Morgunblaðið - 23.03.2000, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 23.03.2000, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. MARS 2000 55 MINNINGAR + Kristín Ósk Elentínusdóttir fæddist í Hvítanesi í Kjós 4. september 1925. Hún andaðist á Landakotsspítala hinn 10. mars síðast- liðinn. Foreldrar Kristínar voru þau Jódís Runólfsdóttir, f. 12.8. 1901, d. 25.9. 1994 og Elentínus Elías Valdimar Guðbrandsson, f. 13.10. 1902, d. 31.8. 1934. Systkini Krist- ínar eru Sigurberg- ur Helgi, Héðinn, Guðfínna og Runólfur. Kristín var ógift og barnlaus en ól upp bróðurson sinn, Elías Það er misjafnt hvaða áhrif nær- vera fólks hefur á mann. Stína frænka var sú manngerð sem afar gott var að vera nálægt, enda með eindæmum jákvæð á allt og alla. Hún var alltaf ein af okkur. Sama hvort um barnaafmæli, jólaboð eða bara óformlegt sunnudagskaffi var að ræða; Stínu mátti ekki vanta. Nánari systur en þær mömmu er vart hægt að hugsa sér, þótt ólíkar væru. Við systurnar munum ekki þann dag að þær hafi ekki talast við í síma eða hist. Stína giftist aldrei og bjó með Jódísi móður sinni, ömmu okkar, allt þar til amma dó í hárri elli 1994. Þær mæðgur voru afar sam- rýndar og nær ómögulegt að ímynda sér þær í sitthvoru lagi, enda var alltaf talað um „ömmo- stínu“ í einu orði. Saman ólu þær upp frænda okkar Elías. Stína var óeigingirnin holdi klædd og leið aldrei betur en þegar hún gat glatt aðra. Hún virtist alltaf finna á sér hvar hennar væri þörf og var boð- in og búin að aðstoða við hvað sem var. Þessi ósérhlífni hennar kom vel fram síðustu æviár ömmu. Aðalatriðið var að gömlu kon- unni liði vel, alveg sama hversu mikinn kraft það kostaði hana sjálfa. Stína var einungis átta ára gömul og elst fimm systkina þegar Jón Héðinsson, f. 3.4. 1951. Elías er kvæntur Björgu Kristínu Jónsdóttur, f. 23.8. 1955. Þeirra börn eru: Ingibjörg Ósk, Fannar og Kristín Ósk. Kristín stundaði alla tíð saumaskap og var um árabil forstöðukona saumastofunnar Mínervu. Hún var forstöðukona saumastofu Borgar- spítalans frá stofn- un hans og þar til hún lét af starfi fyrir aldurs sakir. Utför Kristínar fór fram í kyrr- þey frá Áskirkju hinn 20. mars. afi dó og því vön að taka til hend- inni. Orðið leti var ekki til í hennar orðaforða og ekkert var geymt til næsta dags. Ung að árum tók hún að aðstoða ömmu, sem var kjóla- meistari, við saumaskapinn og varð það einnig hennar ævistarf. Við systur nutum heldur betur góðs af hæfni hennar við handa- vinnuna og ósjaldan heyrði maður: „Æ, stelpur, ég fann þennan efnis- bút og renndi honum í gegnum vélina." Gat þar verið um galla- buxur, jakka eða síðkjól að ræða. Já, það tekur víst bara 20 mínútur að sauma herraskyrtu! Stína frænka hefur allltaf verið okkur systrunum miklu meira en móð- ursystir. Hún var okkur ómetanleg stoð og stytta í öllu sem við tókum okk- ur fyrir hendur og það tómarúm sem andlát hennar skilur eftir í hjarta okkar verður aldrei fyllt. Þó að kali heitur hver hylji dalinn jökull ber steinar tali og allt hvað er aldrei skal eg gleyma þér. (Sig. Bjarnason.) Guð blessi minningu Stínu frænku. Erna og Helga. Kristín Elentínusdóttir kvaddi þennan heim að morgni föstudags- ins 10. mars. Undarlegt, þegar ein- hver sem manni þykir vænt um og sem er mikið varið í, hættir að vera til. Og það var mikið varið í Kristínu þótt ekki væri hún að trana sér fram. Hún var falleg kona, ekki bara í útliti, heldur ekki síður að innra eðli. Ég kynntist Kristínu fyrir rösk- lega 42 