Morgunblaðið - 26.03.2000, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
SUNNUDAGUR 26. MARS 2000 21
LEIKUR er okkur öll-
um eðlislægur. Hann er
hluti af frumþörf okkar
til að tjá okkur og eiga
samskipti við aðra.
Barnið hefur yndi af því
að bregða sér í alls kon-
ar hlutverk og prófa að
vera einhver annar en
það sjálft. Á fullorðins-
árunum getum við
komist frá sjálfum okk-
ur og upplifað annan
veruleika en okkar eig-
in með því að njóta
lista. Við lesum bækur
og lifum okkur inn í ör-
lög og sálarlíf persón-
anna, við hlustum á
tónlist og finnum kenndir og tilfinn-
ingar streyma um okkur, við horfum
á málverk og sjáum ný sjónarhom í
gegnum samspil lita og forma.
Þegar við förum í leikhús verðum
við vitni að samruna ólíkra list-
greina. Leiklistin höfðar í senn til
sjónar, heyrnar, tilfinninga og vits-
muna. Hún sýnir okkur fjölbreyti-
leika mannlegra tilfinninga og til-
vem, birtir okkur nýja fleti á
vemleikanum og leitast við að rífa
okkur upp úr fastmótuðum hugsana-
gangi vanans. Hún fær okkur til að
endurskoða hugmyndir okkar og
eykur víðsýni og samkennd með öðr-
um sem ekki hafa nákvæmlega sömu
viðmiðanir og við. Aukin þekking
eyðir fordómum og stækkar hug-
myndaheim okkar.
Leiklistin leitast við að
svala þrá okkar eftir að
skynja dýpra og skilja
betur lífið og tilveruna,
fræðast um líf annarra,
skoðanir þeirra og tfi-
finningar og hjálpa
okkur að átta okkur á
því hvar við stöndum
sjálf í lífinu. Þessum
áhrifum nær hún með
því að kveikja með okk-
ur hugsanir og vanga-
veltur og snerta okkur
tilfinningalega en ekki
síður með því að fá
okkur til að hlæja og
skemmta okkur. Leik-
húsið getur veitt okkur hvatningu tfi
þess að hafa áhrif á það hvert líf okk-
ar stefnir og hafa áhrif á sameigin-
lega framtíð okkar allra.
Einu sinni héldu menn því fram að
með tilkomu ljósmyndarinnar yrði
málaralistin óþörf. Annað hefur
komið á daginn. Sumir sögðu líka að
með tilkomu kvikmyndarinnar
myndi leikhúsið smám saman líða
undir lok. En leikhúsið lifir enn góðu
lífi, jafnvel þótt mikið framboð sé á
hátæknivæddum kvikmyndum,
sjónvarpsefni og alls konar afþrey-
ingu og skemmtiefni á öllum sviðum.
En hver er þá styrkur leikhússins?
í leikhúsi erum við í nálægð við
augnablik sköpunarinnar. Leiksýn-
ingin á sér stað um leið og við upp-
lifum hana, ásamt mörgum öðrum,
og hver upplifír hana á sinn hátt. Það
myndast sérstakt andrúmsloft milli
leikara og áhorfenda og við tökum öll
þátt í galdrinum.
Við erum leidd inn í annan heim,
annan veruleika og samband okkar
við listamennina á sviðinu verður eft-
irvæntingarfullt og náið. Það sem við
sjáum er að gerast hér og nú. Ekkert
verður leiðrétt eða strikað út. Leik-
listin er list augnabliksins.
Á að vera
hugmyndaíiuðugt
Leikhúsið hefur á löngum tíma
tekið ýmsum breytingum, ein stefna
hefur haft yfirhöndina um skeið og
svo aðrar komið í staðinn. Enda er
heimurinn sífellt að breytast og
nauðsynlegt fyrir leikhúsið að fest-
ast ekki í sama farinu. Allar hinar
ólíku stefnur hafa haft eitthvað gott
fram að færa og blandast saman á
einn eða annan hátt.
I leikhúsinu má aldrei ríkja nein
einstefna. Leikhúsið á að vera hug-
myndaauðugt og frjálslynt og þar á
að rúmast gamalt og nýtt, gaman og
alvara.
Framtíðarósk mín til leikhússins
er sú að það megi alltaf vera óhrætt
við að leita inn á nýjar brautir en
megi jafnframt bera gæfu til að varð-
veita það besta sem hefur verið gert í
gegnum aldimar.
