Morgunblaðið - 03.03.2000, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 03.03.2000, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 3. MARS 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Nærri 100 heimasíður um kannabis á Netinu UPPLÝSINGAR um kannabisefni eru aðgengilegar á Netinu og segir Sigrún H. Magnúsdóttir félagsráð- gjafi að nálega 100 heimasíður um þessi efni sé þar að finna. Eru þar kynntar upplýsingar um hvaða ríki leyfa efnin, hvernig á að reykja og hvernig nálgast megi þau. Karl Steinar Valsson, aðstoðaryfirlög- regluþjónn í Reykjavík, ráðleggur foreldrum að vera á varðbergi fyrir því hvaða efni börnin skoða á Net- inu og segir nokkuð um að for- eldrar leiti ráða hjá lögreglunni í þessum efnum. Sigrún starfar sem félagsráð- gjafi hjá Seltjamamesbæ og í For- eldrahúsinu og kveðst vinna mikið með foreldrum unglinga með fíkni- efnavanda. í fyrirlestri í Réttar- holtsskóla nýverið fjallaði hún einkum um uppeldi og samskipti foreldra við unglinga. „Ég sagði líka frá því að ég vissi til þess að á Netinu væri að finna 98 síður um kannabisefni," segir Sigrún. „Þarna er að finna alls konar upp- lýsingar og leiðbeiningar um hvernig má panta, um verð, hvern- ig má rækta og hvernig neyslan á Foreldrar fylgist með hvað ungl- ingar skoða að vera,“ segir hún og kveðst efast um að nokkurs staðar sé minnst á að þessi efni séu hættuleg og vana- bindandi. Segir hún nauðsynlegt að setja upp heimasíður þar sem var- að er við hættunum. Sigrún kveðst hafa tekið eftir að unglingar sem eru farnir að reykja ræði mikið um þessi efni og telji þau skaðlaus og þau vilji oft fá sig til að samþykkja það. „Ég lendi oft í þessum um- ræðum og segi bara nei takk við unglingana." Segist hún einnig verða vör við áhyggjur foreldra af þessari afstöðu unglinganna. Nauðsynlegt að ræða við unglingana Sigrún segir að samkvæmt rann- sóknum Þórólfs Þórlindssonar hafi um 20% unglinga í 10. bekk, sem eru þá 15 ára, prófað hass. Segir hún suma prófa einu sinni og síðan ekki oftar en aðrir haldi áfram. Sundlaug lokað vegna öskufalls Dalvik. Morgunblaðið. HEKLUGOS hefur ýmsar afleið- ingar. Á Dalvík varð vart ösku- falls um 3 klukkustundum eftir að gos hófst. Öskufallið var svo mik- ið að starfsfólk Sundlaugar Dal- víkur neyddist til að loka lauginni í þrjá daga vegna þess, frá sunnu- dagsmorgni til þriðjudags. Bjarni Gunnarsson, forstöðumaður, er með sýnishorn af öskunni á mynd- inni. Hann segir að gengið hafi frekar illa að hreinsa laugina. Þau tæki sem venjulega eru notuð við hreinsun Iaugarinnar þoldu illa þetta fína ryk og gáfust upp að lokum. Hún segir nauðsynlegt að foreldr- ar tali ákveðið um þessi mál við unglinga sína. „Það verður að benda á hversu hættuleg þessi efni eru og hassið er mjög lúmskt. Við finnum lykt af unglingunum þegar þeir hafa verið að drekka áfengi en ekki ef þeir eru í hassneyslu og það er mikil hætta á að unglingarnir ánetjist. Þessi efni eru líka ólögleg og ungl- ingarnir geta lent í alls kyns vanda vegna þess.“ Þá segir Sigrún einna alvarleg- ast hvernig þeir sem ánetjast hafa hassreykingum missi áhuga á því sem er að gerast í kringum þá, gleði og sorg hverfi úr tilfinninga- lífi þeirra. „Áhrifm eru þannig að fólk kemst í ákveðna stemmningu eða vímu og hrífst eða verður ást- fangið og þar fram eftir götunum en þegar áhrifunum sleppir eru þessar tilfinningar ekki lengur fyr- ir hendi. Menn hætta að hrífast og finna fyrir sorg og hjá þeim verður eins konar flatneskja og áhugaleysi ríkjandi. Það finnst mér ömurlegt og sorglegt við neyslu kannabis- efna.