Morgunblaðið - 23.03.2000, Side 16
16 FIMMTUDAGUR 23. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Samband sveitarfélaga
á Suðurnesjum og Suðurlandi
Gerð Suður-
strandarvegar
verði hraðað
SAMEIGINLEGUR fundur stjóma
Sambands sveitarfélaga á Suður-
nesjum og Samtaka sunnlenskra
sveitarfélaga var haldinn í Eldborg
við Svartsengi nýlega. Aformað er að
starfssvæði þessara tveggja sam-
taka verði eitt kjördæmi við næstu
alþingiskosningar.
A fundinum kynntu framkvæmda-
stjórar starfsemi og hlutverk sam-
takanna og rædd voru ýmis sameig-
inleg hagsmunamál svæðanna, s.s.
fyrirhugaða kjördæmabreytingu,
samgöngumál og orkumál.
Fundurinn samþykkti að senda
frá sér eftirfarandi ályktun:
„Sameiginlegur fundur stjórna
Sambands sveitai-félaga á Suður-
nesjum og Samtaka sunnlenskra
sveitarfélaga, haldinn í Eldborg við
Svartsengi 25. febrúar 2000, skorar á
Alþingi og ríkisstjóm að gerð Suð-
urstrandarvegar á milli Þorláks-
hafnar og Grindavíkur verði hraðað
og litið verði á lagningu vegarins
sem sérstakt verkefni í tengslum við
fyrirhugaða kjördæmabreytingu,
þegar Suðurland og Suðumes renna
saman í eitt kjördæmi. Ein megin-
forsenda slikrar breytingar er að hið
nýja Suðurkjördæmi verði ein sam-
gönguieg heild. Þar sem aðeins 3 ár
em þar til kjördæmabreytingin tek-
ur gildi er mjög mikilvægt að nú sem
allra íyrst verði teknar ákvarðanir
um framkvæmdina og fjármögnun
hennar. í því sambandi leggja
stjórnirnar áherslu á að um sérstaka
fjármögnun verði að ræða, utan
hefðbundinna fjárveitinga til vega-
mála, þannig að það bitni ekki á þeim
verkefnum sem nú em á dagskrá."
Fundurinn var fyrsta skrefið í
frekara samstarfi og kynnum þess-
ara samtaka, sem fundarmenn vom
sammála um að efla.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Kór Fjölbrautaskóla Suðurlands ásamt stjórnanda sínum Jóni Inga Sigurmundssyni.
Kór Fjölbrautaskóla
Suðurlands heldur tónleika
Selfossi - Eftir rúma viku, þann 31.
mars, heldur kór Fjölbrautaskóla
Suðurlands tónleika í sal skólans á
Selfossi. Kórinn hefur lagt metnað
sinn í að halda tónleika sem víðast á
Suðurlandi og gefa þannig aðstand-
endum nemenda skólans kost á að
kynnast kórnum af eigin raun. Af
þeim sökum verður kórinn með tón-
leika á Hvolsvelli í boði Hvolhrepps
annað kvöld, 24. mars.
Kór Fjölbrautaskóla Suðurlands
heldur uppi miklu starfí. Síðastliðið
vor var kórnum boðið að vera full-
trúi íslands á mikilli kirkjuhátíð í
Stuttgart í Þýskalandi ásamt Kór
Hveragerðis- og Kotstrandarsókn-
ar. Þótt engin utanlandsför sé á döf-
inni þetta árið er ekki slegið slöku
við sönginn. í vetur hefur verið æfð
fjölbreytt og nýstárleg dagskrá og
er óhætt að fullyrða, að mörg þeirra
laga, sem á efnisskránni em að
þessu sinni, hafa ekki hljómað í tón-
listar- og menningarhúsum landsins.
Sum kunna þó að hafa heyrst áður.
Kór FSU hefur gefið út 2 geisla-
diska og 3 hijómsnældur á starfsferli
sínum og verður hægt að nálgast þá
diska og snældur, sem enn em eftir,
í tónleikahléi.
Tónleikarnir á Selfossi hefjast kl.
20:30 og er aðgangur ókeypis fyrir
eldri borgara en kr. 1.000 fyrir aðra.
Stjórnandi kórsins er Jón Ingi Sig-
urmundsson.
Samflot í Eyjum
Óánægja með
launastefnu
sveitarfélaga
AÐALFUNDUR Samflots bæjar-
starfsmanns, haldinn í Vestmanna-
eyjum á dögunum, lýsir yfir mildlli
óánægju með launastefnu launa-
nefndar sveitarfélaga og skorar á
bæjar- og sveitarstjómir í landinu að
gefa launanefnd sveitarfélaga ekki
fullnaðarumboð til kjarasamninga-
gerðar.
I ályktun fundarins segir: „Þann 1.
maí nk. em samningar lausir milli
bæjarstaifsmannafélaga innan Sam-
ílots og launanefndar sveitarfélaga.
Það er staðreynd að starfsmönnum
innan sveitarfélaga hefur verið stór-
lega mismunað í launum á samnings-
tímanum. Fundurinn lýsir yfir mikilli
óánægju með launastefnu launa-
nefndai- sveitarfélaga sem hefur verið
óskýr og afar ómarkviss.
