Morgunblaðið - 26.03.2000, Page 20
20 SUNNUDAGUR 26. MARS 2000
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Langholtskirkj a
Bach-
kantata
í messu
KANTATA nr. 147, „Herz
und Mund und Tat und
Leben“ (Hjarta, munnur, verk
og líf) eftir Johann Sebastian
Bach verður flutt í messu í
Langholtskirkju í dag, sunnu-
dag, sem er Boðunardagur
Maríu. Flytjendur eru Kór
Langholtskirkju ásamt 16
manna Kammersveit Lang-
holtskirkju.
Einsöngvarar eru: Ólöf Kol-
brún Harðardóttir, Nanna
María Cortes, Jónas Guð-
mundsson og Bergþór Pálsson
og stjórnandi Jón Stefánsson.
Kantatan er samin fyrir
Heimsóknardag Maríu (2. júlí)
en sá dagur er ekki haldinn
hátíðlegur lengur og hefur
runnið saman við Boðunardag
Maríu.
Kantatan er í tveim hlutum
og verður flutt sitt hvorum
megin við predikun.
Bach lauk við kantötuna ár-
ið 1723 en hafði samið hluta
hennar 1716. Texti guðspjalls-
ins er úr upphafskafla Lúka-
sarguðspjalls og fjallar um
það þegar Gabríel erkiengill
boðar Maríu að hún muni
verða þunguð og segir frá
heimsókn Maríu til Elísabet-
ar, konu Sakaría, er þá var
þunguð af Jóhannesi skírara
og bamið tók viðbragð í móð-
urlífi er það fann nálægð Mar-
íu.
Auk kantötunnar leikur Jón
Stefánsson tvo sálmforleiki, 0
Mensch, bewein dein Súnde
GroB og Es ist das heil uns
kommen her, en báðir tengj-
ast þeir sálmum sem sungnir
verða. Auk þess leikur Jón
Prelúdíu og Fúgu í D-dúr.
Flutningur kantötunnar
verður helgaður minningu
Lárusar Sveinssonar trompet-
leikara er lést fyrir skömmu.
Þessi kantata var eitt fyrsta
verk sem hann lék á tónleik-
um með kórnum árið 1980 en
hann lék með kórnum í nánast
öllum stærri verkum sem
kröfðust trompeta, nú síðast í
Jóiaóratoríunni sl. jól. Með
þessu vilja kórinn og kirkjan
votta honum virðingu og þökk
fyrir mikið og gott starf í
þágu kirkjunnar.
Barnaleikritið Júlíus frumsýnt í Hafnarfjarðarleikhúsinu
Að hlusta
á sína innri
rödd
ÍSLENSKA leikhúsið og Hafnar-
fjarðarleikhúsið frumsýna leikverkið
Júlíus í Hafnarfjarðarleikhúsinu í
dag, sunnudag. Verkið er innblásið
af samnefndri bamabók eftir Anne-
Marie Chapouton og Jean Claverie
en hún hefur hlotið tilnefningu til
þekktra bókmenntaverðlauna. Thor
Vilhjámsson þýddi og Mál og menn-
inggaf bókina út.
Gildi þess að vera
maður sjálfur
Verkið fjallar í stuttu máli um Júl-
íus, lítinn dreng sem lifir í sátt og
samlyndi við náttúmna og umhverfi
sitt og fer svolítið sínar eigin leiðir í
tilverunni, en mætir stundum harka-
legum viðbrögðum frá samfélagi
manna. Hann er að leita að samastað
og í þeirri leit hittir hann manneskj-
ur, verar og náttúrukrafta sem hafa
áhrif á hann. Hann reynir að læra af
samferðafólki sínu og tileinka sér hin
óskráðu lögmál - en ekki er allt sem
sýnist og margt verður að læra af
reynslunni.
Þórarinn Eyfjörð, leikstjóri verks-
ins, segir að leiksýningin sé spunnin
út frá sögunni um Júlíus. „Þetta er
falleg saga sem fjallar um gildi þess
að vera maður sjálfur, hlusta á sína
innri rödd og treysta henni, um leið
og maður treystir því að allir séu vel
af guði gerðir."
Veruleikhús fyrir
börn á öllum aldri
Þórarinn segir að sýningin geti
hentað fyrir böm á öllum aldri.
„Vissulega getur sagan og boðskap-
ur hennar farið fyrir ofan garð og
neðan hjá yngstu börnunum en þau
ættu hins vegar að geta notið sjónar-
spilsins sem fram fer, en í verkinu
koma við sögu brúður, leikarar, ver-
ur, grímur og tónlist. Leikverk sem
þetta mætti nefna veruleikhús, sem
á ensku hefur verið kallað „object
theatre", en sú aðferð við leiksýning-
ar hefur ekki verið mikið notuð hér-
lendis þótt vel þekkt sé í Evrópu.
