Morgunblaðið - 23.03.2000, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 23. MARS 2000 5Ö
FRÉTTIR
Friðþjófur með fyrirlestur
um Atlantshafslaxinn
FÖSTUDAGINN 24. mars flytur
Friðþjófur Árnason, líffræðingur hjá
Veiðimálastofnun, fyrirlestur á veg-
um Líffræðistofnunar Háskólans.
Fyrirlesturinn nefnist Mismunur
á hlutfalli kynþroska laxaseiða eftir
búsvæðum í fjórum ám á Islandi.
Hann hefst kl. 12:20 í stofu G6 að
Grensásvegi 12.
Atlantshafslaxinn hefur ákaflega
fjölbreyttan lífsferil. Klak og upp-
vöxtur laxaseiða á sér stað í fersk-
vatni en 1-6 árum eftir klak ganga
seiðin til sjávar. Sjávardvöl laxins
varir í u.þ.b. 1-3 ár en eftir þann
tíma snýr hann aftur í ferskvatn til
hrygningar sem fullorðinn kyn-
þroska lax. Ekki fara þó allir eftir
þessu ferli því hluti hængseiðanna
verður kynþroska á seiðastigi án
þess að ganga fyrst til sjávar.
I fyrirlestrinum verður fjallað um
rannsókn sem gerð var á tíðni kyn-
þroska hængseiða hjá laxi í fjórum
ám á Islandi. Markmið rannsóknar-
innar var að meta hve stórt hlutfall
laxahænga verður kynþroska á
seiðastigi og bera saman þetta hlut-
fall, bæði milli áa og milli búsvæða
innan sömu árinnar. Einnig að at-
huga áhrif mismunandi vaxtarskil-
yrða á tíðni kynþroska og hvort áhrif
vaxtar á kynþroska hafi verið mis-
munandi milli þessara fjögurra áa.
Athugasemd
Morgunblaðinu hefur borist eftir:
farandi athugasemd frá Skímu: „í
frétt Morgunblaðsins um stór-
lækkun á utanlandssímtölum hjá
Islandssíma er gerður samanburð-
ur á verði þriggja aðila sem bjóða
þessa þjónustu, þ.e. Landssímans,
Islandssíma og Frjálsra fjarskipta.
Einhverra hluta vegna hefur
fallið niður verðsamanburður við
þá aðila sem bjóða lægri talsíma-
þjónustu til útlanda en íslands-
sími, s.s. Netsíminn og Landsnet.
Skíma vekur athygli á því að 1100-
netsíminn var opnaður til þjónustu
í desember 1998 og hefur frá þeim
tíma boðið lægsta verð á markað-
inum til fjölda landa og gerir það
ennþá.
Á þessari stundu er einnig óút-
skýrt af hálfu Íslandssíma hvenær
þeir munu geta boðið upp á þessa
þjónustu og hvort verðin sem þeir
bjóða gildi einnig fyrir símtöl í
GSM síma erlendis.
Til að varpa ljósi á hvar íslands-
sími stendur raunverulega í verð-
samanburði er hér verð frá öllum
aðilum sem bjóða ódýr símtöl til
helstu landa.“
Mínútuverð á daginn
1100 Netsíminn
Frjáls fjarskipti **
Landsnet *
Islandssími ***
Bandaríkin Bretland
18,60 17,29
23,00 23,00
21,47 17,06
18,90 18,90
Danmörk Kína
17,66 44,21
23,00 90,00
19,37 56,61
18,90 89,90
Filippseyjar Pólland
36,21 27,38
45,00 40,00
36,56 33,56
45,00 40,00
* Innifalið í þessu verði er innanlandsgjald Símans, 1,56 kr.
** Nota þarf sérstakan tækjabúnað (símlykill). Einnig er ekki mögulegt
að hringja úr farsímum.
*** Býður enn sem komið er ekki þjónustu við almenning.
Sigurður Ágúst Sigurðsson afhendir vinningshöfunum lyklana.
Fyrsti vinningsbíllinn afhent-
ur í Símalottói D AS
Rætt um eftir-
litshlutverk
Evrópuráðsins
MÁLSTOFA um Evrópuráðið verð-
ur haldin í Litlu Brekku í Reykjavík í
dag kl. 17.15 og fjallar Lára Margrét
Ragnarsdóttir alþingismaður um
eftirlitsferð Evrópuráðsins til
Moskvu og Tsjetsjníu nýverið.
