Morgunblaðið - 23.03.2000, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 23.03.2000, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ ERLENT FIMMTUDAGUR 23. MARS 2000 27 . Stuðn- ingur við skatta- lækkun FRAMMÁMENN í þýsku at- vinnulífi og verkalýðsleiðtogar lýstu í gær stuðningi við áætl- anir Gerhards Schröders og stjórnarinnar um mestu skatta- lækkun í Þýskalandi eftir stríð. Skoruðu þeir á þingmenn að tryggja, að lög um lækkunina yrðu samþykkt á næstu vikum. Hófust umræður um skattatil- lögumar á þingi í gær en kristi- legii' demókratar hafa gagn- rýnt þær harðlega og segja, að þær gangi ekki nógu langt, einkanlega fyrir smá og meðal- stór fyrirtæki. Aðilar vinnu- markaðarins eru hins vegar sammála um, að með tillögun- um sé verið að stíga svo mikil- vægt skref, að ekki megi spilla fyrir því á neinn hátt með póli- tísku argaþvargi. Segir Elian vera gísl FELIPE Perez Roque, utan- ríkisráðherra Kúbu, sagði í gær, að hinum sex ára gamla dreng, Elian Gonzalez, væri haldið „í gíslingu" á Miami af „valdamiklum minnihluta", sem ætti þá ósk heitasta, að til styrjaldar kæmi milli Banda- ríkjanna og Kúbu. Hann kvað þó jákvætt, að dómari á Miami hefði vísað á bug tilraunum ættingja Gonzalez til að halda honum í Bandaríkjunum. Illt væri þó, að þeir hefðu áfrýjað þeim úrskurði og yrði það til að draga málið á langinn. Northwest úr sambandi STARFSEMI bandaríska flug- félagsins Northwest Airlines, tengiflugfélags Flugleiða í Minneapolis, var með eðlileg- um hætti í gær en í íyrradag neyddist það til að aflýsa eða fresta hundruðum flugferða. Var ástæðan sú, að vinnuflokk- ur tók óvart í sundur kapal fyr- ir tölvukerfi fyrirtækisins. Kom það auðvitað ekki að sök fyrir þá, sem voru í loftinu, en öllum öðrum olli það miklum óþæg- indum. Þriðjungur vatnsbóla mengaður UM þriðjungur allra brunna eða vatnsbóla í 31 ríki Banda- ríkjanna er mengaður af efninu MTBE. Síðustu tvo áratugina hefur því verið bætt í bensín til að tryggja betri bruna í bílvél- um og minni loftmengun en nú er vitað, að það er krabba- meinsvaldandi. Bandarísk stjórnvöld tilkynntu sl. mánu- dag, að notkun efnisins yrði bönnuð, en talið er, að einn ára- tugur muni líða áður en það hverfur alveg úr drykkjarvatni. Meginástæða fyrir menguninni er lekir bensíntankar nálægt vatnsbólum. NÝTT ÁR — NÝ ÖLD — NÝTT LÍF! Frábær árangur í megrun og bættri heilsu! Uppl. í síma 698 3600. Dauðdagi Raspútíns dreginn 1 efa London. AP. SAGAN um dauðdaga Raspútins fellur um sjálfa sig, að mati sagn- fræðingsins Edwards Radzinskys, sem nýlega gaf út bók um munk- inn dularfulla byggða á skjölum bolsévika. En sagan segir að Ras- pútín, sem hópur aðalsmanna myrti, hafi áður lifað það af að borða mikið magn af eitruðu sætabrauði. Radzinsky segir Raspútin hins vegar ekki hafa verið mikið fyrir sætindi og er því sagan um sæta- brauðsátið að hans mati lygi ein, sögð í því skyni að umvefja prest- inn dulúð vegna þeirra miklu áhrifa sem hann hafði við hirð Rússakeisara. Bók Radzinskys ber heitið Ras- pútfn: Siðasta orðið og var nýlega gefin út í Bretlandi, en hún bygg- ist á skjölum sem sellóleikarinn og hljómsveitarstjórinn Mstislav Rostropovits eignaðist á uppboði hjá Sotheby’s 1995. Bókin fjallar m.a. um morð munksins, en þessi ólæsi almúgamaður frá Síberíu náði ótrúlegum áhrifum við hirð Rússakeisara og hjá kónu hans Alexöndru vegna meintrar hæfni hans til að slá á dreyrasýki sonar þeirra. í æviminningum sínum sagði prinsinn Felix Júsópov, einn morðingja Raspútins, að munkur- inn hefði neytt sætabrauðs sem blandað hafði verið blásýru og eitruðu víni án þess að það hefði nein áhrif á líðan hans. Dóttir Raspútins, Matrjóna, skrifaði hins vegar í æviminningum sinum að faðir sinn hefði aldrei neytt kjöts eða sætinda og kveður Radzinsky frekari staðfestingu að flnna í skjölum bolsévika. En þar lýsir m.a. Konstantín Tsjikatsjev hjá dómstólum í Saratov í Rússlandi því yfir Raspútín hafi aldrei snert súkkulaði sem aðdáendur sendu honum. „Hann deildi því út, en sagðist sjálfur ekki borða sl/kan óþverra," sagði Tsjikatsjev og þá var haft eftir vini Raspútfns, Al- exei Filippov, að Raspútín neytti aðeins físks, aldrei kjöts eða sæt- inda, jafnvel ekki þegar hann var drukkinn. Af hverju greindi Júsópov þá frá þessari ítarlegu morðtilraun í bók sinni? „Af því að hann ákvað að skrifa skáldsögu," sagði Radz- insky sem undirbýr nú sjónvarps- þætti um ævi Raspútíns sem sýnd- ir verða í Rússlandi í september. N Ó A T Ú N N*Ptí4^ FLUGLEIÐIR Veisla fyrt; Spríklantli nýrsi0 eldislax! N O A T U N NÓATÚN117 « R0FABÆ 39 « HÓLAGARÐI • HAMRAB0RG 14 KÓP. • HVERAF0LD • FURUGRUND 3, KÓP * ÞVERH0LTI 6, M0S. * JL-HÚSI VESTUR í BÆ KLEIFARSEL118 • AUSTURVERI, HÁALEITISBRAUT 68
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.