Morgunblaðið - 23.03.2000, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 23.03.2000, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 23. MARS 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Ljósmynd/Sigurgeir/Eyjum Snjór yfir Vestmannaeyjum VESTMANNAEYJAR eru ekki þekktar fyrir snjó- þann 21. marz. Myndin er tekin á Eldfclli að morgni þyngsli, en eins og sjá má var snjór yfir Heimaey á en sama dag árið 1968 mældist 90 sentímetra snjór í fyrsta degi cinmánaðar, sem var siðasta þriðjudag, Vestmannaeyjum. Útlit fyrir 17,5 milljarða afgang á ríkissjóði 1999 Lántökur ríkissjóðs 1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997 1998 1999 2000 Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir leggur fram fyrirspurn til dómsmálaráðherra Telur reglur títlendingaeft- irlitsins á reiki SAMKVÆMT bráðabirgðatölum um afkomu ríkissjóðs á síðasta ári var hagnaður af ríkissjóði 17,5 millj- arðar króna. Þetta er miklu betri af- koma en gert var ráð fyrir í fjárlög- um og heldur betri niðurstaða en áætluð var við afgreiðslu fjárauka- laga í desember sl., en þá var af- gangurinn áætlaður 15 milljarðar. Meginskýringin á betri afkomu er að tekjur ríkissjóðs reyndust mun meiri en gert var ráð fyrir. Arið 1998 var ríkissjóður rekinn með 9 milljarða halla, en þá settu miklar lífeyrisskuldbindingar ríkis- sjóðsáætlun fjárlaga úr skorðum. Ríkissjóður gjaldfærði á því ári 20,8 milljarða vegna lífeyrisskuldbind- inga, en horfur eru á að þessi kostn- aður hafi verið innan við 8 milljarðar á síðasta ári. í fjárlagafrumvarpinu fyrir árið 1999 var reiknað með 2,5 milljarða afgangi, en nú eru horfur á að afgangurinn verði 17,5 milljarðar. Samkvæmt bráðabirgðauppgjöri á rekstrargrunni, sem birt er á heimasíðu fjármálaráðuneytisins, voru tekjur ríkissjóðs á síðasta ári 194,8 milljarðar sem er 10 milljörð- um meira en reiknað var með í fjár- lögum. Skattur af tekjum og hagn- aði einstaklinga var 4,6 milljörðum hærri en fjárlög gerðu ráð fyrir og tekjuskattur fyrirtækja skilaði tæp- um milljarði umfram áætlun. Óbein- ir skattar skiluðu ríkissjóði tæplega 4 milljörðum hærri fjárhæð en reiknað var með. Horfur eru á að útgjöld ríkissjóðs hafi numið tæplega 187,3 milljörð- um, sem er um 5 milljörðum meira en gert var ráð fyrir í fjárlögum. Skuldir ríkissjóðs hafa lækkað und- anfarin ár og endurspeglast það í lægri fjármagnskostnaði. Utlit er fyrir að hann verði 14,5 milljarðar, sem er 500 milljónum minna en reiknað var með í fjárlögum. Athygli vekur að horfur eru á að kostnaður ríkisins við vaxtabætur verði 270 milljónum lægri en reiknað var með í fjárlögum, en kostnaður við vaxta- bætur hefur vaxið ár frá ári. Ríkisbókhald vinnur nú að endur- skoðun á reikningum ríkissjóðs og segir Gunnar Hall ríkisbókari að stefnt sé að því að niðurstaða hggi fyrir í byrjun maí. Hann segist ekki treysta sér til að segja fyrir hver niðurstaðan verði varðandi afkomu ríkissjóðs, en 17,5 milljarða afgang- ur sé ekki fjarri lagi því uppgjöri sem nú Uggi fyrir á greiðslugrunni. Eitt af því sem geti haft áhrif á nið- urstöðuna sé hversu mikið af skött- um hafi innheimst á árinu. Mikil lækkun skulda Skuldir ríkissjóðs hafa lækkað mikið á síðustu árum. Nettó lántök- ur ríkissjóðs námu 172 milljörðum í árslok 1997. Árið 1998 lækkuðu þær niður í 151 milljarð. Samkvæmt