Morgunblaðið - 05.02.2000, Page 60

Morgunblaðið - 05.02.2000, Page 60
4j9 LAUGARDAGUR 5. FEBRÚAR 2000 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ Efling miðborgar Reykjavíkur um nýja aflvaka og annars konar orkugjafa til að halda stöðu okkar og samkeppnishæfni á nýrri öld. Reykjavíkurhöfn BORGARSTJÓRN Reykjavíkur tók þá ákvörðun fyrir tæplega ári að skipa miðborgar- stjóm og réð fram- kvæmdastjóra til að vinna að eflingu mið- borgarinnar. I miðborg- arstjóm eiga sæti þrír pólitískt kjömir full- trúar Reykjavíkurborg- ar og þrír fulltrúar hagsmunaaðila í mið- borginni. Miðborgar- stjóm er ekki hluti af hinu formlega valda- og stjómkerfi borgarinn- ar. Hún er fyrst og fremst ráðgefandi og umsagnaraðili um stefnumótun og dagleg mál sem snúa að miðborginni. Hnignun miðborgarinnar má rekja nokkuð mörg ár aftur í tímann, en merkja má nokkum bata síðustu misseri. Bætt efnahagsástand hefur haft jákvæð áhrif á miðborgina eins og ýmislegt annað í okkar þjóðlífi. Hnignun undanfarinna ára ein- kennist m.a. af eftirfarandi. • Fáir íbúar eru í miðborginni og ekki nægilega gestkvæmt. Fámenni dregur úr hinum mikilvæga þætti lif- níidi mannlífs sem miðborg þarf að hafa. • Talsvert hefur verið um autt og illa nýtt húsnæði í miðborginni og fyr- irtæki hafa verið að flytja þaðan. • Fjárfestar hafa almennt ekki haft áhuga á að kaupa húsnæði í mið- borginni eða byggja nýtt fyrr en rétt á síðustu misserum. • Viðhaldimargrahúsahefurver- ið ábótavant. • Slæm ásýnd og skipulagsmál í ólestri. • Verslunum hefur fækkað og bílastæða- skortur hefur aukið mikið á vandann. Miðborgarstjómin er staðráðin í að leggja sitt af mörkum tíl að snúa þessari þróun við í sam- starfi við hagsmunaað- ila. Miðborgin þarf að vera „borgin okkar“ í hugum allra lands- manna, skapa sérstöðu og verða í fremstu röð borga í Evrópu sem áhugavert er heim að sækja. Leggja ber áherslu á að miðborg Reykjavík- ur er kjami opinberrar stjómsýslu, stærri fyrirtækja og stofnana, eink- um á sviði fjármála, menningarstarf- semi, lista og lifandi mannlífs. Meðal stefnumála sem vinna þarf að er eftírfarandi: • Skapa þarf svigrúm á miðborg- arsvæðinu fyrir fleiri fyrirtæki í opin- berri stjómsýslu og fyrirtæki, eink- um í íjármáia- og þekkingariðnaði. • í miðborginni verði lögð áhersla á líflegt menningar- og listastarf í sambýli við verslanir og veitingahús og að landsmenn allir líti á miðborg- ina sem sína miðborg. • Gera þarf höfnina sem mest að hluta af starfsemi og ímynd miðborg- arinnar á aðra hönd og tjömina á hina, þar sem höfninni verði sköpuð sérstaða sem lykilþáttur í ímynd borgarinnar. í framtíðinni, þegar Miðborgin Reykjavíkurhöfn hefur unnið að því, segir Þorkell Sigurlaugsson, að gera Reykjavík að al- þjóðlegri viðskipta- og þjónustumiðstöð. flugvöllurinn fer úr Vatnsmýrinni eft- ir 15-20 ár eða jafnvel fyrr, nái mið- borgin og áhrifasvæði hennar út í Vatnsmýri og fái þar aukið svigrúm tílvaxtar. Virðingarleysi Það sjónarmið hefur einkennt um- ræðuna á undanfömum áratugum að landrými sé svo mikið hér á Islandi og í Reykjavík að nánast megi tala um óþijótandi auðlind. Bent er á þetta í nýútkominni bók Trausta Valssonar, skipulagsfræðings, Borg og náttúra. Fjarlægðir og tími hafa ekki heldur verið metnin sem kostnaður. Við höf- um ekki borið tilhlýðilega virðingu fyrir verðmæti lands og verðlagning þess verið lág. Það hefur leitt tU lakari nýtingar og óhagkvæmni í bygging- um fasteigna og nýtingu bflastæða. Þetta