Morgunblaðið - 03.03.2000, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 3. MARS 2000 25
ÚRVERINU
Hrog’na-
vinnsla
hafin í
Eyjum
VINNSLA loðnuhrogna er nú
hafin víða um land og er nú unn-
ið á vöktum allan sólarhringinn
við verkunina, enda stendur
hún yfir í skamman tíma. Talið
er að hægt verði að selja um
4.000 tonn af loðnuhrognum til
Japans en íslendingar hafa
nánast átt þann markað. 1997
keyptu Japanir um 4.400 tonn
og þar af 4.378 tonn frá íslandi.
Arið 1998 keyptu Japanir um
2.500 tonn og allt héðan en í
fyrra keyptu þeir um 3.300 tonn
og um 3.200 tonn frá íslandi.
Hrognavinnsla hófst í
Vinnslustöðinni hf. í Vest-
mannaeyjum í þessari viku.
Þrjú skip hafa til þessa landað
loðnu til kreistingar hjá
Vinnslustöðinni, Sighvatur
Bjamason VE, Kap VE og Gull-
berg VE. Að sögn Þorsteins
Magnússonar, framleiðslu-
stjóra, er vinnslan nú í fullum
gangi, enda séu markaðshorfur
nú ágætar í Japan og menn því í
kapphlaupi við tímann. „Það er
aldrei að vita hvenær botninn
dettur úr þessu en vonandi get-
um við unnið hrogn í viku til tíu
daga til viðbótar. A síðasta ári
var framleiðslan fremur lítil hjá
okkur eða aðeins um 300 tonn
en við stefnum á að framleiða
600 til 800 tonn á þessari ver-
tíð,“ sagði Þorsteinn.
Lítil veiði vegna brælu
Loðnuskipin voru í gær und-
an Þjórsá en aðhöfðust lítið
vegna veðurs. Nokkur skip
náðu að kasta í fyrrinótt og
fengu þokkalegan afla. Þannig
fékk Sunnutindur GK um 900
tonn í tveimur köstum og var
loðnunni landað í kreistingu í
Grindavík í gær. Að sögn skip-
stjórnarmanna er loðnan nú
komin mjög nálægt hrygningu
og því gæti jafnvel farið að
draga nokkuð úr veiði. Nái
loðnan hinsvegar að ganga inn í
Faxaflóa geti hinsvegar orðið
veiði eftir að hún hrygnir.
Samtals hafa nú borist nærri
510 þúsund tonn af loðnu að landi
á vetrarvertíðinni og nærri 600
þúsund tonn að sumar- og haust-
vertíð meðtalinni, samkvæmt töl-
um Samtaka fiskvinnslustöðva.
Því eru nú eftir um 300 þúsund
tonn af loðnukvótanum.
Fram til þessa hefur mest
borist að loðnu til Hraðfrysti-
stöðvar Eskifjarðar hf. eða um
60 þúsund tonn frá áramótum.
Hjá SR mjöli hf. á Seyðisfirði
hefur verið landað um 55 þús-
und tonnum og rúmum 52 þús-
und tonnum hjá Síldarvinnsl-
unni hf. á Neskaupstað.
Panasonic
• Panasonic NVSD 240F
Aðgerðir á skjá.
• ShowView
Barnalæsing
• Scart tengi
• Fjarstýring ofl.
í Inneign viðskiptavina f
' ónafngreindri afmaelis-
iveis'u! 3.409^
Theme Park
WorldPC
Byggðu þinn drauma-
skemmtigarð í þessum
frábæra leik. Þetta frábæra
verð hefur staðið I stað IBT
f rúman mánuð.
Inneign viðskiptavina f
ónafngreindri afmælis-
veislu! a«AA
^44.990!
29"
SONY
»Sony KV29X5 29" sjónvarp
• Super trinitron myndlampi
»2*20 Watta Nicam Stereo.
• Tengi fyrir heymatól.
• AV, S-VHS og RCAtengi
Inneign viðskiptavina f
ónafngreindri afmælis-
veislul 9.409,-
ORÐIM*
Þad er ekki nóg að segjast
vera ódýrastur
...það verður að standa við það!
BT Skeifunni - S: 550-4444 • BT Hafnarfirði - S: 550-4020 • BT Kringlunni - S: 550-4499 • BT Reykjanesbæ - S: 421-4040 • BT Akureyri - 5: 461-5500