Morgunblaðið - 23.03.2000, Blaðsíða 28
28 FIMMTUDAGUR 23. MARS 2000
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Friðarumleitanir Sýr-
lendinga og Israela
Líkur tald-
ar á nýjum
viðræðum
Washington, Damaskus, Jerúsalem. AP, AFP, Thc Washington Post.
LÍKLEGT er talið að friðarviðræður
milli Israela og Sýrlendinga hefjist
að nýju í kjölfar fundar Bills Clint-
ons, forseta Bandaríkjanna, og Haf-
ezar al-Assads, Sýrlandsforseta, sem
haldinn verður í Sviss á sunnudag. í
gær spurðist út að hugsanlegt væri
að Ehud Barak, forsætisráðherra
ísraels, yrði einnig viðstaddur fund-
inn en talsmaður Baraks útilokaði
það í gær. Fari svo að viðræður hefj-
ist á ný þykir líklegt að samkomulag
náist á skömmum tíma og að friðar-
samningur ríkjanna verði lagður fyr-
ir ísraelska kjósendur í vor. Sam-
kvæmt ákvörðun ríkisstjórnar
Baraks verða ísraelar að samþykkja
friðarsamning við Sýrlendinga í
þjóðaratkvæðagreiðslu.
Málamiðlun um landamæri
Haft var eftir starfsmanni utanrík-
isráðuneytis Israels í gær að deilan
um framtíðarlandamæri þjóðanna
yrði að öilum líkindum leyst með
málamiðlun. Sýrlendingar hafa kraf-
Blöndunartæki
Ehud Barak Hafez al-Assad
ist þess að ísraelar skili aftur Gólan-
hæðum í heild sinni sem þeir tóku
herskildi af Sýrlendingum árið 1967.
Hingað til hefur ekki verið talið að
Sýrlendingar væru reiðubúnir að
veita neinar tilslakanir en nýlega hef-
ur heyrst að þeir séu viljugir að láta
Israelum eftir landsvæði sem liggja
að Galíleuvatni. Israelarviljahafayf-
irráð yfir strönd Galíleuvatns vegna
þess að þaðan kemur meginhluti þess
drykkjarvatns sem neytt er í ísrael.
Israelar hafa einnig viljað að tryggt
verði að Sýrland muni ekki ógna ör-
yggi ísraels í framtíðinni. Páttur
Bandaríkjanna mun felast í því að
láta aðilum í té efnahags- og hemað-
araðstoð til að gera samkomulag
mögulegt.
Einnig er ljóst að finna verður
lausn á átökunum í Suður-Líbanon.
Israelar fara fram á að öryggi banda-
manna þeirra í Líbanon, SLA verði
tryggt og að Sýrlendingar beiti áhrif-
um sínum til að stöðva árásir Hizboll-
ah-skæruliða á þorp og bæi í Norður-
ísrael.
Síðasta tækifærið til
að koma á friði
með brunavöm
Hitastilltu Mora Mega blöndunartækin
fyrir bað og sturtu tryggja öryggi og
þægindi.
Mora Mega er árangur margra ára
vöruþróunar og betrumbóta.
Mora - Sænsk gæðavara
TeriGl
Smiðjuvegi 11 • 200 Köpavogur
Sími: 5641088 • Fax= 564 1089 • tengi.is
Barak og Assad hafa viðhaldið
óformlegu sambandi eftir að slitnaði
upp úr formlegum friðarviðræðum
þjóðanna í janúar á þessu ári. I viðtali
við bandaríska dagblaðið Washing-
ton Post sagði Hosni Mubarak, for-
seti Egyptalands, að Sýrlendingar og
ísraelar séu mjög nálægt því að ná
samkomulagi um öll helstu deilumál
þjóðanna og að hefjist formlegar við-
ræður að nýju muni ekki taka langan
tíma að ganga frá friðarsamningi.
Opinbert dagblað stjómvalda í
Damaskus, Al-Baath, sagði á mið-
vikudag að fundur Assads og Clint-
ons í Genf á sunnudag gæti verið síð-
asta tækifærið sem Israelum gæfist
á því að ná friði við Sýrlendinga.
Stefna Clintons í tóbaksvarnarmálum bíður
ósigur í hæstarétti Bandaríkjanna
Afskipti af tóbaks-
sölu sögð óheimil
Washington. AP, AFP.
RÍKISSTJÓRN Bandaríkjanna
hefur ekki heimild til að skipta sér
af sölu tóbaks sem fíkniefnis, jafn-
vel þótt tóbaksnotkun sé kannski
„einhver mesta ógnun, sem um
getur, við heilsu manna“. Komst
hæstiréttur Bandaríkjanna að
þessari niðurstöðu í fyrradag og
ómerkir hún að mörgu leyti stefnu
Bills Clinton Bandaríkjaforseta og
stjórnar hans í tóbaksvamarmál-
um.
FDA skorti heimild
I dómi hæstaréttar, sem var
samþykktur með fimm atkvæðum
gegn fjómm, segir að Bandaríkja-
þing hafi ekki heimilað Matvæla-
og lyfjaeftirlitsstofnuninni, FDA,
að hlutast til um tóbakssölu. Er
niðurstaðan mikill sigur íyrir
tóbaksiðnaðinn en að sama skapi
ósigur fyrir stefnu Clintons í
tóbaksvamarmálum.
