Morgunblaðið - 26.03.2000, Blaðsíða 4
4 SUNNUDAGUR 26. MARS 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
VTKAN 19/3-25/3
► fslandssími og Fijáls
Qarskipti hafa ákveðið að
lækka verð millilandasim-
tala. Þá hefur komið fram
að endurskoðun á verðskrá
Landssímans mun leiða til
verulegrar lækkunar á
millilandasímtölum.
► Samningur um kaup SR-
mjöls hf. á veiðileyfi og úr-
eldingarrétti togarans
Skagfirðings hf. á 120 millj-
énir kr. stendur samkvæmt
dómi héraðsdóms þrátt fyr-
ir að réttindin hafi orðið
verðlaus með lagabreyting-
um í kjölfar Valdimarsdóms
Hæstaréttar.
► Ungur ökumaður bfls
sem lenti út af og valt 60-70
metra niður Staðarskriður í
Fáskrúðsfirði slapp með
skrámur.
► Lögreglan á Húsavík
rannsakar lát manns sem
talið er að hafi borið að með
voveiflegum hætti á laugar-
dag. Maður á þrítugsaldri
hefur verið úrskurðaður í
gæsluvarðhald vegna rann-
sóknar málsins.
► Þórólfur Magnússon
flugstjóri lét af störfum hjá
Islandsflugi i vikunni og var
heiðraður með margvísleg-
um hætti fyrir farsæla þjón-
ustu við landsbyggðina.
► Gíert er ráð fyrir að
rekstri Flugstöðvar Leifs
Eiríkssonar í Keflavík verði
breytt í hlutatelag sam-
kvæmt frumvarpi utanríkis-
ráðherra.
► Samkv. endurskoðuðu
frumvarpi verður heimilt
að taka gjald fyrir lffsýni
sem nemur kostnaði við öfl-
un, vörslu og meðferð sýn-
anna.
Boðun verkfalls
30. mars samþykkt
víða um land
ALLSHERJARVERKFALL verka-
fólks skellur á víða á landsbyggðinni
30. mars næstkomandi ef kjarasamn-
ingar nást ekki fyrir þann tíma nema
verkfalli verði frestað. Félagsmenn í
26 félögum innan Verkamannasam-
bands íslands og Landssambands iðn-
verkafólks samþykktu tillögu um
verkfallsboðun í almennri atkvæða-
greiðslu en verkfall var fellt í sex fé-
lögum, meðal annars í Vestmannaeyj-
um og Grindavík. Þrjú verkalýðsfélög
á Vestfjörðum frestuðu því að taka af-
stöðu til verkfallsboðunar.
Viðskiptahallinn
yfír 50 milljarða
ÞJÓÐHAGSSTOFNUN telur að mik-
ill vöxtur í efnahagslífínu tefli stöðug-
leikanum í tvísýnu. Það birtist í 5-6%
verðbólgu og miklum og vaxandi við-
skiptahalla. Slíkt fái ekki staðist til
lengdar og því sé óhjákvæmilegt að
hægja á efnahagsstarfseminni.
I yfirliti Þjóðhagsstofnunar um
stöðu og horfur í þjóðarbúskapnum
kemur fram að spáð er 4% aukningu
landsframleiðslu í ár og aukinni at-
vinnu en að verðbólgan verði 5,3% og
viðskiptahallinn fari yfir 50 milljarða
króna.
Sala Símans
undirbúin
SAMGÖNGURÁÐHERRA hefur fal-
ið framkvæmdanefnd um einkavæð-
ingu að hefja undirbúning að sölu
Landssíma íslands hf. Formaður
nefndarinnar segir að vart hafi orðið
við mikinn áhuga á málinu að undan-
fömu, meðal annars frá erlendum
bankastofnunum.
