Morgunblaðið - 26.03.2000, Page 18
18 SUNNUDAGUR 26. MARS 2000
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Með gerviskegg
og bumbu
LEIKLIST
lieiklistarklúbburinn
Aristófanes sýnir í
Fjölbrautaskðlanum
B r e i ð h o 11 i.
TÍU LITLIR NEGRA-
STRÁKAR
Eftir Agöthu Christie í leikstjórn
Ragnheiðar Elínar Gunnarsddttur.
22. mars.
ÞAÐ er merkilegur árangur í
sjálfu sér að gera hefðbundið „hver-
gerðiþað“ sakamálaleikrit eftir sögu
Agöthu Christie að eins konar leik-
húsi fáránleikans. Þetta er ekki illa
meint, síður en svo. Sýning Aristó-
fanesar á Tíu litlum negrastrákum
er dásamlega hrein og bein. Eins
heiðarleg tilraun og hægt er að ætl-
ast til af hópi íslenskra menntaskóla-
nema að leika breskt miðstéttarfólk
á miðjum aldri og þaðan af eldra á
fjórða áratug 20. aldarinnar sem
keppist við að sötra viský. Ekki spill-
ir að í leikhópnum eru stúlkur í
meirihluta og tvær þeirra láta sig
ekki muna um að leika annars vegar
kvensaman glaumgosa og hins vegar
elliæran hershöfðingja. Skegg og
bumba hershöfðingjans var hrein-
asta snilld. Og brytinn var farðaður í
framan eins og hann tilheyrði
Munster-fjölskyldunni, sá eini í
hópnum sem var svona náfölur frá
upphafi. Skápahommi segir í leik-
skránni einsog til skýringar á
litaraftinu.
Sagan er spennandi og leikendur
létu ekki sitt eftir liggja til að auka á
spennuna. Tíu gestir koma saman í
skrýtnu húsi á eyðieyju og hafa hver
um sig nokkuð vafasama fortíð. Þeg-
ar þeir fara að týna tölunni hver af
öðrum með voveiflegum hætti æsist
leikurinn og spumingin snýst um hið
óumflýjanlega; er morðingi á meðal
þeirra? Drepast þau öll eða verður
einn eftir?
Leikstjóri sýningarinnar er ung
stúlka, nýútskrifaður leikari frá
Bretlandi, Ragnheiður Elín Gunn-
arsdóttir, en hún stundaði nám við
London Academy of Music and
Dramatic Art. Ragnheiður miðlar
hér af kunnáttu sinni til hinna ungu
leikenda og tekst vel upp í ýmsu eins
og t.d. að staðsetja leikendur hér og
þar á sviðinu og sviðsetja dauðdaga
persónanna með tilþrifum en þó
hefði hún mátt gæta betur að texta-
meðferð einstakra leikenda, þar fór
sumt framhjá áhorfendum vegna
hraðmælgi og óskýrleika.
Birna Björnsdóttir í hlutverki
hinnar trúuðu piparmeyjar Emily
Brent var ágætlega skýrmælt og
hafði góða hugmynd um persónu
sína. Svo var einnig um Elínu Heiðu
Hjartardóttur í hlutverki einkaritar-
ans Veru Claythorne. Ámi Rúnar
Kristjánsson tók sig vel út með yfir-
varaskeggið og í hlutverki Blores
einkaspæjara. Þá var Ingibjörg Guð-
mundsdóttir skemmtilega þreytuleg
nöldurskjóða sem ráðskonan frú
Rogers.
Af skemmtilegum umsögnum leik-
hópsins í leikskrá um persónur
verksins má ráða að þeim hefur
fundist gaman að glíma við þær gam-
aldags og forpokuðu manngerðir
sem þar birtast. Þessi skoplega sýn
hefði mátt sjást betur í sýningunni
og hefði leikstjórinn getað stýrt
þeirri hugsun með markvissari
árangri en hér birtist. Umgjörð sýn-
ingarinnar hefur greinilega verið
unnin af natni þrátt fyrir lítil auraráð
hópsins. Lausnin með dyr á hliðum
sviðsins var einföld og svalir upp-
sviðs gáfu hugmynd um víðáttu. Þýð-
anda verksins er hvergi getið í leik-
skrá en greinilegt var að
leikhópurinn hafði fært sumar setn-
ingarnar til nútímatalmáls og stakk
það svolítið í stúf við formlegt málfar
þýðingarinnar að öðru leyti.
Þetta er dálítið skrítin sýning en
skemmtileg og eins og sagði í upp-
hafi óneitanlega svolítið absúrd.
Hávar Sigurjónsson
S kólavo rtó nl eikar
á Akranesi
SKÓLAHLJÓMSVEIT Akraness munandi stigum náms á blásturs- og
heldur vortónleika sína í Bíóhöllinni slagverkshljóðfæri í Tónlistarskól-
á Akranesi í dag kl. 14. Á tónleikun- anum á Akranesi. Stjórnendur sveit-
um koma fram þrjár lúðrasveitir, anna eru Atli Guðlaugsson og Heið-
skipaðar um 60 nemendum á mis- rún Hámundardóttir.
