Morgunblaðið - 03.03.2000, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 03.03.2000, Blaðsíða 35
34 FÖSTUDAGUR 3. MARS 2000 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. MARS 2000 35 STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. GOTTSAMBAND VIÐ BANDARÍKIN KARL Lamers, talsmaður þingflokks Kristilegra demó- krata í Þýzkalandi í utanríkismálum, skrifaði athyglis- verða grein í Morgunblaðið í gær, þar sem hann víkur að tveimur kjarnaatriðum í utanríkismálum Evrópuríkja. í grein sinni segir þýzki þingmaðurinn m.a.: „Island og Þýzkaland rækta gott samband við Bandaríkin og hafa mik- illa hagsmuna að gæta í því, að ekki verði slakað á böndunum yfir Atlantshafið. í þessum anda eru ísland og Þýzkaland meðlimir í Norður-Atlantshafsbandalaginu, sem tengir Evrópu við Bandaríkin og Kanada og í grundvallaratriðum er samfélag um sameiginleg gildi og sannfæringu." Þetta er rétt. Við íslendingar eigum það sameiginlegt með Þjóðverjum, að gott samband við Bandaríkin skiptir okkur miklu máli. Þar koma til sameiginlegir öryggishagsmunir okkar og Bandaríkjamanna og áþekk sýn á helztu átakamál, sem upp hafa komið á alþjóðavettvangi í rúma hálfa öld. Við Islendingar gleymum því ekki heldur, að Bandaríkin voru fyrsta ríkið, sem viðurkenndi formlega íslenzka lýðveldið og ruddi þar með brautina fyrir viðurkenningu annarra þjóða. Þjóðverjar eiga líka mikilla hagsmuna að gæta í samskipt- um sínum við Bandaríkjamenn. Það var bandarískur herafli, sem kom í veg fyrir að Rauði her Sovétríkjanna flæddi yfir alla Evrópu á fyrstu árunum eftir heimsstyjöldina síðari. Það var pólitískur, hernaðarlegur og efnahagslegur styrkur Bandaríkjanna, sem tryggði að lokum uppgjöf Sovétríkj- anna og heimskommúnismans í kalda stríðinu, sem var for- senda sameiningar Þýzkalands. Um þetta grundvallaratriði í utanríkismálum eru Þjóðverjar og íslendingar sammála. Hitt meginatriðið í utanríkismálum Evrópuríkja, sem Karl Lamers vék að í grein sinni í Morgunblaðinu var afstað- an til Rússlands. Þingmaðurinn segir m.a.: „Framtíðar- stefna þessa risaríkis, sem spannar níu tímabelti, hefur áfram gríðarmikla þýðingu fyrir öryggismál Evrópu. Evrópskt öryggismálaskipulag stendur því og fellur með því, að Rússland haldist stöðugt, útreiknanlegt og áreiðan- legt. Við höfum ekki efni á óstöðugu Rússlandi.“ Síðan bendir Karl Lamers á, að á undanförnum árum hafi verið lagður traustur grunnur að samstarfi Atlantshafs- bandalagsins og Rússlands m.a. með NATO-Rússlandsráð- inu. Þýzkaland er orðið fopysturíkið í Evrópu og innan Evrópusambandsins. Við íslendingar eigum mikilla hags- muna að gæta á meginlandi Evrópu og innan ESB. Vegna sameiginlegrar sýnar á grundvallaratriði í utanríkismálum og sögulegrar og menningarlegrar arfleifðar, sem á sér sam- eiginlegar rætur, eru allar forsendur til staðar fyrir traustu sambandi Islands og Þýzkalands. Grein talsmanns Kristi- legra demókrata í utanríkismálum í Morgunblaðinu í gær sýnir, að meðal þýzkra ráðamanna ríkir næmur skilningur á sjónarmiðum og hagsmunum okkar íslendinga. Við eigum að leggja rækt við þessi tengsl. SJONARMIÐ FRUMKV ÖÐULS EINN merkasti frumkvöðull í brezku