Morgunblaðið - 23.03.2000, Blaðsíða 67
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 23. MARS 2000 63
FOLKI FRETTUM
AtilO
■ ÁLAFOSS FÖT BEZT: Hljóm-
sveitin Sixtís fóstudags- og laugar-
dagskvöld. Gamlir djassstandardar í
flutningi Andrésar Þórs og Þóru
Grétu sunnudagskvöld. Aðgangs-
eyrir 500 kr.
■ ÁSGARÐUR, Glæsibæ: Félagar
úr Harmonikkufélagi Reykjavíkur
leika fyrir dansi ásamt gestaspilur-
um frá Félagi harmonikkuunnenda,
Selfossi, laugardagskvöld kl. 22.
■ BROÁDWAY: Bee Gees-sýning.
Kristinn Jónsson, Davíð Olgeirs-
son, Krislján Gíslason, Kristbjörn
Helgason og Svavar K. Kristinsson
fóstudagskvöld. Þeirn til halds og
trausts eru Guðrún Á. Karlsdóttir
og Hjördís E. Lárusdóttir. Dans-
sveit Gunnars Þórðarsonar og
söngstjörnur Broadway í aðalsal. A
laugardagskvöld verður Söng-
skemmtun Karlakórsins Heimis.
Thomas Higgerson leikur- einleik á
píanó. Sérstakir gestir eru Hjálmar
Jónsson og Jón Kristjánsson með
gamanmál og Árni Johnsen stjómar
fjöldasöng. Hljómsveit Geirmundar
Valtýssonar leikur fyrir dansi í aðal-
sal en Lúdó-sextett og Stefán
skemmta í Ásbyrgi.
■ CAFÉ AMSTERDAM: Stórsveitin
Hunang með Kalla Örvars í broddi
fylkingar fóstudags- og laugardags-
kvöld.
■ CAFÉ ROMANCE: Lifandi tónlist
öll kvöld. Breski píanóleikarinn Sim-
one Young leikur. Hann leikur einn-
ig fyrir matargesti Café óperu.
■ CATALINA, Hamraborg: Hljóm-
sveitin Þotuliðið fostudags- og laug-
ardagskvöld.
■ EGILSBÚÐ, Neskaupstað: Stúk-
an Nes opin til kl. 3 fostudagskvöld.
Gleðirokksveitin VAX laugardags-
kvöld.
■ EINAR BEN: Djasskvartett Þóru
Grétu, fímmtudagskvöld kl. 22.
Kvartettinn skipa auk Þóru Grétu,
sem syngur, Andrés Þór á gítai',
Páll á bassa og Kári á trommur.
■ FJARAN, Vestmannaeyjum:
Dansleikur með hljómsveitinni
Skítamóral laugardagskvöld.
■ FJÖRUKRÁIN FJARAN: Nýja
Víkingasveitin föstudags- og laug-
ardagskvöld. Víkingasveitin leikur
fyrir veislugesti. Jón Möller leikur
rómantíska píanótónlist fyrir matar-
gesti á Fjörunni.
■ GAUKUR Á STÖNG: Tónleikar
með hljómsveitinni Skítamóral
fimmtudagskvöld og dansleikur
laugardagskvöld.
■ GRANDROKK: Tónleikar með
hljómsveitinni Eik fimmtudagskvöld
og dansleikur fóstudagskvöld.
Hljómsveitin Villta vestrið laugar-
dagskvöld. Hljómsveitin er skipuð
Matta Stef., Olafi Kr., Helga Vík-
ings og Arnari Frey.
■ GRANDROKK, AKRANESI:
Radíusbræður skemmta föstudags-
kvöld kl. 22. Hljómsveitin Eik laug-
ardagskvöld.
■ GULLÖLDIN: Léttir sprettir sjá
um fjörið fóstudags- og laugardags-
kvöld. íþróttaviðburðir á risatjaldi
og tilboð á stórum til kl. 23.30 öll
kvöld vikunnar.