Innsetningin á Tvíæringnum í
Berlín 1998.
Ólafur Elíasson við eitt verka sinna í Listhöllinni í Basel árið 1996.
Umsvif og uppgangur
ÞAÐ mun trúlega ekki hafa farið
framhjá lesendum blaðsins, að rýnir-
inn er einn þeirra er stíft vilja halda
fram norrænni myndlist og norræn-
um einkennum í listum yfirhöfuð.
Öllu öðru fremur, eru það rann-
sóknir á list norðursins og þá ekki
einasta Norðurlanda heldur einnig
Norður-Evrópu sem hafa mótað
skoðanir hans og eflt þær í áranna
rás. Athygli heimsins hefur í sívax-
andi mæli beinst að þessu svæði,
einkum er ljós norðursins mörgum
hugleikið, áhrif birtumagna þess á
listamenn og verk þeirra. Næsta
grein mín fjallar þannig mikið til um
farandsýningu sem er samvinnu-
verkefni Þjóðlistasafns Kanada í
Ottawa, Listahallar Hamborgar og
Thorvaldsens-safnsins í Kaup-
mannahöfn og nefnist „í ljósi Caspar
Davids Friedrichs“ og hefur eins og
nafnið vísar til með birtumögnin að
gera, í þessu tilviki er teflt saman
norður-þýskum og dönskum útivist-
armálverkum, Freiluftsmaleri, eins
og fyrirbærið nefnist á máli Þýð-
verja. Gerði ég mér sérstaka ferð til
Hamborgar til að skoða sýninguna
sem lýkur þar 26. mars, en það gerir
minna til þar sem hún kemur nær
okkur, en síðasti áfangi hennar er
Thorvaldsenssafnið og verður þar
uppi 19. apríl-18. júní. Þá ber að
geta þess, að sýningu Guðmundar
Errós á Jeu de Paume, gamla im-
pressjónistasafninu lauk í janúar-
byrjun og mun hún hafa vakið
drjúga athygli í París, myndefnið að
vísu sótt í pólitík en ekki ljós norð-
ursins.
Tilefni þessa skrifa er þó framar
öðru grein um hinn unga Ölaf Elías-
son í marshefti hins virta listtíma-
rits, art, Das Kunstmagazin, sem
gefið er út í Hamborg og er í harðri
N Y LITAPRENTVEL
HAGÆÐA FILMUUTKEYRSLA
HÖNNUN OG UMBROT
FLJÓT OG GÓÐ AFGREIÐSLA
FILMUGERÐ:
• mjög hraövirk útkeyrsla
• stæröir allt aö 550 mm x 609 mm
• Rastaþéttni allt aö 200lpi
• upplausn allt aö 3000 dpi
• útskot í A2 stæröum
• útskotnar filmur geta komiö tilbúnar
punchaöar
• styöur PostScript Level 1 og 2,
PostScript 3, PDF 1.2. TIFF 6.0, EPS
og JPEG
• möguleiki á útkeyrslu í slembirasta
PERSONULEG ÞJONUSTA
OFFSETPRENT ehf.
AUÐBREKKU 8 • 200 KÓPAVOGUR • SÍMAR 564 6020 - 564 6021 • FAX 564 6022
samkeppni við útbreiddustu list-
tímarit veraldar. Eg hef verið áskrif-
andi þess frá upphafi og get staðfest
að aldrei hafi jafn ítarlega verið fjall-
að um íslenskan myndlistarmann í
ritinu. Ólafur hefur þó áður komið
þar við sögu, en ekki í sama mæli.
Um er að ræða sérgrein í miðju þess,
prýdda mörgum myndum aðskilj-
anlegustu innsetninga ásamt ljós-
myndum af íslensku landslagi sem
listamaðurinn hefur tekið á ferðum
sínum. Hinn 32 ára gamli listamaður
er af íslensku foreldri, sonur Ingi-
bjargar Ólafsdóttur og Elíasar Hjör-
leifssonar, en ólst upp í Kaupmanna-
höfn og er menntaður þar. Danir
vilja auðvitað eigna sér hann og
halda honum fram sem dönskum
listamanni og er meira en skiljan-
legt, enda upphaflega skjólstæðing-
ur Gallerí Stalke á Vesturbrúgötu,
sem er með sambönd víða um heim
sem segir ekki svo lítið (Gunnar Örn
málari að Kambi á Rangárvöllum er
einnig á lista Stalke). Danir hafa nú
sumir hverjir einnig verið að remb-
ast eins og rjúpa við staur við að af-
sanna að Thorvaldssen hafi verið
sonur pabba síns!
Sjálfur telur Ólafur sig íslending
sem kemur strax í upphafi fram í
nefndri grein, ... der in Berlin
lebender Islander, 2 ...