atvinnulífi á allmörgum undanfömum áram er tvímælalaust Sir Richard Branson, sem er heimskunnur viðskiptajöfur og m.a. eigandi flugfélags- ins Virgin Atlantic Airways. í merkilegri grein, sem Sir Richard skrifar í Financial Times sl. þriðjudag, fjallar hann m.a. um nauðsyn á aukinni samkeppni í flugi og víkur m.a. að þeirri af- greiðsluaðstöðu og afgreiðslutíma, sem flugfélög hafa komið sér upp á flugvöllum og eru talin mjög verðmæt. Branson lýsir þeirri skoðun, að takmarka eigi þann tíma, sem félögin ráði yfir þessari aðstöðu og tíma, við tíu ár og segir síðan: „Ef þessari afgreiðsluaðstöðu og tíma væri úthlutað til hæst- bjóðanda - með skilmálum, sem mundu koma í veg fyrir mis- notkun hinna stærstu - mundu þessi réttindi fara til þeirra flug- félaga, sem gætu nýtt þau bezt. Þessi aðferð væri hin sama og notuð er til þess að úthluta öðrum takmörkuðum réttindum, svo sem útvarps- og sjónvarpsrásum eða jámbrautarleiðum, neyt- endum til hagsbóta." Með þessum orðum hefur hinn brezki frumkvöðull lýst þeirri skoðun, að takmörkuðum réttindum afýmsu tagi eigi að úthluta á þann veg, að þau séu boðin út og gangi til hæstbjóðenda. At- hyglisvert er, að Branson nefnir í þessu sambandi bæði útvarps- og sjónvarpsrásir en Morgunblaðið hefur ítrekað hvatt bæði fyrrverandi og núverandi samgönguráðherra til þess að taka upp þessa aðferð við úthlutun slíkra réttinda og símarása einnig en bæði í Bretlandi og á Italíu er nú unnið að því að bjóða út leyfi til rekstrar á nýju farsímakerfi. Útvarps- og sjónvarpsrásir voru boðnar út í fyrsta sinn í Bretlandi snemma á síðasta áratug í stjórnartíð Margrétar Thatcher og kemur engum á óvart í ljósi þess, hve markaðssinnaður stjómmálamaður hún var og er. Gert er ráð fyrir bættri aðstöðu fyrir ferðafólk í tillögu að deiliskipulaffl fyrir Dyrhólaey í Mýrdal Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Gatið í Dyrhólaey hefur mikið aðdráttarafl fyrir ferðafólk. Hór er horft í það ofan frá útsýnisstaðnum, fyrsta daginn eftir opnun Dyrhólaeyjar sl. vor. Togstreita um nýt- ingu eyjarinnar Tillögu að deiliskipulagi fyrir Dyrhólaey er ætlað að bæta aðstöðu fyrir ferðamenn og stuðla að verndun umhverfísins. I grein Helga Bjarnasonar kemur fram að bændur í Dyrhólahverfí eru tortryggnir í garð þeirra sem staðið hafa að skipulaginu og enn á ný eru að blossa upp deilur um umdeilda lokun eyjarinnar yfír varptíma æðarfuglsins. VINNA við deiliskipulag Dyr- hólaeyjar hófst haustið 1998 að frumkvæði Náttúru- vemdar ríkisins. Þráinn Hauksson, landslagsarkitekt hjá Landslagi ehf., var ráðinn til verksins og var skipulagið unnið í samráði við Mýrdalshrepp, Siglingastofnun og Vegagerðina, auk Náttúmvemdar rík- isins. Tillaga að deiliskipulagi hefur verið kynnt í Mýrdal og frestur til að gera athugasemdir rennur út næst- komandi mánudag. Áhugi á að bæta aðstöðu Dyrhólaey er einstæð náttúraperla, ekki síst vegna gatsins í klettinum sem blasir við frá vitanum á Háeynni. Eyj- an er friðlýst sem friðland samkvæmt náttúraverndarlögum. Þráinn Hauks- son segir að dálítið sérstakt sé að vinna deiliskipulag fyrir náttúraverndar- svæði. „Dyrhólaey er vinsæl náttúrap- erla þar