Morgunblaðið - 05.02.2000, Side 57

Morgunblaðið - 05.02.2000, Side 57
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. FEBRÚAR 2000 5\ MINNINGAR bundin voru í bemsku slitnuðu ekki. Ég kom oftar í Starrastaði, bæði meðan Guðrún og Páll bjuggu þar og eftir að Eyjólfur tók við búskapnum. Það var gaman að hitta Eyjólf, hann var snaggaralegur í fasi, hress í tali og hlátur hans er mér minnisstæður, hvellur og smitandi. Eitt sinn er ég kom þar var Eyjólfur kallaður í sí- mann. María var suður í gróðurhúsi að taka til blómapöntun. Komu þá heimasæturnar, Þórunn og Mar- grét, og settust hjá mér, svo kot- rosknar og kumpánlegar, að ég gleymi því ekki. Undanfarin ár höf- um við, ég og systur mínar, hitt Ey- jólf og Maríu, reglulega, á ári hverju. Eyjólfur var söngmaður góður og söng, í mörg ár, fyrsta ten- ór með Karlakórnum Heimi. Við lét- um okkur ekki vanta á árlega söng- skemmtun kórsins á Hótel Islandi. Er dagskránni lauk fórum að leita að og heilsa upp á Skagfirðingana á svæðinu. Það var gaman að hitta þá alla en Eyjólfur var þar fremstur meðal jafningja og leituðum við þeirra Maríu jafnan fyrst. Ég talaði við Eyjólf í síðasta sinn í nóvember síðastliðnum. Hann var hress í máli og ekki að heyra að þar talaði fár- sjúkur maður. Við spjölluðum á bjartsýnum nótum, en þegar hann sagði: „Ég hefði nú viljað koma bömunum mínum upp,“ varð mér orða vant, því þarna horfðist hann í augu við staðreynd, sem ég vildi af- neita. En nú veit ég hvað ég vildi sagt hafa. „Elsku Eyjólfur, gamli vinur. Börnin þín eru vel gerð og dugleg, - hvernig sem fer - þá verð- ur allt í lagi með þau.“ Eyjólfur vai' skapmaður og kjarkmaður. Hann tók veikindum sínum af æðruleysi og kvartaði ekki. Hann vildi vera heima, í faðmi fjölskyldunnar, eins lengi og unnt væri og lét ekki bug- ast. En á þriðjudagsmorguninn, 25. janúar síðastliðinn, var stundin komin. Hann var fluttur á Sjúkrahús Skagfirðinga - og tveimur stundum síðar var hann allur. Eftir sitja fjöl- skylda og vinir með sár í hjartastað. Núna er hugur minn hjá Maríu og börnunum sem hafa staðið sig eins og hetjur. Elsku María, Þórunn, Margrét, Páll Starri og Stefanía Guðrún, Am- ar Páll og Sara! Guð gefi ykkur styrk og styðji ykkur til sigurs á þrautastundum. Þrátt fyrir allt trúi ég því staðfastlega að Eyjólfur sé hjá ykkur þótt hann sé hulinn sjón- um. Ekkert getur haggað þeirri trú minni að hinir látnu séu með okkur í sorginni og strjúki tár af kinn. Því þeir em aðeins látnir í okkar skiln- ingi en lifa áfram á öðra tilverastigi og bíða okkar þar. Samt verður ekki það sama að koma aftur í æskusveit- ina en meðan þið erað enn á Starra- stöðum er það huggun harmi gegn. Ég og fjölskylda mín sendum öll- um, er eiga um sárt að binda, okkar innilegustu samúðarkveðjur. Guð blessi minningu Eyjólfs á Starra- stöðum. Snæbjörg frá Mælifelli. JÓHANN KRISTINN JÓNSSON + Jóhann Kristinn Jónsson fæddist í Reykjavík 16. aprfl 1917. Hann lést á Reykjalundi 30. jan- úar síðastliðinn og fór útför hans fram frá Fossvogskirkju 4. febrúar. Það dofnar heldur betur yfir Dalnum þeg- ar Jóhann í Dalsgarði hefur kvatt. I huga okkar var hann alltaf stærstur og mestur og dró að sér unglingana