Greinin, sem nefnist „Installation-
en aus Luft und Licht“ eða innsetn-
ing af ljósi og lofti, hefst á því að
greint er frá þátttöku hans í Berlín-
ar Bienalnum (Tvíæringnum) í
Mitte-hverfinu 1998. Hermt er frá
hinu svífandi loftræsiverki hans í
kúppulhvelfingu fyrrverandi sam-
göngumiðstöðvar, Postfuhramt, sem
vakti mikla athygli. Það var þá sem
ég heimsótti Ólaf á leið minni heim
frá París og Kjarvalsstofu, skoðaði
sýninguna og greindi frá henni í
greinarflokki seinna og taldi verkið
hið áhrifamesta á Tvíæringnum, þá
hafa verk hans endurtekið skarað
skrif mín. I greininni í, art, Das
Kunstmagzin, er í viðtalsformi sagt
frá ferli Ölafs og helstu sýningum á
undanförnum árum, en umsvif og
uppgangur mannsins er með ólíkind-
um, einkum síðustu tvö árin. Ólafur
Elíasson virðist réttur maður á rétt-
um stað á réttum tíma, því stefna og
metnaður Berlínarborgar er að taka
forustuna sem listaborg heimsins og
heldur sínum stíft fram eins og
þeiri’a er háttur sem kunna sig í
þeim margslungna og flókna pat-
aldri. Berlín vanrækir þannig sann-
arlega ekki þá mikilvægu hlið borg-
armenningar, á sama tíma og hún er
að rísa upp á ný sem ein af höfuð-
borgum heimsins og mikill lærdóm-
ur falinn í því að vera með á nótunum
og hafa hér augun galopin. Á
Potsdamer Platz var reistur sérstak-
ur útsýnistum þar sem menn hafa
getað fylgst með því hvernig skýja-
kljúfarnir hafa risið upp allt um
kring á undanförnum árum, og er
það einstakt og spennandi sjónar-
spil. Öll tækniundur byggingariðn-
aðarins taka þátt í þessu risavaxna
verkefni og nútæknina notar hsta-
maðurinn Olafur Elíasson sömuleið-
is til hins ítrasta í verkum sínum, er í
beinu sambandi vítt og breitt um
listheiminn. Hefur tekið þátt í
Tvíæringum í Istanbul og Jóhannes-
arborg (1997), Sao Paulo og Sydney
(1998) og síðastliðið sumar í Feneyj-
um, einnig átt verk á MoMA í New
York. Næstu einkasýningar verða
helstar í Irish museum of Modern
Art í Dublin, Neue Galerie Graz og
Art Instutite of Chicago. Engin
lognmolla hér.
Ólafur Elíasson skilgreinir list
sína í fáum dráttum á þann veg, að
meginföng innsetninga sinna séu
öðru fremur ljós, loft, þyngd og hita-
stig ásamt náttúrunni í ljósi tengsla
hennar við menninguna. Hann fer
þannig síður til íslands til að finna
og upplifa nánd íslenskrar náttúru,
heldur fer hann þangað til að skoða
íslenska náttúru, segist hafa lesið
metsölubók Jan Krakauer af stakri
athygli: Ungur maður ferðast um
villtar óbyggðir Alaska, ekki til að
minnast við náttúruna, heldur til að
skilgreina afstöðu sína til náttúrunn-
ar. List Ólafs hefur og ekkert með
Land Art að gera að eigin sögn.
Jafnan fara um rýninn heitir
straumar, er fréttir af velgengi ís-
lenskrar og norrænnar listar berast
um heimsbyggðina. Bjargföst trúa
mín er að þetta sé einungis upphafið,
því norræn myndlist hafi í kjarna
sínum svo mikið til brunns að bera.
Bragi Ásgeirsson
M-2000
Sur
mai
Sunnudagur 26.
Kirkju-
hvoll Akra-
nesi. KI. 20.
Ljóðalestur
Gestum boðið að hlýða
á ljóðalestur í Kirkjuhvoli.
www.akranes.is
Vetraríþróttahátíð ÍBR
Skíðadagur á skíðasvæðunum
Skíðafélögin kynna starfsemi sína,
aðstoða við kennslu, barnapössun,
uppsetningu brauta og fleira.
www.ibr.is
Skíðaganga í Heiðmörk
Skipulögð skíðaganga fyrir al-
menningí Heiðmörk kl. 10:00-13:00.
www.ibr.is
Mánudagur 26. mars.
Heiðmerkurganga
Skógur í vetrarbúningi er yfir-
skrift göngunnar sem efnt er til í til-
efni 50 ára afmælis Heiðmerkur.
Skógurinn verður skoðaður með til-
liti til þess hvaða skjól hann veitir.
Einnig verður gaumgæft hvernig
trjágróður hefst við yfir veturinn og
hverjir dvelja í skóginum. Lagt
verður af stað frá Umferðarmið-
stöðinni kl. 13.00 með viðkomu í
Mörkinni 6. Einnig er hægt að koma
á einkabílum á upphafsstað göngun-
ar sem er áningarstaðurinn við
Helluvatn. www.heidmork.is
www.reykjavik2000.is