sem ferðamannastraumur fer vaxandi. Þar þarf að bæta aðstöðu fyr- ir ferðamenn, stýra álaginu, áður en umhverfið fer að líða fyrir umgengn- ina,“ segir Þráinn. I greinargerð með skipulagstillög- unni kemur fram að markmið með deiliskipulaginu er að bæta aðstöðu og þjónustu við ferðamenn á Dyrhólaey og stuðla að verndun umhverfisins með markvissri stígagerð, upplýsingamiðl- un og fræðslu. Tillagan gerir ráð fyrir endurbótum á vegum um eyna þó þannig að lega þeirra verði nánast óbreytt. Þó verður gagnamótum breytt þar sem leiðir greinast út á Lágeyna og Háeyna. Vegurinn upp á Háeyna verður aðalbraut, en Lágeyjarvegur- inn tengist inn á hann með T-gatna- mótum.Tilgangurinn er að beina um- ferð ferðamanna fyrst og fremst upp á Háeyna, að gestastofunni og útsýnis- stað þar sem gatið í klettinum blasir við, og til þess að hugsanleg tímabund- in lokun á Lágeynni vegna varps virk- aði eðlilega á þá sem heimsækja eyna. Lagt er til að bílastæðin verði áfram austast á Lágeynni og vestast á Há- eynni. Þau verði hins vegar skýrar af- mörkuð en nú er með lágum hlöðnum grjótveggjum. Við stæðin verði yfir- litskort af eynni þar sem sýndar verði gönguleiðir, útsýnisstaðir og aðrir áhugaverðir áfangar. í deiliskipulags- tillögunni er gert ráð fyrir sem fjöl- breytilegustum möguleikum í mislöng- um og miserfiðum gönguleiðum. Stígar verði gerðir næst aðkomusvæðum og við gestastofuna og vitann en fjær er talið nægjanlegt að merkja gönguleiðir mep stikum. Á gönguleiðakortinu á að merkja bestu útsýnisstaðina. Meðal annars er gert ráð fyrir að byggður verði vegleg- ur útsýnispallur upp úr grjótveggjum og steinlögn á bjargbrúninni sunnan við vitann. Þar blasir gatið í klettinum við. Þá verði núverandi grjótveggur á vesturbrún bjargsins endurhlaðinn og hækkaður, þannig að hann virki sem öryggisgirðing frá bílastæðum og fram fyrir útsýnispallinn. Mannvirki á Dyrhólaey tengjast fyrst og fremst vitanum. Auk vitans sjálfs era þar geymslur á bjargbrún- inni að vestanverðu og í norðaustur- hluta lóðar Siglingastofnunar era göm- ul fjárhús og hlaða. í tillögunni er gert ráð fyrir þeim möguleika að útihúsin verði nýtt fyrir litla gestastofu. Þar væru til dæmis upplýsingar um náttúr- ufar Dyrhólaeyjar og næsta umhverfis og sögu vitans, jafnvel vita almennt. Vestan við gestastofuna verði gert dvalarsvæði með borðum og bekkjum. Við undirbúning deiliskipulagsins var gerð fuglatalning og fomleifa- skráning. Fundust meira en tveir tugir fornleifa. Bjarni F. Einarsson forn- leifafræðingur metur að fjórtán staðir hafi hátt minjagildi og telur ástæðu til að hugleiða friðlýsingu þeirra. Um er að ræða minjar um sjósókn og fjárbú- skap, svo sem rústir, fiskbyrgi og garð og bergristur (krossa). Bændur gera athugasemdir Álag á Dyrhólaey hefur vaxið jafnt og þétt enda er hún einn af fimm mest auglýstu stöðum í ferðabæklingum um ísland sem dreift er erlendis, að sögn Árna Bragasonar, forstjóra Náttúra- verndar ríkisins. Áhugi hefur verið á því að hefja ákveðnar framkvæmdir á Dyrhólaey til að bæta aðkomu ferða- fólks og um leið að tryggja að umferðin spilli ekki umhverfinu. Ferðamálaráð, Vegagerðin, Siglingastofnun og