Morgunblaðið - 05.02.2000, Side 24

Morgunblaðið - 05.02.2000, Side 24
24 LAUGARDAGUR 5. FEBRÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI Kaupþing selur tæp 13,6% í Samherja og heldur 8% eftir Gaumur o g tengt félag eiga nú um 10% í Samherja TVÖ félög í eigu Bón- usfjölskyldunnar hafa fjárfest í tæpum 10% hlut í útgerðarfélaginu Samherja á Akureyri. í tilkynningu til Verð- bréfaþings íslands í gær kemur fram að Fjárfestingarfélagið Skel hafi keypt 6,53% hlut í Samherja og fjárfestingarfélagið Gaumur 3,43% hlut. Hvorugt félaganna átti hlutabréf í Samherja áður. Eignarhluturinn er rúmar 1.450 milljónir að markaðsverði, en viðskiptin fóru fram á genginu 10,6 að því er upplýsingar um utanþingsviðskipti gefa til kynna, en það er sama gengi og í kaupum Kaupþings á hlutabréfum Þorsteins Vilhelmssonar fyrr í vik- unni. I gær var einnig tilkynnt um 2,91% fjárfestingu Fjarðar ehf. og á félagið nú 6% í Samherja. Fjár- festingarfélagið Fjörður ehf. er innherji í Samherja en eigendur þess eru Kristján Vilhelmsson, framkvæmdastjóri útgerðarsviðs Samherja, Þorsteinn Már Baldv- insson, forstjóri Samherja, og Finn- bogi A. Baldvinsson. Tveir hinir fyrr- nefndu eru stærstu hluthafar í Samherja, en hvor þeirra á um 20% hlutafjár í Sam- herja. Markmið að gera Gaum að sterku fjárfestingarfélagi Kristín Jóhannes- dóttir, framkvæmda- stjóri fjárfestingarfé- lagsins Gaums hf., er einnig í forsvari fyrir Skel hvað varðar þessi viðskipti. Hún segir að sú stefna hafi verið sett fyrir um ári að gera Gaum hf. að sterku alhliða fjárfestingarfélagi og fjárfesting í útgerðarfélagi samræmist þeirri stefnu. „Hluta- bréf í Samherja eru góður fjárfest- ingarkostur," segir Kristín. Að- spurð segist hún ekkert geta sagt um aðdraganda viðskiptanna við Kaupþing eða hvort fjárfestingar- félögin Gaumur og Skel muni halda hlutabréfum sínum í Sam- herja. Síðastliðinn þriðjudag keypti Kristín Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri Gaums. Morgunblaöiö/Golli Frystitogarinn Baldvin Þorsteinsson EA-10, flaggskip Samherja, í Reykjavíkurhöfn. Kaupþing hf. 21,6% eignarhlut Þorsteins Vilhelmssonar í Sam- herja hf. Kaupþing hefur nú selt 13,59% hlut en heldur eftir 8,01%. I samræmi við lög var tilkynnt um fjárfestingu Fjarðar ehf. og Skelj- ar ehf. í gær, auk þess sem upp- lýst var um fjárfestingu Gaums hf. Eftir stendur 0,72% hlutafjár í Samherja sem Kaupþing seldi, en ekki er skylt að gefa upp nafn kaupenda að svo litlum hlut. 0,72% hlutur í Samherja er yfir 100 mil- ljóna króna virði, miðað við mark- aðsgengið 10,6. Breyting á eignarhaldi til bóta fyrir Samherja Sigurður Einarsson, forstjóri Kaupþings, á frekar von á því að Kaupþing haldi sínum hlut áfram. „Við tókum auðvitað áhættu með því að kaupa svo stóran hlut en eftir þessa sölu er viðunandi að halda eftir um það bil 6-8% hlut,“ segir Sigurður. Kaupþing keypti 21,6 % hlut Þorsteins Vilhelmssonar á genginu 10,6 sem jafngildir markaðsverð- inu 3,1 milljarður króna eins og fram hefur komið. Sigurður segir gengið nú svipað og söluhagnað Kaupþings ekki verulegan. „Aðdragandinn að þessu var stuttur. Við keyptum hlut Þor- steins á þriðjudag og hófum við- ræður við ýmsa fjárfesta í kjöl- farið. Við leggjum ekki út í fjárfestingu af þessu tagi nema okkur lítist þannig á að eftirspurn sé umfram framboð," segir Sigurð- ur. Að mati Sigurðar hafa almennir fjárfestar fremur haldið að sér höndum varðandi fjárfestingar í Samherja vegna þess hve Sam- herjafrændurnir þrír, Þorsteinn Már Baldvinsson, Þorsteinn Vil- helmsson og Krístján Vilhelmsson, áttu stóran hlut samtals, eða yfir 60%. „Við höldum að þessi breyt- ing á eignarhaldi sé almennt til bóta fyrir félagið," segir Sigurður og bætir við að útlitið fyrir árið sé bjart og vísar þar helst til loðn- unnar og mikillar framlegðar sem felist í bolfiskveiðum. „Við höldum ennfremur að Samherji sé kominn yfir mestu erfiðleikana í Þýska- landi.