hefur komið í bakið á okkur á undanfömum áratugum þar sem borgin hefur dreifst yfir stórt svæði og rekstur borgarinnar og kostnaður íbúanna farið sífellt vaxandi. Er nú svo komið að íbúar veija miklum tíma í akstur fram og til baka í borginni í Þorkell Sigurlaugsson ISLENSKT MAL Ævitíminneyðist, unnið skyldi langtum meir. Síst þeim lífið leiðist sem lýist, þar til út af deyr. Svo kvað sr. Bjöm Halldórs- son i Sauðlauksdal (1724-1794), enda var hann kallaður vinnu- harður. Orðið ævi sMlgreinir Ásgeir Blöndal Magnússon með orðunum tími, lífstíð, aldur. A gotnesku aiws er þetta í merk- ingunni tími, eilífð, hvorki meira né minna. Mörg önnur frænd- yrði á þetta önnur í málum skyldra þjóða. Því miður þykir mér að orðið ævi eigi undir högg að sækja um þessar mundir, og sækir að okk- ur í staðinn líftúni. Það er svo sem ekkert vont orð í sjálfu sér, en minnir leiðinlega á ensku life- time, og hreinn óþarfi að rýma burtu stuttu ævagömlu orði. Líftíminn reynist líka dálítið frekur, því að farið er að tala um „líftíma“ dauðra hluta. Heyrt hef ég minnst á fót sem hafí langan líftíma, en þar er betra að halda sig við orðið endingar- góður. Og svo má ekki gleyma orðinu gamall. Mér þykir t.d. einboðið að skip verði gömul í stað þess, sem nú heyrist, „að þau hafi langan líftíma“. En til þess að menn týni síður orðinu ævi læt ég fljóta hér með eina af snilldarvísum Æra- Tobba: Ævin teygist eins og spjör. Yndislokíheimi hægt er að þreyja, haddavör. En hvað á að segja, gaddabör? ★ Orðið ævi er afskaplega mjúkt í munni, eitt raddað samhljóð á milli tvíhljóðs og sérhljóðs. Þá er beygingin ekki til að fráfælast; orðið er eins í öllum fóllum, eitt Umsjónarmaður Gísli Jónsson 1.043. þáttur af fáum. Við skulum taka á okk- ur smákrók og hyggja að slíkum orðum sem beygjast eins og ævi. Þau eru t.d. elli, fræði, kæti, reiði, mæði, speki, kristni, fjöl- kynngi, lygi, freistni, bræði, prýði og kveðandi. Eins og hver maður finnur er þessum orðum sameiginlegt, að þau fara illa í fleirtölu, enda tákna þau hugtök en ekki hluti. Lærðir menn kalla flest þessi kvenkynsorð in-stofna og að gömlum lærdómshætti búum við þá til lærdómsvísu: Kristni, mæði, kveðandi, kæti, elli, fræði, prýði, fæmi, (jölkynngi, freistni, speki, bræðL Þessi þula er gjörsneydd þeim sjarmi sem sumar gamlar lær- dómsvísur höfðu, í landafræði oft tempraðar trega yfir því að hafa aldrei komið á þá staði sem upp voru taldir: í Afganistan eru þessar borgir: Herat, Kabúl, Kandahar; komiðhefégaldreiþar. Og þokkafyllri stjömufræði hef ég aldrei lært en þessa vísu sr. Olafs Guðmundssonar á Sauðanesi þess er orti mest fyrir herra Guðbrand: Tólf eru á ári tunglin greið, tilberaðþrettánrenni. Sólingengursínaleið, svo sem guð bauð henni. ★ „Orsökin til þess að ég las hvert pút og plagg sem ég náði í eftir Sinclair Lewis var ekki list hans eða andagift, heldur æsileg aðferð hans í því að reifa mál. Ég hefði ekki viljað vinna til að gánga þvert yfir strætið til að kynnast þessum manni persónu- lega. Orsökin til þess mundi hafa verið sú að ég fann í honum hvorki sögumanninn né mann- inn. Vera má að áhrifagildi hans liggi einmitt í því hve „vel“ hon- um tekst að afklæðast persón- unni í stfl sínum, samsama sig því dulargervi sem hann hafði búið sér tfl og ég líkti áðan við þá kallara sem auglýsa allrahand- ana skrípasjó á dýrahafsbökk- um. Honum tókst að skapa stfl sem var í eðli sínu ekki stfll neins ákveðins einstaklíngs eða