Nátt- úruvernd hafa rætt um málið. Árni Bragason segir nauðsynlegt að ganga frá deiliskipulagi áður en farið er í framkvæmdir. Segir hann að mark- miðið með skipulagsvinnunni sé að setja reglur um umferð um eyna og reyna að ná meiri sátt um nýtingu hennar. Togstreita hefur verið um nýtingu Dyrhólaeyjar, á milli bænda í Dyr- hólahverfi sem þar hafa nýtt æðar- varp og ferðaþjónustuaðila. í reglum um friðun Dyrhólaeyjar, sem settar vora að frumkvæði bænda árið 1978, er kveðið á um heimild Náttúruvernd- ar ríkisins til að takmarka ferðir þangað á tímabilinu 1. maí til 25. júní. Bændur hafa óskað eftir því að þessi heimild verði nýtt og hefur Náttúru- vemd yfirleitt orðið við því. Tveir ábúendur í Dyrhólahverfi, Þorsteinn Gunnarsson á Vatns- skarðshólum og Guðjón Þorsteinsson á Litlu-Hólum, lögðu fram skriflega yfirlýsingu á fundi í Vík á dögunum, þegar deiliskipulagstillagan var lögð fram. Þar kemur fram að þeii’ telja til- löguna engan veginn standast lög. Þeir telja að fyrirheit um samráð við ábúendur um vinnu við skipulagið hafi verið svikin og að tillagan feli í sér breytingar sem skerða muni hagsmuni bænda vegna æðarræktar og annarra nytja á svæðinu og leiði þar með til rýrnunar á verðgildi og búkostum jarðanna í Dyrhólahverfi. Þorsteinn segir í samtali við Morg- unblaðið að taka eigi tillit til allra þátta við skipulagsvinnu sem þessa. Það hafi ekki verið gert, einungis sé tekið tillit til ferðamanna en ekki hagsmuna ábúenda. Segist hann hafa heyrt á skotspónum að til standi að hafa Dyrhólaey opna fyrir ferðafólk allt árið. Það muni skerða möguleika ábúenda í æðarræktinni og fráleitt að breyta þannig til án samráðs við bændur. Þorsteinn segir ljóst að bændur muni gera miklar athugasemdir við skipulagstillöguna áður en kærafrest- ur rennur út á mánudag. Árni Bragason vísar gagnrýni Þor- steins á bug. Segir að samráð hafi verið haft við hagsmunaaðila. Nefnir hann fund 10. júní á síðasta ári í því sambandi og síðan almennan kynn- ingarfund 16. febrúar síðastliðinn. Hafsteinn Jóhannesson, sveitar- stjóri Mýrdalshrepps, segir að það sé talið betra að fá fjármagn í nauðsyn- legar lagfæringar á Dyrhólaey þegar skipulag liggi fyrir. Hann segist ánægður með niðurstöðuna, ekki sé um að ræða neina kúvendingu heldur skráningu og staðfestingu á gildandi nýtingu með möguleikum á merkingu gönguleiða. Segist Hafsteinn ekki hafa orðið var við annað en menn væra almennt sáttir við skipulagið. Breyttar aðstæður? Ekki kemur fram í skipulagstillög- unni að til standi að hætta að loka Dyrhólaey á vorin, en bent er á þann möguleika að hafa opið í Háeyna, þar sem helsti útsýnisstaðurinn er, þótt Lágeynni verði ef til vill lokað en þar er mesta varpið. Árni Bragason segir að Náttúra- vernd hafi ávallt farið að óskum bænda um lokun Dyrhólaeyjar yfir varptímann, nema eitt árið þegar ósk um það barst seint. Þetta hafi verið gert þrátt fyrir óskir ferðaþjónustu- aðila um að ferðafólki yrði alltaf gert kleift að komast þangað og að ávallt hafi verið skiptar skoðanir um það hvort lokun væri nauðsynleg fýrir æðarvarpið. Segir Ámi að ekki séu fyrirhugaðar neinar breytingar á þessu. Aðstæður hafa breyst að