Morgunblaðið - 23.03.2000, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 23.03.2000, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. MARS 2000 13 FRÉTTIR Héraðsdómur í máli gegn fyrrv. forstjóra Landmælinga Sýknaður af öllum ákæruatriðum nema einu Jónas Þórisson, framkvæmdastjóri Iljálparstarfs kirkjunnar, tekur við framlagi barna og unglinga í KFUM og KFUK til verkefna á Indlandi. Söfnuðu 220 þúsund fyrir börn á Indlandi HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur sýknað Agúst Guðmundsson, fyrrverandi forstjóra Landmælinga Islands, af öllum ákæruatriðum nema einu í dómi sem kveðinn var upp 2. mars sl. en hann var ákærður fyrir fjárdrátt í opinberu starfi og umboðssvik. Samkvæmt dómsorði er ákvörðun refsingar frestað skil- orðsbundið í eitt ár og honum gert að greiða V4 hluta sakarkostnaðar. Ekki grundvöllur til sakfellingar fyrir fjárdrátt Málið var höfðað á hendur Ágústi í september sl. Umhverfisráðuneyt- ið vék honum úr starfi í sept. 1998 vegna embættisfærslu hans og var nokkrum atriðum hennar vísað til opinberrar rannsóknar. I ákærunni var Ágústi annars vegar gefinn að sök fjárdráttur í opinberu starfi, með því að hafa í desember 1997 dregið sér GPS-staðsetningartæki sem Landmælingar hefðu keypt ásamt öðrum tækjabúnaði skv. reikningi að fjárhæð rúmlega 2 milljónir kr. og fyrir að hafa sett tækið í umboðssölu, sem svo seldi Landmælingum það á 222 þús. kr. Ákærði neitaði sök og kvað tækið hafa verið gjöf til sín en hann hafi síðar selt Landmælingum tækið. Héraðsdómur komst að þeirri niðurstöðu að ósannað væri að Landmælingar hefðu í upphafi keypt tækið skv. reikningi. Taldi dómurinn eignarhald á tækinu svo óljóst, er ákærði seldi Landmæling- um tækið, að engu verði slegið föstu um eignarhaldið og því sé ekki grundvöllur til sakfellingar fyrir fjárdrátt. Var hann því sýknaður af þessum ákærulið. I annan stað var Ágúst ákærður fyrir umboðssvik í opinberu starfi, og honum gefið að sök að hafa mis- notað aðstöðu sína til að láta stofn- unina greiða sér samtals 670 þús- und kr. fyrir störf í þágu starfshóps um stjórnsýslumörk á miðhálend- inu, án þess að hafa fengið sam- þykki kjaranefndar til greiðslu fyrir þau störf, skv. reikningi ákærða vegna 167 yfirvinnustunda í janúar- apríl 1997. Greiðslur voru í þrennu lagi. I niðurstöðu dómsins segir að ákærði hafi innt af höndum vinnu, sem hann hafi hlotið að gera ráð fyrir að yrði greidd. Hvað fyrri tvær greiðslurn- ar varðaði, sem hljóðuðu upp á 130 þús. og 90 þús. kr., komst dómurinn að þeirri niðurstöðu að ákærði hefði verið í góðri trú er hann lét greiða sér þær og var hann sýknaður af þeim hlutum þess ákæruliðar. Hvað síðustu greiðsluna snertir, 450 þús. kr., taldi dómurinn að ákærði hefði nokkuð til síns máls er hann hafi haldið því fram að það hafi ekki verið hans að rökstyðja erindi sitt frekar fyrir kjaranefnd. Honum hafi þó verið ljóst er hann lét Land- mælingar greiða sér umrædda upp- hæð, að greiðslan var háð ákvörðun kjaranefndar. Taldi dómurinn þá háttsemi varða við ákvæði hegning- arlaga. .Ákærði átti lögmæta launakröfu er hann lét stofnunina greiða sér án þess að rétt væri að því staðið. Ekk- ert fjártjón varð. Langur tími er lið- inn frá því að brot ákærða var fram- ið. Eftir atvikum þykir rétt að fresta ákvörðun refsingar ákærða skil- orðsbundið í eitt ár frá uppsögu dómsins að telja og skal refsing falla niður að þeim tíma liðnum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. al- mennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955,“ segir í niðurstöðu héraðsdóms. BÖRN og unglingar í KFUM og KFUK skiluðu nýlega til Hjálpar- starfs kirkjunnar afrakstri af verkefni sínu í vetur sem