Morgunblaðið - 23.03.2000, Blaðsíða 1
70. TBL. 88. ARG.
FIMMTUDAGUR 23. MARS 2000
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Rússnesku for-
setakosningarnar
• •
Onnur um-
ferð óum-
flýjanleg?
Moskvu, Kazan. AFP, Reuters.
VLADIMÍR Pútín, starfandi forseti
Rússlands, mun að líkindum ekki ná
hreinum meirihluta atkvæða í fyrri
umferð forsetakosninganna í Rúss-
landi á sunnudaginn, og mun því
verða að mæta í annarri umferð
þeim frambjóðanda sem næstmesta
fylgið fær. Þetta er mat Alexanders
Veshnjakovs, yfirmanns yfirkjör-
stjórnar kosninganna, sem byggt er
á skoðanakönnunum sem sýna fylgi
Pútíns dala niður fyrir 50%.
En þetta breytir því ekki, að allt
vh-ðist stefna í að kosningarnar verði
í raun aðeins vinsældakönnun um
þennan óskaarftaka Borís Jeltsíns,
sem sagði óvænt af sér um áramót.
Samkvæmt annarri könnun hefur
fylgi Pútíns verið að aukast frekar
en hitt. Sá sem næstur honum kem-
ur að fylgi, kommúnistinn Gennadí
Zjúganov, er ekki hálfdrættingur.
320 milljarð-
ar kr. í oftek-
in símagjöld?
Talið er, að evrópsk farsímafyrir-
tæki hafí haft rúmlega 320 millj-
arða ísl. kr. af viðskiptavinum sín-
um árlega með því að láta þá
greiða of mikið þegar hringt er í þá
úr fastlínusíma. Kemur þetta fram
í skýrslu, sem ECTA, stofnun, sem
fylgist með samkeppni í fjarskipta-
málum, hefur tekið saman.
í skýrslunni segir, að farsímafyr-
irtækin taki frá 40% og upp í 70%
meira en nemur kostnaði við þessi
simtöl og varað er við því, að þessi
ofteknu gjöld kunni enn að hækka.
Segir þar einnig, að miklu meira
eftirlit sé með fastlínufyrirtækjum
en farsímafyrirtækjum. Komi það
þeim síðarnefndu vel en sé um leið
á kostnað fyrrnefndu fyrirtækj-
anna og viðskiptavina þeirra.
Jóhannes Páll II páfi syngur messu á Jötutorgi í Betlehem í gær, að viðstöddum þúsundum Palestínumanna, flestum kristnum.
Jóhannes Páll II páfí messar í Landinu helga
Harmar þjáningar
Palestínumanna
Betlehem. AP.
JOHANNES Páll II páfi hélt í gær
hápólitíska messu í fæðingarborg
Jesú Krists, sem Palestínumenn túlk-
uðu sem stuðningsyfirlýsingu við við-
leitni þeirra til að stofna eigið ríki.
Harmaði páfi þjáningar palestínsku
þjóðarinnar og óskaði eftir alþjóðleg-
um aðgerðum til að binda enda á þær.
„Betlehem er hjarta pílagrímsferð-
ar minnar," sagði páfi titrandi röddu í
útimessu á Jötutorgi, sem Jasser
Arafat, forseti heimastjómar Palest-
ínumanna, var viðstaddur.
„Þið hafið þjáðst fyrir augliti
heimsbyggðarinnar,“ sagði páfi, „og
það of lengi." Þessi orð hans reyndust
nærri spámannleg; innan við Mukku-
stimd eftir brottför hans frá Dheis-
heh-flóttamannabúðunum við Betle-
hem grýttu palestínsk ungmenni
lögreglumenn palestínsku heima-
stjórnarinnar og sýndu með því and-
úð sína á meintum einræðislegum
stjóraarháttum Arafats.
Þrátt fyrir að Páfagarður hafi lýst
pílagrímsför páfa til Landsins helga
trúarlega heimsókn eingöngu hefur
ekki farið hjá því að hann hreyfði við
viðkvæmum pólitískum málum, ýmist
í ræðu eða með gerðum sínum. Hann
minnti meðal annars á „náttúrulegan
rétt Palestínumanna til heimalands
síns“ og þeir Arafat leiddust er þeir
gengu um Dheisheh-búðiraar.