■ H-BARINN, AKRANESI: Diskó-
tek og plötusnúðurinn Skugga-
Baldur föstudagskvöld. Tónlist síð-
ustu 50 ára. Aðgangseyrir 300 kr.
eftir miðnætti.
■ HARD ROCK CAFÉ: Stórtónleik-
ar Sítróna halda áfram og það er
hljómsveitin Land & synir sem leik-
ur fímmtudagskvöld.
■ HLÖÐUFELL, Húsavík: Hljóm-
sveitin Færibandið fóstudagskvöld.
Miði, skot eða bjór: 500 kr.
■ HÓTEL SELFOSS: Hljómsveitin
Furstarnir laugardagskvöld, að-
gangseyrir 1.000 kr.
■ HÖFÐINN, Vestmannaeyjum:
Tónleikar með KK og Magnúsi Ei-
ríkssyni föstudagskvöld kl. 21.
■ INGÓLFSKAFFI, Ölfusi: Hljóm-
sveitin Sóldögg laugardagskvöld.
■ KAFFILEIKHÚSIÐ: Djasskvint-
Rússíbanarnir kalla á vorið á dansleik í Kaffileikhúsinu annað kvöld, föstudagskvöld, með yfirskriftinni Ó! komdu nú vor!
Imt' " ' ■T | ' \ ' 'flHÍ t. m
Hljómsveitin Skítamórall verður á Gauknum og í Fjörunni í Vest-
mannacyjum um helgina.
ett Stefáns S. Stefánssonar tenór-
saxófónleikara sunnudagskvöld kl.
21. Kraftmikill djass eftir Horace
Silver, Freddie Hubbard, Sonny
Rollins og Stefán S. Kvintettinn
skipa auk Stefáns: Birkir Freyr
Matthiasson trompetleikari, Birgir
Baldursson trommuleikari, Þórður
Högnason bassaleikari og Kjartan
Valdemarsson píanóleikari.
■ KRINGLUKRÁIN: Dúettinn Gull-
ið í ruslinu fimmtudagskvöld.
Hljómsveitin Dans á rósum föstu-
dagskvöld. Hljómsveitin er skipuð
Eyvindi Steinarssyni, Sigfúsi Hösk-
uldssyni, Vigfúsi Ragnarssyni og
Þórarni Ólafssyni. Sunnudags-
kvöld: GR Lúðvíksson.
■ KRISTJÁN IX, Grundarfirði:
Tónleikar með KK og Magnúsi Ei-
ríkssyni laugardagskvöld kl. 22.
■ LIONSSALURINN, Kópavogi,
Auðbrekku 25: Áhugahópur um
línudans verður með dansæfmgu.
Elsa sér um tónlistina fimmtudags-
kvöld kl. 21.
■ LUNDINN, Vestmannaeyjum:
Hljómsveitin Hafrót föstudags- og
laugardagskvöld.
■ MÚLINN, Sölvasal, Sóloni Island-
usi: Jazzkvartett 29 - 2000 sunnu-
dagskvöld kl. 21. Kvartettinn skipa
Guðmundur Steingrímsson
trommuleikari, Ástvaldur Trausta-
son píanóleikari, Birgir Bragason
bassaleikari og Björn Thoroddsen
gítarleikari. Sérstakur gestur er
Sveinn Eyþórsson.
■ NAUSTIÐ: Illjómsveit Geirmun-
dar Valtýssonar föstudagskvöld.
Hljómsveitin Vírus laugardags-
kvöld. Reykjavíkurstofa: Söngkon-
an og píanóleikarinn Liz Gammon
frá Englandi.
■ NJÁLSSTOFA, Smiðjuvegi 6:
Jón Kaaber föstudags- og laugar-
dagskvöld.
■ NÆSTI BAR: EUen Krisljáns-
dóttir söngkona, Þórður Högnason
kontrabassaleikari og Eðvarð Lár-
usson gítarleikari fimmtudagskvöld
kl. 22. Okeypis aðgangur.
