Morgunblaðið - 03.03.2000, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 3. MARS 2000 5^
Oruggur sigur Sævars
á meistaramóti Hellis
SKAK
Hellisheimilið
MEISTARAMÓT HELLIS
14. feb. - 1. mars 2000
SÆVAR Bjarnason sýndi mikið ör-
yggi á meistaramóti Taflfélagsins
Hellis sem lauk á miðvikudagskvöld.
Tefldar voru sjö
umferðir og Sæv-
ar vann alla and-
stæðinga sína og
varð IV2 vinningi
á undan næsta
manni. Davíð
Kjartansson varð
í öðru sæti og þar
sem Sævar er
ekki í Helli hlaut
Davíð titilinn skák- Sævar
meistari Hellis árið lijarnason
2000. Þetta er í fyrsta sinn sem Dav-
íð nær titlinum og bindur þar með
enda á þriggja ára tímabil þar sem
Björn Þorfinnsson hefur borið þenn-
an titil. Björn fylgdi reyndar fast á
hæla Davíðs, var hálfum vinningi á
eftir honum og hlaut fimm vinninga
ásamt þeim Sigurbirni Björnssyni,
Pétri Atla Lárussyni og Baldri Möll-
er. Sérstaka athygli vekur góð
frammistaða Baldurs Möller (1.730),
sem er langstigalægstur þeirra sem
náðu efstu sætunum. Lokaröð kepp-
enda varð sem hér segir:
1. Sævar Bjamason 7 v.
2. Davíð Kjartansson 5(4 v.
3. -6. Sigurbjörn Björnsson 5 v.
Pétur Atli Lárusson 5 v.
Björn Þorfinnsson 5 v.
Baldur Möller 5 v.
7.-12. Róbert Harðarson 4 v.
Stefán Arnalds 4 v.
Jónas Jónasson 4 v.
Jóhann H. Ragnarsson 4 v.
Vigfús Ó. Vigfússon 4 v.
Páll Sigurðsson 4 v.
13.-16. Jón Árni Halldórsson 3‘á
v.
Þorvarður F. Ólafss. 3'/2 v.
Sigurður Ingason 3(4 v.
Guðjón H. Valgarðss. 3(4 v.
17.-21. Kristján Örn Elíass. 3 v.
Ingólfur Gíslason 3 v.
Ólafur í. Hannesson 3 v.
Andrés Kolbeinsson 3 v.
Sveinbjörn Jónsson 3 v.
o.s.frv.
Alls tóku 28 skákmenn þátt í mót-
inu og hafa aldrei verið jafnmargir.
Skákstjórar voru Gunnar Björnsson,
Þorfinnur Björnsson og Daði Örn
Jónsson.
Undankeppni fyrir
Heimsmótið í skák
Undankeppni um sæti á Heims-
mótinu í skák verður haldin sunnu-
daginn 5. mars á ICC-skákþjóninum.
Undankeppnin er í boði oz.com og
chessclub.com. Allir skákmenn með
alþjóðleg skákstig geta tekið þátt í
mótinu. Nú þegar eru skráðir 139
keppendur, þar á meðal 29 stór-
meistarar. í þeim hópi má finna nöfn
eins og Short og Svidler. íslenskir
skákmenn eru hvattir til að taka þátt
í mótinu, þvi það er ekki oft sem slíkt
tækifæri gefst. Nánari upplýsingar
má finna á vefsíðunni www.chess-
club.com/oz.html.
Kramnik og Kasparov efstir
Helstu tíðindin i þriðju umferð
Linares-skákmótsins voru þau, að
Shirov sigraði Anand með svörtu.
Þetta mun vera fyrsta tap Anands í
11 mánuði. Úrslit í þriðju umferð:
Anand - Shirov 0-1
Kasparov - Kramnik (4—(4
Leko - Khalifman (4—(4
Staðan á mótinu:
1.-2. Kasparov, Kramnik 2 v.
3.-4. Leko, Shirov 1(4 v.
5.-6. Anand, Khalifman 1 v.
Mátnetsmót
Samkvæmt upplýsingum frá Val-
garð Ingibergssyni verða haldin
skákmót á Mátnetinu flest kvöld, en
þó ekki á fimmtudögum. Hann mun
vakta Mátnetið og koma á mótum
þegar þátttakendafjöldi leyfii'.
Klúbbakeppni
Hellis í kvöld
Klúbbakeppni Hellis verður nú
haldin í fjórða sinn í kvöld, föstudag-
inn 3. mars, klukkan 20. Keppt verð-
ur í fjögurra manna sveitum. Tefldar
verða 9 umferðir með 7 mínútna um-
hugsunartíma. Þátttökugjald er kr.
1.000 fyrir hverja sveit. Öllum er
heimil þátttaka. Teflt verður í Hellis-
heimilinu, Þönglabakka 1.
Skákkeppni stofnana
og fyrirtækja
Skákkeppni stofnana og fyrir-
tækja hefst þriðjudaginn 7. mars kl.
20. Keppnisfyrirkomulag ræðst af
þátttöku, en stefnt er því að tefla níu
umferðir eftir Monradkerfi. Hver
sveit skal skipuð þremur skákmönn-
um auk varamanna sem eru starfs-
menn viðkomandi fyrirtækis eða
stofnunar. Tefldar verða atskákir, 30
mín. á skák. Umferðir verða sem hér
segir:
1.-3. umf. þriðjud 7.3. kl. 20-23
4.-6. umf. þriðjud. 14.3. kl. 20-23
7.-9. umf. þriðjud. 21.3. kl. 20-23
Hraðskák þriðjud. 28.3. kl. 20-23
Skákmót á næstunni
3.3. Hellir. Klúbbakeppni kl. 20
3.3. SA. 7 mínútna mót
4.3. SI. Islandsm. barnask.sv.
5.3. SA. 15 mínútna mót
5.3. Síminn-Internet. Mátnet
6.3. Hellir. Atkvöld
7.3. TR. Stofnanir og fyrirt.
9.3. TG. Skákþing Garðabæjar
Daði Örn Jónsson
Einfaldara og
þægilegra!
usVo*
lónýjw
m
Skiptu yfir í nútímalegra greiðsluform!
Frá og með mánaðamótunum mars-apríl hætta blaðberarað innheimta
áskriftargjöld. Þess í stað geta áskrifendur valið um að greiða
áskriftina að Morgunblaðinu með greiðslukorti eða beingreiðslu.
Þannig verður innheimtan einfaldari og þægilegri fyrir áskrifendur.
Hafðu samband við okkur í síma 800 6122.
i
Við hlökkum til að heyra í þér.
i
vrrnmin uuorid
HMRALLY INSPIRED"
Milk Free
Addophilus
IA BILLION LlVt CELLS
PtR CAPSULE
50« MORf UVE CLLLS
S&aiy Suppiemeot
90 VECETARIAN CAPSULES
Fyrir meltingarfærin
Apótekiö SrnÁrutorði • Apótekið Spöneinni
Apótokið Kringlunni* Apótekíð Siniðjuvogí
Apótekið Suðurströnd ♦ Apótokió tðufelii
Apótekið Hegksup Skoilunni
Apótekið Hagkaup Akuroyri
Hofnerfjafðai Apótak
Apótokið Nýkaupum Movfeilsbæ
Askriftardeild
Sími: 569 1122 • Bréfasími: 569 1115 • Netfang: askrift@mbl.is
Áskriftardeildin er opin kl. 8-20 mánudaga, 6-20 aðra virka daga, 6-21 á laugardögum og 8 -14 á sunnudögum. \