Morgunblaðið - 23.03.2000, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 23.03.2000, Blaðsíða 36
36 FIMMTUDAGUR 23. MARS 2000 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Framsög’u- menn fram- tíðarinnar Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar, þar sem nemendur í sjöunda bekk grunnskóla reyna með sér, stendur nú sem hæst vítt og breitt um landið. Orri Páll Ormarsson fylgdist með einni slíkri hátíð, lokahátíð ------------------7------------------------ Breiðholts og Arbæjar, í Seljakirkju. ANDDYRIÐ er uppfullt af ung- mennum. Öll bera þau bækur og blöð undir hendi og hlýða á ráðleggingar og hvatningarorð foreldra, vina og kennara. Þau koma vel nestuð til leiks en aldrei eru góð ráð of oft þegin. Þá er komið að því - keppendur ganga í salinn. Lokahátíð Stóru upp- lestrarkeppninnar í Seljakirkju er hafín. Hér leiða saman hesta sína tveir hlutskörpustu nemendumir úr sjöunda bekk í sjö skólum í Arbæ og Breiðholti, fjórtán framúrskarandi framsögumenn. Fólk framtíðarinnar. Einbeitingin skín úr hverju andliti. Barnakór Seljakirkju tekur mesta hrollinn úr mönnum með laginu „Þú ert þýðingarmikill“. Það er við hæfí því þegar öllu er á botninn hvolft er keppnin sjálf aukaatriði, mestu skiptir að vera með. í þessari keppni eru allir þátttakendur sigurvegarar. Eða eins og segir í markmiðslýs- ingu keppninnar: „Markmið upp- lestrarkeppni í 7. bekk grunnskóla er að vekja athygli og áhuga í skólum á vönduðum upplestri og framburði. Mestu skiptir að kennarar nýti þetta tækifæri til að leggja markvissa rækt við einn þátt móðurmálsins með nemendum sínum, vandaðan upp- lestur og framburð, og fái alla nem- endur til að lesa upp, sjálfum sér og öðrum til ánægju. Stefnt skyldi að því að allur upplestur í tengslum við keppnina sé fremur í ætt við hátíð en keppni. Þetta á ekki síst við um loka- hátíð keppninnar.“ Að uj)phefja hið talaða mál Það kemur í hlut Sigríðar Heiðu Bragadóttur, aðstoðarskólastjóra í Ölduselsskóla, að blása til leiks en hún hefur ásamt Guðnýju Ýri Jóns- dóttur, kennara í Árbæjarskóla, haft veg og vanda af undirbúningi keppn- innar í Árbæ og Breiðholti. í máli hennar kemur fram að þetta sé í ann- að sinn sem keppnin er haldin í Reykjavík, en hún var fyrst haldin í Hafnarfirði 1996. Fjöldans vegna hafi verið nauðsynlegt að skipta keppninni upp í hverfi í höfuðborg- inni, fjögur talsins. 380 börn hófu keppni í Arbæ og Breiðholti síðastlið- ið haust. Fjórtán standa nú eftir. Sigríður Heiða ber lof á framtakið og kveðst sannfærð um að tilgang- urinn, að upphefja hið talaða mál, hafi náðst. Vitnar hún í átta ára nem- endur í Ölduselsskóla máli sínu til stuðnings en þeir eru víst, margir hverjir, þegar farnir að æfa sig fyrir keppnina. Ætla sko að vinna þegar þeirverðatólf! Sigrún Magnúsdóttir, formaður fræðsluráðs, tekur í svipaðan streng í ávarpi sínu. Segir keppnina dæmi um gott fyrirkomulag á keppni og sam- starfi. Þá sé ekki annað að sjá en hlutdeild bókarinnar og upplestrar- ins sé að aukast í grunnskólum. Það Er fjölskyldan í fyrirrúmi? Opið málþing um fjölskylduna (íslensku samfélagi haldið á Grand Hótel við Sigtún laugardaginn 25. mars Id. 10:00—14:00 Dagskrl- Kl. 10:00 Setning Páll Pétursson, félagsmálaráðherra Kl. 10; 10 Fjölskyldustefna á (slandi Guðný Björk Eydal, félagsráðgjafi, lektor við Háskóla íslands Kl. 10:40 Fjölskyldan árið 2000 Sr. Þórhallur Heimisson Kl. 11:00 Fjárhagslegar forsendur fjölskyldulífs Harpa Njáls, félagsfræðingur