Morgunblaðið - 23.03.2000, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 23. MARS 2000 23
ÚRVERINU
jjósmynd/Elena Guijarro Garcia
Kampselurinn (erignathus barbatus) við smábátahöfnina í Elliðavogi.
Kampselur í Elliðaárvogi
FYRIR skömmu sáu starfsmenn á
Hafrannsóknastofnun kampsel (er-
igfnathus barbatus) í smábátahöfn-
inni við Elliðaárvog. Var hann mjög
gæfur og lét ekki raska ró sinni
þótt ljósinyndir væru teknar af hon-
um á stuttu færi. Um kvöldmatar-
leytið sást hann hins vegar synd-
andi um höfnina en vikuna áður
hafði hringanóri (phoca hispida)
sést á sama stað, en hann er einnig
sjaldséð tegund. Guðmundur Þórð-
arson, sem rannsakar blöðruseli á
Hafrannsóknastofnuninni, segir að
smæð þessa kampsels sem og litur á
baki gefi mjög sterklega til kynna
að hér sé um vetrung að ræða.
Kampselir eru hánorræn selateg-
und sem finnst allt í kringum Norð-
urpólinn og einnig við Grænland og
er talið að í stofni kampsela í heim-
inum séu um 600 þús. til ein milljón
dj?r. Ungir kampselir eiga það til að
flækjast og sjást nokkuð reglulega
við Vestfirði og Norðurland en eru
mjög sjaldgæf sjón við suður- og
vesturströndina. Kampselur dreg-
ur nafn sitt af þéttum og stífum
veiðihárunum (kampar). Þetta er
stórvaxið selakyn sem getur orðið
allt að 230 cm að lengd og vegið um
260 kg. Kampselir kæpa á ís á tíma-
bilinu frá miðjum mars til byijun
maí og eru kóparnir um 12 til 18
daga á spena. Kampselir sækja
fæðu sína niður á um 200 metra
dýpi en helsta fæða þeirra eru ýms-
ir hryggleysingjar (kuðungar, sam-
lokur og krabbadýr) og fiskar.
Islendingar reka
rækju verksmiðju
á Nýfundnalandi
SNÆFELL hf., Nýsköpunarsjóður
atvinnulífsins, Samherji hf. og kana-
díska samvinnufyrirtækið Fogo Is-
land Co-Operative Society Ltd. hafa
stofnað félag, Fogo Island Shrimp
Ltd., um rekstur rækjuverksmiðju á
Fogo Island á Nýfundnalandi og
hefst framleiðsla í sumar.
Björn Z. Ásgrímsson, fram-
kvæmdastjóri ísheims hf., átti
frumkvæðið að stofnun félagsins og
leiddi viðkomandi saman eftir að
hafa fundið kanadískt samstarfsfyr-
irtæki, sem hafði aðgang að auðlind-
inni og aðstöðu. Snæfell var með
rækjuverksmiðju í Ólafsvík en henni
var lokað haustið 1998 og er tækja-
búnaður nýju verksmiðjunnar að
miklu leyti þaðan.
Að sögn Björns sjá menn félagið
sem góðan fjárfestingarkost. „Menn
koma þarna með þekkingu og búnað
í rækjuvinnslu og horfa til framtíðar
og í þessu geta einnig falist tækifæri
í öðrum fisktegundum, meðal ann-
ars botnfiski, þegar fram í sækir.“
Fyrrnefnt samvinnufyrirtæki sjó-
manna og verkamanna var mjög
stórt í þorskveiðum og -vinnslu en
þorskveiðibann Kanadamanna fyrir
áratug breytti stöðu þess. Uppgang-
ur í krabba- og rækjuveiðum á allra
síðustu árum hefur styrkt mjög
stöðu sjávarútvegs á Nýfundna-
landi, einnig hafa botnfiskstofnar
sýnt batamerki og verið að styrkj-
ast.
