Morgunblaðið - 05.02.2000, Page 33

Morgunblaðið - 05.02.2000, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. FEBRÚAR 2000 33 ERLENT Góðæri í þúsund- dagaríki Blairs ÞÓTT segja megi, að Tony Blair hafí siglt tiltölulega lygnan sjó í Down- ingstræti 10, hefur þessi janúarmán- uður síður en svo verið honum auð- veldur. Flensa hleypti miklum hita í stjórnmálaumræðuna og varð for- sætisráðherrann á endanum að við- urkenna að í heilbrigðiskerfinu væri víða pottur brotinn. Einnig sýndu opinberar tölur aukningu glæpa í Englandi og Wales í fyrsta skipti í sex ár, lávarðadeildin hafnaði frum- varpi ríkisstjórnarinnar um breyt- ingar á dómstólalögunum og þessa dagana er Tony Blair að draga í land með fyrirætlanir ríkisstjórnarinnar um að afnema bann við kynningu á samkynhneigð í skólum vegna vax- andi andstöðu við þær. Ofan á allt annað hefur hann beitt sér mjög freklega í kosningabaráttunni milli Dobson, Jackson og Livingstone, sem keppast um það að verða borg- arstjóraefni Verkamannaflokksins. Hefur forsætisráðherrann ráðist harkalega gegn Livingstone, sem þrátt fyrir allt virðist ætla að sigra Dobson, hvað sem flokksforystan tautar og raular. Tony Blair brosir þó bara og segir þessi mál vera storm í vatnsglasi. Hvað sem líði einstökum uppákom- um haldi hann og ríkisstjórnin ótrauð áfram, aðalmálið sé að missa ekki sjónar á takmarkinu, því að bæta Bretland. Þetta má vera rétt, því hvað sem öðru líður er ekki hægt að segja að ríkisstjórnin hafi lent í alvarlegum pólitískum hremming- um. Náinn samverkamaður forsæt- isráðherrans, Peter Mandelson varð að segja af sér ráðherradómi um tíma, en er kominn í ríkisstjómma aftur og þótt ekki hafi allt gengið eft- ir getur forsætisráðherrann bent á ýmislegt, sem áunnist hefur á þess- um þúsund dögum. Þar skiptir mestu traust fjármálastjórn og með henni og hagstæðum ytri skilyrðum batnandi efnahagur. Þá hefur ríkis- stjómin komið fram víðtækum stjómskipunarbreytingum með heimastjórnum í Wales og Skotlandi og síðast en ekki sízt friðarsamning- í ræðu á flokksþingi brezka Verkamanna- flokksins fyrir síðustu þingkosningar sagði Tony Blair, að eftir kosningarnar yrðu 1000 dagar til árþúsundamóta. Þúsund dagar til þess að undirbúa 1000 ár, sagði hann. Nú eru þessir þúsund dagar liðnir og hefur það orðið Bretum tilefni til þess að velta fyrir sér stöðu forsætisráðherrans og ríkisstjórn- ar hans. Freysteinn Jóhannsson segir frá. Reuters Tony Blair í ræðustól. Hann hefur einsett sér að halda Verkamanna- flokknum við völd að minnsta kosti eitt kjörtímabil til viðbótar. um á Norður-írlandi, hún hefur af- numið setu erfðaaðals í lávarðadeild og komið á fót borgarstjóraembætti í London, þótt leiðin að því hafi reynst mikil þrautaganga. Reyndar bendir margt til þess að Blair hafi fengið sig fullsaddan á þessum breytingum í bili og þess vegna verði frekari breytingum í ensku stjórn- skipuninni frestað að minnsta kosti frarn yfir næstu kosningar. Loks má nefna, að ríkisstjórninni hefur orðið vemlega ágengt við að draga úr at- vinnuleysi, sem helzt öðmm þræði í hendur við batnandi efnahags- ástand. Evrópumálin sér á báti í einum málaflokki er Tony Blair viðskila við þjóð sína þar sem Evrópumálin em. Meirihluti Breta er mjög tortrygginn á Evrópusam- starfið og á móti því að leggja pundið af. Blair hefur reyndar alltaf haft vaðið fyrir neðan sig, með því að segja, að brezkt efnahagslíf þurfi að uppfylla viss skilyrði, áður en þátt- taka í Efnahags- og myntbandalagi Evrópu sé raunhæf. En hann hefur heldur ekki farið dult með að þangað liggi leiðin. Andstaðan nú hefur þó orðið til þess, að hann hefur frestað þjóðaratkvæðagreiðslu um EMU- aðild fram yfir næstu kosningar. Vinsældir Tony Blair hafa alltaf verið miklar í skoðanakönnunum og könnun sem The Times hefur nú lát- ið gera sýnir, að hann stendur betur að vígi eftir sína 1000 daga en fyrir- rennarar hans, Major, Thatcher og Callaghan gerðu. 