Morgunblaðið - 26.03.2000, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 26. MARS 2000 31
Þáttur íslendinga hefur vaxið
mikið hjá okkur og þessi
krafa markaðarins að
vinnufélagar og vinahópar
geti brugðið sér saman á
hestbak átti ekki síst þátt I
því að hugmyndin að Hesta-
miðstöðinni kviknaði.
Þáttur íslendinga
hefur vaxið
„Jafnframt því að byggja upp hér
erum við að styrkja allar okkar
stöðvar," segir Einar. „Ishestar eru
ekki bara fyrirtæki í eigu nokkurra
aðila því að hornsteinar fyrirtækis-
ins eru bændur úti um allt land sem
eru verktakar og samstarfsaðilar.
An þeirra værum við ekki til.
Hestamiðstöðin mun því einnig
þjóna öllu okkar neti og verða upp-
lýsingamiðstöð fyrir lengri ferðir
okkar. Hérna ætlum við að búa til
hestamenn og þjálfa þá smám sam-
an upp í að verða viðskiptavini okk-
ar í lengri ferðum.
Við höfum getað kynnt dásemdir
hestamennskunnar fyrir mörgum
íslendingnum í styttri ferðum okk-
ar og munum geta það í auknum
mæli nú. En það hljómar nú dálítið
kaldhæðnislega að eftir því sem
okkur gengur betur með þetta
verkefni missum við viðskiptavin-
inn fyrr frá okkur. Það gerist ekki
svo sjaldan að fólk fær áhuga á
hestum og endar með því að byrja
sjálft í hestamennsku, kaupa sér
hest og hesthús og þar með erum
við búin að missa það frá okkur.
Samt sem áður er þetta yfirlýst
markmið okkar.“
í næstu viku kemur út í fyrsta
sinn bæklingur frá íshestum á ís-
lensku og segir Einar það kannski
dæmi um þær áherslubreytingar
sem eru að verða í fyrirtækinu því
bæklingur fyrirtækisins hefur bara
verið gefinn út á fjórum erlendum
tungumálum.
„Þáttur íslendinga hefur vaxið
mikið hjá okkur og þessi krafa
markaðarins að vinnufélagar og
vinahópar geti brugðið sér saman á
hestbak átti ekki síst þátt í þvi að
hugmyndin að Hestamiðstöðinni
kviknaði. Með því að hafa þessa að-
stöðu geta slíkir hópar komið hing-
að, sumir stunda útreiðar, aðrir
fara í göngu- eða hjólreiðaferð allt
eftir óskum hvers og eins og svo
sameinast hópurinn og snæðir sam-
an kvöldverð í skemmtilegu um-
hverfi."
Margir kaupa ferðahestinn
Einar var spurður að því hvernig
gengi að fá hesta í ferðir. Hann
sagði að verktakarnir sem sæju um
lengri ferðirnar sæju alfarið um að
útvega hesta í sínar ferðir. Það
gengi mjög vel, en alls voru yfir
1300 hestar í ferðum á vegum ís-
hesta síðastliðið sumar.
Hann sagði jafnframt að mjög vel
gengi að fá góða hesta fyrir styttri
ferðirnar. Af þremur hestum sem
kæmu til reynslu hjá íshestum
væri að meðaltali einum skilað til
baka. Það kæmi fljótt í ljós hvort
hestarnir hentuðu ekki og sumir
hestar væru til dæmis orðnir mjög
leiðir eftir mjög skamman tíma.
Ekki gengi að nota slíka hesta
áfram.
„Það fara margir hestar í gegn-
um hendurnar á okkur því alltaf er
þó nokkuð um það að þeir sem finna
draumahestinn sinn hér vilja kaupa
hann. Við tökum alltaf vel í það. Eg
tel reyndar að þeir sem kaupa sér
hest þurfi helst að vera búnir að
hafa hann í tvær til þrjár vikur áður
en ákvörðun er tekin. Ef seljendur
hefðu þessa reglu þá fyrst gætu
þeir sagt að kaupandinn viti að
hverju hann gengur. Því miður hef-
ur þessi regla ekki alltaf verið við-
höfð í hestaviðskiptum hér á landi
og valdið því að margur framtíðar-
hestamaðurinn hefur gefist upp á
hestamennsku strax í byrjun.
Ef farið verður að huga meira að
þessu er það forsenda þess að hægt
verði að búa til fleiri hestamenn hér
á landi og það er einmitt það sem
allir sem að markaðsmálum ís-
lenska hestsins ættu að stefna að.
Eitthvað er um það líka að fólk
komi hingað sérstaklega til að leita
að hestum bæði fyrir börn og þá
sem eru að byrja í hestamennsku.
Hestar sem hafa verið hér eru pott-
þéttir, enda búnir að bera fjöldann
allan af óvönu fólki á bakinu. Bænd-
ur hafa einnig séð sér hag í því að
lána hesta í lengri ferðirnar. Eftir
slíkar ferðir er hestur mun betri
söluvara og í toppþjálfun auk þess
sem margir seljast í ferðunum.
