Morgunblaðið - 05.02.2000, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 05.02.2000, Qupperneq 22
22 LAUGARDAGUR 5. FEBRÚAR 2000 LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Miðbæjarsamtökin vilja opna göngugöt- una fyrir takmarkaðri bflaumferð Jólabærinn réttum megin við nullið MIÐBÆJARSAMTÖKIN á Akur- eyri héldu félagsfund í vikunni, þar sem m.a. kom fram eindreginn vilji til þess að halda áfram viðræðum við bæjaryfirvöld um möguleika á því að opna göngugötuna fyrir takmarkaðri bílaumferð. Ingþór Ásgeirsson, for- maður samtakanna, sagði ekki ljóst á þessari stundu hvemig útfærslan á því máli yrði og ekki hefur verið rætt um neinar tímasetningar. Arkitektastofan í Grófargili er að vinna tillögur varðandi Skátagilið, Ráðhústorg og göngugötuna og sagði Ingþór að í kjölfar þeirrar vinnu kæmi í Ijós hvert framhaldið yrði í miðbænum. Miðbæjarsamtökin stóðu fyrir Jólabænum Akureyri í samvinnu við fleiri aðila og var uppgjör þess verk- efnis einnig til umræðu á fundi sam- takanna. Ingþór sagði að nokkuð vel hefði tekist til með Jólabæinn miðað við það fjármagn sem lagt var í verk- efnið og skilaði það örlitlum hagnaði. „Við voram með um 100 uppákomur og mjög margir aðilar komu að verk- efninu, bæði fyrirtæki og skemmti- kraftar. Höfuðáherslan var lögð á að gera eitthvað fyrir yngstu bömin og það tókst bærilega, en hefði mátt vera meira." Ingþór sagði stefnt að því að taka upp þráðinn fyrir næstu jól og fá þá fleiri aðila í bænum, annars staðar en í miðbænum, til að koma að verk- efninu. Bæjarbúar tóku virkan þátt og skreyttu mjög tímanlega með jólaljósum heima hjá sér fyrir síð- ustu jól og sagði Ingþór að jóla- skreytingarnar hefðu vakið verð- skuldaða athygli. Morgunblaðið/Kristj án S A fullu við Friðbjarnarhús FÉLAGARNIR Sverrir og Árni not- uðu góða veðrið og fðru út að leika sér á sleðunum sinum í gærdag. Þeir voru á fullri ferð niður brekk- urnar við Friðbjarnarhús við Aðal- stræti á Akureyri og engu likara en Friðbjöm sjálfur, sem húsið er kennt við, fylgdist með ferðum þeirra. Það var hlýtt og gott veður og eins og sjá má létu drengimir sér nægja peysur, þurftu ekki frek- ari yfirhafnir. Héraðsdómur Norðurlands eystra Tveggja ára skilorð KARLMAÐUR um tvítugt hefur í Héraðsdómi Norðurlands eystra verið dæmdur í 40 daga fangelsi fyrir líkamsárás og ölvunarbrot, en refsingin var skilorðsbundin til tveggja ára. Þá var manninum gert að greiða sekt í ríkissjóð sem og all- an sakarkostnað. Mál var höfðað á hendur unga manninum fyrir að hafa aðfaranótt sunnudagsins 17. október á liðnu Launakerfi KERFISÞRÓUN HF. Fákafeni 11 • Sími 568 8055 http://www.kerfisthroun.is/ ári slegið mann á sextugsaldri með krepptum hnefa í andlitið þannig að hann féll á malarplan og síðan fylgt árásinni eftir með höggum þegar maðurinn reyndi að standa upp eft- ir fallið. Maðurinn nefbrotnaði við árásina og hlaut mörg hruflsár í andliti og á höfði auk annarra áverka. Atburðurinn átti sér stað utan við íþróttahúsið á Kópaskeri. Ungi maðurinn var einnig ákærð- ur fyrir ölvunarbrot, en hann var ölvaður og með ólæti fyrir utan veitingastaðinn Gamla bauk á Húsavík í desember síðastliðnum og var í kjölfarið færður í fanga- geymslu. Ungi maðurinn viðurkenndi sak- argiftir skýlaust fyrir dómi. Við ákvörðun refsingar var m.a. litið til þess að líkamsárásin var tilefnis- laus. Ekki hlaust af henni varanleg- ur skaði og ákærði og brotaþoli hafa náð fullum sáttum eftir at- burðinn. Það ásamt því að maður- inn er ungur að árum og hefur ekki áður hlotið refsingu varð til þess að fært þótti að fresta fullnustu fang- elsisvistar og hún látin niður falla að tveimur árum liðnum haldi mað- urinn almennt skilorð. Morgunblaðið/Garðar Páll Vignisson Iflörtur í 7. bekk ásamt Bertu, Hafrúnu, Ragnari og Ólafi úr 10. bekk. Grunnskóli Grindavfkur Nemendur fræða um dyslexíu Grindavík - f janúar hafa nokkrir nemendur í 10. bekk farið á milli bekkja í 5.