Gramir út í Dani
FÆREYINGAR eru gramir dönskum
stjómvöldum vegna viðbragða þeirra
við tillögum færeysku landstjómarinn-
ar um hvemig standa skuli að stofnun
fullvalda ríkis í Færeyjum. Tillögumar
vom lagðar fram á fúndi þjóðanna ný-
lega en þar sagði Poul Nyrup Rasmus-
sen, forsætisráðherra Danmerkur, að
Færeyingar fengju aðeins 4 ára aðlög-
unartíma þar til greiðslur danska ríkis-
ins féllu niður. Færeysku tillögumar
gera ráð fyrir 12-15 ára aðlögunartíma.
Stjómmálamenn í Færeyjum segja
að útreikningar danska fjármálaráðu-
neytisins á kostnaði danska ríkisins
vegna Færeyinga vera móðgun við íbúa
eyjanna. Samkvæmt útreikningum
ráðuneytisins fara Færeyingar fram á
50-80 ára aðlögunartíma og vilja reyna
að koma sér undan því að greiða skuldir
sínar við danska ríkið.
Páfí í ísrael
JÓHANNES Páll páfi II hóf á mánu-
dag ferð um söguslóðir Biblíunnar í
Landinu helga. Heimsóknin er talin
hafa mikla pólitíska þýðingu og er m.a.
litið á hana sem lið í viðleitni Páfa til að
sættast við gyðinga. Páfa var vel fagnað
í Jórdaníu, sem var fyrsti viðkomustað-
ur hans, en hann lenti í Israel á þriðju-
dag. A miðvikudag söng páfi messu á
torgi í miðbæ Bethelhem, fæðingar-
borg Krists, sem er á yfirráðasvæði
Palestínumanna. í ræðu sinni fyrr um
daginn hafði páfi harmað þjáningar
Palestínumanna og lýst stuðningi við
stofnun Palestínuríkis.
Á fimmtudag var páfi viðstaddur
minningarathöfn um fómarlömb hel-
fararinnar í Yad Vasheim-helfararsafn-
inu í Jerúsalem. Forystumenn gyðing-
legra samtaka í Israel hafa lýst von-
brigðum með að páfi skyldi ekki við það
tækifæri biðjast afsökunar fyrir hönd
kaþólsku kirkjunnar á því að hún skyldi
ekki reyna að hindra Qöldamorð nasista
á evrópskum gyðingum. Á laugardag
söng páfi messu í bænum Nasaret.
► Angela Merkel verður
næsti formaður Kristilegra
demókrata í Þýskalandi
(CDU), fyrst kvenna til að
gegna því embætti. Hún
hefur hingað til gegnt
stöðu framkvæmdasljóra
flokksins.
► Lee Teng Hui, sem beið
ósigur í forsetakosningum í
Taívan fyrir viku, sagði á
föstudag af sér sem for-
maður flokks þjóðemis-
sinna, Kuomintang, vegna
óánægju með ósigurinn
innan flokksins. Skýrendur
telja að sigur Chens Shui-
bians í kosningunum auki
líkur á sáttaviðræðum milli
Kína og Taívans.
► Lík um 500 meðlima
dómsdagsstafnaðar í Ug-
anda fundust fyrir skömmu
í brunarústum kirkju í bæn-
um Kanungu. Á annað
hundrað lík til viðbótar
fundust í vikunni grafin í
jörð. Óttast er að fólkið hafi
verið myrt.
► Mikil óánægja er meðal
breskra verkalýðsfélaga
með þá ákvörðun BMW-
bflaframleiðandans þýska
að selja hlut sinn í bresku
Rover-verksmiðjunum. Ótt-
ast er að fjölmargir missi
vinnu sína ef af sölunni
verður. Tony Blair, forsæt-
isráðherra Bretlands,
hyggst ræða málið við
Gerahard Schröder, kansl-
ara Þýskalands, í vikunni.
► Vonir standa til þess að
friðarviðræður Israela og
Sýrlendinga hefjist að nýju
í kjölfar fundar þeirra Bills
Clintons Bandaríkjaforseta
og Hafez al-Assads, forseta
Sýrlands, sem haldinn verð-
ur í Sviss í dag (sunnudag).
