Morgunblaðið - 23.03.2000, Side 64
£4 FIMMTUDAGUR 23. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Matur og matgerð
Skyrtertur
með berjum
Ekki viðraði vel fyrir fyrstu
fermingarbörnin, segir Kristín
Gestsdóttir, sem fermdust
borgaralegri fermingu í
Háskólabíói 19. mars sl.
EN SVONA er þetta á íslandi,
maður veit aldrei hvernig viðrar
og nú muna elstu menn ekki meiri
ótíð. Nú sem fyrr bjóða foreldrar
fermingarbarna til veislu og
gleðjast með börnum sínum,
vinum og vandamönnum, skreyta
með blómum og kveikja á kertum
og skapa hlýju í híbýlum sínum,
þótt bylurinn gnauði úti. I þessum
þætti er boðið upp á tvær tertur,
sem ætlaðar eru á kaffiborð en
líka má nota sem ábætisrétti, en í
þeim báðum eru skyr og frosin
ber. Víða í búðum er mikið úrval
belgískra, frosinna berja frá
fyrirtækinu Ardo og líka íleirum,
þótt úrvalið sé ekki eins mikið og
frá þeim. Beijatertur eru
lystugar og fallegar og
skreytingin er ekki
fyrirhafnarsöm - berin skreyta
sig sjálf. Þetta eru léttar og
bragðgóðar tertur. AUtof mikið er
af þungum súkkulaði- og
rjómatertum, en við ættum að
temja okkur að draga svolítið úr
rjómanum og bjóða léttari tertur,
þurrkökur líka, og ekki má
gleyma smákökunum, sem henta
bæði á kaffiborði og með kaffi
eftir máltíð.
Bláberja-
skyrterta
2V; dl flórsykur
3 dl hveití
1 pk. sítrónuhlaup frá Toro
21/2 dl vofn, helmingi minna vafn
en gefið er upp á umbúðum
_____________2egg_______________
_____1 stór dós bláberjaskyr
Vi pk. frosin bláber frá Ardo
______1 peli rjómi saman við____
l / /2-I dl rjómi til oð skreyta með
Þeytið egg og sykur, sigtið
hveiti út í og hrærið varlega
saman við.
Setjið bökunarpappír á
bökunarplötu, brjótið upp á hann
að 1/3 til að minnka ummál hans,
hellið soppunni á 2/3 hluta.
Í_____________________________________
Hitið bakarofn í 190°C,
blástursofn í 180°C, og bakið í um
15 mínútur, takið úr ofninum og
leggið stykki yfír, kælið.
Notið kringlótta meðalstóra
skál með flötum botni, skerið
smjörpappír eða bökunarpappír
eftir botninum og leggið inn í
skálina, skerið síðan fleyga úr
kökunni og raðið á víxl upp með
börmunum. Setjið skálina í
plastpoka meðan þið búið til
fyllinguna. Engin kaka á að fara á
pappírinn í botninum.
5. Takið frá 2 msk. af
hlaupduftinu, en hellið rúml. 2 dl
af sjóðandi vatni yfir hitt og látið
leysast vel upp, kælið síðan án
þess að hlaupi saman.
6. Þeytið eggin lauslega, hrærið
skyrið saman við, síðan kælt
hlaupið, þeytið rjómann og bætið
7. Takið frá !4-l dl af
bláberjum, en setjið hitt út í.
Hellið inn í skálina. Setjið í
kæliskáp og látið stífna í minnst 6
klst.
Við framreiðslu er skálinni
hvolft á fat. Pappírinn fjarlægður.
Síðan eru þær 2 msk. sem teknar
voru frá af hlaupduftinu leystar
upp í 'Æ dl af sjóðandi vatni. Kælt
að mestu, og 14-1 dl af frosnum
blábeijum settur út í og hellt yfir
botninn á skálinni. Þá er ijóminn
þeyttur og skreytt með honum,
sjá meðf. teikningu.
