Morgunblaðið - 23.03.2000, Síða 62
-- 62 FIMMTUDAGUR 23. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Smáfólk
Tveir og hálfur hringur.
Hér áður fyrr tökst mér
þetta miklu betur.
li
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Afsökunar-
beiðni óskast
Frá Hildi Emblu
Rugnhciðurdóttur:
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra
skuldar öryrkjum íslands afsökun-
arbeiðni! Astæðan fyrir því að ég
segi þetta er sú að hann sagði Sam-
fylkinguna hafa notað peninga ör-
yi’kjabandalagsins í „kosningaáróð-
ur“. Það eru ósannindi að
Samfylkingin hafi staðið fyrir þess-
um svokallaða „áróðri" hans Davíðs.
Það var Öryrkjabandalagið að biðla
til þeirra stjórnmálaflokka sem voru
í framboði um bætt ástand til ör-
yrkja með því að benda á staðreynd-
ir. Sjálfstæðisflokkurinn aftur á móti
notaðist við tölfræði til að sýna fram
á að samkvæmt „útreikningum hinn-
ar samnorrænu NOSOSKO-nefndar
eru ráðstöfunartekjur öryrkja í
dæmigerðu tilviki hærri á Islandi...,
heldur en á hinum Norðurlöndun-
um“ eins og stendur í grein Orra
Hauksson, aðstoðarmanns forsætis-
ráðherra, 11.3. sl.
Miðað við þær upplýsingar sem ég
fékk sl. vor skildist mér að þetta
„dæmigerða" tilvik væri karlmaður
sem yrði öryrki fertugur og miðað
væri við að laun hans fyrir örorku
hefðu verið 125.000 kr. miðað við
verðgildið á síðasta ári. Ekki veit ég
hvað þessar dæmigerðu bætur voru
háar en þær hljóta að hafa verið
hærri en 45.475 kr. á mánuði.
Sú upphæð sem örorkubætur og
tekjutrygging náðu að hámarki 1.1.
1999 var 45.475 kr. Ef öryrki á lág-
marksbótum (t.d. þeir sem fæðast
fatlaðir eða verða öryrkjar á barns-
aldri) bjó einn fékk hann líka heimil-
isuppbót og sérstaka heimilisuppbót,
til samans 20.603 kr., samtals 66.078
kr. A hinn bóginn fékk öryrkinn ekki
þessar uppbætur ef hann var ein-
stætt foreldri. í stað þess var greidd-
ur barnalífeyrir, 12.693 kr., sem
hækkuðu bætur einstæða foreldris-
ins upp í 58.168 kr. Ofan á það bætt-
ist reyndar meðlag, 12.693 kr„ en
það segir sig sjálft að meðlags-
greiðslur hafa ekkert með örorku-
bætur að gera. Það sama má segja
um bamabætur, u.þ.b. 14.000 kr. á
mánuði.
Kallar Davíð það áróður, að segja
alþjóð frá því að öryrkjar hafi þurft
að leita til hjálparstofnana í stórum
stíl? Ég vissi ekki að hrár sannleikur
flokkaðist sem áróður.
Reyndar áleit ein einstæð móðir
að það flokkaðist sem brot á mann-
réttindum að taka þessar sérstöku
SLY5AVARNAFÉLAGU) LANDSÐJÓRQ
Landstamband bjbrgunarsvrtta
Happdrætti
Slysavarnafélagsins Landsbjargar
Dregið hefur verið í fyrsta útdrætti
happdrættisins.
Aðeins dregið úr greiddum miðum.
Eftirtuldir uðilur hlutu vinning:
1. IBM PC heimilislölva fró Nýherja að verðmæfi 160.000 kr.
Nafn: Rolf Johonsen & co ehf., Skútuvogi 10a, 104 Rvík
Miðinr. 132679
2. Ferð til Dublinar fyrir tvo að verðmæti 75.000 kr.
Nafn: Jarl Sigurðsson, Þverbrekku 4,200 Kópavogi
Miði nr. 35019
3. Ferð til Dublinor fyrir tvo að verðmæti 75.000 kr.
Nafn: Pétur Þorsteinsson, Tómasarhaga 18,107 Rvík
Miðinr. 10986 _______
Oregið nttou . mars
heimilisuppbætur af öryrkjum fyrir
það eitt að búa með börnum sínum
og ætlaði í samráði við lögfræðinga
að láta á það reyna fyrir mannrétt-
indadómstólum. Ég veit ekki hvað
það gekk langt en þessu var að
minnsta kosti breytt rétt fyrir kosn-
ingarnar og var meira að segja greitt
aftur í tímann, alveg til 1.3. 1999.
Mánaðartekjur þessa hóps hækkuðu
um rúm 45%, frá 45.475 kr. í 66.078
kr„ að minnsta kosti ef einstaklingar
í hópnum fréttu af þessari hækkun.
Það er ekki verið að senda slíkar
upplýsingar til öryrkja. Yfir síðasta
ár nam heildarhækkun á heildarör-
orkubótum 12%, en á sama tíma var
verðbólgan í góðærinu á síðasta ári
6%. Ráðherrarnir og þingmennirnir
fengu bara 29,7% launahækkun 1.5.
1999 og dómarar ekki nema rúmlega
19% en þetta bliknar að sjálfsögðu
við samanburðinn á 45% hækkun
einstæðu foreldranna.
Kæri Davíð, hefði þessi hópur
fengið leiðréttingu ef áðurnefnd
kona hefði ekki ætlað fyrir dómstóla
með þetta mannréttindabrot? Væri
svona stór hluti almennings í landinu
jafnvel tilbúinn til þess að greiða
hærri gjöld til hækkunar á örorkulíf-
eyrinum ef Örorkubandalagið hefði
ekki birt þessar greinar? Og hvað ert
þú, Davíð, að sjá á eftir aurum Ör-
yrkjabandalagsins? Mér skilst að
þetta séu nokkrar milljónir sem fóru
í þetta. Hver eru árslaun þín með öll-
um ferðadagpeningum, bensín-
styrkjum o.s.frv.? Eru milljónirnar
svipað margar og Öryrkjabandalag-
ið eyddi? Ég er ekki að segja að fólk
eigi ekki að fá greitt fyrir vinnu sína,
en elsku besti, hættu að koma fram
með órökstuddar ásakanir og stað-
leysur og reyndu að temja þér
mannasiði því þú ert forsætisráð-
herra okkar Islendinga og sem slík-
ur ber þér að sýna okkur tilhlýðilega
kurteisi ogvirðingu.
HILDUR EMBLA
RAGNHEIÐARDÓTTIR,
Álagranda 8
Allt efni sem birtist í Morgunblað-
inu og Lesbók er varðveitt í upplýs-
ingasafni þess. Morgunblaðið áskil-
ur sér rétt til að ráðstafa efninu
þaðan, hvort sem er með endurbir-
tingu eða á annan hátt. Þeir sem af-
henda blaðinu efni til birtingar telj-
ast samþykkja þetta, ef ekki fylgir
fyrirvari hér að lútandi.
Gleraugnaverslunin Sjónarhóll
www.sjonarholl.is