Landssíminn flytur höfuðstöðvar sínar í nýtt húsnæði
Kaupverð lóðar o g fast-
eigna einn milljarður
Morgunblaðið/Golli
Tækniakur hf., nýstofnað eignarhaldsfélag í eigu Simans og Landsafls,
fasteignafélags íslenskra aðalverktaka, undirritaði í fyrradag samning
við Orkuveitu Reykjavíkur um kaup á lóð og fasteignum fyrirtæksins
við Suðurlandsbraut 34 og Ármúla 31. Frá vinstri: Stefán Friðfinnsson,
forstjóri íslenskra aðalverktaka, Þórarinn V. Þórarinsson, forstjóri
Landssímans og Alfreð Þorsteinsson, formaður stjórnar veitustofnana.
LANDSSÍMINN mun eftir tvö ár
flytja höfuðstöðvar sínar í nýtt hús á
homi Suðurlandsbrautar og Grens-
ásvegar. Tækniakur, nýstofnað eign-
arhaldsfélag í eigu Símans og Lands-
afls, fasteignafélags Islenski'a
aðalverktaka, undirritaði á föstudag
kaupsamning við Orkuveitu Reykja-
víkur um kaup á lóð og fasteignum
Orkuveitunnar við Suðurlandsbraut
34 og Armúla 31. Um er að ræða
26.000 fermetra lóð og byggingar,
sem eru samtals um 11.000 fermetr-
ar, og er kaupverðið um milljarður
króna.
Alfreð Þorsteinsson, stjórnarfor-
maður veitustofnana, sagði að þar
sem ekki hefði verið sátt um það
meðal borgarbúa að höfuðstöðvar
Landssímans yrðu handan Suður-
landsbrautar, við Laugardalinn,
hefðu borgaryfirvöld ákveðið að
veita honum forkaupsrétt á lóð og
fasteignum Orkuveitunnar við Suð-
urlandsbraut 34 og Armúla 31. Þetta
hefði ekki síst verið gert vegna þess
að borgaryfirvöldum hefði verið
mjög í mun að halda Landssímanum
innan borgarmarkanna.
Gert er ráð fyrir að Orkuveitan
leigi núverandi húsnæði sitt af
Tækniakri þar til hún flytur í nýjar
höfuðstöðvar við Réttarháls 4.
Ætlunin að byggja lóðina upp
Þórarinn V. Þórarinsson, forstjóri
Landssímans, sagðist vera mjög
sáttur við þessa niðurstöðu í hús-
næðismálum fyrirtækisins.
„Við erum afar sáttir við þessar
lyktir, við áttum ekki frumkvæði að
að hefja byggingarframkvæmdir
handan götunnar,“ sagði Þórarinn.
,Að sumu leyti er þetta enn hag-
kvæmara fyrir okkur, því þessi reit-
ur tengist betur annarri starfsemi
okkar héma við Armúlann og Suður-
landsbrautina."
Að sögn Þórarins hyggst Lands-
síminn ekki flytja starfsemi sína í nú-
verandi húsnæði Orkuveitunnar við
Suðurlandsbraut, heldur er ætlunin
að byggja lóðina enn frekar upp.
„Þær hugmyndir sem liggja fyrir
er að fá hér breytt deiliskipulagi og
fá heimild til þess að byggja myndar-
legt hús hér á horni Suðurlands-
brautar og Grensásvegar. Við erum í
viðræðum við borgaryfirvöld um að
reisa um 12.000 fermetra hús.
Áherslan sem Síminn leggur í þessu
er sú að búa fyrirtækið undir fram-
tíðina þannig að það sé sem allra
mestur sveigjanleiki í starfseminni.
