Morgunblaðið - 05.02.2000, Side 59
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
LAUGARDAGUR 5. FEBRÚAR 2000 5^
Lög’in um þjóðlendur
eru stjórnarskrárbrot
Jóhann J. Ólafsson
UMFJOLLUNIN
um svonefndar þjóð-
lendur gerist nú æ há-
værari, bæði í blaða-
greinum og á fundum.
Hagsmunaárekstrar
koma æ betur í ljós.
Sérstaklega nakin er
sú valdníðsla og valda-
rán, sem þessu er sam-
fara. Margir bændur í
Arnessýslu eru fyrstir
til að verða fyrir barð-
inu á þeirri eignaupp-
töku sem lög þessi
hafa í för með sér.
Upp er komin alveg
sérstaklega ógeðfelld
deila á milli ríkisvaldsins og bænda.
Ógeðfelld vegna þess að ríkið, sem
stofnað er og kosið til að vemda
mannréttindi landsmanna, er nú að
misnota aðstöðu sína til þess að
leggja réttindi þeirra undir vald sitt.
Einar Jónsson, fyrrverandi bóndi í
Tungufelli, kvartar imdan því að
„virðist þama vera ráðandi það eina
markmið að vefengja eignarrétt
bænda og annarra landeigenda á
löndum sínum og lýsa sem mest
landsvæði þjóðlendur og ekki tekið
tillit til viðurkenndra landamerkja.
Kröfulýsingin er þannig að ég tel
eðlilegt að fara um hana nokkrum
orðum. Greinilega er ekki hirt um að
afla nægilegra tiltækra heimilda og í
sumum tilvikum haldið fram hrein-
um ósannindum".
Við þessi orð Einars Jónssonar má
bæta því, að bændur kvarta undan að
réttur sem þinglýstur hefur verið at-
hugasemdalaust, jafnvel á næstsíð-
ustu öld, er nú vefengdur af ríkis-
valdinu sjálfu, þeim aðiia sem á að
standa vörð um þinglýst réttindi.
Hér gildir enginn sex mánaða frestur
er ríkisvaldið vill beita sér í hag.
Hvers vegna eru landsmenn upp á
það komnir að standa í slíkum og því-
líkum hremmingum við sína eigin
fulltrúa? Hér heggur sá er hh'fa
skyldi. Þetta er ójafn leikur. Full-
trúar ríkisvaldsins stunda þessa
ásælni í fullri vinnu á fullum launum
og öruggum eftirlaunum á kostnað
skattgreiðenda, en bændur, sem eru
skattgreiðendur, verða að verja
mannréttindi sín og eignir í hjáverk-
um með annarri vinnu, sem er ærin
fyrir, og á eigin kostnað. Þeir borga
semsagt báðum megin, en ríkisvaldið
situr báðum megin borðsins. Þar að
auki hafa bændur, landeigendur, þ.e.
varnaraðilinn, sönnunarbyrðina fyrir
þvi að vera eigendur lands, sem hef-
ur verið nýtt í margar aldir. Sum
þessara eignarréttinda eru eldri en
sjálft þjóðveldið 930. Afbrotamenn
hafa meiri réttindi í þessu landi. Það
er lágmarkskrafa að sönnunarbyrð-
inni verði snúið við þannig að bændur
eigi allt land, sem tilheyrir jörðum
þeirra samkvæmt hefðbundum skiln-
igi-
Það er gjörsamlega óþolandi að
ríkisvaldið sé að ásælast eignir og
réttindi landsmanna á þennan hátt.
Þetta er ákaflega ójafn leikur því rík-
isvaldið hefur lagasetningarvaldið,
dómsvaldið og framkvæmdarvaldið,
sem ræður yfir ríkissjóði, sín megin.
T.d. eru bændur miklum misrétti
beittir og dómsvaldið takmarkað af
löggjafanum, þegar lög nr. 58/1998
um þjóðlendur veita bændum ein-
ungis sex mánaða frest fyrir þá, sem
vilja ekki una úrskurði óbyggðan-
efndar, til að höfða einkamál á eigin
kostnað. Þessi árás á réttindi bænda
er herfileg misnotkun ríkisvaldsins.
Að vísu er orðað að bændur fái gjaf-
sókn í slíkum málum. Gjafsókn getur
aldrei bætt alla þá fyrirhöfn og
vinnutöf, sem bændur þurfa að bera
vegna slíkra mála, og það breytir
ekki því að ríkisvaldið setur lög um
sína hagsmuni gegn hagsmunum
bænda, sem það sjálft á síðan að
skera úr um.
Hér eiga vel við orð Sigurðar Nor-
dal í riti hans „íslensk
menning" bls. 176:
„Háski sá, sem vofir
yfir lýðræði nútímans og
hefur víða gert það svo
valt, er framar öllu fólg-
inn í fláttskapnum, þeg-
ar almenningi er talin
trú um, að hann sé kúg-
aður samkvæmt umboði
frá honum sjálfum, eða
hann fyrst féflettur og
síðan látinn þiggja sína
eigin eign í mútur og
náðargjafir.“ Með þess-
um fleygu orðum er Sig-
urður Nordal að vekja
athygli manna á því,
langt á undan sinni samtíð, að ein-
stakhngurinn er annað og meira en
samnefnari eða meðaltal heildarinn-
ar og að víðtæk hugtök eins og þjóð,
ríki, alþýða og almannahagsmunir
geti aldrei komið í stað einstakhngs-
ins, sem alltaf er grundvöllurinn.