bráðabirgðatölum námu skuldirnar 142 milljörðum um síðustu áramót. I fjárlagafrumvarpinu er gert ráð fyr- ir að nettó skuldir ríkissjóðs verði rúmir 124 milljarðar um næstu ára- mót. Gangi þetta eftir verða nettó lántökur ríldssjóðs 18% af vergri landsframleiðslu í ár, en þetta hlut- fall var 34,6% í árslok 1996. Heildarskuldir ríkissjóðs námu 238 milljarðar í árslok 1998, en áætl- anir gera ráð fyrir að skuldirnar hafi verið komnar niður í 229 milljarða um síðustu áramót. Fjárlög gera ráð fyrir að heildarskuldirnar verði rúmir 211 milljarðar um næstu ára- mót. Samhliða lækkun skulda lækkar vaxtakostnaður ríkissjóðs. Hann nam 16 milljörðum árið 1998, en horfur eru á að hann hafi verið 14,5 mihjarðar í fyrra. í fjárlögum þessa árs er reiknað með að vaxtakostnað- ur ríkissjóðs nemi 14 milljörðum. REGLUR Útlendingaeftirhtsins um heimsóknir útlendinga til landsins virðast vera nokkuð á reiki, að sögn Ástu Ragnheiðar Jóhannesdóttm-, þingmanns Samfylkingarinnar. For- maður Mannréttindasamtaka inn- flytjenda segist hafa heimildir íyi-ir því að útilokað sé að þingmaðurinn reisi málflutning sinn á sandi. Á Alþingi á mánudaginn vakti Ásta Ragnheiður athygh á því í fyrirspum að Islendingar, sem ættu tengdafólk frá öðrum löndum en EES-ríkjunum, gætu ekki fengið það í heimsókn nema greiða 58 þúsund krónur inn á bankareikning fyrir hvern mánuð sem hver þeirra hygðist dvelja hér á landi. Ásta Ragnheiður sagði í sam- tali við Morgunblaðið að í kjölfarið á þeirri umfjöllun sem málið hefði fengið virtist sem Útlendingaeftirlit- ið hefði breytt reglum sínum um þessi mál. I fyrirspurninni á mánudaginn tók Ásta Ragnheiður dæmi um íslending giftan konu frá Filippseyjum. Hún sagði að maðurinn ætti von á tengda- foreldrum sínum frá Filippseyjum í heimsókn og að honum hefði verið sagt hjá Útlendingaeftirlitinu að hann þyrfti að ábyrgjast fólkið með því að leggja fyrrgreinda upphæð inn á bankareikning. Ásta sagði að þessi maður hefði síðan haft samband við hana í fyrradag og sagt henni að reglunum hefði verið breytt, að nú hefði Útlendingaeftirlitið sagt honum að hann þyrfti ekki að leggja neitt inn á bankareikning. Hún sagði að af þessu væri ljóst að reglur stofnunar- innar væru nokkuð á reiki. Forstjóri títlendingaeftirlitsins kannast ekki við málið Georg Lárusson, forstjóri Útlend- ingaeftirlitsins, sagðist í samtah við Morgunblaðið ekki kannast við þetta einstaka mál og að engin breyting hefði verið gerð á reglum stofnunar- innar síðustu daga. Hann sagði það rangt að gerð væri krafa um sérstaka framfærslutryggingu gagnvart for- eldrum eða tengdaforeldrum ís- lenskra ríkisborgara, því að ef út- lendingar ættu ættingja í beinan hð hér á landi gilti ekki sú regla sem kvæði á um slíka tryggingu. Að sögn Georgs þurfa aðrir útlend- ingar, sem koma tH landsins frá ríkj- um utan EES-svæðisins og sækja um dvalarleyfi, að sýna fram á að þeir hafi nægilegt fé til framfærslu á með- an á dvöl þeirra stendur. Hann sagði að þessi regla væri byggð á 2. til 10. grein laganna um eftirlit með útlend- ingum. Nauðsynlegt að setja heildstæð lög Georg sagði að til að hafa samræmi í afgreiðslu Útlendingaeftirhtsins hefði það mótað þá vinnureglu að miða framfærslutrygginguna við staðal Félagsþjónustu Reykjavíkur- borgar, en samkvæmt honum er fjár- hagsaðstoð við einstakling