í mastersnámi við Háskóla íslands. Kl. 11:30 Léttur hádegisverður Kl. 12:00 Fjölskyldurannsóknir — lífsgildi og velferð Dr. Sigrún Júlíusdóttir, félagsráðgjafi, dósent við Háskóla Islands. Pallborð, fyrirspurnir yaWán/r og umræður Málþingið og h á d e g i s v e r ð u r i n n er þátttakendum að kostnaðarIausu. Framsóknarfélögin í Reykjavík Landssamband framsóknarkvenna Morgunblaðið/Ásdís Frá lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar í Seljakirkju. F.v.: Stelia Björk Ililmarsdóttir, sem hafnaði í öðru sæti, Arnar M. Hafsteinsson, Anna Kristín Pálsdóttir, sem hlaut þriðju verðlaun, Iris Mýrdal Kristinsdóttir, Guðmundur Guðmundsson, Fjóla Kristín Bragadóttir og Helga Höskuldsdóttir, sem er í pontu. Morgunblaðið/Ámi Sæberg Arnar Gauti Markússon sem fór með sigur af hólmi í Stóru upp- lestrarkeppninni í Seljakirkju. beri að þakka kennurunum sem kynt hafi undir áhuga. Þá hefst upplesturinn. Ungmennin stíga í pontu eitt af öðru. I fyrstu umferð sækja þau í sagnaarfinn og lesa þjóðsögu, skipta með sér þremur sögum, Álfunum og Helgu bóndadóttur, Málmeyjarkon- unni og Niðursetukerlingu. Sagna- þulimir ungu lesa hátt og snjallt, skýrt og af öryggi. Hér eru engir viðvaningar á ferð. Greinilega strangar æfingar að baki. Vart má á milli keppenda sjá en þeir eru Fjóla Kristín Bragadóttir og Kristjana Kristinsdóttir úr Árbæjar- skóla, Sölvi Rúnar Pétursson og Þóra Sif Friðriksdóttir úr Ártúns- skóla, Kári Kolbeinsson og Helga Höskuldsdóttir úr Breiðholtsskóla, Sigrún Erla Ólafsdóttir og Steinunn Sv. Kristjánsdóttir úr Hólabrekku- skóla, Stella Björk Hilmarsdóttir og íris Mýrdal Kristinsdóttir úr Selás- Þvottavélar fyrir vélahluti Tilboð í mars J S fákó sf. ími 564 1819 skóla, Arnar M. Hafsteinsson og Anna Kristín Pálsdóttir úr Selja- skóla og Guðmundur Guðmundsson og Amar Gauti Markússon úr Öldu- selsskóla. Að þjóðsagnalestri loknum er gert hlé. Menn næra sig á kexi og kókó- mjólk. Vilborg skáld keppninnar I annarri umferð lesa keppendur ljóð að eigin vali eftir Vilborgu Dagbjartsdóttur en hún er skáld keppninnar að þessu sinni. Ung- mennin sýna hér á sér aðra hlið, lifa sig inn í ljóðin og ljóst má vera að ekki er minna lagt upp úr túlkun en framsögn. Maður gleymir því sem snöggvast að hér em á ferð böm á þrettánda ári. Víða er borið niður í skáldskap Vil- borgar en ljóðið „Sérstakur dagur“ nýtur áberandi mestrar hylli, upp undir helmingur þátttakenda les það. I þriðju umferð er komið að há- punkti keppninnar, að því er Sigríður Heiða upplýsir. Lesið er Ijóð að eigin vali. Blaðamaður bíður forvitinn eftir vali unga fólksins. Fljótt er ljóst að eldri skáldin eiga upp á pallborðið, Steinn Steinarr, Tómas Guðmunds- son, Jónas Hallgrímsson, Davíð Stefánsson, þrjú ljóð eftir hann era flutt, Jóhannes úr Kötlum, Guð- mundur Böðvarsson, Kristján frá Djúpalæk og Jón úr Vör en allir era þessir menn fallnir frá. Einn kepp- andi les ljóð eftir Vilborgu Dag- bjartsdóttur í þessari umferð og ann- ar ljóð eftir Pétur Önund Andrésson. Á síðamefnda skáldinu veit blaða- maður engin deili, þrátt fyrir eftir- grennslan. Keppendur leggja sig síst minna fram við þennan lestur og blaðamað- ur furðar sig enn og aftur á því hvílíkt vald þeir hafa á forminu. Þar með er keppninni lokið og Sig- ríður Heiða biður dómnefnd að draga sig í hlé með þeim orðum að hún sé ekki öfundsverð. Það verður að sönnu enginn hægðarleikur að gera upp á milli keppenda. Boðið er upp á tónlistaratriði