Morgunblaðið - 23.03.2000, Side 22

Morgunblaðið - 23.03.2000, Side 22
22 FIMMTUDAGUR 23. MARS 2000 MORGUNBLAÐIÐ NEYTENDUR Leiga á brúðarkjól- um hefur hækkað LEIGUVERÐ á brúðarkjólum hefur hækkað frá því í fyrra og má aðallega rekja hækkunina til þess að kjólamir hafa hækkað erlendis frá, úrval nýrra kjóla hefur aukist og að um vandaðri kjóla er að ræða. Samkvæmt lauslegri könnun virð- ist sem hækkunin sé að meðaltali um 20%. „Við erum að leigja brúðarkjóla á 16 til 28 þúsund. Síðan erum við með nýjung en það eru glæsilegir brúðar- kjólar frá Spáni sem kosta 35 til 38 þúsund,“ segir Sólveig Theodórsdótt- ir, eigandi Brúðarkjólaleigu Dóru. „í fyrra vorum við með fleiri eldri og SUSHI Nú færð þú Sushi bakka hjá okkur á miðvikudögum og föstudögum. Bæði blandaður flskur og hrísgrjónarúllur Éh náttúrulega! eilsuhúsið Skólavörðustíg, Kringlunni & Smáratorgi jafnframt ódýrari kjóla sem við vor- um búnar að leigja oft. Ástæða hækk- unarinnar er meðal annars að núna höfum við endumýjað mikið kjólana hjá okkur og úrvalið er orðið þeim mun meira. Við emm að leggja meira í innkaupin á kjólunum og leigan er alltaf ákveðin prósenta af innkaups- verði. Þess má geta að undirpils fylgja með kjólunum en fylgihlutir eins og slör og kórónur er ávallt leigt sér. Kjólarnir P’ronovias frá Spáni em nýir á markaðnum hér á landi en þetta era þekktir og vinsælir kjólar erlendis. Það er búið að panta mikið í sumar en það em engir dagar uppseldir enda emm við með á milli þrjú til fjögur hundmð kjóla,“ segir Sólveig. Nýir kjólar dýrari Hjá Brúðarkjólaleigu Katrínar kostar 20 til 28 þúsund að leigja brúð- arkjól. Að sögn Katrínar Óskarsdótt- ur eiganda má ástæðu hækkunarinn- ar meðal annars rekja til þess að kjþlamir hafa hækkað erlendis frá. „Eg breytti einnig um línu og fór að fá kjóla frá fyrirtæki sem er með vand- aðri og dýrari kjóla. Þess má geta að ég er síðan með draktir og einfaldari fatnað á 10 þúsund. Það er ljóst að konur era að panta mun fyrr í ár en það er bara mars ennþá þannig að það á eftir að koma betur í ljós hver aukningin verður miili ára. Það er mjög eðlilegt að nýir kjólar séu dýrari en notaðir kjólar,“ segir Katrín. Unnur Huld Sævarsdóttir Vopna, eigandi Brúðarkjólaleigu Akureyrar, segir ástæðu hækkunarinnar vera þá að búðin sé nú farin að skipta við ann- an aðila. Þar em kjólamir vandaðri og verðmunurinn felist í því. Aðspurð segir hún að það sé búið að panta mik- ið hjá sér og það sé tvímælalaust aukning frá því í fyrra. „Annars er bara mars ennþá þannig að þetta á eftir að koma betur í ljós. Það era þó þegar komnir ákveðnir toppar og ljóst að hvítasunnuhelgin og 17. júní verðar stórir dagar og eins miður júlí og miður ágúst,“ segir Unnur Huld. Morgunblaðio/Knstinn Mikilvægt er að neytendur fylgist með að hitastig kælivöru, sem þeir ætla að kaupa, sé ekki óeðlilega hátt. Geymsluþol minnkar ef hitastig matvæla stígur Ef ofhlaðið er í kæla, mikið hrím hefur myndast eða þeir verða óhreinir getur flæði kalda loftsins truflast, þá stígur hitastigið og geymsluþol minnkar. KÆLING matvöm er áríðandi ef halda á vexti örvera í skefjum og er hún einn mik- ilvægasti öryggisþátturinn bæði í framleiðslu og dreifingu vömnnar. Kælivömr em afar viðkvæmar fyrir hitabreytingum og geta jafnvel orðið hættulegar ef þær era geymdar lengi við of hátt hitastig. Geymsluþols- merkingar segja því ekki nema hálfa söguna ef varan er ekki geymd við það hitastig sem gefið er upp á um- búðum. Á það bæði við fyrir og eftir að neytandinn kaupir vömna. „Geymsluþol vöra sem á að geyma Nú einnig fyrir augu Ný lyfting - nýtt líf m tSTEElAUMR í kæli við 0-4°C styttist ef hún er geymd við hærra