Munurinn á veruleikhúsi og hinu
hefðbundna leikhúsi er einfaldlega
sá að í því fyrmefnda koma ekki að-
eins leikarar við sögu heldur og hin-
ar ýmsu verur og brúður og grímur
Morgunblaðið/Ásdís
„Sagan höfðar til hins óbeislaða
ímyndunarafls, vekur til um-
hugsunar og er jafnframt full af
sígildum boðskap sem á erindi
til okkar allra,“ segir Þórarinn
Eyfjörð, leikstjóri Júlíusar, en
hér sést Ásta Hafþórsdóttir með
eina af brúðum sýningarinnar.
og gervi og hlutir. Sagan höfðar til
hins óbeislaða ímyndunaraíls, vekur
til umhugsunar og er jafnframt full
af sígildum boðskap sem á erindi til
okkar allra. En sagan er sem sé einn-
ig sjónrænt skemmtileg þó að ekki
séu mikil læti í henni, yngstu bömin
ættu að geta notið hennar vegna
þess að við leggjum mikið upp úr því
að vinna ekki með hávaða og grodda-
gang sem oft fylgir barnasýningum."
Sýningunni boðið á
alþjóðlega leiklistarhátíð
Hafnarfjarðarleikhúsið hefur ný-
verið, fyrst sjálfstæðra leikhúsa á
Islandi, gert þríhliða samning við
heimabæ sinn og menntamálaráðu-
neytið um reglulega starfsemi til
fimm ára. Leikverkið Júlíus er eitt af
þeim verkum sem njóta góðs af þeim
samningi.
Sýningunni hefur þegar verið boð-
ið til Finnlands, á alþjóðlega leiklist-
arhátíð.
Morgunblaðið/Ásdís
„Munurinn á veruleikhúsi og hinu hefðbundna leikhúsi er einfaldlega sá
að í því fyrmefnda koma ekki aðeins leikarar við sögu heldur og hinar
ýmsu verur og brúður og grímur og gervi og hlutir.“
Leikarar o g listrænir
stjórnendur
JÚLÍUS, spunaverk út frá samnefndri bamabók í þýðingu Thors Vil-
hjálmssonar.
Leiksljóri: Þórarinn Eyfjörð.
Leikarar: Ásta Hafþórsdóttir, Tómas Lemarquis og Pétur Grétars-
son.
Höfundur brúða, gerva og grímna: Asta Hafþórsdóttir. Henni til að-
stoðar er Eva Guðbjörnsdóttir.
Tónlist: Pétur Grétarsson.
Leikmynd: Egill Ingibergsson.
Búningar: Arnþrúður Ösp Karlsdóttir.
Hálfvirði og flug
innifalið
Örfáir klefar á
þessum kjörum,
ef staðfest er
fyrir 4. apríl.
VERÐ frá kr. 189.440
Einstakt tækifæri
Southampton,
Portúgal,
Spánn, Mónakó,
Ítalía,
Korsíka, Gíbraltar,
Southampton.
Útnefnd í alþjóðasamtökin EXCELLENCE IN
TRAVEL NETWORK, fyrir frábærar ferðir
h fc K U K K I S UfcAN
PRIMAt
IIIMSKI UBBUK INC.ÓI rs
Austurstræti 17, 4. hæð, 101 Reykjavík, simi 562 0400, fax 562 6564,
netfang: príma @ heimsklubbur.is, heimasíða: http://wym.heimsklubbur.is
Tantonir: simi
5620400
5 finur
EITT GLÆSILEGASTA SKIP HEIMSINS !
Listaklúbbur Leikhúskiallarans
Mannkynssaga
fyrir byrjendur
BRYNHILDUR Björnsdóttir sópr-
ansöngkona og leikkona heldur
tónlcika ásamt Ólafi Vigni Al-
bertsyni í Listaklúbbi Leikhús-
kjallarans á
morgun, mánu-
dagskvöld, kl.
20.30.
Tónleikarnir
bera yfir-
skriftina
„Mannkynssaga
fyrir byrjend-
ur“ og verða
þar flutt lög eft-
ir Gustaf
Mahler, Jórunni
Viðar, Kurt WeiII, Jerome Kern,
Hjálmar H. Ragnarsson, Leonard
Bernstein og Cole Porter svo ein-
hverjir séu nefndir auk þjóð-
lagaútsetninga eftir Benjamin
Britten og Herbert Hughes.
Þessi lög eiga það sameiginlegt
að fjalla á einn eða annan hátt
um ástina, gleði hennar og sorg-
ir, flest í léttum dúr en þó með
alvarlegu ívafi.
Brynhildur lauk prófi frá
Drama Studio London 1994 og
burtfararprófi (Advanced Certif-
icate) frá Söngskólanum í Reykja-
vík 1999.
Hún leikur nú
hlutverk Brún-
hildar og Lufsu
í barnaleikritinu
Töfratívolí og
tekur virkan
þátt í dag-
skráuni „Það
sem ekki má“
ásamt félögum
sinum í Tísku-
kórnum.
Einnig er hún
félagi í Schola cantorum.
Ólafur Vignir Albertsson er
kennari við Söngskólann í
Reykjavík.
Brynhildur
Bjömsdóttir