einhverju leyti með því að búskapur hefur dreg- ist saman og fleiri jarðir eru nú í eigu og umráðum annarra en bænda. Þannig hafa ítök Mýrdalshrepps auk- ist eftir að bóndinn á Eystri-Dyrhól- um flutti af jörðinni en hún er í eigu hrejipsins. Arni Bragason segir að Náttúra- vernd ríkisins hafi ákveðið að skrifa öllum eigendum Dyi’hólaeyjar og spyrjast fyrir um það hvort þeir vilji loka og þá hversu lengi. Hafsteinn Jóhannesson sveitar- stjóri segir að sveitarstjórnin hafi enga afstöðu tekið til deilnanna um lokun Dyrhólaeyjar. Ábúendur á jörðum hreppsins í Dyrhólahverfi hafi verið látnir óáreittir með sína afstöðu. Aðspurður telur hann þó líklegt að hreppsnefndin verði að taka afstöðu til erindis Náttúruverndar ríkisins þegar það berst. Kærufrestur rennur út mánudag- inn 6. mars, eins og fyrr segir. At- hugasemdir verða teknar fyrir í skipulagsnefnd og hreppsnefnd Mýr- dalshrepps og niðurstaðan send til Skipulagsstofnunar og síðar ráðherra til staðfestingar. Kortið sýnir ástand gróðurs á hálendi íslands. Á rauðu svæðunum er ástandið verst og Rala og Landgræðsla ríkisins telja þessa afrétti óhæfa til beitar, enda einkennast þeir af auðnum og rofsvæðum. Ástandið er einnig talið óviðunandi, en ekki eins slæmt, á þeim svæðum sem sýnd eru bleik á myndinni. Grænu svæðin eru aftur á móti vel gróin svæði sem henta vel til beitar. rögð við niðurstöðum rannsókna á alvarlesn ástandi gróðurs á hálendinu Mikilvægt að breyta viðhorfum Þ RÁTT fyrir að fvr- irliggjandi sé ítar- leg skýrsla um al- varlegt ástand hálendisins með tilliti til jarðvegsrofs frá árinu 1997 hafa lítil viðbrögð orðið og ennþá er megnið af hálend- inu nýtt til beitar. Þetta kom ma. fram í erindi dr. Ólafs Amalds, sviðsstjóra umhverfissviðs Rannsókn- arstofnunar landbúnaðar- ins, á ráðstefnu sem haldin var nýlega um jarðvegsrof og beitarfriðun á miðhá- lendinu á vegum Umhverf- issamtaka íslands og Landgræðslu ríkisins. Ólafur vill að stór hluti hálendis- ins verði friðaður og beit aflögð á þeim svæðum sem ekki era mögu- leg til sjálfbærrar nýtingar og að Island taki á þessum málum sam- kvæmt nútímalegum umhverfis- sjónarmiðum. Hann bendir jafn- framt á að stór svæði séu engu síður góð til beitar og að stýra þurfi sauðfjárframleiðslunni inn á þau svæði. Árið 1997 birtu Landgræðsla ríkisins og RALA ítarlega skýrslu um ástand hálendisins í ritinu Jarðvegsrof á Islandi, og vora þeim veitt umhverfisverðlaun Norðurlanda fyrir þær rannsóknir. I þessari skýrslu kemur skýrt fram að vegna alvarlegs ástands hálendisins henti það engan veginn til beitar. Nánast allt hálendið opið fyrir beit í samtali við Morgunblaðið sagð- ist Ólafur furða sig á því að ekkert hefði gerst í þessum málum, þrátt fyrir upplýsingar um slæmt ástand hálendisins. Hann sagði engar áætlanir liggja fyrir um það hvern- ig bregðast eigi við, en mjög brýnt sé orðið að taka ákvarðanir varð- andi friðun hálendisins. „Það er verið að setja lög á hverju sviðinu á fætur öðra í um- hverfismálum, en það gerist ekkert í þessum geira. Þannig að maður veltir því fyrir sér að til lítils sé að framkvæma rannsóknir og birta þær ef meiningin er sú að gera ekki neitt." Ólafur