miðuð við 58 þúsund krónur á mánuði. Áð sögn Georgs er aðalvandinn í málum útlendinga hér á landi sá að það eru engin skýr lög til, hvorki um réttarstöðu og réttindi þeirra né heldm- hvernig fara skuli með mál þeirra. Hann sagði að lögin, sem stuðst væri við, væru eldgömul, frá 1965, og algerlega úrelt og jafnframt úi' takti við þá löggjöf um útlendinga sem nágrannalöndin hefðu mótað. Georg sagði því nauðsynlegt, ekki síst vegna stöðu Islands á alþjóða- vettvangi, að sett yrðu hpildstæð lög um málefni útlendinga á Islandi. Hindranir á heimsóknum útlendinga afnumdar Ásta Ragnheiður sagðist í gær hafa lagt fram nýja fyrirspmTi á Al- þingi til Sólveigar Pétm-sdóttur dómsmálaráðherra en Útlendinga- eftirlitið heyrir undir dómsmálaráðu- neytið. Ásta Ragnheiður spurði annar- svegar hvaða rök væru fyrir því að ls- lendingar, sem vildu bjóða til sín er- lendum ættingjum til dvalar, þyrftu að hlíta mjög mismunandi reglum til að fá dvalarleyfi fyrir þá. Hins vegar spurði hún ráðherra hvort hann hygðist afnema hindranir þær sem nú væru á heimsóknum útlendinga utan EES-svæðisins hingað til lands. Guðjón Atlason formaður Mann- réttindasamtaka innflytjenda mót- mælir orðum Georgs Kr. Lárussonar þess efnis að Ásta Ragnheiður og inn- flytjendur fari með rangt mál. „Við höfum skriflegar heimildir á fleiri en einum stað fyrir því að svo er ekki, m.a. í síðasta tölublaði Seríunnar, fréttabréfi miðstöðvar nýbúa, þar sem finna má svör Georgs við spurn- ingum starfsfólks miðstöðvarinnar. Þar er spurt beinlínis um heimsóknir náinna ættingja og annarra ættingja innflytjenda. I svarinu kemur fram að ekki sé lengur nóg að ábyrgjast ættingana skriflega heldur verði að sýna fram á að 58 þúsund króna framfærslutrygging sé fyrir hendi og þar er átt við mánaðargreiðslu fyTÍr einn einstakling. í því tilfelli sem hér um ræðir er ætlunin er að fá foreldra konunnar, sem eru filipeyskir ríkis- borgar, í heimsókn í allt að eitt ár. Út- lendingaeftirlitið krefst því 1392 þús- und króna framfærslutryggingaT vegna þeirra,“ segir Guðjón. -------»-H--------- Windows 98 í íslenskrí þýðingu Salan fram- ar vonum SALA á Windows 98-stýrikerfi í ís- lenskri þýðingu hófst í tölvuverslun- um um allt land í gær. Að sögn Viggós H. Viggóssonar, fram- kvæmdastjóra sölu- og markaðs- sviðs Tölvudreifingar, sem sjá um sölu til verslana, gekk hún framar vonum. „Það er nánast uppselt," sagði hann. „Hjá okkur er uppselt og að því er virðist einnig í verslunum í Reykjavík.“ Sagði hann að von væri á annarn sendingu í næstu viku en að sú send- ing myndi ekki annan eftirspurn miðað við pantanir. Aðspurður hversu mikið hefði verið sett í sölu sagði hann, „Við gefum það ekki upp að svo stöddu. Það er ekki tímabært að segja frá því en það verður auð- vitað gert. Eins og staðan er í dag þá hefur verið ákveðið að gera það ekki.“ Sagði hann að gert væri ráð fyrir að 8-10 þúsund stýrikerfi seld- ust á fyrstu þremur mánuðunum. Ræktar þú garðinn þinn? Sameinaðu kosti Heimilislínu og Heimilisbanka Með því að vera í Heimilislínu og Heimilisbankanum á Netinu tryggir þú þér mun hærri innlánsvexti, lægri útlánsvexti og sparar kostnað af færslum, millifærslum og reikningsyfirlitum, auk þess að spara tíma. HEIMILISLÍNAN mfcfec ® BÚNAÐARBANK3NN Traustur banki
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.