árum, þegar ég fluttist til Islands frá mínum erlendu heima- högum. Betri og traustari vinkonu gat enginn átt. Ekki fór maður bónleiður til búðar þar sem Kristín var, ekkert var sjálfsagðara en að sauma fyrir mann kjól eða ný gluggatjöld, eða bara spjalla ef eitthvað bjátaði á í sálartetrinu. Ég hugsa með þakklæti til þeirra mörgu góðu stunda sem við áttum saman á ferðalögum hér á landi og erlendis eða bara í rólegheitum heima. Kristín kunni að meta fegurðina í stóru sem smáu. Allt sem hún tók sér fyrir hendur, í vinnunni eða heima, var unnið af smekkvísi og samviskusemi, allt lék í höndunum á henni. Liðagigtin sem þjáði hana um árabil hefur án efa verið henni þungbærari en hún vildi vera láta, en vegna sjúkdómsins gat hún ekkert unnið í höndunum síðustu árin. Kristín bjó með móður sinni Jó- dísi Runólfsdóttur og annaðist hana þangað til Jódís andaðist árið 1994, 93 ára gömul. Ég spurði einu sinni Kristínu hvort hún hefði ekki hugleitt að sækja um vist fyrir móður sína á hjúkrunarstofnun, en mér fannst hún stundum vera of bundin við umönnun Jódísar. Kristín svaraði: „Mamma ól mig upp og ég er ekki of góð til að hugsa um hana eins lengi og hún þarf þess með.“ Kristín og móðir hennar tóku að sér bróðurson Kristínar þegar hann var aðeins 6 vikna og ólst hann upp hjá þeim mæðgunum. Kristín var honum eins og móðir enda leit hún ávallt á hann sem son sinn. Þegar ég heimsótti Kristínu stuttu fyrir andlát hennar hafði hún orð á því að suðið í súrefnis- tækinu minnti sig á lækjarnið í vorleysingum. Vel hefði Kristín mátt eiga eftir fleiri vorkomur. Paula Sejr Sörensen. KRISTIN OSK ELENTÍNUSDÓTTIR + Sólveig Jónsdótt- ir fæddist í Reykjavík 15. sept- ember 1911. Hún lést í Landakotsspítala 10. mars síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Jón Benediktsson, (1862- 1940) og Marín Gísla- dóttir (1876-1955). Systkini hennar voru Helgi Jónsson (1895- 1914), Sigurbjörg (1899-1981), Sigur- rós (1904-1981), Helga (1915-1971). Þórarinn, Sigurjón og Marín dóu á unga aldri. Eftirlifandi eiginmaður Sól- veigar er Geir G. Jónsson stór- Gætþessadags Þvíaðhannerlífið Lífið sjálft ogíhonumbýr allurveruleikinn og sannleikur tilverunnar unaður vaxtar og grósku dýrð hinna skapandi verka ljómi máttarins. Því að gærdagurinn er draumur og morgundagurinn hugboð en þessi dagur í dag sé honumvelvarið umbreytir hverjum gærdegi kaupmaður, fæddur 1. ágúst 1911. Börn þeirra eru: 1) Marín Sjöfn, kennari, f. 16. desember 1940. Son- ur hennar Orvar Omrí Ólafsson (1979). 2) Jón Örvar, læknir, f. 2. febrúar 1947, d. 12. ágúst 1976 frá unnustu, Helgu Kristrúnu Þórðardóttur sjúkraliða, f. 1. maí 1948, og ófæddum syni, Jóni Örvari G. Jónssyni (1977). Útför Sólveigar fór fram í kyrr- þey frá Fossvogskapellu 21. mars síðastliðinn. íverðmætaminningu og hverjum morgundegi ívonarbjarma. Gætþúþvível þessadags. (ÚrSanskrít.) Mamma, ó, elsku hjartans mamma mín. Ég held þú hafír í raun aldrei gert þér grein íyrir hversu innilega mér þótti vænt um þig, nema síðustu vikur lífs þíns, þegar ég sat við sjúkrabeðinn þinn og við gátum tal- að saman og þegar þú varst orðin svo veik, að þú gast ekki tjáð þig, en þú heyrðir, þegar ég talaði við þig, hélt í höndina á þér, kyssti þig og söng fyr- ir þig vögguvísur, sem þú hafðir sungið fyrir mig sem barn og alla sálmana, sem þú þekktir svo vel, sálmana um Krist og elsku hans til okkar mannanna bama, sem hrösum svo oft, en fyrir miskunn hans rísum við aftur á fætur. Elsku mamma, þökk sé þér