“ Hægl að hefta leit á Netinu Karl Steinar Valsson segir að efni um kannabis sé eitt af mörgu sem finna megi á Netinu og bendir hann foreldrum á að fylgjast með því hvað börn og unglingar skoði þar. Hægt sé að kanna hvað hafi verið skoðað og einnig séu til forrit sem hefti leit á ákveðnum sviðum. Hann bendir einnig á að foreldrar geti kynnt sér efni um vímuefni og skaðsemi þeirra sem finna megi á heimasíðu lögreglunnar og slíkt efni sé einnig á síðu SAA. New York Times skrifar um Louisu Matthíasdottur Fersk og óhamin hreinskilni - verkin einstæð NEW YORK Times birti grein í minningu Louisu Matthíasdóttur í gær eftir Robertu Smith, mynd- listargagnrýnanda blaðsins. Smith segir að Louisa hafi verið hljóðlát, sjálfstæð kona sem hafi veitt fá viðtöl og hvorki kennt málun né skrifað um verk sín; „þegar kem- ur að því að mála byrja ég bara og ekk- ert meira með það,“ hefur Smith eftir listakonunni. „Þessi fáu orð,“ segir Smith, „lýsa í hnotskum stíl sem var að jöfnu dularfull- ur og beinskeyttur um leið og hann sýndi Louisa Matthíasdóttir inbera viðurkenning verið enda- slepp. Hún hafi til dæmis aðeins einu sinni tekið þátt í Whitney- tvíæringnum, árið 1973, og verk eftir hana séu ekki til í neinu af fjórum megin listasöfnum borgar- inriar. „Hún var einn af fjölmörgum eftir- stríðsmálurum sem, þrátt íyrir ótvíræðan sigur afstraktsins, töldu að það og hin hlutbundna list þyrftu ekki að útiloka hvort annað, að það væri hægt að mála veru- leikann á þann hátt að form, litir og málning öðluðust sjálfstætt líf.“ heiminn í einföldum þéttum form- um og flötum með skýrum og skærum litum, allt sett fram af ferskri og óhaminni hreinskilni sem gerði veridn einstæð." Smith segir að þessi stfll hafi verið hófstilltur en þekktur og Louisa hafi útfært hann af nær- fæmi. Smith segir að verk Louisu hafi verið dæmi um hið hlutbundna málverk sem tíðkast hefur í banda- rískri list eftir stríð. En þrátt fyrir að hún hafi átt velgengni að fagna í New York, einkum eftir 1970 en þangað flutti hún 1942, hafi hin op- Á meðal þeirra listamanna sem voru sömu skoðunar á síðari helm- ingi fimmta áratugarins og þeim sjötta voru Robert de Niro eldri og kona hans, Catherine Admiral, Nicholas Carone, Fairfield Porter, Alex Katz og síðar Nell Blaine, auk nokkurra listamanna frá San Francisco svo sem David Park. Smith bendir á að stfll Louisu hafi þó átt rætur sínar á íslandi. Segir hún að Louisa hafi þróað stfl sem sameinaði síðimpressionisma Edvards Munchs og fauvisma sem og áhrif frá öðrum minna þekktum módernistum frá Skandinavíu. Þriggja ára áætlun rædd í borgarstjórn Skuldir borgar- sjóðs greiddar niður um milljarð GERT er ráð fyrir því að skuldir borgarsjóðs verði greiddar niður um einn milljarð á árunum 2001 til 2003. Ekki er gert ráð fyrir að ný lán verði tekin á tímabilinu. Þetta kemur fram í þriggja ára áætlun um rekstur, framkvæmdir og fjármál borgar- sjóðs sem var til fyrri umræðu í borgarstjórn í gærkvöldi. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarfulltrúi Sjálf- stæðisflokksins, segir áætlunina bera metnaðarleysi meirihluta borg- arstjómar við að greiða niður skuld- ir borgarinnar vitni. Sveitarstjórnum er lögum sam- kvæmt skylt að leggja árlega fram þriggja ára áætlun og fjalla um hana á tveimur fundum sveitarstjórnar. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgar- stjóri fylgdi áætlun Reykjavflcur úr hlaði á borgarstjórnarfundi í gær- kvöld. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson sagðist vekja athygli á að miðað við allt það fjármagn sem komið hafi í borgarsjóð að undanförnu og ríkj- andi góðæri hyggist R-listinn ekki gera sérstakt átak til að lækka skuldir hans. Helgi Hjörvar, borgarfulltrúi R-listans, gagnrýndi málflutning Vilhjálms og benti á að sjálfstæðis- menn í borgarstjórn færðu engar breytingartillögur fram við áætlun- ina, hvað þá eigin stefnu. Þá sagði hann tillöguflutning sjálfstæðis- manna í borgarstjórn hafa verið með þeim hætti að hann fæli í sér gríðar- leg útgjöld og stefna þeirra, ef hún yrði sett á blað svart á hvítu, þyldi ekki dagsins ljós. Morgunblaðið/RAX Litlar breyting- ar á Heklugosi ENN gýs í Heklu, en litlar fréttir bárust af umfangi gossins í gær vegna slæmra veðurskilyrða. Oróri greindist á jarðskjálftamæl- um í gær og var talið að gosið hefði verið óbreytt eða minnkað örlítið. Á sögulegum tíma er vitað til þess að Heklugos hafi varað allt frá þremur dögum upp í tvö ár, en síðustu gos í Heklu hafa yfirleitt staðið yfir í nokkrar vikur. Sérblöð í dag JliovsnmþUibiíi BÍÓBLAÐIÐ ÁFÖSTUDÖGUM Arnar Gunnlaugsson til liðs viðStoke/Bl Gústaf og Patrekur gefa ekki kost á sér í landsliðið / B1 Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.