Morgunblaðið - 23.03.2000, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 23. MARS 2000 33
LISTIR
GOTT VERD AVANDAÐRI VORU
STEINAR WAAGE
ftern
GARÐURINN
-klæðirþigvel
IÍÁnz"
SUÐURLANDSBRAUT 54
í Bláu húsunum við hliðina á McDonalds
Allir herra-
og dömuskór
á kr. 1.995
AHFstrigaskór
/ i _
á kr. 995
Buxur frá kr. 1.000
^fafcfcaföt
fcr. 5.000
Bolir/toppar
frá kr. 500
Allir barnaskói
á kr. 995 og
minna
Stakir jakkar
frá kr. 3.000
Skyrtur
fcr. 501
Opið virka daga frá kl.10-18
Opið laugardaga frá kl. 10-16
Húnakórinn
í Húnabúð
SKEMMTIKVÖLD Húnakórsins
verður annað kvöld, föstudagskvöld
kl. 21 í Húnabúð, Skeifunni 11 í til-
efni af því að á komandi vordögum
ætlar kórinn í 10 daga ferð til Aust-
urríkis og Ungverjalands í lok maí.
Kórinn á rætur að rekja til Hún-
vetningafélagsins í Reykjavík. Hann
var stofnaður á haustdögum 1993.
Þrátt fyrir ungan aldur hefur kórinn
komið nokkuð víða við, m.a. sungið á
tónleikum á Blönduósi og Hvamms-
tanga, á Suðurnesjum og í Vík í Mýr-
dal, auk höfuðborgarsvæðisins. Kór-
stjóri frá hausti 1998 er Kjartan
Ólafsson.
Skemmtunin annað kvöld er öllum
opin.
Fer til
Litháen
D AN SLEIKHÚ SIÐ með Ekka hef-
ur verið boðið á alþjóðlegu nútíma-
danshátíðina New Baltic Dance
2000 í Vilnius, Litháen og verður
það sýnt laugardaginn 22. apríl
næstkomandi. Sýningin fjallar um
einelti og hafa dans, lciklist og tón-
list jafnt vægi í sýningunni. Ut-
gangspunktur sýningarinnar er
ljóðið Heimska eftir Ingunni Val-
gerði Henriksen, en sýning er sam-
in af þátttakendunum.
Leikarar/dansarar eru Aino
Freyja Járvelá, Erna Omarsdóttir,
Friðrik Friðriksson, Guðmundur
Elías Knudsen, Hrefna Hall-
grímsdóttir, Karen María Jónsdótt-
ir, Kolbrún Anna Björnsdóttir.
Úr sýningunni Ber.
Tónlistin er eftir Frank P. Listrænn
stjórnandi er Arni Pétur Guðjóns-
son og lýsingu hannar Sigurður
Kaiser.
Þetta er fimmta sýning sem
Dansleikhúsið með Ekka setur upp
og var frumsýnt í Tjarnarbíói í
október sl.
Ast o g hatur á alla vegu
C7BU
• Mótorbremsa
• 1150W
• 180 mm blað
• Sterk og lipur
17.835 kr.
HÚSASMIÐJAN
Sími 525 3000 • www.husa.is
KVIKMYjVDIR
Stjörnubíó «g
li í« h ii 11 j II
SUMMEROFSAM★ ★★
Leikstjóri: Spike Lee. Handrit:
Victor Colicchio og Micahel Imper-
ioli. Aðalhlutverk: John Leguiz-
amo, Adrian Brody, Mira Sorvino,
Jennifer Esposito, Michael Rispoli,
Brian Tarantina, Ben Gazzara og
Anthony La Paglia. 40 Acres & A
Mule Filmworks 1999.
EINS og titillinn segir til um
fjallar myndin um sumar, nánar til-
tekið sumarið 1977 í New York,
sem sjálfsagt er Lee minnisstætt
fyrir margra hluta sakir; New
York Yankees urðu heimsmeistar-
ar, óþolandi hitabylgja reið yfír
borgina, diskótískan og pönkið tók-
ust á og David Berkowitz - Sonur
Sáms - drap ungar konur og kær-
asta þeirra. Þannig er morðinginn
sjálfur ekki aðalpersónan heldur
nokkrar skáldaðar persónur settar
inn í stund og stað.
Að þessu sinni gerist myndin
ekki í svertingjahverfum New
York borgar, einsog venja er hjá
Spike Lee, heldur erum við komin í
hverfi fólks af ítölskum uppruna.
Vinny og Dionna elska hvort
annað, en kaþólska uppeldið gerir
það að verkum að Vinny á í erfið-
leikum með að stjórna kynlöngun-
um sínum. Besti vinur hans er
pönkarinn Richie, afskaplega. góð
og leitandi sál sem verður fyrir
barðinu á klíkunni í hverfinu fyrir
það eitt að vera öðruvísi en aðrir.
Svo er það morðinginn og óttinn
sem hann vekur hjá borgarbúum.
Það er stutt í klisjuna í sumum
persónunum, sem má kannski
skrifa á handritshöfundana, en frá-
bærum leikurum tekst að gera þær
lifandi, skemmtilegar og eftir-
minnilegar. Enda eru samtölin oft
rosalega fyndin.
John Leguizamo er alveg frábær
sem Vinny og ég er glöð að þessi
fíni leikari skuli loksins hafa fengið
almennilegt hlutverk. Mira Sorvino
er sannfærandi í hlutverki eigin-
konunnar sem kennir sjálfri sér
um vandræði hjónabandsins, og
Brody er sérlega eftirminnilegur
brjóstumkennanlegur og hreinlega
sætur sem Richie.
Michael Rispoli er einnig mjög
góður sem Joe T (útlitið er dásam-
legt), foringi klíkunnar í hverfinu,
sem hefur ekkert að gera nema
vera öðrum til ama.
Þetta er yfirgripsmikil saga;
hluti af sögulegum atburði sem átti
sér stað, hluti af tímabili og
stemmningu þess, saga af fólki sem
er að leita að sér en má ekki vera
það sjálft í friði. Og allt kemst
þetta til skila. Það er kannski helst
að kaflinn um morðingjann sé frek-
ar grunnur og ósannfærandi, jafn-
vel óþarfur.
Þetta er losaraleg saga, sem er í
stíl við ringulreiðina í lífi og tilfinn-
ingum persónanna.
Þetta er virðingarvottur leik-
stjórans til New York borgar sem
hann bæði hatar og elskar. Það er
sú tilfinning sem hann nær að
koma til skila, og það er það sem
snertir mann.
Hildur Loftsdóttir
mbl.is I
LLTTA/= E/TTA/l/zúÐ /V
HITACHI
Hj ólsög