Morgunblaðið - 05.02.2000, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
LAUGARDAGUR 5. FEBRÚAR 2000 25
Raunverulegur hlutur
íbúðalána Ibúðalánasjóðs
í útlánum til heimila
Á FIMMTUDAG birtist í við-
skiptablaði Morgungblaðsins frétt
frá Ibúðalánasjóði. I fréttinni var
mishermt að um útlán heimilanna
væri að ræða en þar átti að standa
að um útlán íbúðalánasjóðs til
heimilanna væri að ræða. Beðist er
velvirðingar á þessu og er fréttatil-
kynning íbúðalánasjóðs hér birt í
heild sinni.
lánasjóðs í útlánum þurft að aukast
um 15% á þremur mánuðum ef
áætlanir Landsbankans stæðust.
Hins vegar er Ijóst að veruleg
skekkja er í áætlunum Landsbank-
ans hvað Ibúðalánasjóð varðar.
Hlutur íbúðalánasjóðs í heildar-
útlánum til heimila er að minnka en
hlutur annarra lánastofnanna að
aukast. Þetta sést þegar hlutdeild
Ibúðalánasjóðs í heildarútlánum til
heimila undanfarin ár samkvæmt
hagtölum Seðlabankans eru skoð-
aðar.“ (sjá meðfylgjandi töflu.)
Hlutdeild íbúðarlána í heildarlánum
heimilanna árin 1996-1999
Milljarðar
króna
495,0 — Heildarútlán lánakerfisins
442,9
350,6
385,8
216,9! 234,9
■ 53,0
Árslok B Árslok
|— Útlán íbúðalánakerfisins
Hlutfall íbúðalánakerfisins
af heildarútlánum lána-
kerfisins til heimilanna
1996 1997 1998 1999
„Ársfjórðungsskýrsla Lands-
bankans og Landsbréfa sem birt
var á dögunum hefur verið mjög til
umfjöllunar í fjölmiðlum. Sérstak-
lega hefur verið fjallað um meint
hlutfall útlána íbúðalánasjóðs í
heildarútlánum til einstaklinga á
árinu 1999.
Forsendur Landsbanka byggðar
á nokkrum misskilningi
Forsendur í áætlun Landsbank-
ans um útlánaaukningu íbúðalána-
sjóðs byggjast á nokkrum misskiln-
ingi. Landsbankinn gefur sér að
bein tengsl séu á milli þeirra lána
sem Ibúðalánasjóður tekur í formi
húsbréfa og húsnæðisbréfa og
þeirra lána sem sjóðurinn veitir.
Þetta er rangt. Hluti þeirra lána
sem sjóðurinn tekur fer til skuld-
breytingar á eldri lánum sjóðsins.
Landsbankinn tekur ekki tillit til
þess í áætlunum sínum.
Þá er samþykktum skuldabréfa-
skiptum ruglað saman við raun-
veruleg útlán íbúðalánasjóðs í
áætlunum Landsbankans. Á ári
hverju hefur íbúðalánasjóður heim-
ild til að samþykkja skuldabréfa-
skipti upp á ákveðna fjárhæð sam-
kvæmt fjárlögum. Nokkur tími
líður frá samþykki skuldabréfa-
skipta og þar til sjálf lánveitingin
fer fram. I áætlun Landsbankans
er gert ráð fyrir að öll samþykkt
skuldabréfaskipti á árinu 1999
komi til útlána á árinu, en hluti
þeirra verður ekki að láni fyrr en á
árinu 2000.
I áætlun sinni gerði Landsbank-
inn ráð fyrir aukningu heildarút-
lána íbúðalánasjóðs að fjárhæð 39,5
milljarðar og að hrein útlánaaukn-
ing sjóðsins væri 29,2 milljarðar.
Hlutdeild ibúðalána í heildarlán-
um heimilanna minnkar
Heildarútlánaaukning íbúðalána-
sjóðs 1999 samkvæmt bráðabirgða-
tölum er hins vegar ekki nema um
31,2 milljarðar króna sem er 8,3
milljörðum króna lægri fjárhæð en
Landsbankinn gengur út frá. Af
þessum 31,2 milljarði eru um 11,6
milljarðar tilkomnir vegna hækk-
unar á vísitölu sem þýðir að hrein
útlánaaukning Ibúðalánasjóðs sam-
kvæmt bráðabirgðatölum er 19,6
milljarðar króna.
Landsbankinn áætlar að útlána-
aukning til einstaklinga á árinu
1999 verði um 60 milljarðar króna
og að hrein útlánaaukning íbúða-
lánasjóðs hafi verið 29,2 milljarðar
króna. Því sé hluti íbúðalánasjóðs í
útlánaukningu ársins 1999 um 49%.
Hlutfall útlána íbúðalánasjóðs
samkvæmt rauntölum frá Seðla-
banka Tölur um heildarútlán lána-
kerfisins til heimila fyrir árið 1999
liggja ekki fyrir hjá Seðlabanka.
Hins vegar liggja fyrir tölur um
útlán til heimila fyrir tímabilið
september 1998 til september 1999.
Utlánaaukning lánakerfisins það
tímabil var 77,2 milljarðar sam-
kvæmt hagtölum Seðlabankans.
Utlánaukning Ibúðalánasjóðs til
heimila það tímabil var 28,3 millj-
arðar króna, þar með talin hækkun
vegna vísitölu. Utlánaaukning
íbúðalánasjóðs þetta tímabil var
þvi 36,6% af heildarútlánaukningu
til heimila. Áætlun Landsbankans
vegna ársins 1999 var að hlutur
Ibúðalánasjóðs í heildarútlána-
aukningu til heimila væri 49%.
Samkvæmt því hefði hlutur íbúða-
Prímúiur
Friðarlilj
Diffenbachi
Stofuaskur
Gróðurmoid
,6 iítrar
ff Drekatré 1 OOsm'
Drekatré
ipanar
ÚTSÖLUNNI LÝKUR UM HELGINA