ábendanlegs sögumanns, heldur er þverskurður af hversdags- legu amerísku kjaftamagni: amrísku skrumauglýsíngunni, árstraumnum sem stendur útúr vörubjóðnum, rokufréttablað- inu, gortaranum, kjaftásnum, fylliraftinum, - öllu þessu hleyp- ir hann í einn þráðinn í stfl sín- Un?Halldór Laxness: Skálda- tími). ★ Hlymrekur handan kvað: Jólakötturinn saddur sat, hafði Sveinka étið í eftirmat. Hvað tók Sveinki til bragðs? Bráviðþegarogstrax og á sig og kvikindið át hann gat ★ Auk þess fær Sigurður Jóns- son í veðurfréttunum á Stöð tvö stig fyrir orðin Mið-Evrópa og stórhríð. Og úr prófunum, kannski ekki alveg nýtt: „Eggert Ólafsson var góður sundmaður. Hann fór til Noregs og drekkti Ólafi kon- ungi helga á sundmóti í ánni Nfl. Svo fór hann heim til íslands, en Bretar drápu hann í þorska- stríðinu. Þá sagði Ólöf kona hans: Ekki skal gráta, heldur safha liði, fór og drap Bretana.“ (Af þessu eru tfl fleiri gerðir en ein, og er nú leitað frumrits- ins.) einkabflum eða almenningsvögnum með tílheyrandi kostnaði og loft-, sjón- og hávaðamengun. Innan mið- borgarinnar hafa ökumenn hringsól- að í leit að bflastæðum. Fagna ber áhuga og umræðum fjölmarga aðila um borgarmálefni á undanfömum misserum svo sem „Samtaka um betri byggð“ og um- fjöllun innan Háskóla Islands. Fjöl- margir aðilar eru að vakna til vitund- ar um mikilvægi umræðu og framtíðarsýnar um málefni miðborg- arinnar. Einhver sagði: „Miðborgin er ekki falleg fyrir hvað hún er heldur fyrir hvað hún gæti orðið.“ Stór framkvæmd í augsýn? Almennt virðist sátt um að núver- andi miðborg Reykjavíkur verði mið- borg höfuðborgarsvæðisins. Til þess að miðborgin geti staðið undir nafni, þarf hún að stækka og eflast á næstu árum og í miðborginni og einkum í ná- grenni hennar þarf að fjölga íbúum. Bygging tónlistarhúss, ráðstefnu- miðstöðvar og fyrsta ílokks hótels við austurhöfnina og betri tenging hafn- arsvæðisins við miðborgina er meðal áhugaverðra og mikilvægra verkefna. Menntamálaráðherra, með stuðningi rfldsstjómarinnar, hefur gefið vilyrði fyrir því að fjármagna byggingu tón- listarhúss. Reykjavíkurborg sýndi frumkvæði í að fá þessar byggingar á miðborgarsvæðið við höfnina þar sem nú er Faxaskáli og þar í kring. Þessi ráðstefnu- og fundaaðstaða, tengd tónlistarhúsi og hóteli, verður afar mikflvæg fyrir Reykjavík og mun styrkja samkeppnisstöðu Islands. Þessari framkvæmd má líkja við það þegar höfnin var byggð á sínum tíma fyrir liðlega 80 árum og þegar hita- veita var lögð í Reykjavík fyrir um 60 árum eða þegar Reykjavíkurborg hafði frumkvæði að fyrstu vatnsafls- virkjununum með ElÚðaárvirkjun og Ljósafossvirkjun. Þetta voru mikil- vægir aflvakar á 20. öld. Þar þurftí borgin að hafa frumkvæði og styðja við málin fjárhagslega og hið sama gildir nú. Nú er öldin önnur. Við þurf- Það er vel við hæfi á ári menningar- borgar Reykjavíkur að Reykjavíkur- höfn, sem er í eigu Reykjavíkurborg- ar, fái aukið og nýtt hlutverk í takt við nýja tíma. Menning, ferðaþjónusta og lifandi mannlíf þarf að fá að njóta sín í miðborg Reykjavíkur. Markmiðum, sem sett voru fyrir hafnargerðina í byijun 20. aldar, hefur verið náð fyrir löngu og Reykjavíkurhöfn hefur átt stóran þátt í að gera Reykjavík að þeirri miðstöð flutninga, viðskipta, sjávarútvegs og iðnaðar sem hún nú er. Hin hefðbundna hafnarstarfsemi hefur smátt og smátt verið að flytjast úr gömlu höfninni og skapa þarf höfn- inni nýja vaxtarmöguleika á öðrum svæðum á næstu árum og áratugum. Með nýjum viðhorfum hafa áhersl- ur breyst og í stefnuskjali sem hafn- arstjóm samþykkti árið 1996 er hlut- verk Reykjavíkurhafnar skflgreint þannig: „Reykjavíkurhöfn, sem helsta flutningahöfn landsins, stuðli að því að Reykjavík verði alþjóðleg viðskipta- og þjónustumiðstöð í Norð- ur-Atlantshafi.