Morgunblaðið - 23.03.2000, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 23.03.2000, Blaðsíða 32
32 FIMMTUDAGUR 23. MARS 2000 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Portrett af eiginkonu listamannsins Cézanne, frá 1877. Sjúkrastofa II eftir Hilding, frá 1920. Blómapottur með blágresi eftir Juan Gris, frá 1915. Úr safni Sandblom- hjónanna Samling S, eins og málverkasafn hjónanna Grace og Philip Sandblom er nefnt, er nú til sýnis í heild sinni í Nationalmuseum í Stokkhólmi. Þetta er verðmætasta safn í sænskri einkaeign og á sýningunni má sjá ___margan dýrgripinn. Inga Birna_ Einarsdóttir kynnti sér safnið. AÐ ER lítil og hugljúf ást- arsaga sem er upphafið að þessu safni. Það var í kringum 1930 er Grace og Philip hittust fyrst og það átti sér einmitt stað í Nationalmuseet. Eftir að hafa gengið í sameiningu um sal- ina og komist að því að þau deildu miklum myndlistaráhuga voru þau ekki að tvínóna við hlutina og ákváðu að gifta sig. Þetta var upphafið að farsælu hjónabandi og nú búa þau í hárri elli í Lausanne í Sviss. Þau hófu síðan að safna listaverkum af mikill nákvæmni. Það var aldrei ælunin að eignast fjölda verka heldur að eign- ast einungis verk sem þeim þótti fal- leg og þá réð kaupverðið ekki úrslit- um. I safninu má sjá mörg verk sem heldur betur hafa aukið verðgildi sitt. Á þeim tíma sem þau voru að byggja upp sitt safn var myndlist miklu ódýrari en í dag og þá er átt við verk eftir helstu meistara 20. al- darinnar. Árið 1970 fluttust þau svo til Sviss og notuðu tækifærið og gáfu Nationalmuseum nokkur verðmæt- ustu verk í eigu sinni. Þar á meðal eru verk eftir Delacroix, Cézanne, Courbet, Seurat, Picasso og sænska listamanninn Ernst Josephson. Með þessari sýningu nú vill safnið heiðra þessa þýðingarmestu styrktaraðila sína. Segir safnstjórinn í sýningar- skrá að safni sem njóti slíks velvilja geti ekki mistekist ætlunarverk sitt. Hjónin leggja áherslu á að eignast verk eftir sænska listamenn. Ernst Josephson er talinn til gullaldarmál- ara Svía og nýtur sömu virðingar og þeir félagar Ásgrimur Jónsson, Kjarval og Jón Stefánsson á Islandi. Hann ber höfuð og herðar yfir sænska listamenn hvað varðar lita- meðferð og pensildrætti. Hann er meistari í að mála portrettmyndir þar sem honum tekst að fanga stemmningu augnabliksins og kar- akter fyrirsætunnar. Hann missti síðar geðheilsuna og á meðan hann var veikur breyttist myndmálið, bæði hlutföll og sjónarhorn. Á sýn- ingunni má sjá frábæra portrett- mynd af leikstjóranum Ludvig Jos- ephson sem er nú í eigu National- museum. Sjúkdómslist Josephsons hafði áhrif á sænsku naivistana sem blönduðu saman einkennilegum hlutföllum og ljóðrænni rómantík í myndum sínum. Mörg verk í safninu eru eftir Hilding Linnqvist og Axel Nilsson sem urðu þekktastir úr þess- um hópi. Það eru tvær myndir eftir Paul Cézanne á sýningunni, uppstilling með ávöxtum og mynd af eiginkonu listamannsins. Cézanne var upptek- in af geómetrískum formum og leit- aðist við að sýna myndefni sitt í geómetrískum einingum. Frúin situr við sauma í hægindastól og ílíkinni sem hún heldur á er skipt niður í fer- hymdar einingar sem er greinilegur fyrirboði kúbismans. Cézanne var sá sem ruddi brautina fyrir módern- ismann og hafði mikil áhrif á lista- menn sem komu síðar. Þessa til- hneigingu til að skipta myndefninu niður í geómetrískar heildir má jafn- vel sja í myndum eftir Jón Stefáns- son. íslenska landslagið verður oft á tíðum ferhyrnt í meðförum hans. Picasso, George Braque og Juan Gris voru forsprakkar kúbismans. Þeir skiptu myndefninu niður í ein- ingar sem þeir röðuðu saman á til- viljanakenndan hátt. Það má sjá mynd eftir Gris á sýningunni; upp- stillingu með geraníum. Þrátt fyrir aflöguð hlutföll má sjá á skýran hátt borðið sem pottaplantan stendur á. Einnig eru myndir eftir fleiri mód- ernista, Piet Mondrian málaði lárétt- ar og lóðréttar línur á grunnlitunum Ljdnaveiðar eftir Eugen Delacroix, frá 1855. Lindin eftir Pablo Picasso, frá 1921. og eina slíka mynd gefur að líta á sýningunni. Spaenski málarinn Joan Miro málar abstrakt fígúrur og tungl í myndinni personnages. Uppsprett- an er heiti myndar eftir Picasso sem fer raunsæjum höndum um mynd- efnið og myndin er ekki í þeim ab- strakt stíl sem einkennir hans verk. Myndin er af guðalíkri konu liggj- andi á strönd med stórt vatnsker í fangi sér. Myndin er nokkuð dæmi- gerð fyrir tímabilið um og eftir íyrri heimsstyrjöld í list Picasso. Það eru einnig eldri myndir á sýn- ingunni. Ljónaveiðin eftir Eugene Delacroix er frá 1855 og sýnir afar dramatískt mótíf, árás ljóna á hesta- menn. Delacroix var gífurlega flink- ur málari og meistari í litameðferð. Hér renna litirnir í bakgrunni og myndefninu saman í eina áhrifaríka heild. Þessi aðferð hans hafði áhrif á stíl impressjónistanna, þeir beinlínis leystu myndefnið upp í form og liti. Dæmi um þetta má sjá í lítilli olíu- mynd eftir Georges Seurat þar sem myndefnið, brúin við Bineau, leysist upp í birtu og liti á einstakan hátt. Þessi glæsilega sýning stendur til 9. apríl næstkomandi. Á heimasíðu safnsins www.nationalmuseum.se má afla sér frekari upplýsinga um safnið og yfirstandandi sýningar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.