“ í gær voru viðskipti með hluta- bréf í Samherja fyrir 27 milljónir króna á Verðbréfaþingi Islands og var lokagengi þeirra 10,20. Er það 4,4% lækkun frá síðasta viðskipta- degi en þá var lokaverðið 10,67. íslandsbanki F&M tekur í notkun nýtt viðskiptakerfí frá Reuters og CBA í Noregi Morgunblaöiö/Ásdís Fulltrúar Islandsbanka, Reuters og CBA við undirskrift samningsins um hið nýja viðskiptakerfi í gær í höfuðstöðvum íslandsbanka við Kirkjusand. Frá vinstri: Rolf Hauge frá CBA, Haukur Oddsson, framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs íslandsbanka, Tómas Ottó Hansson, forstöðumaður rannsókna F&M hjá Islandsbanka, og Dag Dyrdal, frá Reuters í Noregi. Tökum mjög stórt skref inn í framtíðina ÍSLANDSBANKI F&M, Reuters og Commercial Banking Applicat- ions AS, CBA, í Noregi skrifuðu í gær undir samning um að F&M taki í notkun nýtt viðskiptakerfi sem byggist á lausnum sem þróaðar eru af Reuters og CBA. Viðskiptakerf- inu er ætlað að mynda kjamann í starfsemi íslandsbanka á sviði gjaldeyris-, peningamarkaðs-, af- leiðu- og verðbréfaviðskipta. Kerfið byggist á Kondor+ við- skipta- og áhættustýringarkerfi Reuters, og er íslandsbanki F&M fyrsti aðilinn hérlendis til að taka í notkun þetta nýja kerfi frá Reuters, og á Ibas bakvinnslukerfi frá CBA. „Við sjáum fyrir okkur algera sjálfvirkni á þessum meginviðskipt- um,“ sagði Tómas Ottó Hansson, forstöðumaður ’ rannsókna hjá ís- landsbanka F&M, á kynningu sem haldin var í gær í kjölfar undir- skriftar. Gefur möguleika á mun flóknari fjármálasamningum „Þetta mun auka hraða og öryggi í viðskiptunum, ásamt því að lækka kostnað. Einnig mun það gefa möguleika á aukinni upplýsinga- miðlun og möguleika á mun flóknari fjármálasamningum. Kerfið frá Reuters verður notað til að verðleggja samninga, halda ut- an um stöður og áhættu. Á sama tíma höfum við verið í samstarfi við CBA um bakvinnslu- kerfi, þ.e.a.s. frágang viðskipta, bók- hald, sendingu á staðfestingum og annað slíkt. Þetta mun nú verða ein heildstæð lausn með fullkominni sjálfvirkni á milli,“ sagði Tómas Ottó. Hann sagðist leyfa sér að fullyrða að íslandsbanki muni verða með eitt fullkomnasta kerfi veraldar í dag, og muni ekki standa mörgum að baki. „Við erum með þessu að taka mjög stórt skref inn í framtíðina. Þessi tækni gefur litlum fyrir- tækjum á þessu sviði færi á að bæta samkeppnisstöðu sína gagnvart er- lendum fjármálastofnunum, en tæknivæðing fjármálastofnana er í raun forsenda þess að íslenski fjár- málamarkaðurinn geti þróast frek- ar. Veltan og vöruúrval er orðið það mikil að það er orðið erfitt að halda utan um þetta nema með mjög full- komnum kerfum," sagði Tómas Ottó. Um veltuna sagði Tómas að ís- landsbanki hefði á síðasta ári gert um 50.000 samninga og hefði veltan verið 2.000 milljarðar króna, en oft er sömu upphæð velt á milli nokkr- um sinnum í verðbréfaviðskiptum. „Þetta hefur í för með sér aukna áhættu, og viðskiptavinir gera sífellt meiri kröfur. Við verðum því að hafa aukna tækni,“ sagði Tómas. Dag Dyrdal, sem stýrir Noregs- skrifstofu Reuters, sagði á kynning- unni að með þessu væri Islands- banki F&M að fjárfesta í framtíðinni, en með þessu kerfi gæti F&M boðið upp á víðara úrval fjár- málalegra afurða sem gerði fyrir- tækinu kleift að mæta vexti og heimsvæðingu viðskipta. Hann sagði að samningurinn væri sá fyrsti sem Reuters gerði um þetta kerfi hér, og yrði reynslan á kerfinu hér notuð til kynningar á því í öðrum löndum. „Island er mjög spennandi markaður fyrii’ nýja tækni af þessu tagi. Ég heyrði að þið væruð komnir fram úr Finnum hvað varðar fjölda netnotenda, sem er at- hyglisvert," sagði Dyrdal. Dag Dyrdal sagði að Reuters ynni á tveimur afmörkuðum meginsvið- um, í fréttum og viðskiptaupplýsing- um. Fyrirtækið væri nú að endur- skilgreina starfsemi sína, og verður í framtíðinni lögð áhersla að bjóða lausnir sem henta tilteknum aðstæð- um viðskiptavina, auk ráðgjafar. Hann segir að helsta þróunin á þeim fjármálamörkuðum sem Reut- ers vinnur á sé í áttina að meiri tæknivæðingu, hnattvæðingu og vexti í viðskiptum einstaklinga. Not- endur að þjónustu Reuters eru nú um 485.000 í 163 löndum, sagði Dag Dyrdal. Rolf Hauge, forstjóri CBA, sagði í samtali við blaðamann Morgun- blaðsins, að samningurinn væri mik- ilvægur bæði fyrir CBA og Reuters. Verið væri að prófa suma þætti við- skiptakerfisins í fyrsta sinn, en á aðra þætti þess væri komin meiri reynsla. „Við munum nota þetta til að markaðssetja þessar lausnir ann- ars staðar. Við höfum komið hingað með fulltrúa banka frá öðrum lönd- um, því þeir skilja ekki hvernig ís- land geti verið svo ofarlega hvað varðar rafrænar sendingar á við- skiptagögnum. Þeir koma hingað til að sjá hvernig bankarnir, og Islandsbanki sérstaklega, reka sín kerfi,“ sagði Rolf Hauge.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.