í sveitinni og kenndi okk- ur að lesa landið og syngja kvæði. Þau Birta, eiginkona hans, opnuðu heimili sitt fyrir öllum sem vildu, en vegna fordómaleysis og gestristni var alltaf erfiðleikum háð að yfirgefa Dalsgarð. Jóhann stappaði í mann stálinu, tók okkur krakkana alltaf sem jafningja og var lítið gefinn fyrir tepraskap. Hann kenndi manni að sitja hest og tók okkur í reiðferðalög um gamlar reiðleiðir, sem vora löngu komnar í gleymsku, en hann bjó yfir einhverri óútskýranlegri ratvísi, sem hann hlýtur að hafa erft úr Breiða- fjarðareyjum. Hann hitti á öll vöð og kom okkur yfir allar girðingar og torfærar sem á vegi okkar urðu án þess að stíga eitt feilspor. Stundum vora trússhestar, en oftast var Birta komin í náttstað á Landróvernum með „tólfmannatjaldið" og tók á móti liðinu með kræsingum og hlýju. Jó- hann þekkti alla forna áningastaði, jurtir, steintegundir og fugla lands- ins og leit á það sem skyldu sína að uppfræða æskulýðinn um það. Og þá mátti enginn vera með múður, held- ur hlusta. Hann leit á garðyrkju sem vísindi og list og fylgdist sérlega vel með öllum nýjungum sem upp komu á meginlandinu, enda ber gróðrastöðin hans merki um það. Jóhann var heimsmaður, alltaf flottastur á mannamót- um, írónískur og skemmtilegur og hafði yfirleitt síðasta orðið. Hann var áhugamaður um kvikmyndagerð, fylgdist vel með og var ötull bíógestur. Mikið þótti honum það sjálfsagt þegar hann var rekinn út af heimili sínu fyrir nokkram áram til þess hægt væri að taka upp kvikmynd þar. Þær era ófáar íslensku mynd- imar, sem ekki þakka Dalsgarði fyr- ir veittan stuðning. Þannig var Jóhann, - þannig er þetta fólk: „mitt er þitt og hjá mér áttu heima“ - allt sjálfsagt. Við systur vottum kæram vinum okkar systkinunum í Dalsgarði djúpa samúð og þökkum óteljandi og ógleymanlegar stundir sem við nut- um með þeim á stórheimilinu, í skjóli Birtu og Jóhanns Jónssonar. Hafðu þakkir fyrir allt, höfðingi. Sigríður Halldórsdóttir, Guðný Halldórsdóttir. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að diskl- ingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til-blaðsins í bréfasíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðal- línubil og hæfilega línulengd - eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnar- nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. + Útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa, langafa og bróður, ÞÓRARINS JÓNSSONAR, Álftamýri 42, Reykjavfk, fer fram frá Háteigskirkju mánudaginn 7. febr- úar kl. 13.30. Sigríður Magnúsdóttir, Magnea Þórarinsdóttir, Guðmundur Guðjónsson, Soffía Þórarinsdóttir, Eggert Sveinbjörnsson, Sonja Þórarinsdóttir, Pétur Kristinsson, Gísli Þórarinsson, Kristín Helgadóttir, barnabörn, langafastrákur og systur hins látna. + Útför okkar ástkæra eiginmanns, föður, fóstur- föður, sonar og bróður, GUÐNA SIGURBJARNASONAR lögreglumanns, Arnarsmára 28, sem lést sunnudaginn 30. janúar, fer fram frá Bústaðakirkju mánudaginn 7. febrúar kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á að láta líknar- og hjálparsjóð Landssambands lögreglumanna njóta þess, (sími 562 4411). Þorgerður Bergvinsdóttir, Björk og Arndís Guðnadætur, Guðbjartur