Höfundur er leikari.
Sjálfstætt
fólk kemur
útí
Hollandi
VAKA-Helgafell hefur gengið frá
samningi við hollenska bókaforlag-
ið de Geus um útgáfu á Sjálfstæðu
fólki eftir Halldór Laxness. Sagan
hefur einu sinni áður komið út í
Hollandi en það var árið 1938. TJt-
gáfan á Sjálfstæðu fólki nú sætir
nokkrum tíðindum því að verk Hall-
dórs hafa á undanförnum ára-
tugum komið stopult á markað í
Hollandi.
Salka Valka var fyrsta skáld-
sagan sem þýdd var á hollensku en
það var árið 1937. Hún var endur-
útgefin 1959.
Heimsljós (fyrsta bók) kom á
markað 1942, Atómstöðin og
Islandsklukkan 1957, Brekkukots-
annáll og Paradísarheimt 1965 en
hún var endurútgefin 1981.
Það verða því um tveir áratugir
liðnir frá síðustu útgáfu bókar eftir
Halldór Laxness í Hollandi þegar
Sjálfstætt fólk birtist lesendum þar
í landi á ný.
De Geus gefur út fjölda hol-
lenskra og þýddra verka. Meðal rit-
höfunda sem koma út undir merkj-
um forlagsins eru Nóbelsskáldið
Nagieb Mahfoez, Simon de Beau-
voir og sænsku rithöfundarnir
Marianne Fredriksson og Henning
Mankell en útgáfur De Geus á verk-
um þeirra hafa notið mikilla vin-
sælda. Meðal annars var Henning
Mankcll valinn höfundur ársins 1
Hollandi og Anna, Hanna og Jó-
hanna eftir Marianne Fredriksson
sat mánuðum saman efst á metsölu-
listum.
Póstmód-
ernismi og
nýlendur
ÓLAFUR Rastrick heldur fyrirlest-
ur í hádegisfundarröð Sagnfræð-
ingafélags Islands í stóra sal Nor-
ræna hússins kl. 12.05-13 á
þriðjudag.
Erindi sitt nefnnir hann „Menn-
ingarlegt forræði og grunsemdir um
hið ósammælanlega. Um póst-kólón-
íalisma og sagnfræð.“ Fyrirlesturinn
er í fundarröð sem ber yfirskriftina:
Hvað er póstmódernismi? Ólafur
starfar sem sérfræðingur á Hag-
stofu íslands og er fræðimaður í
Reykjavíkur-akademíunni.
Áðgangur er ókeypis.
-----♦-♦-4-----
Listmunaupp-
boð Gallerís
Foldar
GALLERÍ Fold heldur listmuna-
uppboð í Súlnasal Hótels Sögu í
kvöld kl. 20. Boðin verða upp 94
verk, þ. á m. fjölmörg verk gömlu
meistaranna. Verkin eru til sýnis í
Gallerí Fold, Rauðarárstíg 14, í dag
kl. 12-17.
-----4-4-4-----
Sýning
framlengd
Hafnarborg-
Sýning Kristínar Loftsdóttur,
Hornin íþyngja ekki kúnni, (Ijós-
myndir og hlutir frá WoDaaBee-
hirðingjum í Niger) hefur verið
framlengd og stendur til 10. apríl.
Herdís Þorvaldsddttir
Avarp á Alþjóðlega
leikhúsdeginum 2000
Herdís
Þorvaldsdóttir
Fyrir hag
Yfirhilla kr. 2.600
Fallegir
sjónvarpsskápar
fyrir stór tæki
201141
4 tV I I •» 1 --
MSMMtMíiaÆj
IMBBHBaa(lcr. 11.900)
an arma
mVHll'lMkr. 6.900 )
Fáanlegur með örmum.
Níðsterkur vinnuþjarkur með
mjóbaksstuðningi, gaslyftu
og stillanlegu baki.
wmmfor. n.9oo)
Tölvuborð á hjólum þar sem
allt er á einum stað
Hirzlan
H - 73 'r
B-159/153
D - 61/45
Beykillnan
TOIVUBORÐ
TOIVUBORD
H1LLUSAMSTÆDA
HOKNSKRIFBORO
Smiðsbúð 6 • 210 Garðabær
Sinti 564 5040 • Fax 564 5041
Verð á tilboðum miðast við staögreiðslu
Skrifborð <fi stólar