snerist um að fræðast um kjör jafnaldra þeirra í þriðja heiminum, einkan- lega á Indiandi og safna fjármun- um í verkefni hjálparstarfsins. Félagar í hinum ýmsu deildum beittu ýmsum aðferðum við fjár- öflunina, söfnuðu dósum og flösk- um, héldu bingó, tombólur og happdrætti og á uppskeruhátíð nýverið var afrakstrinum safnað saman og hann afhentur Jónasi Þórissyni, framkvæmdastjóra Hjálparstarfs kirlgunnar. Alls söfnuðust um 220 þúsund krónur og sagði Jónas er hann tók við peningunum, að þeir myndu margfaldast að verðgildi í verk- efnunum á Indlandi. Samræma þarf betur rekstur SVR ogAV AUKIN samvinna eða jafnvel sam- eining Strætisvagna Reykjavíkur og Almenningsvagna er kostur sem Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir að menn verði að skoða í tengslum við um- ræður um eflingu almenningssam- gangna á höfuðborgarsvæðinu. „Mér finnst það liggja í augum uppi að samræma þarf betur rekst- ur Strætisvagna Reykjavíkur og Almenningsvagna," sagði Kjartan, sem finnst nýútkomin skýrsla um rekstur SVR mjög athyglisverð, en þar kemur fram að farþegum fækki jafnt og þétt og þörf sé á aðgerðum til að efla almenningssamgöngur. I kjölfar skýrslunnar hefur borg- arráð m.a. falið borgarstjóra að kanna hvort æskilegt sé að skilja á milli stefnumótunar og þjónustu- kaupa almenningssamgangna í borginni. Undrast sinnaskipti R-listans Kjartan sagðist undrast sinna- skipti R-listans í þessu máli, því fyrir borgarstjórnarkosningarnar árið 1994 hefði eitt hans helsta kosningamál verið að breyta SVR úr hlutafélagi í borgarfyrirtæki, eins og hann hefði síðan gert. „Ingibjörg Sólrún hélt því þá hvað eftir annað fram, að hlutafé- lagaform ætti undir engum kring- umstæðum við um rekstur strætis- vagna. Sá rekstur yrði að vera í höndum hins opinbera. Þessi sinna- skipti nú sýna í raun hversu mikill pólitískur vindhani hún er,“ sagði Kjartan, en bætti því við að þessi stefnubreyting R-listans væri hon- um mikið ánægjuefni. Að sögn Kjartans kemur fram í skýrslunni að kostnaður miðað við hvern ekinn kílómetra er lægri hjá Almenningsvögnum en hjá Strætis- vögnum Reykjavíkur. „I raun ætti þessu að vera öfugt farið því SVR er mun stærra fyrir- tæki og ætti því að njóta hag- kvæmni stærðarinnar. Mig grunar að þetta sé vegna þess að Almenn- ingsvagnar eru að nota aðferðir hlutafélagsins en SVR er borgar- fyrirtæki, sem er einfaldlega ekki nægilega vel rekið.“ BALEMOj Langar þig tíl þess? SUZUKI Baleno fæst fjórhjóladrifinn, með spræka og skemmtilega 1600 vél, bæði í Sedan og Wagon útfærsl- unum. Fjórhjóladrif er alveg ómetan- legt við þær aðstæður sem við búum við hér á íslandi, ekki bara svo við komumst leiðar okkar, heldur bætir það aksturseiginleika og stöðugleika bílsins við allar aðstæður. Svo eru Baleno 4x4 bílarnir afar vel búnir staðalbúnaði, bæði þæginda- og öryggisbúnaði. SUZUKI bílar eru þekktir fyrir hagkvæmni í rekstri og sparlega eldsneytisnotkun. Er þetta ekki einmitt bíllinn sem þig vantar? Baleno - Fólksbíllinn TEGUND: VERÐ 1.3 GL3d 1.195.000 KR. 1.6 GLX 4x4 4d ABS 1.595.000 KR. 1.6 GLXWAGON 4x4 abs 1.695.000 KR. SUZUKI BILAR HF Skeifunni 17. Sími 568 51 00. www.suzukibilar.is Þorbergur Guðmundsson Sölustjóri SUZUKI SÖLUUMBOÐ: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, slml 431 28 00. Akureyri: BSA hf., Laufásgötu 9, slmi 462 63 00. Hafnarfjörður: Guðvarður Eliasson, Grænukinn 20, simi 555 15 50. Hvammstangi: Bila- og búvélasalan, Melavegi 17, simi 451 26 17. (safjörður: Bllagarður ehf.,Grænagarði, simi 456 30 95. Keflavlk: BG bílakringlan, Grófinni 8, simi 421 12 00. Selfoss: Bflasala Suðurlands, Hrlsmýri 5, slmi 482 37 00.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.