Kristinsson, < Sigurbjarni Guðnason, Jóhanna Jakobsdóttir, Sigurborg Sigurbjarnadóttir, Pétur P. Johnson, Marta Lilja Sigurbjarnadóttir, Garðar Sigursteinsson, Edda Sigríður Sigurbjamadóttir, Hanna Birna Sigurbjarnadóttir, Reynir Steinarsson, Hörður Sigurbjarnason, Erna Guðlaugsdóttir, Elísabet Sigurbjarnadóttir, Kristján Sverrisson og aðrir ástvinir. + Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma, SiGRÍÐUR ANDRÉSDÓTTIR frá Hamri í Múlasveit, síðast til heimilis í Holtagerði 15, Kópavogi, verður jarðsungin frá Kópavogskirkju mánu- daginn 7. febrúar kl. 13.30. Þórir Kr. Bjarnason, Gestný Kolbrún Kolbeinsdóttir, Böðvar Örn Sigurjónsson, Sigurgísli Ellert Kolbeinsson, Ólöf Jósepsdóttir, Þórdís Sif Þórisdóttir, Bjarni Kristinn Þórisson, Alma Þórisdóttir, Anna Sigurbjörg Þórisdóttir, Jón Þórir Þórisson, Helgi Róbert Þórisson og barnabörn. Árni Egilsson, Ingibjörg Sólveig Halldórsdóttir, Olgeir Karl Ólafsson, Valgerður Margrét Gunnarsdóttir, + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug vegna andláts og útfarar ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÞURÍÐAR E. BALDVINSDÓTTUR, Ránargötu 35, Reykjavík. Hulda Jónsdóttir, Gréta Jónsdóttir, Vöggur Jónsson, Unnur I. Jónsdóttir, Halldór Einarsson, Áslaug E. Jónsdóttir, Sigurður Sigurjónsson, Baldvin Jónsson, Ásgerður Guðbjörnsdóttir, Þuríður E. Baldursdóttir, Jóhann S. Erlendsson, barnabörn og barnabarnabörn. ATVIMMU- AUGLÝSINGAR Húshjálp Franska sendiráðið vantar nú þegar húshjálp í sendiherrabústaðinn. Viðkomandi þarf að vera þrifinn og ábyrgur. Reynsla af húshjálp og eldamennsku nauðsynleg. Um er að ræða fullt starf. Nánari upplýsingar eru veittar í Franska sendi- ráðinu í símum 551 7621 og 551 7622. Embassy household The French embassy needs urgently a housekeeper at the Residence. A good sense of responsibility and tidiness is required. The interested must have some experience in housekeeping and cooking. Full time employment. Forfurther information please call the French Embassy at 551 7621 or 551 7622. Bifvélavirkjar Bifvélavirkja vantartil kennslu í bílgreinum strax! Áhugasamir hafi samband við kennslustjóra eða skólameistara í síma 535 1713 eða 535 1700. Skólameistari. HÚSNÆÐI í BQÐI Barcelona íbúðirtil leigu í miðborg Barcelona. Gott fyrir fjölskyldur og hópa. Upplýsingar í síma 899 5863 f.h. (Helen). UPPBDÐ Uppboð Eftirtalin bifreið verður boðin upp á lögreglustöðinni, Vesturgötu 17, Ólafsfirði, miðvikudaginn 16. febrúar 2000 kl. 11.30: IV-032 Greiðsla við hamarshögg. Sýslumaðurinn á Ólafsfirði, 2. febrúar 2000. TIL SÖLU Lagerútsala/barnavara Dagana 3.-6. febrúar verður haldin lagerút- sala á barnavörum. Boðið verður upp á mikið úrval af barnavörum og barnafatnaði, svo sem bílstóla, barnarúm, matarstóla, barnavagna og kerrur. Einnig mikið úrval af barnafatnaði og leikföngum. Ath. allt að 40% afsl. frá heildsöluverði. Opnunartími frá kl. 11 — 17 fimmtud og föstud. og 11 — 16 laugard. og sunnudag. Lagerútsala, Smiðsbúð 8, Garðabæ. Til sölu Baader 440 flatningsvél í toppstandi og Odd- geirshausari með slítara. Upplýsingar í símum 893 4103 og 565 5930.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.