frá Tónskóla Sigursveins til að stytta biðina eftir úrskurði dómnefndar - við þessar aðstæður er tíminn lengi að líða. Keppendur virka þó afslapp- aðir þar sem þeir bera saman bækur sínar. Frammistaða er metin á grund- velli líkamsstöðu, notkunar talfæra, raddstyrks, blæbrigða, hraða, fram- burðar og samskipta við áheyrendur. Dómnefndin átti bagt Stundin rennur upp. Dómnefnd gengur í salinn, með Þórð Helgason formann í broddi íylkingar, en auk hans eiga þar sæti Ari Páll Kristins- son, Þráinn Guðmundsson og Ólöf Sverrisdóttir. Það má heyra saumnál detta. „Við áttum heldur bágt þarna frammi,“ tekur Þórður til máls, „í raun ættu allir keppendur að fá verð- laun.“ Það er ekki fjarri lagi en þann- ig era ekki leikreglurnar. Og þeim verður að hlíta. Þórður vindur sér því í að tilkynna úrslitin. Þrír efstu fá peningaverð- laun frá Búnaðarbankanum í Mjódd en allir keppendur era leystir út með íslenskri orðsnilld frá Máli & menn- ingu og rauðri rós. Þórður byrjar á þriðja sætinu og það hreppir Ánna Kristín Pálsdóttir úr Seljaskóla. Henni er vel fagnað. Annað sætið kemur í hlut Stellu Bjarkar Hilmarsdóttur úr Selásskóla sem einnig er klappað lof í lófa. Spennan er mikil þegar Þórður gerir sig líklegan til að Ijóstra því upp hver hefur borið sigur úr býtum. Óg hann dregur menn ekki á tíðindunum - Arnar Gauti Markússon úr Öldu- selsskóla. Sigurvegarinn stígur stolt- ur fram. Hann er hylltur af ungum sem öldnum enda vel að sigrinum kominn. Skeleggur piltur. Sigurvegarinn er kysstur og knús- aður í bak og fyrir og það tekur blaðamann drykklanga stund að brjótast að honum. Hann er hæst- ánægður með árangurinn enda búinn að leggja á sig mikið erfiði. „Þetta er þriðja keppnin sem ég tek þátt í. Fyrst í bekknum mínum, síðan í skól- anum og loks hér. Þetta hefur verið rosalega skemmtilegt og ekki spillir sigurinn fyrir.“ Amar Gauti kveðst lítið hafa lesið opinberlega áður en röddina hefur hann þjálfað í Drengjakór Laugarneskirkju. „Þær æfingar komu að góðu gagni.“ Segir hann marga hafa hjálpað sér við undirbúninginn en nefnir kenn- ara sinn, Auði Elínu Ögmundsdóttur, og Sigríði Heiðu Bragadóttur aðstoð- arskólastjóra sérstaklega í því sam- bandi. Athygli vakti að í lokaumferðinni flutti hann ljóðið Fjallgönguna eftir Tómas Guðmundsson utan bókar. Arnari Gauta þykir skemmtilegt að lesa Ijóð og sögur, hvort sem er upphátt eða í hljóði, og segir upp- lestrarkeppnina síst hafa dregið úr þeim áhuga. Segir hann þetta áhuga- mál kannski ekki algengt í sjöunda bekk en þó séu nemendur sem hafi yndi af bókmenntum.,A-ð mínu mati mætti leggja meiri áherslu á upplest- ur í skólanum, það eykur skilning nemenda og áhuga á sögum og ljóð- list.“ Alls spreyttu 3.118 sjöundubekk- ingar sig í Stóra upplestrarkeppn- inni í ár. Koma þeir úr 73 skólum, 146 bekkjardeildum. Ur þeim hópi vora valdir 250 nemendur sem lesa upp á átján lokahátíðum víðs vegar um land. Standa þær nú sem hæst. Fjórar lokahátíðir fara fram í dag, í Bústaðakirkju, Reykjavík, kl. 15, í Neskirkju, Reykjavík, kl. 15.30, í Safnaðarheimili Mosfellsprestakalls kl. 19.30 og í grunnskólanum ísafirði kl. 20. Á miðvikudaginn kemur fer lokahátíðin fram í félagsheimilinu Hvoli, Hvolsvelli. Aðstandendur Stóra upplestrar- keppninnar hafa frá upphafi verið Heimili og skóli, íslensk málnefnd, Islenska lestrarfélagið, Kennarahá- skóli íslands, Kennarasamband ís- lands og Samtök móðurmálskennara.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.