Morgunblaðið - 26.03.2000, Side 14

Morgunblaðið - 26.03.2000, Side 14
14 SUNNUDAGUR 26. MARS 2000 MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR Risaslagur Panathinaikos og Olympiakos í grísku knattspyrnunni í dag í Aþenu ÞAÐ eru forsetakosningar í Grikklandi í vor með tilheyr- andi eftirvæntingu og umfjöll- un fjölmiðla þar sem for- setaefnin fjögur slást um athygli þeirra og almennings. En síðustu daga hafa fréttir af kosningunum þó mátt láta í minni pokann fyrir öðrum við- burði í grísku þjóðlífi sem í augum margra skiptir meira máli en hver stjórnar landinu næstu árin. Knattspyrnu- stórveldin Olympiakos og Panathinaikos eigast við í dag og þó þetta sé aðeins 25. um- ferðin af 34 í grísku deilda- keppninni er þetta leikurinn sem getur ráðið úrslitum um meistaratitilinn í ár. Helgi Sig- urðsson leikur með Panathinaikos og er næst- markahæsti leikmaður liðsins á tímabilinu og Morgunblaðið ræddi við hann um þennan mikilvæga leik. Helgi er 25 ára sóknarmaður og er að leika sitt fyrsta tímabil með Panathinaikos. Eftjr Félagið keypti hann Viði í ágúst frá Stabæk í Sigurðsson Noregi fyrir 127 milljónir króna og Helgi skrifaði undir þriggja ára samning. Hann á að baki 30 A- landsleiki fyrir ísland, auk 43 leikja með yngri landsliðunum. Hjá Sta- bæk lék Helgi rúm tvö ár og skor- aði þar 26 mörk í 52 leikjum í úr- valsdeildinni, auk þess sem hann tryggði Stabæk sigur í norska bik- arnum með tveimur mörkum gegn Rosenborg haustið 1998. Olympiakos meistari þrjú síðustu árin _______________ Panathinaikos, sem er frá höfuð- borginni Aþenu, hefur alla tíð verið í fremstu röð í Grikklandi og unnið gríska meistaratitilinn í 21 skipti, auk þess sem félagið hefur 15 sinnum orðið bikarmeistari. En Olympiakos, sem hefur bækistöðvar í Pireus, hafnar- borg Aþenu, er þó enn sigursælla og státar af 28 meistaratitlum og 20 bikarsigrum. Og það sem meira er, Olympiakos hefur haldið meistarabikarnum í sínum herbúðum undanfarin þrjú ár, auk þess sem félagið varð einnig bikarmeistari á síðasta tímabili. Pað er staða sem fylgismenn Pana- thinaikos eiga erfitt með að þola og þeir þrá ekkert meira en sigur á erkifjendunum á sunnudaginn. Þrjú stig skilja liðin að - 01- ympiakos er með 66 stig og Pana- thinaikos 63. Næsta lið, OFI frá Krít, er með 49 stig og þar á eftir kemur AEK með 40 stig. Yfirburðir stórveldanna tveggja eru algjörir. Mikil öryggisgæsla og ólýsanleg stemmning Helgi á von á ólýsanlegri stemmningu á Spiros Louis, 01- ympíuleikvanginum í Aþenu, sem er sameiginlegur heimavöllur fé- laganna beggja. „Þetta er heima- leikur Olympiakos og því fá þeir fleiri miða en okkar menn. Völlur- inn tekur 75 þúsund manns en vegna gífurlegra öryggisráðstafana verða áhorfendur sennilega ekki nema 65 þúsund. Það liggur síðan við að það verði jafnmargir lög- reglumenn og áhorfendur, enda veitir varla af þar sem búist er við miklum látum. Sérstaklega ef okk- ur tekst að sigra.“ Helgi hefur skorað 7 mörk í deildakeppninni í vetur. Marka- hæstur er gríski landsliðsmaðurinn Nikolaos Liberopoulos með 9 mörk en síðan koma Helgi og miðjumað- urinn Yeorgios Karagounis með 7 mörk hvor. Helgi hefur þó mátt sætta sig við að vera ýmist í byrj- unarliðinu eða á varamannabekkn- um í vetur og oft mátt víkja fyrir Helgi Sigurðsson sést hér kominn út að hliðarlínu til að fá sér vatnssopa í einum leik með Panathinaikos. Helgi stefnir á meistaradeildina Helgi Sigurðsson er hér i baráttu við Eric Akoto hjá austurríska