Ég vona að eitt að hlutverkum
Hestamiðstöðvarinnar verði að
liðka fyrir sölu á hestum, bæði til
íslendinga og útlendinga. Við von-
umst til að geta verið með hesta í
umboðssölu fyrir bændur og hesta-
menn í auknum mæli.“
Fagmannleg aðstaða
losar fólk við kvíða
Einar telur mjög mikilvægt að
geta boðið upp á góða aðstöðu fyrir
fólk sem kemur í styttri ferðir. Oft
er um að ræða algerlega óvant fólk
og stundum er ekki laust við að það
kvíði fyrir að fara á hestbak. Hann
segir að þegar fólkið kemur inn og
sér aðstöðuna slaki það strax á. Það
kemur fyrst inn í huggulegan mat-
sal með bar þar sem boðið er upp á
veitingar eftir hestaferðina. Þar
verður reyndar veitingasala allan
daginn fyrir gesti og gangandi. Síð-
an er gengið inn í fataherbergið þar
sem allt er í röð og reglu, stígvél-
um, hlífðarfatnaði og reiðhjálmum
raðað eftir stærð og aðstaða til að
þvo sér og snyrta. Næst er komið
inn í lítinn sal þar sem hnakkar eru
á færanlegum statífum og á gólfinu
er stamt tartanefni, sem spúlað er
oft á dag. Næst er rennihurð dregin
frá og við blasir glæsilegt hesthús
sem rúmar 54 hross. Hestarnir eru
teknir inn í salinn þar sem hægt er
að leggja á og prófa hestinn. Ef
veðrið er gott er hægt að leggja á
úti og prófa hestinn í gerði.
Einar segir að um leið og fólkið
sér að fagmennska er í fyrirrúmi
slaki það strax á. Fyrstu hugrifin
skipti því miklu máli.
f ævintýralandið
á 15 mínútum
Hann segir að veðráttan í vetur
hafi sett svolítið strik í reikninginn.
Samt sem áður hefur hún aukið
honum bjartsýni því þrátt fyrir allt
hafi starfsemi Hestamiðstöðvarinn-
ar farið mjög skart af stað og að-
sóknin framar björtustu vonum.
„Aðstöðuleysi hefur háð afþrey-
ingu fyrir ferðamenn hér á landi og
við erum mjög ánægð með að taka
þátt í þeirri þróun sem er að verða í
að búa til góða og fallega umgjörð
utan um ferðamennina sem heim-
sækja okkur. Sem dæmi um vel-
heppnaða aðstöðu er nýja Bláa lón-
ið. Við sjáum fram á að ná til fleiri
ferðamanna núna þegar fólk getur
komið í sínu fínasta pússi hingað og
fengið allan hlífðarfatnað til að
skreppa á hestbak. Þá batnar
hreinlætisaðstaðan mjög mikið
þegar lokið verður við byggingu
baðhússins og heitu pottanna.
Það er í rauninni alveg einstakt
að geta boðið fólki upp á að eftir
innan við 15 mínútna akstur frá vel
flestum hótelum á höfuðborgar-
svæðinu sé það komið langt út í
sveit þar sem það getur stundað
ýmsa afþreyingu í sannkölluðu æv-
intýralandi.“
Figum errþá eftir riokkur sæti í sparinaðarferðir í sumar
Dammörk- BílaPLÚS
31. maí, 7. júuníog 23. ágúst
m.v. 2 fullorðna og 2 börn 2ja-11 ára. Innifalið: Flug og bílaleigubíll í A-flokki.
Krít
17. júlí og 4. september
Portúgal
16. maí og 12. september
m.v. 2 fullorðna og 2 börn 2ja-11 ára. Innifalið: Flug, gisting á Garden Choro
í 2 vikur, ferðir til og frá flugvelli erlendis og allir flugvallarskattar.
Mallorca
17. maí og 6. september
m.v. 2 fullorðna og 2 börn 2ja-11 ára. Innifalið: Flug, gisting á Biarritz
í 1 viku, ferðir til og frá flugvelli erlendis og allir flugvallarskattar.
Aukasparmadarferö 28. júmí
m.v. 2 fullorðna og 2 börn 2ja-11 ára. Innifaiið: Flug, gisting á Pil Lari Playa
í 2 vikur, ferðir til og frá flugvelli erlendis og allir flugvallarskattar.
Bemidorm-stórsparmaðarPLÚS
16. júmí
m.v. 2 fullorðna og 2 börn 2ja-11 ára.
Innifalið: Flug, gisting á Los Gemelos í 1 viku, ferðir til og frá flugvelli
erlendis og allir flugvallarskattar.
*Bókad og staðfest fyrir 31. mars.
CD
Umboösmenn Plúsferöa um allt land
Akranes • S: 431 4884
Blönduós' S: 4524168
Borgamas • S: 437 1040
Dalvík • S: 466 1405
ísafjörður • S: 456 5111
Sauðárkrókur • S: 453 6262/896 8477
Akureyri-S: 462 5000
Höfti'S: 478 1000
Egilsstaðir • S: 471 2000
Solioss • S: 482 1666
Vestmannaeyjar • S: 481 1450
Keflavik'S: 421 1353
Grindavfk• S: 426 8060
Faxafeni 5 • 108 Reykjavík • Sími 535 2100 • Fax 535 2110 *l\letfang plusf@plusferdir.is • Veffang www.plusferdir.is