-7. bekk með örlítið fræðsluerindi. Það merkilega við það er að þessir nemendur eru allt krakkar sem hafa glúnt við lestr- arörðugleika eða nánar tiltekið dyslexíu. Umræðuefnið var ein- mitt dyslexía og áhrif þau sem hún hefur á einstaklinginn og jafnvel fjölskyldu viðkomandi. Fram kom í máli þessara 10. bekkinga að þessir örðugleikar hafa háð mönn- um eins og Bubba Morthens og Al- bert Einstein. Þá sögðu þau líka frá því að það tekur oft tvisvar til þrisvar sinnum lengri tíma fyrir þá að læra en flesta aðra. Þau upplifðu sig heimk þegar þau voru yngri en dyslexía hefur ekkert að gera með greind. Foreldrar þeirra þurftu að Iesa allt fyrir þau fyrir nokkrum árum en nú siðustu árin hafa þau getað fengið námsbæk- urnar á snældum auk þess sem þau eru farin að nýta sér vel þau tilboð sem bjóðast um námsaðstoð hjá skólanum. Þá kom það fram hjá þeim að það að lesa var það allra Ieiðinlegasta sem þau gerðu en er skárra í dag og að dyslexfa virðist vera ættgeng. Ljós í enda ganganna Spurningarnar hjá krökkunum í 5.-7. bekk voru líka margs konar og m.a. voru 10. bekkingarnir spurðir um það hvernig þessi dys- lexía lýsti sér og hvenær maður læknaðist. Fram kom í svörum við þeim spurningum að stafír m.a. renna saman og að maður læknast ekki af dyslexíu heldur vinnur með hana alla ævi. Nemendurnir í 10. bekk enduðu síðan spjallið á hvatningarorðum m.a. að skóli er vinna, maður verður að beijast og aldrei að gefast upp. Bjarnfríður Jónsdóttir er sér- kennari við skólann og er reyndar fagstjóri í sérkennslu við Grunn- skóla Grindavíkur og hún hafði þetta að segja: „Það er nú oft þannig að þegar krakkarnir eru orðnir þetta 15-17 ára að þeir geta farið að taka málin í sínar hendur og nýta þá þau tilboð sem bjóðast um aðstoð. Fram að þeim tíma er þetta oft meira málefni skólans og foreldra. Það er von- andi að svona spjall opni augu yngri nemenda og verði kannski Ijós f enda gangnanna hjá ein- hveijum. Aðalfundur Beinverndar haldinn í Hveragerði Samið við markaðs- nefnd mjólkuriðnaðarins Morgunblaðið/Aldís Hafsteinsdóttir Um 30 manns sátu aðalfund Beinverndar í Heilsustofnun NFLÍ. Hveragerði - Landssamtökin Bein- verad héldu aðalfund í Heilsustofn- un NLFÍ fimmtudaginn 27. janúar sl. Fundinn sátu rúmlega 30 manns. í skýrslu formanns landssamtak- anna, Ólafs Ólafssonar fyrrverandi landlæknis, kom meðal annars fram að gerður hefur verið samstarfs- samningur við markaðsnefnd mjólk- uriðnaðarins til þriggja ára og er markmiðið með honum að kynna or- sakir, afleiðingar og aðgerðir vegna beinþynningar. í máli sínu þakkaði formaðurinn sérstaklega Beinvernd á Suðurlandi góð störf, en félagið hefur haldið marga fræðslufundi frá stofnun í nóvember 1997. Á fundin- um kom einnig fram að Beinvemd á Suðurlandi hefur áhuga á að koma sér upp tæki til beinþéttnimælinga á svæðinu, en um er að ræða tæki sem hægt er að flytja milli heilbrigðis- stofnana. Tvö fræðsluerindi voru flutt á fundinum og talaði Ólafur G. Sæ- mundsson, næringarfræðingur, um kalkneyslu og nauðsyn þess að sam- setning fæðunnar sé rétt. Hér á landi er sú samsetning oft mjög bág- borin. Hann benti á að fólk ætti að gæta sín á skyndilausnum varðandi megrun og sérstaklega varaði hann við megrunarkúrum þar sem prót- einneysla er mikil en það eykur hættu á hjarta- og æðasjúkdómum og beinþynningu. Karlmenn geta einnig fengið beinþynningu Jens A. Guðmundsson, sérfræð- ingur í innkirtlakvensjúkdómum, fjallaði um áhrif hormóna á bein- myndun kvenna, en við tíðahvörf eykst beinþynning að mun. Sýnt hefur verið fram á að beinþéttni eykst eftir 5-10 ára notkun hor- mónalyfja. Önnur lyf eru til fyrir þær konur sem ekki mega eða vilja nota hormónalyf og gagnast þau einnig karlmönum en þeir geta einn- ig fengið beinþynningu þó konur séu í þrisvar sinnum meiri hættu. Besta leiðin til að finna beinþynningu er beinþéttnimæling, sem er einföld og sársaukalaus. Morgunblaðið/Egill Egilsson Otíð frest- ar verk- lokum Flateyri - Uppsteypu er lokið á Essósöluskálanum á Flat- eyri. Til stóð að afhenda hús- ið fullbúið að utan 21. desem- ber sl., en ótíð síðustu vikurnar breytti þeirri áætl- un snarlega. Þessa dagana eru starfsmenn verktakans, Ágústs og Flosa á ísafírði, að klæða húsið að utan meðan veður leyfir. Gert er ráð fyrir að framkvæmdum við húsið verði lokið með öllu um pásk- ana.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.