Morgunblaðið - 23.03.2000, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 23.03.2000, Blaðsíða 30
MORGUNBLAÐIÐ 30 FIMMTUDAGUR 23. MARS 2000 ERLENT Alvarlegar ásakanir á NASA, banda- rísku geimvísindastofnunina Reutcrs Þriðja desember sl. biðu menn milli vonar og ótta eftir að heyra eitthvað frá Marsfarinu en vonin um það brást alveg. Nú er því haldið fram að sumir þessara manna hafi vitað frá upphafi að geimfarið var svo gott sem dauðadæmt. Dan Goldin, yfirmaður NASA, er fyrir miðju. Vissu um stór- galla í hönnun Marsfarsins KOMIÐ hafa fram upplýsingar, sem virðast staðfesta þann orðróm, að hvarf Marsfarsins í desember sl. hafi ekki komið öllum starfsmönnum NASA, bandarísku geimvísinda- stofnunarinnar, á óvart. Skýrði BBC, breska ríkisútvarpið, frá því í gær. Orðrómur hefur verið um, að verkfræðingar hjá NASA hafi vitað af alvarlegum hönnunargalla í þrýst- um eða stýrihreyflum, sem áttu að draga úr hraða geimfarsins er það færi inn til lendingar á Mars, en þeir hafi samt sem áður þagað um það. Thomas Young, sem áður var í stjómunarstöðu hjá NASA en er nú sestur í helgan stein, hefur tekið saman sjálfstæða skýrslu um þetta mál og er hún nú til skoðunar í Hvíta húsinu. Hermt er, að þar sé til- greindur fjöldinn allur af mistökum og alvariegum skyssum og eftir öðr- um heimildum er haft, að þrýstamir fyrrnefndu hafi ekki staðist próf- anir. I ljós hafi komið, að kveikikerfið, sem átti að kveikja í eldsneyti geim- farsins, hafi ekki virkað sem skyldi í þeim kulda, sem er í geimnum. Vegna þess gat í raun enginn vitað hvort þrýstarnir myndu vinna eins og þeim var ætlað. ÁRSFUNDUR 2000 Fimmtudagmn 6. aprfl. LÍFEYRIS SJÓÐUR arkítekta og tæknlfræðinga Fundurinn verður haldinn í húsnæði íslandsbanka á Kirkjusandi, ö.hæð, og hefst hann kL 17:15. Dagskrá: Dagskrá ársfundarins er í samræmi viö 5. gr. samþykkta sjóösins og er eftirfarandi. 1. Skýrsla stjórnar. Bergsteinn Gunnarsson, formaður. 2. Ársreikningur 1999 og tryggingafræðileg athugun á fjárhag tryggingadeildar. 3. Kynning á fjárfestingarstefriu sjóðsins. 4. TUlögur um breytingar á samþykktum. 5. Kosning stjómar. Kjósa skal tvo aðalmenn og einn varamann til þriggja ára. 6. Kosning félagslegra skoðenda. 7. Önnurmál. Stjóm Lífeyrissjóðs arkitekta og tæknifræðinga. Sjóðfélagar eru hvatlir til að rnœta á fundinn. Baðið veröur upp á léttar veitingar að fundi loknum. REKSTRABAÐIU: Verðbréfamarkaður islandsbanka hf, Kírkjusandi, 155 Reykjavik. 5ími: 588 9170 • Veffang: vib.ís • Netfang: vibffövíb.ís Svindlað á aðstæðum Þessar niðurstöður kölluðu að sjálfsögðu á endurhönnun og meiri vinnu og meiri útgjöld en sagt er, að ónefndur yfirmaður hjá NASA hafi látið breyta aðstæðunum, sem próf- animar voru gerðar við, til að svo virtist sem vélamar myndu vinna við þau skilyrði, sem vitað var, að biðu þeirra. Samkvæmt frétt frá bandarísku fréttastofunni UPI var ekki skýrt frá gallanum fyrr en rétt áður en geimfarið lenti 3. desember en þá var það líka orðið um seinan. I fyrrnefndri rannsókn á örlögum Marsfarsins er líka fullyrt, að um annan galla hafi verið að ræða og hafi hann einn og sér nægt til að tor- tíma farinu burtséð frá kveikikerf- inu. Skýrsla Thomas Youngs verður birt þegar Hvíta húsið hefur kynnt sér hana en talsmenn NASA vilja ekkert um málið segja að svo stöddu að því undanskildu, að þeir neita því, að aðstæðunum við prófanirnar hafi verið breytt til að þrýstarnir virk- uðu. „Erfiðir tímar“ Ljóst er þó, að hjá NASA eiga menn ekki von á neinu góðu. Dr. Carl Pilcher, einn af yfirmönnum stofnunarinnar, sagði á ráðstefnu með geimvísindamönnum í Houston í síðustu viku, að hvað Marsfarið varðaði hefði „metnaðurinn byrgt okkur sýn“. Dan Goldin, yfirmaður NASA, sagði nýlega á fundi með framkvæmdastjórum sínum, að þeir skyldu búa sig undir, að væntanleg skýrsla yrði eitthvað í átt við niður- stöður Rogers-nefndarinnar, sem kannaði hið hörmulega Challenger- slys 1986. Þær voru einn samfelldur áfellisdómur. Ed Stone, sem hafði yfirumsjón með hreyflunum eða þrýstunum í Marsfarinu, tekur þannig til orða á minnisblaði, sem ætlað var til innan- húsbrúks: „Okkar bíða líklega held- ur erfiðir tímar.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.