Við reiknum með því að húsnæðið,
sem hýsir núverandi höfuðstöðvar
Orkuveitunnar á lóðinni, verði í al-
mennri útleigu í framtíðinni. Við trú-
um að hér sé hægt að búa til mjög
áhugavert umhverfi fyrir hátækni-
fyrirtæki til þess að starfa í nálægð
við þá þjónustu sem Síminn getur
boðið upp á.“
Þórarinn sagði að hafinn væri und-
irbúningur að sölu fasteigna Símans
við Austurvöll.
Frumvarp til breytinga á lögum um matvæli kynnt
Otvíræð skylda að reyna
að fyrirbyggja heilsutjón
UMHVERFISRÁÐHERRA kynnti
í gær í ríkisstjóm frumvarp um
breytingu á lögum um matvæli, en
frumvarpið er lagt fram í framhaldi
af tillögum nefndar umhverfisráðu-
neytisins um viðbrögð vegna
campylobactersýkinga sem upp
komu á síðasta ári.
Er í frumvapinu meðal annars lagt
til að hlutaðeigandi ráðherra geti
sett reglur þess efnis að starfsfólk
við framleiðslu og dreifingu matvæla
sæki námskeið um meðferð þeirra.
Einnig er samkvæmt ákvæðum
frumvarpsins lögð ótvíræð skylda á
eftirlitsaðila að þeir reyni að fyrir-
byggja að matvæli geti valdið heilsu-
tjóni og grípi til viðeigandi ráðstaf-
ana ef vart verður við matar-
sjúkdóma eða smithættu. Þetta
dragi hins vegar á engan hátt úr
skyldum þeirra sem ábyrgir séu fyr-
ir framleiðslu og dreifingu matvæla,
en þeim beri að tryggja eins og unnt
er að matvæli valdi ekki heilsutjóni.
Þá er í frumvarpinu lagt til að þeir
aðilar verði tilkynningarskyldir sem
starfi við framleiðslu og dreifingu
matvæla, svo og eftirlit, rannsóknir
og greiningu þeirra, þannig að hlut-
aðeigandi stofnanir fái upplýsingar
ef gögn sem þessir aðilar hafa undir
höndum eða aðrar ástæður bendi til
hættu á heilsutjóni.
-------------------
Stjórnarflokk-
arnir tapa fylgi
samkvæmt DV
SAMKVÆMT niðurstöðum skoðana-
könnunar á fylgi stjómmálaflokk-
anna, sem dagblaðið DV gerði 21. og
22. mai’s sl., tapa stjómarflokkarnir
fylgi en Vinstrihreyfmgin - grænt
framboð, Samfylkingin og Fijálslyndi
flokkurinn bæta við sig fylgi.
I könnuninni var spurt: Hvaða lista
mundir þú kjósa ef þingkosningar
færa fram núna?
Framsóknarflokkur fengi 12,5%
fylgi, lækkaði úr 13,2% frá síðustu
könnun, sem DV gerði um áramótin,
Sjálfstæðisflokkur fengi 40,6%, lækk-
aði úr 51,6%, Frjálslyndi flokkurinn
2,8%, hækkaði úr 2,5%, Samfylkingin
25,6%, hækkaði úr 15,5% og Vinstri-
hreyfingin - grænt framboð 18,4%,
hækkaði úr 16,8%. Hér er miðað við
þá sem tóku afstöðu, en þeir voru
66,1% 1.200 manna úrtaks, sem skipt-
ist jafnt á milli höfuðborgarsvæðis og
landsbyggðar, sem og kynja.
Óákveðnir eða þeir sem vildu ekki
svaravora33,9%.
Þegar svör allra í könnuninni eru
skoðuð fengi Framsóknarflokkurinn
8,3% fylgi, Sjálfstæðisflokkur 26,8%,
Frjálslyndi flokkurinn 1,8%, Sam-
fylkingin 16,9% og Vinstrihreyfingin
- grænt framboð 12,2%.
Vefleikur Símans
Þú getur urmið Ericsson
T18 gsm síma ef þú skráir
þig á vefversiun .is
www.vefverslun.is
SIMINN