuð
SYNING á verkum bandarisku
listakonunnar Roni Horn var opnuð
í Listasafni íslands í gær. Sýningin
er liður í dagskrá Reykjavíkur -
menningarborgar Evrópu árið
2000.
Yfirskrift sýningarinnar er „Pi“
og vísar til hins stærðfræðilega
tákns fyrir sambandið milli þver-
máls og ummáls hrings. Sýningin
er innsetning með 45 ljósmyndum
sem allar eru teknar hér á landi á
árunum 1991-1998, flestar norður
við heimskautsbaug, og fjalla um
rannsókn listakonunnar á umhverf-
inu og upplifun hennar á því en á
síðustu 25 árum hefur hún komið til
Islands því sem næst árlega og
dvalið um lengri eða skemmri tíma.
■ Náið samband/Lesbók 6
Serbloð i dag
2® SfaíHf
ÁLAUGARDÖGUM
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is
8 zlm
umm
t'lííwbviwU.
IJ'; "'jr
Islendingar efstir á
Norðurlandamótinu / B1
Afturelding tapaði
fyrir KA á Akureyri / B2