liðinu Graz í UEFA keppninni. hinum 35 ára gamla Pólverja, Krzysztof Warzycha, sem er mesti knattspyrnudýrlingur Panathinai- kos á síðari árum og nánast í guða- tölu hjá áhangendum félagsins enda margoft orðið markakóngur grísku deildakeppninnar. Warzycha er ótrúlega seigur „Við spilum yfirleitt aðeins með einn mann fremstan, sem þá er annaðhvort ég eða Warzycha, og síðan er Liberopoulos í frjálsri stöðu fyrir aftan. Warzycha er kóngurinn hérna og gerði í vetur nýjan 5 ára samning við félagið, þrátt fyrir aldurinn. Það er þó að- eins reiknað með því að hann spili einn vetur enn og fari síðan í stjórnunarstarf hjá félaginu. Hann er ótrúlega seigur en menn segja að hann sé þó ekki lengur í líkingu við það sem hann var, enda hefur hann aðeins gert 5 mörk í vetur. Hann er samt gífurlega duglegur, hleypur eins og 18-19 ára strákur og leggur hart að sér á æfingum. Það er að sjálfsögðu oft óþægilegt að vera í þessari stöðu, vera ýmist inni eða úti, en Warzycha hefur verið framherji númer eitt í 10 ár og honum er ekki hent út í kuldann. En þetta er allt í lagi, ég reiknaði aldrei með því að spila alla leiki á fyrsta ári og er mjög rólegur yfir þessu. Ég býst við því að þjálfarinn velji Warzycha frekar en mig í byrjunarliðið á sunnudaginn, það er mín tilfinning að hann treysti á reynslu hans í svona leik og setji mig frekar inn á þegar líður á leik- Helgi segir að leikurinn hafi úr- slitaþýðingu fyrir Panathinaikos og megi alls ekki tapast. „Ef Olympiakos vinnur er liðið komið með sex stiga forskot. Mun- urinn á bestu liðunum og hinum er það mikill að ég sé þá alls ekki tapa fyrir öðrum en okkur það sem eftir er tímabilsins, þannig að það verð- ur nánast útilokað að ná þeim ef við töpum leiknum. Jafntefli yrði í lagi, en þá yrðum við samt að treysta á tvö jafntefli hjá þeim. En ég er mjög bjartsýnn, ég tel að við séum með mun betra lið og við höfum spilað betri knattspyrnu en þeir í vetur. Við unnum þá meðal annars mjög sannfærandi í fyrri leiknum, 2:0, og hefðum getað skorað fimm til sex mörk. En það er mikil seigla í liði Olympiakos, það hefur hvað eftir annað tryggt sér sigra á loka- mínútum leikjanna. Þá er ekki ein- leikið hvað dómararnir hér bera mikla virðingu fyrir Olympiakos því liðið hefur fengið fimm til sex vítaspyrnur hreinlega gefins. Það er eins og grískir dómarar séu hræddir um að missa stöðu sína ef þeir dæma gegn meisturnum." Miklu betra í Grikklandi en ég þorði að vona Að sögn Helga er allur almenn- ingur á bandi Panathinaikos í þess- um mikilvæga leik. „Olympiakos hefur unnið titilinn þrjú ár í röð og fólk telur að tími sé kominn til að krýna nýja meistara. Staða liðsins er líka ekki ósvipuð og hjá KR heima á íslandi. Annað hvort elskar þú Olympiakos eða hatar, það er enginn millivegur.“ Helgi er að ljúka fyrsta ári sínu af þremur hjá gríska félaginu og á ekki von á öðru en að hann leiki þar næstu árin. „Mér líður mjög vel hér í Grikk- landi og það er frábært að vera í herbúðum Panathinaikos - miklu betra en ég þorði að vona þegar ég kom hingað. Ég sé ekki annað en að ég verði hér um kyrrt, það er allavega ekkert annað uppi á ten- ingnum. Næsta tímabil getur orðið geysilega spennandi. Við förum beint í meistaradeild Evrópu ef við verðum meistarar, en ef við endum í öðru sæti förum við í eina úrslita- umferð þar sem spilað er um sæti í meistaradeildinni. Það yrði stór- kostlegt að komast þangað,“ sagði Helgi Sigurðsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.