Jarðarbeija-skyrterta
Þessi kaka er að mestu búin til
eins og bláberjatertan, nema
notað er jarðarberjahlaup og
jarðarbeijaskyr og auk þess
frosin jarðarber, sem skorin eru í
bita, nema þau sem skreytt er
með. Rúlluterta með
jarðarbeijasultu er notuð inn í
skálina, sem er fóðruð með
plastfilmu. Ekki er settur pappír
á botn skálarinnar heldur þekja
rúllutertusneiðar allan flöt
skálarinnar. Kringum kökuna er
ijómatoppum sprautað og
hlauphúðuðu jarðarberi stungið
ofan í rjómatoppana. 1-2 msk. af
hlaupdufti er leyst upp í V2 dl af
sjóðandi vatni, það kælt án þess
að hlaupi saman og frosnum
jarðarberjunum stungið ofan í.
ÍDAG
vi:iA\K\rviii
Svarað í sfma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Maður er
nefndur
MAÐUR er nefndur er yf-
irskrift þáttar sem sýndur
var í sjónvarpinu 15. mars
sl. Ég kynntist viðmælanda
þessa þáttar nokkru áður,
þegar við vorum stofufélag-
ar á Landsspítalanum. Við
kynninguna á spítalanum
dáðist ég að stálminni hans
og fróðleik, enda ræddum
við margt þá daga sem við
dvöldum þar. Ég beið
spenntur eftir þættinum,
því ég veit að þessi 86 ára
gamli maður hefur frá
mörgu að segja. Viðtalið í
sjónvarpinu skilaði ekki
þeirri svipmynd af ævi-
starii þessa merka manns
sem ég vonaðist til að þar
kæmi fram. Hann er haf-
sjór af fróðleik og á farsæl-
an og giftusaman starfsfer-
il. Stjórnandi þáttarins
spurði sífellt um menn, sem
verið höfðu formenn í ein-
um tilteknum stjórnmála-
flokki hátt í heila öld og
fékk greið svör við öllum
sínum spumingum. Þessi
þáttaröð, Maður er nefnd-
ur, er mjög áhugavert
sjónvarpsefni og yfirleitt
vel heppnað. Flestum
stjómendum þáttanna hef-
ur tekist afar vel að skila
hlutverki sínu. í nefndum
þætti fannst mér það mis-
notkun á aðstöðu og van-
virða við mikilhæfan og
fróðan viðmælanda, að
spyrjandinn vék ekki einu
orði að ævistarfi og lffs-
hlaupi hins aldna og merka
manns, sem þama var rætt
við undir yfirskriftinni,
Maður er nefndur.
Ólafur Runólfsson.
Óábyrg
ferðalög að vetri
SEM aðstandandi þátttak-
anda í helgarskíðaferðum
Útivistar vil ég lýsa undmn
minni á ferðatilhögun. I
tvígang hefur ættingi minn
komið heim úr helgarskíða-
ferð um miðja nótt, nánast
úrvinda af volki úr ferðum
sem átti að ljúka fyrir kl. 17
daginn áður. I báðum til-
vikum hefur þurft aðstoð
frá björgunarsveitum til að
koma fólkinu til byggða.
Aðstandendur eru látnir
bíða í ótta fram á miðjar
nætur en engin tilraun
virðist vera gerð til að
breyta ferðaáætlun, s.s. að
bíða af sér veður eða fara
styttri leið til byggða. Nei,
nei, viðhorfið er, ætt skal
áfram í blindni enda er
farsími í bakpokanum og
þeir geta bara náð í okkur
þegar við emm orðin
þreytt um miðja nótt, enda
mjög þægilegt, jafnvel
gaman, að láta öflugustu
vélsleða og jeppa landsins
sækja sig upp til fjalla.
Sigríður
Guðmundsdóttir.