54% aðspurðra ætla að kjósa flokk hans, en hjá Major og Thatcher vom tölurnar 28 og 29% og 47% hjá Callaghan. Þjóðin skiptist í tvö horn, þegar hún er spurð um dóm yfir ríkisstjóminni; 45% segjast ánægð og 45% óánægð. Hjá Major vora tölumar 12 og 80%, hjá Thatcher 42 og 48% og hjá Call- aghan 39 og 53%. Þeir, sem em ánægðir með það hvernig forsætis- ráðherrann heldur á málum, em 57% en 21% lýsti ánægju með Major, 49% með Thatcher og 54% með Cal- laghan. Meiri árangur en hjá Thatcher Forsætisráðherrann hefur látið þann boðskap út ganga, að ríkis- stjórn Verkamannaflokksins hafi af- rekað meim, á sínum fyrstu 1000 dögum, en Margaret Thatcher hafi tekist eftir sinn kosningasigur 1979. Hann hefur falið menntamálaráð- herranum David Blunkett að vera fánaberi ríkisstjórnarinnar á þess- um tímamótum, en ætlar sjálfur, hógværðin uppmáluð, bara að sinna sínum daglegu störfum, eins og venjulega. Búast má við því að William Hag- ue, formaður Ihaldsflokksins hafi ýmislegt við þúsunddagaboðskap Verkamannaflokksins að athuga og bendi á kreppu í heilbrigðiskerfinu, fjölgun afbrota, hækkun skatta og brotalamir í skólakerfinu. En það hefur verið eitt lánið fyrir Tony Blair þessa þúsund daga, hversu óhöndug- lega íhaldsflokknum hefur gengið í stjórnarandstöðunni. Það er eins og formanni hans sé fyrirmunað að ná til fólksins með sjónarmið sín, á með- an alls kyns deilur og hneykslismál hafa átt greiðan aðgang að þjóðinni. Enda sagði Tony Blair á dögunum, að Ihaldsflokkurinn væri eins og hver annar brandari. Þannig ætti það líka að vera; brezka þjóðin ætti bara að hlæja að honum og hunsa hann í kosningum! Brezki forsætisráðherrann getur því leyft sér að brosa breitt, þrátt fyrir ásakanir um að hann vilji öllu ráða og vera kóngur í ríki sínu. Þótt þúsunddagaríki Ónnu Boleyn hafi endað með skelfingu í eina tíð, þarf Tony Blair ekki að óttast öxina. Hon- um er ætlað pólitískt líf fram yfir næstu kosningar, að minnsta kosti. Cartoon Network bannað í Kína Kalli kanína og félagar í onáð Peking. AFP. ÚTSENDINGAR teiknimynda- stöðvarinnar Cartoon Network, þar sem aðalhlutverkin em í höndum kanínunnar Kalla kanínu og Tomma og Jenna svo nokkrir séu nefndir, hafa verið bannaðar í Kína af „innanríkisástæðum“. Ákvörðun stjómvalda að banna útsendingar gervihnattastöðv- anna TNT og Cartoon Network á hótelum og íbúðarhverfum fyrir útlendinga á þó ekki við um aðrar erlendar gervihnattastöðvar að sögn Zou Xin, sem starfar hjá stofnun sem sér um samskipti er- lendra sjónvarpsstöðva og ríkis- stöðva. TNT og Cartoon Network em ásamt CNN-fréttastöðinni hluti af Turner Broadcasting-fj ölmiðla- veldinu. Dagskrá TNT byggist á gömlum Hollywoodmyndum og Cartoon Network sýnir eingöngu teiknimyndir. Margir telja það því skjóta skökku við að útsendingar þessara stöðva séu bannaðar en ekki CNN, þótt fréttir stöðvarinn- ar af atburðum í Kína þættu e.t.v. líklegri tii að vera stjómvöldum á móti skapi. Ekki náðist í umsjónarmann út- varps-, kvikmynda- og sjónvar- psútsendinga í Peking að sögn AFP-fréttastofunnar, en talsmað- ur stofnunarinnar í Sjanghæ sagði erlendar sjónvarpsstöðvar árlega þurfa að hljóta samþykki stofnun- arinnar og að TNT og Cartoon Network hefðu ekki hlotið sam- þykki að þessu sinni. Einnig hefur þó heyrst að bannið tengist að öll- um líkindum CNN. Fulltrúi Tum- er Broadcasting í Hong Kong vildi ekki tjá sig um málið, en í Hong Kong Standard var haft eftir tals- manni fyrirtækisins að enn væri verið að fara yfir stöðu mála. Útsendingar CNN vom bann- aðar tímabundið í Peking á síðasta ári, um það leyti sem tíu ár vom liðin frá átökunum á Torgi hins himneska friðar. mmertónleikar í Garðabæ 2000 jjBBBt^BBBB^^ ^^BBB •■ JL A • ItJuGmLVO 8. APRÍL 16. SEPTEMBER Hljómkóilinn Hermann Baumann Cuvilléskvartettinn Gerrit Sþtuil Hornleikari Strengjakva rtett Stjórnandi og pianóleikari Sigrún Eðvaldsdóttir Sigurður I. Snorrason Ríchard Simm Fiðluleikari Klarinettleikari Píanóleikari Gerrit Schuil Píanóleikari Verk eftir J.Haydn, Verk eftir J. S. Bach, W. A. Mozart, G. Verdi, J. Brahms. Verk eftir E. Chabricr, Menddssohn-Bartholdy, W.A. Mozart, L. v. Beethoven. 10. OKTÓBER A. Glazunow, A. Skrabinc, J. Brahms, W. A. Mozart. 11. NÓVEMBER Andreas Schmidt igvari Rudolf Jansen Píanóleikari v. Beethoven, Wolf Elín Ósk Óskarsdóttir Óperusöngkona Gerrit Schuil Píanóleikari Verk cftir Marccllo, F. Schubert, J. Brahms, R. Wagncr, C. M. Weber, G. Puccini, G. Verdi. strænn stjórnandi og framkvæmdastjóri: Sigurður Björnsson. tarnir verða haldnir í Kirkjuhvoli, safnaðarheimili kju í Garðabæ. Aðgön liðasala hefst einni klukkustund fyrir tónleikana. Menningarmálanefnd Garðabæjar TONLIST í GARÐABÆ 2 0 0 0 Utsalan er hjá olckur og hananú.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.