Það er skoðun fundarins að nú sé
lag til að leiðrétta þennan mismun og
bæta skaðann þannig að jafnrétti ríki
innan bæjarstarfsmanna og nauðsyn-
legt traust geti komist á milli aðila.“
Eftirfarandi var einnig samþykkt:
,A-ðalfúndur Samflots bæjarstarfs-
manna haldinn í Vestmannaeyjum dag-
ana 17. og 18. mars 2000 skorar á bæj-
ar- og sveitarstjómir í landinu að gefa
launanefnd sveitarfélaga ekki fullnað-
arumboð til kjarasamningagerðar.
í fullnaðarumboði felst afsal á öllu
því sem kallast getur sjálfstæð starfs-
mannastefna einstakra sveitaifélaga
og telur fundurinn slíkt afsal með öllu
óviðunandi í jafn mikilvægum mála-
flokki og launamál starfsmanna sveit-
arfélaga eru, enda er hér um lög-
fræðilegt álitamál að ræða.“
„Það er upphaf laga vorra..." Þorgeir Ljósvetningagoði
flytur mál sitt á Pakkhúsloftinu á Höfn.
Þemavika um
1000 ára kristni
Morgunblaðið/Guðiaugur Albertsson
Ný þjónusta í
Grundarfírði
NÚ gefst Grundfirðingum kostur á
að láta framkalla filmumar á staðn-
um og fá myndirnar afhentar innan
tveggja tíma. Það er verslunin Fell
sem býður Grundfirðingum upp á
þessa nýju þjónustu. Eigandi versl-
unarinnar er Elísabet Amadóttir.
Kálfafellsstað - Það var bjart yfir
hugum fimmtudagskvöldið 16.
mars sl. á Pakkhúsloftinu gamla á
Höfn þegar brottfluttir Suðursveit-
ungar og velunnarar byggðarinnar
fjölmenntu til að hlýða á börnin í
Hrollaugsstaðaskóla í Suðursveit í
tali og tónum. Tilefnið var afrakst-
ur barnanna af þemavinnu sinni
um 1000 ára kristni og voru því
kristnihaldi í Suðursveit í fortíð og
nútíð gerð greinargóð skil. Leik-
þættir voru fluttir og ritgerðir
lesnar, og á veggjum var fjöldi
myndspjalda í tengslum við verk-
efnið.
Kvenfélagskonur aðstoðuðu við
flutninginn og sáu um kaffiveiting-
ar og harmónikufélagar úr Suður-
sveit þöndu dragspilin í samkomu-
lok.
Um 120 gestir sóttu samkomuna
sem var gleðilegt og fróðlegt inn-
legg í kristnihátíðarárið, var unga
fólkinu til sóma og er vissulega
hollt veganesti inn í nýja öld.
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Nemendur 6. til 8. bekkjar fluttu leikritið Innbrotsþjófur á árshátíðinni í
Brúarási. Frá vinstri eru leikendurnir Sævar Árni Jóhannsson, Hrafn-
katla Eiríksdóttir, Kolbjörg Lilja Benediktsdóttir, Bogi Kárason, Hauk-
ur Guðmundsson, og Jóhannes Arnar Rúnarsson.
Arshátíð í Brúarási
Nemendur 1. til 3. bekkjar fluttu leikritið Kommóðuskúffan og komu
fram í ýmsum gervum. Talið frá vinstri: Vilhjálmur Pálmi Þorsteinsson,
Hólmfríður Friðjónsdóttir, Einir Þór Kjartansson, Ingólfur Danfel Sig-
urðsson, Benedikt Þorvaldur Guðgeirsson, Marteinn ÓIi Aðalsteinsson,
Fanney Sigurðardóttir (framar), Kolbrún Stella Gestsdóttir og Diana
Mjöll Björgvinsdóttir.
Þær sungu engilblítt, talið frá vinstri, Elínborg Sædis Pálsdóttir, Berg-
lind Ósk Guttormsdóttir, Perla Sigurðardóttir, Stella Rögn Sigurðar-
dóttir, Margrét Dögg Guðgeirsdóttir og Elsa Guðný Björgvinsdóttir.
Norður-Héraði - Nemendur Brúar-
ásskóla á Norður-Héraði héldu árs-
háti'ð á dögunum. Góð dagskrá var í
boði, meðal annars fjögur leikrit,
mislöng að vísu en höfðu öll sinn
boðskap og fór lengdin mest eftir
aldri leikendanna; því yngri leik-
endur því styttra leikrit. Einnig
voru ýmis söng og dansatriði á dag-
skránni.
Meginverk á árshátíðinni var
leikritið 68 kynslóðin eftir Margréti
Traustadóttur í flutningi 9. og 10.
bekkjar. Leikritið fjallar um ungar
konur í kvennaskóla í sveit og sam-
skipti námsmeyja við forstöðukon-
una, hitt kynið almennt með áhersl-
um á strákana úr sveitinni í kring.
Góður rómur var gerður að þessari
sýningu og skemmtu gestir sér vel,
enda efnið kunnuglegt þeim flest-
um sem þarna voru, og ekki var
laust við að hugur sumra hvarflaði
til liðins tíma og jafnvel blikuðu
saknaðartár á brá undir brosinu er
gestir voru fluttir mörg ár aftur í
tímann í einni svipan.