■ NÆTURGALINN: Danssveitin
Cantabile frá Akureyri föstudags-
kvöld og laugardagskvöld, (borða-
pantanir). A fóstudagskvöld er
ókeypis aðgangur fram til miðnætt-
is.
■ ODD-VITINN, Akureyri: Abba-
kvöld föstudags- og laugardags-
kvöld. Hljómsveitin Jósi & synir
Dóra, eistlenski fiðluleikarinn
Valmar Vajoits ásamt fjórum söng-
systrum (Abbasystrum). Karlakór-
inn Hreimur frá Húsavík verður
með söngskemmtun laugardags-
kvöldkl. 21.
■ PÉTURSPÖBB: Rúnar Júlíusson
°g Tryggvi Hiibner. Boltinn í beinni
og ódýri bjórinn á 350 kr. föstudags-
kvöld.
■ SKUGGABARINN: Tískusýning
frá Motor og dansatriði. Plötusnúð-
ar verða Nökkvi og Áki föstudags-
kvöld kl. 22. 22ja ára aldurstakmark
eftir kl. 24.
■ SPOTLIGHT: Gaykvöld, dj.
Droppy D spilar fimmtudagskvöld.
Þema óákveðið fóstudags- og laug-
ardagsk\kild.
■ TÓNABÆR: Músiktilraunakvöld
Tónabæjar og ÍTR 2000 fimmtu-
dagskvöld kl. 20. Hljómsveitimar
sem koma fram eru Rottweiler
hundar, Snafu, Einelti og Super
Model frá Reykjavík. Búdrýgindi og
Ritalin frá Kópavogi, Epídót frá
Garðabæ, VIDE - 066 frá Hafnar-
firði og Hyldýpi frá Selfossi. Gesta-
hljómsveitir kvöldins eru Ensími og
Stjörnukisi.
■ VARÐSKIPIÐ THOR, Hafnar-
fjarðarhöfn: Hljómsveitin Heiðurs-
menn og Kolbrún laugardagskvöld.
■ VIÐ POLLINN, Akureyri:
Hljómsveitin Einn & sjötiu föstu-
dags- og laugardagskvöld. í stærri
og nýrri skemmtistað.
(9
Utvarpsþátturinn Islenskar ræmur hefur göngu sína á Rás 1 í dag
Glöggt er gests augað
„í ÞÁTTUNUM leitast ég við að
greina sögu íslenskra bíómynda með
augum hins almenna áhorfanda
fremur en að kafa djúpt ofan í hana á
fræðilegum nótum. Eg
legg fram mínar hug-
myndir, bæði nýjar og
þær sem ég hef áður
reifað og flétta saman
við rannsóknir annarra
ú þessu sviði,“ segir
Olafur H. Torfason rit-
höfundur og kvik-
myndagagnrýnandi um
n.ýja útvarpsþætti
fímm hlutum sem hann
hefur veg og vanda af.
Tilefnið er að nú eru lið-
in um tuttugu ár síðan
samfelld kvikmynda-
gerð hófst hér á landi,
fí'á því að hið svokallaða
„kvikmyndavor“ gekk í
garð. Olafur ætlar að
fara ofan í saumana á
þeim myndum sem gerðar hafa verið
ú þessu tímabili með því að varpa
Ijósi á nokkur sameiginleg einkenni
þeirra eða stefnur og munu þættimir
skiptast samkvæmt því. Þannig fjall-
ar fyrsti þátturinn um upphaf vorsins
°g þjóðrækniviðleitni íslenskra kvik-
myndagerðarmanna. Annar þáttur
tekur á algengasta viðfangsefni ís-
lenskra bíómynda, að mati Olafs, þrá
islenskra kvikmyndapersóna eftir
einstaklingsbundnu frelsi. Þriðji
þátturinn fjallar um umfjöllunarefni
nær helmings allra íslenskra mynda,
fogstreituna milli þéttbýlis og dreif-
býlis, sá fjórði um muninn á ritmenn-
mgu og myndmenningu og í fimmta
°g síðasta þættinum mun Ólafur
ijalla um tilhneigingu íslenskra kvik-
myndahöfunda til að bregða upp ýkt-
um og sérkennilegum persónum og
aðstæðum.