En trúarleg helgi setti einnig mark
sitt á dagskrá þessa annars dags sex
daga heimsóknar páfa til Landsins
helga, ísraels. Þúsundir hlýddu á
messu hans á Jötutorgi, steinsnar frá
Fæðingarkirkju Krists, sem talin er
byggð á fæðingarstað hans. Að messu
lokinni kraup páfi í hljóðri bæn við
stjömuna á gólfi Fæðingarkirkjunn-
ar þar sem Jesúbarnið er talið hafa
verið lagt í jötu fyrir 20 öldum.
Bindi á
vefarana
Kaupmannahöfn. Reuters.
DANSKA hugbúnaðarfyrirtæk-
ið Maersk Data er mikið vígi
gamaldags gilda. Þetta staðfest-
ist í gær, er forráðamenn fyrir-
tækisins boðuðu að nýjum
starfsmönnum yrði kennt að
hnýta bindishnút.
Maersk Data leitar nú 50
nýrra starfsmanna til að sinna
netverkefnum, en ólíkt hefð-
bundnari sviðum viðskiptalífsins
þykir frjálslegur klæðaburður
nánast orðinn einkennandi fyrir
hina nýju stétt „vefara“. Þessu
vill fyrirtækið spoma gegn.
„Við erum að leita að fólld
sem e.t.v. hefur svolítið annan
bakgrunn en þeir sem við al-
mennt erum að ráða. (...) Nýlið-
arnir geta kennt okkur að borða
flatböku og drekka kóladrykk.
Við getum kennt þeim að hnýta
bindishnút," segir í tilkynningu.
Opinber heimsókn Bandaríkjaforseta til Indlands
Dregið verði úr ógn
kjarnorkuvopna
Nýja Delhí, Agra, Indlandi. AFP, AP.
BILL Clinton Bandaríkjaforseti fór
þess á leit við Indverja í gær að þeir
settu heiminum fordæmi með því að
draga úr þeirri ógn sem stafar af víg-
búnaðarkapphlaupi, sem og með því
að hefla viðræður við Pakistan varð-
andi stöðu Kasmír á nýjan leik.
Clinton, sem er nú í opinberri
heimsókn á Indlandi ásamt dóttur
sinni Chelsea, sagði að ef kjamorku-
vopnatilraunir Indverja hefðu valdið
ótta þá mundi hlutverk Indlands í því
að draga úr vígvæðingu vekja hlýhug.
En Bandaríkin hafa þrýst á Indverja
og Pakistana að undirrita bann við
kjamorkuvopnatilraunum frá því
þjóðirnar höfðu uppi kjamorku-
vopnatilraunir á árinu 1998.
Viðræður Clintons og Atal Behari
Vajpayee, forsætisráðherra Ind-
lands, um kjarnorkuvæðingu landsins
í fyrradag skiluðu þó litlum árangri
og hélt Clinton áfram að mæla fyrir
banni við kjamorkuvopnatilraunum
er hann ávarpaði indverska þingið í
gær. Hvatti hann þar tíl þess, að þetta
fjölmennasta lýðræðisríki heims
drægi sig út úr vígbúnaðarkapp-
hlaupinu og hæfi þess í stað friðar-
viðræður við grannþjóðina Pakistana
að nýju - brýn þörf væri á bættum
samskiptum þjóðanna.
„Stefna Indlands hvað kjarnorku-
vopn varðar hefur óneitanlega áhrif
utan landamæra ríkisins: hún tærir
vamir gegn þeirri ógn sem af kjam-
orkuvopnum stafar, dregur úr þeim
þjóðum sem hafa afneitað slíkum
vopnum og hvetur aðra til að halda
öllum möguleikum opnum,“ sagði
Clinton og lagði jafnframt mikla
áherslu á að hann væri ekki í neinni
aðstöðu til að segja Indverjum fyrir
verkum varðandi öryggismál þjóðar-
innar.
Þá heimsótti Clinton Taj Mahal
ásamt Chelsea og lýsti hann því yfir
að hafa lengi haft áhuga á að skoða
AP
Bill Clinton Bandaríkjaforseti, sem er í opinberri heimsúkn á Indlandi,
og dóttir hans, Chelsea, skoðuðu Taj Mahal-grafhýsið fræga í gær.
þetta fomfræga grafhýsi. Clinton
notaði enn fremur tækifærið til að
hvetja tíl aukins samstarfs Banda-
ríkjanna og Indlands hvað umhverfis-
mál varðaði og benti á þau áhrif sem
loftmengun hefði haft á hvítan
marmara Taj Mahal.
MORGUNBLAOH) 23. MARS 2000