hitastig. Því hærra sem hitastigið er, þeim mun styttra verður geymsluþolið," segir Guðrún E. Gunnarsdóttir matvælafræðingur hjá Hollustuvemd ríkisins. „Ef hita- stig matvömnnar fer yfir 10°C eykst vöxtur örvera veralega og hætta er á að sjúkdómsvaldandi örverur nái sér á strik ef þær em til staðar í vöranni." Það er því mikilvægt að neytendur séu vel á verði og fylgist með því að hitastig á kælivöra, sem þeir ætla að kaupa, sé ekki óeðlilega hátt og láti starfsfólk verslunarinnar vita ef ein- hveiju er ábótavant, segir Guðrún, en bendir á að sá möguleiki sé einnig fyrir hendi að hafa samband við heil- brigðiseftirlit sveitarfélagsins og kvarta þangað. „En það skiptir líka máli að fólk hafi rétt hitastig í kæli- skápnum heima hjá sér,“ segir hún og minnir á að það eigi einnig að vera á bilinu 0-4°C. Starfsfólk heilbrigðiseftirlits hefur eftirlit með matvöraverslunum sem og öðram matvælafyrirtækjum í sínu héraði. Skylt er að innra gæðaeftirlit sé viðhaft í verslunum m.a. með það að markmiði að tryggja að hitastig í kæligeymslum og frystigeymslum sé rétt. Samkvæmt reglum á hitastig í kæligeymslum að vera á bilinu 0-4°C Estée Lauder Resilielnce Eye Creme en í frystigeymslu aftur á móti -18°C eða lægra. Könnun sem gerð var af heilbrigð- iseftirlitum sveitarfélaganna á síð- asta ári leiddi í ljós að víða er pottur brotinn í þessum efnum. Könnunin var framkvæmd á 7 mánaða tímabili í 73 verslunum á 7 af 10 heilbrigðiseft- irlitssvæðum landsins. Hitastig var mælt í 4 flokkum af kælivöram, áleggi, pylsum, hrávöra og hrásalati. Um það bil helmingur allra mælinga reyndist vera yfir 4°C. Mikill munur reyndist oft vera á hæsta og lægsta hitastigi innan sama kælis. Mestur var munurinn í kælum fyrir álegg, þar sem hann var allt upp í 14°C. Ein- ungis í tveimur verslunum reyndust öll mæligildi vera undir 4°C. Sam- kvæmt könnuninni er hitastig kæli- vöra í verslunum á landsbyggðinni al- mennt heldur hærra en á höfuðborgarsvæðinu. Ofhlaðnir kælar Helstu ástæður þess að kælar verslana era ekki nógu kaldir era nokkrar að sögn Guðrúnar. Kælamir geta t.d. verið ofhlaðnir þannig að loftstreymið í þeim traflast. Svoköll- uð hleðslulína er í öllum kælum og er ætlast til þess að vöram sé raðað inn- an hennar en á því er stundum mis- brestur. Áríðandi er að kælar og kælitæki séu þrifin reglulega svo að óhreinindi á við ló og hrím trafli ekki loftflæðið. Of heit matvara, sem sett er í kæli, getur auk þessa valdið hita- stigsbreytingum í kælinum og jaftivel leitt til þess að kælibúnaðurinn bilar örar en ella. Svipuð atriði þarf að hafa í huga í sambandi við kæliskápa og frystikist- ur heima við. Varast skal t.d. að setja heit matvæli beint inn í kæliskápinn. Betra er að láta mesta hitann ijúka úr fyrst því annars getur hitastigið í öðram matvælum í skápnum hækkað. Rétt er að hafa hitamæli í kæliskápn- um og hafa fyrir reglu að fylgjast með hitastiginu. Nú getur þú einnig fengið hið fræga Resilience Lift fyrir augu. Njóttu þess að horfa á færri línur, sléttara og fastmótaðra augnsvæði, geislandi af nýju lífi. Þetta léttkennda, afar virka augnkrem sér um það. Notaðu það ásamt Resilience Lift kremi fyrir andlit og háls frá Estée Lauder og þú getur glaðst yfir yngra og ferskara útliti. Resilience Lift Eye Creme 15 ml. kr. 3.315 Resilience Lift Face og Throat Creme 30 ml. kr. 4.050 og 50 ml. kr. 5.735 Resilience Lift Face and Throat Lotion 50 ml. kr. 5.735 Clara Kringlunni, Sara Bankasfræti, Lyfja Lágmúla, Lyfja Setbergi, Lyfja Hamraborg, Hagkaup Kringlunni, Hagkaup Smáranum, Snyrtistofan Hrund, Grænatúni, Amaró, Akureyri, Apótek Keflavíkur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.