vill að lögð verði fram áætlun, sem taki til ákveðins tíma, og að stefnt verði að því að tiltekin svæði verði lokuð og friðuð eða þau aðlöguð að sjálfbærri landnýtingu. „Nánast allt hálendið er í dag opið fyrir beit og mjög fá svæði friðuð. Það er mjög eindregin af- staða okkar fagfólks að beit á auðnum og rofsvæðum á hálendinu er ekki viðunandi og er ekki sjálf- bær nýting á landinu." Á hálendinu eru þó mörg góð svæði, að sögn Ólafs, og að umræð- an snúist ekki um þau svæði held- ur auðnir og rofsvæði á afréttum sem fyrst og fremst ná frá Suður- landi og norður í Þingeyjarsýslu. Hann telur það fara mjög vel sam- an að hagræða í sauðfjárfram- leiðslu, með því að fækka búum eins og fram hafi komið í opinber- um umræðum, og stýra í framhald- inu beitinni inn á þau góðu svæði sem þoli álagið. Þau svæði eru víða um land og ekki bundin landshlut- um. Þurfum að stíga skrefið inn í 21. öldina Ólafur segir það hluta af vand- anum, að menn vilji ekki viður- kenna vandamálið og séu því ekki reiðubúnir að taka skrefið inn í 21. öldina. Hann segir lög um land- gi’æðslu vera algerlega úrelt og gagnslaus að mörgu leyti og að Landgræðsla ríkisins eigi ekki bara að vera uppgræðslustofnun, heldur eigi að hafa forræði á land- inu og sjá um að gæta hag þess. Nú era í smíðum ný lög og telur Ólafur að það verði einfaldlega ekki sátt um þau lög ef ekki verður lögfest að beit á auðnum og rof- svæðum hálendisins verði bönnuð. „Þá verða þetta lög í anda gamals tíma, ein- hvers staðar aftur í for- tíðinni, en við verðum að fara að stíga skrefið inn í 21. öldina í anda þeirra sáttmála sem gerðir hafa verið, eins og Dagskrár 21.“ Bjöm Barkarson, beit- areftirlitsfulltrúi Land- græðslu ríkisins, hefur komist að þeirri niðurstöðu að afréttabeit sé ekki síður félagslegt mál heldur en efnahagslegt eða vistfræðilegt. Göngur, réttir og hefðirnar í kring- um það skipi stóran sess í hugum margra og ekki sé ástæða til að gera lítið úr því. Hann segir að menn séu ekki sammála um vistfræðileg áhrif beitar á hálendinu. Bændur haldi því fram að gróður sé í framför á einhverjum af þessum stöðum, en Landgræðslan segi aftur á móti að það sé sandfok og mikið rof, þó að framfarir eigi sér stað á einhverj- um hluta. Grundvallarviðhorf ekki til staðar „Ég hef líka velt því fyrir mér, sem er mjög viðkvæmt mál, hver hin raunveralega þekking manna er á þessu máli. Þeir sem alast upp í þessu umhverfi, við það að landið sé alveg í rúst, taka þeir nokkuð eftir því? Síðan kemur einhver sem er alinn upp þar sem gras er allt í kring og honum auðvitað ofbýður. Þetta er mín reynsla eftir að ég fór að vinna hjá Landgræðslunni,“ sagði Björn í samtali við Morgun- blaðið. Hann telur að mikill árangur myndi nást með friðun, en að menn verði að átta sig á því að það gerist mjög hægt og kannski muni núlifandi kynslóðir ekki sjá veru- legar breytingar. „En ber okkur ekki skylda til að gera eitthvað í málunum upp á framtíðina? Það vantar ákveðið grandvallarviðhorf í þetta hér á landi, við verðum að breyta afstöð- unni. Þetta á ekki að líðast og við verðum bara að gera eitthvað í málunum.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.