Nýja félagið er í meirihluta eigu
íslensku aðilanna en forstjóri þess
er Hugh St. Croix, sem einnig er
forstjóri Fogo Island Co-Op. Fram-
leiðslustjóri er Andri Þorleifsson og
verður hann eini íslenski starfsmað-
urinn til að byrja með en uppbygg-
ing verksmiðjunnar verður í hans
höndum.
„Endanlega lokið“
„LÍKLEGA er vertíðinni endan-
lega lokið núna. Það sést lítið sem
ekkert til loðnunnar og hálfgert
reiðuleysi á flotanum. Þar að auki
er spáð slæmu veðri og ég efast um
að nokkuð finnist eftir bræluna,"
sagði Ólafur Einarsson, skipstjóri
á loðnuskipinu Faxa RE, í samtali
við Morgunblaðið 1 gær. Þá var á
annan tug skipa á miðunum við
Malarrif en lítil veiði var í gær, að-
eins 20 til 30 tonn í kasti.
Loðnan er lélegt bræðsluhráefni
eftir að hrygningu lýkur og erfitt
er að koma henni úr veiðarfærum
ofan í lestar sökum þess hversu
þurr hún er. Enn eru eftir tæp 68
þúsund tonn af loðnukvóta vertíð-
arinnar og segja sjómenn nánast
útilokað að hann náist úr þessu.
*Í5F'
Sendum bíla til umboðsmanna hvert á land sem er
Skuldabréf til 60 mánaða - Fyrsta afborgun í júní 2000 - Euro-Vísa raðgreiðslur til 36 mánaða
Opel Vectra 1.6 GL - árg. ‘99 Opel Astra 1.6 GL - árg. '98 Nissan Terrano II - árg.'99 MMC Lancer 1.3 GLX-árg.'97 Subaru Legacy 2.0 - árg. '99
- Ek. 16 þús. - beinsk. - Ek. 39 þús. - sjálfsk. - Ek. 2 þús. - beinsk. - Ek. 43 þús. - beinsk. - Ek. 22 þús. - sjálfsk.
- Verð kr. 1.630.000,- - Verð kr. 1.290.000,- - Verð kr. 2.540.000,- - Verð kr. 1.190.000,- - Verð kr. 1.990.000,-
Opel Corsa - árg.'99 Suzuki Vitara JLXI - árg. '99 Nissan Almera 1.6 SLX- árg. *99 Mercedes BenzC180 - árg.'98 Opel Astra 1.6 - árg.'99
- Ek. 33 þús. - beinsk. - Ek. 25 þús. - beinsk. - Ek. 23 þús. - sjálfsk. - Ek. 15 þús. - sjálfsk. - Ek. 20 þús. - sjálfsk.
- Verð kr. 1.070.000,- - Verð kr. 1.420.000,- - Verð kr. 1.390.000,- - Verð kr. 2.890.000,- - Verð kr. 1.480.000,-
Umboðsmenn: Akranes: Björn Lárusson sími 431 1650 - Akureyri: Sigurður Valdimarsson sími 461 2960 - Borgarnes: Bílasala
Vesturlands sími 4371577 - Egilsstaðir: Víkingur Vélaverkstæði sími 471 1244 - Höfn Homafirði: Bíiverk sími 4781990 - Húsavík:
S.C. Bíiaverkstæði sími 464 1060 - fsafjörðun Bílasalan ísafjarðarflugvelli sími 456 4712 - Keflavík: Bílasala Reykjaness sími 421
6560 - Reyðarfjörður: Lykill sími 474 1199 - Sauðárkrókur: Bifreiðaverkstæði Áka sími 453 5141 - Selfoss: Betri bílasalan sími
482 3100 - Vestmannaeyjar: Bílkaup/Bláberg sími 488 2270
sMlah jWm
(í húsi Ingvars Helgasonar og Bílheima) Sævarhöfða 2-112 Reykjavík
Símar: 525 8096 - 525 8020 - Símbréf 587 7605