Erlendir sérfræðingar heillaðir
Ólafur segir það á vissan hátt vera
markmið sitt að velta upp nýjum flöt-
um, kalla fram nýja sýn á íslenskar
kvikmyndir. Það gerir hann m.a. með
því að ræða við nokkra af virtustu
kvikmyndasérfræðingum Norður-
Evrópu sem fylgst hafa
grannt með íslenskri
kvikmyndagerð um
árabil. Viðtölin tók
hann á kvikmyndahá-
tíðinni í Gautaborg sem
haldin var á dögunum
en þar var einmitt sér-
stök áhersla lögð á ís-
lenska kvikmyndagerð
í tilefni af tuttugu ára
afmælinu. Fjöldi ís-
lenskra mynda var
sýndur á hátíðinni og
málþing haldið um efn-
ið þar sem Ólafur var
meðal mælenda. Hann
segir innlegg hinna er-
lendu sérfræðinga gefa
breiðari og skemmti-
legri sýn á kvikmynda-
gerð okkar: „Aðalgallinn er kannski
sá hvað þeir eru yfirmáta jákvæðir,
hreint með stjörnur í augunum yfir
íslenskum bíómyndum. Það þótti
mér fróðlegt að heyra, sérstaklega í
ljósi þess hversu gagnrýnir höfundar
greina í bókinni „Heimur kvikmynd-
anna“ eru og taka stórt upp í sig er ís-
lenskar myndir ber á góma.“
Ólafur hjó eftir því hversu oft hinir
erlendu sérfræðingar gátu þess
hversu séríslenskar myndir okkar
væru, hvað íslenskum kvikmynda-
gerðai-mönnum væri mikið í mun að
vera þeir sjálfir og lausir við að
herma eftir því sem verið er að gera
úti í heimi. „Ef menn eru að leita eftir
viðurkenningu og athygli í öði-um
löndum virðist það því vera rétta leið-
in en ekki að framleiða einhvern al-
þjóðagraut eða eftfrhennu.“ Útlend-
ingar virðast þar að auki vera sérlega
heillaðir af myndum sem hér teljast
til utangarðsmynda eða jaðarsins.
Derek Malcolm forseti FIPRESCI,
alþjóðasamtaka kvikmyndagagnrýn-
enda og gagnrýnandi The Guardian,
er einn viðmælenda Ólafs. Hann tjáði
honum m.a. að ein eftÚTninnilegasta
mynd sem hann hefði séð væri Rokk í
Reykjavík, aðallega fyrir það hversu
íslensk hún væri.
Fróðlegt verðm' að heyra hvað
Malcolm og aðrir erlendir kvik-
myndaspekúlantar höfðu til málanna
að leggja. Þátturinn „íslenskar ræm-
ur“ fer í loftið eftir þrjúfréttfr á Rás 1
í dag og næstu fimmtudaga og verður
endurfluttur á þriðjudögum kl. 19.40.
alsa
með Carlos
á föstudags-
| ^ i kvoldum
Byrjenclur og framhald, ^
C a I' I 0 S hefSt 24‘marS' sími 551 5103
Ólafur H. Torfason,
stjórnandi þáttanna
Islenskar ræmur.
maxFactor
kynninsar)
Nýr andlitsfarði
Nýir Gold-varalitir
Madonnu-
varalitir
Spennandi kaupauki
Kvikmyndir sem Max Fartor hefur séí um förðun eru m.a.:
Notling Hill, lilonic, The English Patient, Evito, Ever After, Bugsy Malone,
Alien, Inlerview with o Vompire, Midnight Express, Anno ond the King....
Hóholti 14, Mosfellsbæ,
í dag, fimmtudag,
og ó morgun, föstudag,
kl. 14-18.
Morgunblaðið/Ólafur H. Torfason
Það fór vel á með þeim Derek Malcolm forseta FIPRESCI og Friðriki
Þór Friðrikssyni á kvikmyndahátíðinni í Gautaborg.