Þakkir
KRISTÍN Jóna hafði sam-
band við Velvakanda og
vildi koma á framfæri
þökkum til Ellerts Schram
vegna greinar hans í Morg-
unblaðinu „Hvenær sástu
pabba þinn síðast", sem
birtist 19. mars sl. Það er
tími til konjinn að vekja
fólk til umhugsunar um
þessi mál. Hafðu mínar
bestu þakkir fyrir. Einnig
vildi hún þakka Pétri Pét-
urssyni fyrir grein hans,
sem birtist í sunnudags-
blaði Morgunblaðsins 19.
mars sl. Alveg skínandi góð
grein um Kolasundið, fróð-
leg og skemmtileg.
Tapad/fundiö
Nýr GSM-sími týndist
NÝR, mjög nettur, silfrað-
ur GSM-sími, af gerðinni
Nokia 8850, týndist föstu-
daginn 17. mars sl. Skilvís
finnandi er vinsamlega beð-
inn að hringja í síma 564-
4406.
Hjólabretti
1' óskilum
STÓRT hjólabretti kallað
„01d-school“ fannst á
Tjörninni í Reykjavík íyrir
neðan Fríkirkjuna. Upplýs-
ingar í síma 552-1892.
Posi er týndur
STÓR hvítur fressköttur,
með annað augað blátt en
hitt gult, hvarf frá Grettis-
götu 13 helgina 18-19 mars
sl. Hann er með merkta ól.
Fólk í nágrenni við heimili
hans er beðið að athuga
hvort hann gæti hafa lokast
einhvers staðar inni. Upp-
lýsingar gefur Erla Rún í
síma 562-1481.
Dýrahald
Óska eftir kettlingi
ELÍSABET óskar eftir
svörtum kettlingi. Hann
verður að vera hálfur skóg-
arköttur og tveggja mán-
aða gamall. Upplýsingar i
sima 866-5345.
Morgunblaðið/Asdís Asgeirsdóttir
Víkverji skrifar...
AHEIMASÍÐU Rafiðnaðar-
sambandsins er sagt frá gangi
viðræðna sambandsins við vinnu-
veitendur. í síðustu viku sagði for-
maður RSÍ frá því þegar hann skellti
hurðum í húsakynnum ríkissátta-
semjara. „Fulltrúum atvinnurek-
enda var síðan gerð grein fyrir því á
hreinni íslensku að annaðhvort legðu
þeir fram í dag viðunandi svör eða
málinu yrði vísað til sáttasemjara og
þaðan yrði gengið í að undirbúa að-
gerðir. Að ræðu sinni lokinni gekk
formaður RSÍ út úr herbergi samn-
inganefndar atvinnurekenda og þeg-
ar hann lokaði hurðinni á eftir sér
fylgdi á eftir honum hluti dyraum-
gerðarinnar."
Ekki er hægt að gagnrýna menn
þó að í þá fjúki í hita leiksins, en hins
vegar er spuming hvort það sé eðli-
legt að menn séu að hreykja sér af
tiltækinu þegar þeim er runnin reið-
in. Ekki er hins vegar hægt að skilja
skrifin á annan hátt því daginn eftir
ritar formaður RSÍ á heimasíðunni
annan pistil um sama tilvik undir
fyrirsögninni: „Styrkleikaprófanir
Karphússins hins nýja“. Þar er fjall-
að um hurðaskellinn og rifjaðir upp
gamlir hurðaskellir. „En eitt af hans
[ríkissáttasemjaraj fyrstu verkum,
þegar hann tók við starfinu, var að
hann þurfti að láta laga festingar á
málverkum. Því að formaður rafiðn-
aðarsambandsins hefði eitt sinn
kvatt samninganefnd VSÍ með því að
troða samningsdrögum í ruslafötuna
og loka svo hurð á eftir sér í Svart-
holinu svonefnda, með þeim afleið-
ingum að íslandskort sem þar hékk
uppi hrökk af veggnum og fór næst-
um í hausinn á Þórami V. en skall í
gólfið með þvílíkum skarkala að
sáttasemjari hélt að veggurinn væri
að koma á eftir hurðinni.“
í þriðja pistli formanns RSÍ á
heimasíðunni undrast hann hins veg-
ar að fjölmiðlar skuli veita þessum
skrifum hans athygli og gerast svo
djarfir að búa til um þau frétt. Þar
segir: „Fréttamenn virðast sumir
hverjir þrátt fyrir þessi stórmál [þ.e.