Eru menn hissa á því að Fram-
sóknarflokkurinn sé lítill um þessar
mundir? Hvar er lýðræðið statt er
þessir tveir flokkar, sem nú mynda
Þjóðlendur
Koma á á fót sjálfstæð-
um stjórnlagadómstóli,
segir Jóhann J. Olafs-
son. Forseti hans yrði
kosinn beinni kosningu
af þjóðinni.
stjóm á íslandi og hafa ávallt haft
verndun manréttinda á dagskrá,
gera slíka aðför að lýðveldinu? Hvert
geta bændur snúið sér þegar þessir
flokkar hafa brugðist og vinstriflokk-
amir hta ekki á eignarréttindi sem
mannréttindi?
Best væri að fella ákvæðið um
eignarrétt ríkisins á þjóðlöndum úr
lögum og færa almenninga aftur
undir lögsögu Alþingis þar sem þeir
hafa verið alla tíð síðan 930.
Óbyggðanefnd ætti að vera hlut-
laus og skipuð af Alþingi og fjalla um
skilin á milh eignarlanda og almenn-
inga. Það land, sem ekki er háð eign-
arrétti, er almenningur. Hér gildir
ekki reglan frá Noregi að: „Það land,
sem enginn á, á kóngurinn." Hér
gildir reglan frá 930 að: „Það land,
sem enginn á, á enginn," en er undir
lögsögn Alþingis. Þetta er hluti af
stjómskipun landsins og ef henni á
að breyta þarf að breyta stjórnar-
skránni, að mínu mati.
Aðeins eignarréttur einstaklinga
er varinn gegn ríkisvaldinu í 72. gr.
stjómarskrárinnar. Ekki öfugt. Um
eignir ríkisins gildir 40. gr. stjómar-
skrárinnar. Höfuðreglan á auðvitað
að vera sú að opinber eign (ríkis og
sveitarfélaga) á að vera algjör und-
antekning. Það er forsenda lýðræðis-
ins.
Ég hef skrifað um það áður (Mbl.
23.6. ’99 bls. 31) að stjómskipun ís-
lenska lýðveldisins er í mikilli
kreppu. Éins og málum er háttað í
dag renna hinar þrjár greinar ríkis-
valdsins saman í eitt í raun, þótt
formlega séu þær aðskildar. Auk
þess er stjómarskrárgjafinn, sem á
að vera óháður ríkisvaldinu, raun-
verulega í höndum framkvæmda-
rvaldsins. Vegna þess að þingræðið
hefur snúist í andhverfu sína er allt
vald samansafnað hjá framkvæmda-
valdinu. Þessi brotalöm stjómskijt-
unarinnar kemur skýrt upp á yfir-
borðið í deilunni um þjóðlendur og
umræðunni um skipun seðlabanka-
stjóra nýlega.
Brýna nauðsyn ber til að skilja að í
raun hinar ýmsu greinar ríkisvalds-
ins:
1. Aðskilja löggjafarvald og fram-
kvæmdavald með því að kjósa for-
sætisráðherra beinni kosningu af
þjóðinni og leggja þingræðið af.
2. Kjósa dómmálaráðherra beinni
kosningu og hafa ráðuneyti hans ut-
an ríkisstjómar og framkvæmda-
rvaldsins. -
Koma á fót sjálfstæðum stjórn-
lagadómstóli. Forseti hans yrði kos-
inn beinni kosningu af þjóðinni. Þessi
stofnun hefði umsjón með kosningu
sérstaks stjómlagaþings þegar
breyta þyrfti stjómarskránni. Eins
og nú er em breytingar á stjórnar-
skránni raunvemlega á valdi ríkis-
stjómarinnar hverju sinni.
Bændur stofnuðu þetta þjóðfélag á
Þingvöllum árið 930 og hafa ávallt
staðið vörð um lýðréttindi og lands-
réttindi vor gegn innlendu sem er-
lendu valdi.
Enn sem fyrr em þeir nú bijóst-
vöm almennings og þurfa fullan
stuðning hans. Bændasamtökin
verða að styðja dyggilega við síria
menn og efla þá í að standa fast á
rétti sínum.
Höfundur er stórkaupmaður og
lýðveldissinni.
Hvernig kemur þú heilu
körfuboltali&i inn í Suzuki WagonR+?
Svar: 2 fram í og 2 aftur í.
Endurtakist eftir þörfum.
ATH: Ekki er rá&legt að leika körfubolta á meðan á akstri stendur
Wagon R+
Fjölnotabíllinn
TEGUND:
WAG0N R+
VERÐ:
1.099.000 KR.
WAG0N R+ 4x4 1.299.000 KR.
Fjölhæfni er orðiö sem lýsir eiginleikum WagonR+ best.
4X4 drifið sér til þess að smá hindranir standa ekki í vegi
fyrir honum en ef hann hins vegar vill stansa, sjá ABS-
hemlarnir til þess að hann gerir það fljótt og örugglega.
WagonR+ er alvöru fjölnotabíll sem hittir í markl
# SUZUKI
//-
SUZUKIBÍLAR HF
Skeifunni 17. Sími 568 51 00.
www.siizukibilar.is
SUZUKI SÖLUUMBOÐ: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, siml 431 28 00. Akureyri: BSA hf„ Laufásgötu 9, simi 462 63 00. Hafnarfjörður: Guðvarður Ellasson,
Grænukinn 20, simi 55S 15 50. Hvammstangi: Blla- og búvélasalan, Melavegi 17, simi 451 26 17. Isafjörður: Bilagarður ehf.,Grænagarði, simi 456 30 95.
Keflavík: BG bilakringlan, Gröfinni 8, sfmi 421 12 00. Selfoss: Bilasala Suðurlands, Hrísmýri 5, sfmi 482 37 00.