fyrir að þú kenndir mér sem bami að trúa á Guð og Jesúm Krist. Þakka þér fyrir að þú kenndir mér að meta göf- uga tónlist, þakka þér fyrir gjafmildi þína, kærleika þinn og hjálp. Alls þessa vil ég minnast, einungis þess góðaogfallega. Nú hefur þú fengið hvíld og frið frá þjáningum þessa jarðlífs. Nú færð þú að hvíla við hlið elskulegs sonar þíns, sem þú og við öll syrgð- um svo mjög, sefur rótt til upprisu- dagsins þegar Kristur, sem þú elsk- aðir, kemur í dýrð sinni og vekur þig til lífsins aftur. Elsku mamma, bless- uð sé minning þín. Ég bið góðan Guð að blessa elsku pabba minn, sem hef- ur staðið eins og klettur í hafinu, bið um styrk honum til handa, einnig mér, syni mínum og bróðursyni, sem amma var alltaf svo góð. Ég vil þakka öllum ættingjum og vinum, sem hafa hjálpað og hug- hreyst okkur, starfsfólki Borgarspít- ala og Landakotsspítala fyrir yndis- lega umönnun og hlýju á erfiðri stund. Einnig vil ég þakka starfs- fólki Landspítalans fyrir hve mjög þau hafa uppörvað og hjálpað mér. Guð blessi ykkur öll. Elsku mamma mín. Guð gefi þér góða nótt. Þín dóttir Marín (Marsí). SOLVEIG JÓNSDÓTTIR + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, stjúp- faðir, tengdafaðir og afi, MAGNÚS INGIMARSSON hljómlistarmaður, Hjarðarhaga 21, lést á heimili sínu þriðjudaginn 21. mars. Ingibjörg Björnsdóttir, Einar Ingi Magnússon, Sigrún Guðmundsdóttir, Gunnar Magnússon, Maria G. Palma Rocha, Sigrún Magnúsdóttir, Jón Helgason, Ása Magnúsdóttir, Ragnhildur Magnúsdóttir, Hjörtur Kristjánsson, Halldóra Viðarsdóttir, Jóhann Úlfarsson, Kristín Viðarsdóttir, Björn Leví Viðarsson, Ásta Lára Sigurðardóttir og barnabörn. + Móðir okkar, tengdamóðir og amma, RAGNHEIÐUR JÓNSDÓTTIR, Aðalgötu 17, Keflavík, andaðist á hjúkrunarheimilinu Garðvangi, Garði, sunnudaginn 19. mars sl. Hún verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju föstudaginn 24. mars nk. kl. 16.00. Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra, Keflavík. Hjalti Hjaltason, Poltra Hjaltason, Marinó Þ. Jónsson, Sigurður Jónsson, Álfhildur Ósk Hjaltadóttir, Eirný Ósk Sigurðardóttir, Áslaug Dröfn Sigurðardóttir. + Ástær fósturmóðir mín, tengdamóðir, systir, mágkona, amma og langamma, KRISTÍN ÓSK ELENTÍNUSDÓTTIR, Langholtsvegi 9, Reykjavík, andaðist á Landakotsspftala föstudaginn 10. mars sl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Elías Héðinsson, Björg Jónsdóttir, Sigurberg Elentínusson, Sara Jóhannsdóttir, Héðinn Elentínusson, Guðfinna Elentínusdóttir, Lúðvík Jónsson, Runólfur Elentínusson, Gréta Guðmundsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Okkar ástkæra LOVÍSA SIGURGEIRSDÓTTIR frá Hrísey, andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu Akureyri mánudaginn 20. mars. Böm, tengdabörn og ömmubörn. + Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, SIGURÐUR BACHMANN, Hrafnistu Reykjavík, verður jarðsunginn frá Áskirkju föstudaginn 24. mars kl. 13.30. Birgir Bachmann, Þórunn B. Jónsdóttir, Hörður Bachmann, Auður Kjartansdóttir, Gísli Bachmann og barnabörn. CD ÚTFARARÞJÓNUSTAN, Persónuleg þjónusta Höfum undirbúið og séð um útfarir á höfuðborgar- svæðinu sem og þjónustu við landsbyggðina í 10 ár og erum samkvæmt verðkönnun Mbl. með lægsta verð allra á líkkistum og þjónustu við útfarir. Sxmi 567 9110 & 893 8638 _______www.utfarir.is utfarir@itn.is_ n !5fM?s*l S W á n,; .. Rúnar Geimuindsson Sigurður Rúnarsson útfararstjóri útfararstjóri
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.