efnisatriði kjarasamninganna] ein;
ungis sjá frétt í því að formaður RSÍ
skellti hurð, sem var svo illa frá-
gengin að hún aflagaðist. Þetta er
aðalfréttin og tilefni til þess að setja
á menn jólasveinanöfn. Þessir frétta-
menn virðast halda að á samninga-
fundum sitji menn og skiptist á bi-
blíumyndum og þylji sléttubönd.
Fari síðan fram og fái sér kakó og
skúffukökubita og taki eina rúbertu
eða tvær.“
xxx
AÐ er greinilegt að íslensku
Norðurpólsfaramir, Ingþór
Bjarnason og Haraldur Örn Ólafs-
son, eiga erfiða ferð fyrir höndum,
en þeir era þessa dagana á göngu í
átt að Norðurpólnum. Vflcverja varð
ekki um sel að lesa lýsingar á þeim
aðstæðum sem þeir eiga við að
stríða. Færið hjá þeim félögum er af-
ar erfitt og þeir hafa þurft að draga
sleðana saman yfir bratta hryggi í
ísnum. Þegar búið er að draga annan
sleðann upp á hrygginn þarf að slaka
honum niður vegna þess að passa
þarf að hann brotni ekki á leið niður
hrygginn. Síðan þurfa þeir að ná í
hinn sleðann. Frostið er yfir 40 stig
og stöðug hætta er á kali ef ekki er
varlega farið.
„Erfiðast er að komast upp úr
pokanum á morgnana. Inni í tjaldinu
er allt hrímað og pokarnir þvalir og
rakir að innan og ísaðir við öndunar-
opið á þeim. Það er töluvert átak að
fara úr þeim. Maður rífur sig upp úr
pokanum og mér finnst best að fara
bara beint út á skaflinn og klæða mig
í utanyfírfötin þar. Fötin era freðin í
gegn á hverjum morgni og við verð-
um að byrja á því að mylja úr þeim
klakann og reyna þannig að mýkja
þau til að komast í þau,“ er haft eftir
Ingþóri í Morgunblaðinu.
Margir eiga sjálfsagt erfitt með að
skilja hvers vegna mennimir eru að
leggja á sig allt þetta erfiði. Eitt sinn
var frægur Éverestfari spurður
þeirrar spumingar hvers vegna
hann væri að reyna að klífa tind
Everest. „Vegna þess að fjallið er
þarna,“ var svarið.
XXX
VÍKVER JA finnst sérkennileg sú
ákvörðun að breyta endi leik-
ritsins „Krítarhringurinn í Kákas:
us“, sem sýnt er í Þjóðleikhúsinu. í
leikritinu er tekist á um yfirráð yfir
landi og höfundur verksins hefur
samúð með sjónarmiðum áveitu-
bænda og lætur þá fá landið í lok
leikritsins. Þeir sem settu verkið upp
hér á landi breyttu endinum vegna
breyttra viðhorfa í umhverfismálum,
að þeirra sögn, og létu áveitubænd-
urna ekki fá landið. Sem kunnugt er
þykir ýmsum sem áveitur og þurrk-
un mýra sé slæm meðferð á landi.
Helst eigi landið að vera ósnert.
Víkverja finnst þetta helst til langt
gengið. Mega leikhúsgestir þá allt
eins eiga von á að ný viðhorf í mann-
úðarmálum leiði til þess að morðum
verði fækkað í leikritum ShakeOpö
speares?