Lára Margrét er formaður sendi
nefndar íslands á þingum Evrópu-
ráðsins og var hún nýverið í ferð sem
fulltrúi sérskipaðrar sendinefndar
Evrópuráðsins til að kanna meint
mannréttindabrot rússneska hers-
ins. Hún hefur áður farið í kosninga-
eftirlitsferðir; til Litháen árið 1992,
Sarajevo 1997 og Albaníu 1998. Mál-
stofan er öllum opin og hefst kl.
17.15. Að loknu erindi Láru Mar-
grétar verða umræður.
Framleikar í
Bláfjöllum
Hi-C Framleikar 2000 verða haldnir
á skíðasvæði Fram í Eldborgargili í
Bláfjöllum laugardaginn 25. mars
næstkomandi.
Framleikamir eru þeir sjöundu í
röðinni og eru skíðaleikar íýrir böm
á höfuðborgarsvæðinu á aldrinum að
8 ára, þar sem megináhersla er lögð á
leikgleðina fremur en sigurinn.
Keppni hefst kl. 11.
Á leikunum renna krakkarnir sér í
gegnum svigbraut sem samanstend-
ur af bólum og hæðum, göngum og
fígúmm. Þeir sem era að stíga sín
fyrstu skref á skíðum fá aðstoð við að
fara niður brautina frá uppábúnum
trúðum. Umgjörð mótsins er að öðra
leyti eins og um mót fullorðinna væri
að ræða, með rástjaldi, rafrænni
tímatöku, marksvæði og tilkynningu
um nafn hvers barns og tíma í gegn-
um hátalarakerfl. í lok síðari ferðar
FYRSTI vinningsbíllinn í Simalottói
DAS hefur verið afhentur. Síma-
lottó DAS er nýtt af nálinni. Þátttak-
endur hringja í ákveðið símanúmer
til að vera með og kostar 100 kr. að
vera með í hvert skipti. Greiðslan er
innheimt með símareikningnum.
Iflónin Hreiðar Grímsson og Ásta
Sigrún Einarsdóttir, bændur á
Grímsstöðum í Kjós, duttu ílukku-
er hverju barni afhentur viðurkenn-
ingarpeningur, bolur og annar glaðn-
ingur frá styrktaraðilum mótsins.
Einnig verða sex fyrstu strákum og
stelpum í aldursflokki 6 ára og yngri,
7 ára flokki og 8 ára flokki afhentur
sérstakur verðlaunapeningur fyrir
brautartíma.
Þátttakendur á leikunum hafa ver-
ið á bilinu 90 til 140 í gegnum árin.
Með svo ungum skíðamönnum fylgir
einnig töluverður fjöldi áhorfenda;
þannig var áætlað að áhorfendur
væra um 200 á leikunum á síðasta ári.
LEIÐRÉTT
Norðmenn, ekki fslendingar
I Verinu í gær stóð að Evrópu-
sambandið krefðist þess að íslend-
pottinn í fyrsta útdrættinum í Síma-
lottóinu. Þau hlutu í vinning nýjan
Toyota Avensis sem Sigurður Ágúst
Sigurðsson, forstjóri DAS, afhenti
þeim í húsakynnum Toyotaumboðs-
ins.
Nýr Toyotabfll er dreginn út einu
sinni í viku og fer dráttur fram í
þættinum DAS 2000, sem er á dag-
skrá Sjónvarpsins á fímmtudögum.
ingar létu sér nægja 12% heildar-
kvóta kolmunnans, en þama var átt
við ESB og Norðmenn.
Tafla
Uppsetning á töflu sem fylgdi
grein Guðbjörns Jónssonar, Að berj-
ast án árangurs er mikilvæg lífslist,
riðlaðist til í blaðinu í gær. Er hún
birt hér aftur og era hlutaðeigandi
beðnir velvirðingar á mistökunum.
Vöruheiti mín. 1958 mín. 1997
Súpukjöt, 1 kg 46 76
Kartöflur, 1 kg 8 26
Gosflaska, 33 cl 12 13
Sígarettur, (Camel) 72 56
Bensín, 1 lítri 9 23
Olía til húsahitunar, 11 3 6
Samtals mín. 150 200