“ Reykjavflturhöfn hefur unnið markvisst að því að gera Reykjavík að alþjóðlegri viðskipta- og þjónustu- miðstöð. Fjölgun erlendra skemmti- ferðaskipa, í framhaldi af öflugu markaðsstarfi hafnarstjóra og ann- arra stjómenda hafnarinnar, er dæmi um hvaða árangri má ná. I þekkingar- þjóðfélagi nýrrar aldar er áhugavert að hafnarsvæðið fá enn víðtækara hlutverk eins og víða þekkist erlendis. Eflingráðstefnuhalds, ferðaþjónustu, menningar og lista er verðugt verk- efni gömlu hafnarinnar á nýrri öld sem þjónustumiðstöðvar á Norður- Atlantshafi. Höfnin á að geta orðið líf- æð fólks, ferðamanna og þekkingar, en ekki eingöngu vamings, vöruhúsa og skipa. Þannig geta gamla höfnin og miðborg Reykjavíkur unnið saman að því að efla atvinnulíf og viðskipti og um leið bætt lífskjör og mannlíf borg- arbúa og landsmanna allra. Höfundur er framkvæmdastjóri þró- unarsviðs Eimskips og stjómarmað- ur miðborgarstjómar. Til hamingju, Islendingar TIL hamingju með að hafa eignast jafn snjalla útgerðarmenn og Samherjafrændur. Fjöldi manna hamast nú í fjölmiðlum og lýsir furðu sinni á óhemju- legum gróða þeirra frænda. Eg er einn af þeim sem öfunda þá. Ég vfl samt sem áður að þeir njótí sannmælis. Ég er þeirrar skoðunar að kvótalögin séu ósanngjöm en ég veit ekki hvemig á að sníða af þeim vankantana. Ég er líka nokkuð viss um að frændumir em ekki höfundar laganna og get ekki áfellst þá fyrir að hafa farið eftir þeim. Ég fylgdist með því þegar þeir keyptu togara á Suðunesjum sem heimamenn höfðu gefist upp á að reka. Ég sá hvemig þeir náðu sér í úr- vals mannskap og skipið þeirra varð aflasælt svo af bar. Ég veitti athygli hvernig þeir sömdu við birgja sína og þjónustuaðila og hvernig þeir önnuð- ust sjálfir sölu á afurðum sínum. A öll- um sviðum sýndu þeir festu, framsýni og fjármálavit og fyrirtækið stækkaði ört. Þeir færðu sig út fyrir landstein- ana og keyptu og snera til betri vegar fyrirtækjum sem aðrir höfðu gefist upp á. Þeir öfluðu sér virðingar og áhts starfsbræðra og kunnáttumanna innanlands og utan. Hvaða afleiðing- ar hefur svo þetta umstang þeirra haft fyrir land og þjóð? Landsmenn hafa uppskorið ríkulega, atvinna hef- ur aukist veralega og þar hefur ekki verið um láglaunavinnu að ræða held- ur fyrst og fremst störf sem era með- al þeirra sem hæst laun eru greidd fyrir í land- inu. Sveitarfélög á Norðurlandi og víðar hafa notið stóraukinna tekna og samkeppms- aðflar eins og t.d. ÚA hafa spýtt í lófana. Hvers vegna hafa fjárfestar á íslandi keppst við að kaupa hlutabréf í félagi þeirra á tíföldu nafnverði? Ástæðan er sú að þeir frændur búa yfir af- burðahæfileikum á sviði rekstrar og hafa kappið og áræðið sem skflur á Kvótalög Þeir Samherjafrændur búa yfír hæfileikum á sviði rekstrar, segir Sveinn S. Ingólfsson, og hafa kappið og áræðið sem skilur á milli manna og afburðamanna. milli manna og afburðamanna. Það er lán fyrir íslenska þjóð að einn þessara frænda skuli nú hafa flutt sig um set og fjárfest í nýjum fyrirtækjum sem munu njóta krafta hansogþekkingar. Höfundur er gmnnskólakennari og fyrrv. framkvstj. útgerðar. Sveinn S. Ingólfsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.