Morgunblaðið - 23.03.2000, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 23. MARS 2000 15
AKUREYRI
Gott veður hefur verið í Hlíðarfjalli síðustu daga og mjög gott færi. í gær var títivistardagur hjá Lundarskóla
og gátu krakkarnir valið um að fara í fjallið eða á skauta í nýju skautahöllinni og þangað fóru margir. Litlu
sttílkurnar tvær eru hins vegar af leikskólanum Kiðagili en krakkarnir þaðan fengu líka að fara í fjallið í gær.
Fjölbreytt dagskrá á Vetraríþróttahátíð ÍSÍ um helgina
Tvö íþróttamann-
virki formlega vígð
Um slúður
og kjaftasögur
Yfírlýsing frá eigendum skemmti-
staðarins CLUB 13 á Akureyri
TVÖ íþróttamannvirki verða
formlega vígð á laugardag í
tengslum við Vetraríþróttahátíð
ISI sem ntí stendur yfir, annars
vegar skautahöllin og hins vegar
Strýta í Hlíðarfjalli.
Mikið verður um að vera á
Vetraríþróttahátíðinni um kom-
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum.
Bjóðum eitt mesta úrval
á íslandi af smáum
og stórum vogum.
HafÖu samband
Síðumúla 13, sími 588 2122
www.eltak.is
andi helgi. Sýningarleikir í krullu,
curling verða í skautahöllinni kl.
10 á laugardagsmorgun þar sem
verða lið frá Akureyri og Kanada,
en formlega vígsla hallarinnar
verður kl. 17 á laugardag þar sem
m.a. breskt listdanspar sýnir listir
sínar og ávörp verða flutt.
í Hlíðarfjalli verður alþjóðlegt
FIS mót, bæði í stórsvigi og
göngu og þá mun Davíð Oddsson,
forsætisráðherra verða heiðurs-
gestur við vígslu nýs veitinga-
skála, Strýtu í Hh'ðarfjalli en at-
höfnin hefst kl. 15.
Á Akureyrarvelli verður keppt í
snjókrossi og snjómótorkrossi og
sýning verður á torfærujeppum.
Halldór Blöndal forseti Alþingis
mun ræsa fyrsta keppandann, en
keppnin stendur yfir frá kl. 14 til
17 á laugardag.
Þá verður opnuð sýning á tít-
búnaði Suðurpólsfara, Everest-
fara og Grænlandsjökulsfara í
Kaupvangsstræti 1 kl. 14 á laug-
ardag. Ólafur Örn Haraldsson, al-
þingismaður og Suðurpólsfari
segir þar frá félögum sínum sem
ntí eru að ganga á Norðurpólinn.
Islandsmeistaramót í listhlaupi
á skautum verður í skautahöllinni
á sunnudag frá kl. 10.30 til 14.30,
en þá hefst skautasýning. Um
kvöldið eða kl. 19 etja kappi
Skautafélag Akureyrar og Björn-
inn, Reykjavík, í deildarkeppninni
í íshokkí. Alþjóðamótið í göngu er
einnig á dagskrá í Hlíðarfjalli á
sunnudag, sem og Coca Cola mót í
göngu fyrir 14 ára og yngri.
Um helgina stendur einnig yfir
íþróttaþing ISI en það fer fram í
KA-heimilinu. Ellert B. Schram
forseti ISI setur þingið kl. 17 á
föstudag og þá mun forseti ís-
lands, hr. Olafur Ragnar Gríms-
son ávarpa samkomuna sem og
Björn Bjarnason menntamála-
ráðherra.
MORGUNBLAÐIÐ hefur verið
beðið um að birta eftirfarandi yfir-
lýsingu frá eigendum skemmti-
staðarins CLUB 13 á Akureyri:
„Við sem eigum og rekum
skemmtistaðinn CLUB 13 á Akur-
eyri erum seinþreyttir til vand-
ræða. En nú er svo komið að við
sjáum okkur knúna til að senda frá
okkur yfirlýsingu vegna þess slúð-
urs sem gengur ljósum logum um
bæinn og tengist okkur og
skemmtistaðnum okkar með einum
eða öðrum hætti.
Á bak við lás og slá?
Það staðfestist sem sé hér með
að eigendur CLUB 13 á Akureyri
tengjast ekki á nokkurn hátt þeim
fíkniefnamálum sem upp hafa
komið á Akureyri. Enginn úr hópi
núverandi eða fyrrverandi eigenda
skemmtistaðarins situr á bak við
lás og slá né hefur nokkur úr þess-
um hópi svo mikið sem verið tek-
inn til yfirheyrslu hjá lögreglu
vegna fíkniefnamála.
Staður fyrir venjulegt fólk
CLUB 13 er vínveitingastaður
sem er opinn öllum þeim sem hafa
aldur til að sækja slíka staði. Stað-
urinn er mest sóttur af yngsta ald-
urshópnum, þ.e. ungu fólki á aldr-
inum 18-30 ára. Það er sami hópur
og sækir jafnframt hinn lands-
fræga skemmtistað Sjallann, svo
dæmi sé tekið. Gestir okkar eru
sem sé ósköp venjulegt fólk, og í
heildina litið lífsglatt og skemmti-
legt og ljúft í allri umgengni.
