Morgunblaðið - 03.03.2000, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 3. MARS 2000 21
VIDSKIPTI
Afkomu-
viðvörun
fráSH
TAP SH-samstæðunnar mun auk-
ast nokkuð frá sex mánaða uppgjöri
en þá nam tap af starfseminni í
heild 154 milljónum króna, að því er
fram kemur í afkomuviðvörun fé-
lagsins til Verðbréfaþings íslands í
gær.
í árshlutauppgjöri SH-samstæð-
unnar fyrstu sex mánuði ársins
1999 kom fram að hagnaður af
reglulegri starfsemi eftir skatta
nam 72 milljónum króna. Tap af
starfseminni í heild nam 154 millj-
ónum króna eftir að tillit hafði verið
tekið til óreglulegra tekna og gjalda
sem lækkuðu þannig hagnað af
reglulegri starfsemi eftir skatta um
225 milljónir króna fyrstu sex mán-
uði ársins.
I fréttatilkynningu dagsettri 27.
ágúst 1999 sagði að horfur væru á
að afkoma félagsins af reglulegri
starfsemi á síðari hluta ársins yrði
svipuð eða betri en á fyrri hlutan-
um, þ.e. að hún tvöfaldaðist fyrir
árið í heild. Ekki eru horfur á öðru
en þetta muni ganga eftir.
Hins vegar varð afkoma hlut-
deildarfélags SH hf. í Rússlandi
(Navenor) enn verri en búist var
við. Starfseminni hefur nú verið
hætt að mestu og er leitað eftir sölu
eigna eftir því sem aðstæður leyfa.
Vegna mikils taps á rekstri Naven-
or og óvissu um verðmæti fasta-
fjármuna þess við sölu ákvað stjórn
SH á fundi sínum í gær að færa
eignarhlutann að fullu niður í bók-
um félagsins. Hlutdeildarfélag SH í
Rússlandi mun því ekki hafa frekari
áhrif á rekstur samstæðunnar nema
til komi beinar greiðslur frá SH svo
sem vegna kostnaðar á þessu ári við
að leggja niður starfsemina.
Af þessum ástæðum mun tap SH-
samstæðunnar fyrir allt árið 1999
aukast nokkuð frá sex mánaða upp-
gjöri.
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna
hf. mun birta afkomutölur ársins
1999 21. mars nk.
------6-4-4----
Umboðið fyrir
Kia fer í
Hafnarfjörð
SAMNINGAR hafa náðst um að
Suzuki-umboðið ehf. taki að sér
umboð fyrir Kia-bíla. Suzuki-um-
boðið gerist með þessu bílaumboð.
Fyrirtækið hefur komið sér upp
sýningaraðstöðu og varahlutalager
og getur byrjað að veita Kia-eig-
endum þjónustu næstu daga.
Suzuki-umboðið ehf. er í eigu
Stefáns Tómassonar og Kolbeins
Pálssonar. Það hefur haft með
höndum sölu á mótorhjólum, raf-
stöðvum og utanborðsmótorum frá
Suzuki, en ekki bílum. Fyrirtækið
stækkaði við sig húsnæði á dögun-
um og flutti í rúmgott húsnæði á
Flatahrauni 31 í Hafnarfirði.
Stefán segir að um svipað leyti
haíí verið að losna um Kia-umboð-
ið vegna erfiðleika hjá Jöfri. Fyrir
um það bil tveimur mánuðum
gerðu fyrirtækin samkomulag um
að Suzuki-umboðið tæki yfir Kia-
umboðið. Síðan hefur verið unnið
að samningum við bílaframleiða-
ndann. Að sögn Stefáns voru fram-
leiðendur Kia í viðræðum við fleiri
bílaumboð en nú hafa þeir sam-
þykkt Suzuki-umboðið sem um-
boðsmann fyrir bílana hér. Búnað-
arbankinn hafði leyst til sín alla
óselda bíla hjá Jöfri og nú hefur
Suzuki-umboðið samið um kaup á
þeim. Verið er að setja upp vara-
hlutalager og bflarnir koma í hús á
næstu dögum.
Stefán segir að búið sé að ráða
Sigurð Pálmar Sigfússon sem sölu-
stjóra fyrir Kia-bílana en hann
gegndi því starfi áður hjá Jöfri.
Einnig verði ráðinn varahlutamað-
ur. Stefnt sé að því að eigendur
Kia-bíla fái góða þjónustu hjá nýju
umboði.
öl til útlanda!
í**' L v-. v>. L L'L L L/\,j L ». L v_ V. V*. L«. L Vj I V. L V». L L v_ V_.. Vi. L V.V - L« V .. L. *. V ^ V- ■ uuL' ír
Gerið verð og gæðasamanburð: Landsíminn Landsíminn
Land: Landsnet Net-síminn** Dagtaxti Kvöld- helgart.
Svíþjóð 16,20 17,23 30 27
Þýskaland .. 16,72 19,28 30 27
Kolland 16,61 19,28 36 33
Frakkland .. 16,84 19,28 36 33
Japan 18,89 21,61 66 60
Ítalía 20,36 20,46 42 38
*Landsnet ehf. (1080) er frjálst og óháð fyrirtæki, stofnað 1995.
**Netsiminn (1100) er f eigu Landsímans.
Skráningargjald kr. 374.- Argjald kr. 187.-
*og** Verð án viðbótargjalds pr. mínútu fyrir innanbæjarsímtal.
1.56 kr á dagtaxta en 0,78 kr. á kvöld- og helgartaxta. Verð pr. mínútu.
Skráðu þig á netinu eða í 562 5050
og byrjaðu ftfSX að spara!
Að lokinni skráningu getur þú hringt
úr hvaða síma sem er!
,„!080.,
síðan erlenda símanúmerið!
Landsnet
http://www.landsnet.is
Hafnarstræti 15 Reykjavík Sími 562 5050 Fax 562 5066
ERFiTT EN |
SÞROSKANDi 1
Kolbrún grasalæknir
lenti í andlegum
þrengingum i
HJÁLPSEMiJ
AFSKfPTASeJ
ERTU ALDR
BRUÐAR
BLAÐ
FYLGIP 1
SMASAGA - STJ