Clinton, sem er í heimsókn á
Indlandi, brást við fréttinni með
því að skora á þingmenn beggja
flokka að taka upp aftur og styðja
Frist-McCain-tillöguna, sem svo er
kölluð. Er hún kennd við
repúblikanana og öldungadeildar-
þingmennina Bill Frist og John
McCain en árið 1998 lögðu þeir til,
að gripið yrði til aðgerða gegn
tóbakssölu, svipaðra og FDA hefur
beitt að undanfómu. Dick Armey,
repúblikani frá Texas og leiðtogi
meirihlutans í fulltrúadeildinni,
kvaðst ekki hafa mikinn áhuga á að
auka vald FDA en það yrði þó
hugsanlega tekið fyrir í þingnefnd-
um.
Talsmenn tóbaksframleiðenda
lýstu yfir ánægju sinni með úr-
skurðinn en talsmaður bandarísku
læknasamtakanna sagði hann vera
„sár vonbrigði".
Tóbak ekki skilgreint sem
fíkniefni í lögum
í reglugerð FDA, sem skortir
stoð í lögum að mati hæstaréttar,
er nikótín flokkað sem fíkniefni og
miklar hömlur settar við sölu
tóbaks. Til dæmis má biðja alla
tóbakskaupendur undir 27 ára
aldri um skilríki með mynd og
sígarettusjálfsalar mega hvergi
vera þar sem börn eða unglingar
komast í þá. Almenna reglan er sú
að ekki má selja neinum undir 18
ára aldri tóbak. Hæstiréttur úr-
skurðaði hins vegar, að væri tóbak
fíkniefni lögum samkvæmt, yrði
einfaldlega að banna það alveg.
AP
Fimm daga gíslatöku lokið
LÖGREGLAN í Baltimore í Banda-
rfkjunum réðst í fyrrinótt inn í
íbúð þar sem maður, er grunaður
var um fjjögur morð, hafði haldið
þremur mönnum í gíslingu í fímm
daga. Maðurinn var skotinn til
bana en gíslarnir særðust ekki.
Lögreglan hafði setið um húsið
frá því á föstudag þegar Joseph
Palczynski, 31 árs atvinnulaus raf-
virki sem hefur átt við geðræn
vandamál að strfða, réðst inn í
íbúðina og tók fólkið í gíslingu.
Lögreglan hafði leitað hans í viku
vegna gruns um að hann hefði
rænt fyrrverandi unnustu sinni 7.
mars og myrt fjóra menn.
Tveir gislanna, móðir unnust-
unnar fyrrverandi og vinur henn-
ar, sluppu út úr ibúðinni áður cn
áhlaup lögreglunnar hófst, en lög-
reglan bjargaði þriðja gíslinum, 12
ára dreng. Maðurinn svaf í sófa
með byssu í kjöltunni þegar Iög-
reglumenn brutust inn í íbúðina.
Hann vaknaði og var að standa upp
þegar hann var skotinn til bana.
Ch
nstian ±J íor
Di
Við bjóðum þér að
koma í verslun okkar
og kynnast nýju
vorlitunum frá
Christian Dior
í dag og á morgun,
föstudag, frá
kl. 12-17.
Snyrti- og
förðunarfræðingar
verða á staðnum og
veita faglega ráðgjöf.
Sjón er sögu ríkari.
Glæsiiegur Dior-
kaupauki.
Laugavegi 80, sími 561 1330
E
m
NAMTOEÖMN
Suðurgata v. Skothúsveg
Vorum að fá í sölu þetta
virðulega einbýlishús, sem
er tvær hæðir og kjallari,
samtals u.þ.b. 225 fm, auk
43 fm bilskúrs sem ekið er
að frá Skothúsvegi. Húsið er
í leigu en getur losnað eftir
1-3 mánuði. Á miðhæð eru
stofur, eldhús og snyrting. Á
efri hæð er stofa með
kamínu og svölum, herbergi,
baðherbergi og eldhús. I kjallara eru herbergi, geymslur, þvotta-
hús og saunaklefi. Húsið getur nýst sem einbýli eða tvíbýli. Eign-
in þarfnast smávægilegra endurbóta en býður upp á mikla
möguleika að nýta sem glæsilegt einbýli í hjarta borgarinnar.
V. 20,0 m. 9365
Connery
aðlaður í
Edinborg
London. Morgunblaðið.
SEAN Connery verður sleginn til
riddara í Holyroodkastala í Edin-
borg, þegar Elísabet drottning
verður þar á ferð í júlí og er þetta
fyrsti atburðurinn sem sjónvarpað
verður beint frá kastalanum.
Connery er ákafur stuðnings-
maður skozka þjóðarflokksins og
formaður hans, Alex Salmond,
sagði við The Daily Telegraph vera
mjög ánægður með að atburðurinn
fari fram norðan landamæranna.
Þá auki það enn á gleðina fyrir
Connery, að hann verði sleginn til
riddara í fæðingarbæ sfnum.
Tilkynnt var um upphefð Sean
Connery í desember sl., en því hef-
ur verið haldið fram, að forysta
Verkamannaflokksins hafí áöur
komið í veg fyrir hana vegna stuðn-
ings leikarans við SNP.