Hnökralaus og góð samskipti
við eftirlitsmenn
Við sem rekum CLUB 13 gerum
það af metnaði og alúð. Við höld-
um uppi strangri dyravörslu og
reynum þannig að tryggja að eng-
inn komist inn sem ekki hefur náð
tilskildum aldri. Við höfum ávallt
haft mjög gott samstarf við eftir-
litsmenn hins opinbera. Þeir heim-
sækja staðinn reglulega, stundum
oft á kvöldi, á eftirlitsferðum sín-
um um öldurhús bæjarins. Þeir
hafa mjög sjaldan þurft að hafa af-
skipti af gestum CLUB 13 eða vísa
einhverjum þeirra út vegna of lágs
aldurs. Við erum stoltir af þessari
staðreynd enda segir hún mikið
um skelegga framgöngu dyravarða
hússins.
Með samúðarkveðjum...
Við sem eigum og rekum CLUB
13 höfum, eins og vonandi flestir
Akureyringar, þungar áhyggjur af
aukinni tíðni fíkniefnabrota í bæn-
um. Við munum hér eftir sem
hingað til leggja metnað okkar í að
sjá til þess að engin fíkniefni kom-
ist inn á staðinn sem við rekum.
Ef við yrðum þess varir myndum
við án tafar gera þar til kvöddum
yfirvöldum viðvart.
Það er von okkar að þessi yfir-
lýsing verði til þess að kveða í kút-
inn, í eitt skipti fyrir öll, þrálátan
orðróm um tengsl CLUB 13 og
eigenda hans við fíkniefnamisferli
af ýmsum toga.
Að lokum viljum við senda þeim,
sem hafa ánægju af því að búa til
óþverrasögur um náungann, okkar
innilegustu samúðarkveðjur og
biðjum þeim Guðs blessunar.
Akureyri, 22. mars 2000, fyrir
hönd eigenda CLUB 13.
Arnar Tryggvason,
Jón Páll Tryggvason,
Ingi Þór Tryggvason."
-----------------
Vilja setja
upp vetrar-
íþróttasafn
SÖGUSÝNING sem setja átti upp í
tengslum við Vetraríþróttahátíð ISÍ
á Akureyri hefur verið felld niður
þar sem ekki tókst að afla nægilegra
gagna frá þeim sem til var leitað.
Þetta kemur fram á heimasíðu hátíð-
arinnar.
Alls var leitað til um 400 íþrótta-
og ungmennafélaga, íþróttabanda-
laga, héraðssambanda, sérsam-
banda, íþrótta- og tómstundafull-
trúa, skíðastaða og einstaklinga, en
innan við 2% af þeim sem leitað var
til svaraði beiðni um að fá lánaða
muni á sýninguna. Leitað var eftir
gripum sem tengjast vetraríþrótt-
um, ljósmyndum og öðru því sem átt
gæti heima á sýningu sem þessari.
Þá er Þjóðminjasafnið lokað um
þessar mundir og því erfitt um vik að
fá lánaða muni þaðan.
Þrátt fyrir að ekki tækist að afla
muna á sýninguna að þessu sinni eru
nú uppi hugmyndir um að setja upp
safn á Akureyri sem tengist vetrar-
íþróttum og eru þeir Jón Arnþórsson
og Hermann Sigtryggsson í forsvari
fyrir því. Þeir beina þvi til þeirra
sem eru aflögufærir með muni sem
tengjast vetraríþróttum og telja að
þeir eigi heima á slíku safni, safni
Vetraríþróttamiðstöðvarinnar á Ak-
ureyri, að setja sig í samband við þá.
------f-4-4------
Tvennir
tdnleikar
SÖNGDEILD Tónlistarskólans á
Akrueyri heldur tvenna tónleika þar
sem fram koma nemendur deildar-
innar. Fyrri tónleikamir verða
fimmtudagskvöldið 23. mars kl.
20.30. í Safnaðarheimili Akureyrar-
kirkju en á þeim koma fram nemend-
ur á efri stigum. Seinni tónleikarnir
verða föstudagskvöldið 24. mars kl.
20.30 og verða þeir í sal Tónlistar-
skólans en á þeim koma fram nem-
endur á neðri stigum. Aðgangur að
tónleikunum er ókeypis.
-----------------
Bókmennta-
kvöld
ÞRIÐJA bókmenntakvöld Sigur-
hæða húss skáldsins og Gilfélags-
ins verður í Deiglunni fimmtudag-
skvöldið 23. mars og hefst kl.
20.30.
Að þessu sinni lesa Arnrún Halla
Arnórsdóttir, Erlingur Sigurðar-
son, Hallgrímur Indriðason, Heið-
dís Norðfjörð og Sverrir Pálsson.
•5 Aöalfundur »5
Aðalfundur Sparisjóðs Svarfdæla Dalvík
verður haldinn í félagsheimilinu Rimum í Svarfaðardal
fimmtudaginn 30. mars nk. kl. 20.30.
Fundarefni:
Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum sjóðsins.
Að loknum aðalfundi er boðað til fulltrúaráðsfundar.
Dalvík, 20. mars 2000.
Stjórnin.
Bókaðu í síma 570 3030 03 460 7000
Fax 570 3001 • websalesó>airiceland.is •www.flujfelaj.is
...fljújðufrekar
FLUGFELAG ISLANDS