Morgunblaðið - 26.03.2000, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 26. MARS 2000 23
Margrét Dóra Gísli Tryggvi Þór
Ragnarsdóttir Pálsson Herbertsson
um sem þurfti til að taka skynsam-
lega fjárfestingarákvörðun. Við-
skiptakostnaður hefur einnig lækkað
mikið með tilkomu Netsins. Nú er
hægt að bjóða fasta þóknun á fjár-
hæð.
í rauninni er það einfalt mál að
annast sín verðbréfaviðskipti á Net-
inu. Fyrirtæki eða einstaklingar sem
ætla að versla með verðbréf á Netinu
þurfa að byrja á því að skrá sig hjá
verðbréfafyrirtækjum og stofna til
verðbréfareiknings. Þegar það er
komið þá geta þeir farið að kaupa
verðbréf inn á þennan reikning.
Þegar fjárfestingarákvörðun er
tekin er hægt að annast viðskiptin á
örfáum mínútum.
Þessi tækni er á færi allra sem
hafa áhuga á hlutabréfamarkaðnum
hvort sem hann er erlendur eða inn-
lendur," segir Kjartan.
Netvæðing á þessu sviði hefur
margvíslega hagræðingu og sparnað
í för með sér fyrir fyrirtækin. Utibú
bankanna verða óþörf og ekki þörf á
eins mörgum starfsmönnum. Það má
geta þess að starfsemi Netbankans
sem er í eigu Sparisjóðs Reykjavíkur
og nágrennis er rekin í 20 fm hús-
næði með örfáum starfsmönnum. Að
sögn Geirs Þórðarsonar fostöðu-
manns Netbankans er stöðug og jöfn
aukning á viðskiptum við bankann.
Er það einkum yngra fólkið, 30 ára
og yngri, sem nýtir sér þjónustuna.
„Sparnaðurinn sem er af þessum
rekstri kemur svo fram í hærri inn-
lánsvöxtum og lægri útlánsvöxtum,"
segir hann.
Bylting að verða í íslenskri
netverslun
„Líkt og í öðrum löndum eru
verslanir að færa sig yfir á Netið
þótt sú þróun hafi gengið fremur
hægt fyrir sig hér á landi. Nú er að
verða breyting á því með stórauknu
framboði af netverslunum. Á næstu
mánuðum verða opnuð mörg ný vef-
svæði fyrir almenna neytendur og
fyrirtæki eins og Veftorg en þar er
Landssíminn stærsti hluthafinn, S
l.is sem rekið verður af vefdeild
Skjás 1., e Kringlan.is sem er í eigu
Gagnvirkrar miðlunar. Einnig má
búast við auknu framboði á vöru og
þjónustu frá aðilum eins og Strik.is
og Visir.is að ógleymdum einstökum
fyrirtækjum sem hyggja á strand-
högg ein og sér eða í slagtogi við
aðra. „Við munum sjá byltingu á
þessu sviði á komandi misserum,
segir Kjartan Guðbergsson," ráð-
gjafi hjá Gæðamiðlun-GSP sem
þekkir vel til þessara mála.
„Við munum fljótlega verða vör
við stóraukið úrval af vörum og þjón-
ustu og eflaust mun bera meira á
möguleikum til samanburðar sem
þýðir að hægt verður að skoða við-
líka vörur frá mismunandi framleið-
endum og sömu vöruna og þannig
getur fólk tryggt sér hagstæðasta
verðið. Gera má ráð fyrir að nýjum
aðferðum verði beitt til að aðstoða
viðskiptavininn við að finna þá vöru
sem hentar.“
Kjartan telur að alltaf muni stór
hópur fólks frekar vilja kaupa af
Netinu vegna þess að það getur ver-
ið ódýrara en tvímælalaust sé það
hagræðingin sem skipti mestu máli.
Uppboðsmarkaður á Netinu
ráðandi viðskiptamáti
Gera má ráð fyrir að þróunin hér á
landi verði líkt og erlendis að á Net-
inu verði selt allt milli himins og
jarðar.
„Mesta gróskan í netverslun til
dæmis í Bandaríkjunum til einstakl-
inga er í húsum og bílum,“ segir
Kjartan. „Fyrirtæki kaupa jafnvel
flugvélar á Netinu. Það vefsvæði
sem veltir þó mestu er lokað vef-
svæði þar sem verslað er með hrá-
vöru eins og kol, olíu, rafmagn, hrís-
grjón og sykur. íhaldssöm spá sem
birt var fyrir 12 mánuðum gerir ráð
fyrir að árið 2003 fari 7% af öllum
viðskiptum í heiminum fram um
Netið.
En hvernig stendur á því að ís-
lensk netverslun hefur farið svona
hægt af stað?
„Ein aðalástæðan fyrir því er sú
að dreifingarkerfi á vörum hefur
ekki verið fyrir hendi en úr því er að
rætast með nýrri dreifingarþjónustu
á vegum íslandspósts," segir Kjart-
an.
Á Netinu eru erlendar netgáttir
sem bjóða upp á uppboðsmarkaði
eins og ebay.com. Þar er hægt að
selja alls konar vörur á uppboði. Um
daginn bauð maður nýra úr sér
hæstbjóðanda á slíkum markaði.
Uppboðsmarkaðirnir starfa þannig
að hægt er að óska eftir tilboði í
ákveðið magn af vöru. Fólk hefur til-
tekinn frest til að skila inn tilboði en
hægt er að taka tilboði eða hafna
þeim öllum.
„Þetta mun verða mjög ráðandi
viðskiptamáti í framtíðinni bæði milli
fyrirtækja og frá fyrirtækjum til ein-
staklinga," segir Kjartan.
„Annar viðskiptamáti sem Netið
býður upp á er á slóðinni letsbyi-
t.com sem gerir einstaklingum kleift
að taka sig saman um magninnkaup
á ákveðinni vöru þar sem óskað er
eftir tilboðum. Þannig er hægt að
lækka verðið og ná fram hagræðingu
fyrir bæði kaupanda og seljanda.“
Vörurnar ekki endilega ódýrari
Eftir fáeinar vikur mun Hagkaup
opna fyrstu matvöruverslunina þar
sem verður boðið upp á megnið af
þeim matvörum sem fást í verslun-
inni, að sögn Þórs Curtis verkefnis-
stjóra Netverslunar Hagkaups. Þar
verður einnig boðið upp á bækur,
geisladiska, myndbönd, DVD-diska
og tölvuleiki.
„Markmiðið er að selja flest það
sem Hagkaup býður upp á. I fram-
tíðinni verður einnig seldur fatnað-
ur,“ segir hann. „Matvöruverslun á
Netinu á eftir að spara fólki mikinn
tíma. Það getur slegið inn sinn
grunnpöntunarlista og þarf þá ekki
að slá pöntunina inn aftur og aftur.
Siðan getur viðskiptavinurinn náð í
vörurnar á leiðinni heim úr vinnunni
eða fengið þær sendar heim.
Þór segir að þetta þurfi þó ekki að
þýða að varan verði ódýrari. Net-
verslun sé þegar landsbyggðinni til
hagsbóta því henni gefist kostur á að
fá vörur eins og bækur, geisladiska
og tölvuleiki á sömu kjörum og þeir
sem búa á höfuðborgarsvæðinu.
Flestir þeir sem við ræddum við
eiga viðskipti á Netinu. Tryggvi seg-
ist til dæmis kaupa bækur í gegnum
Amazon.com. „Það tekur mig 3 daga
að fá bækumar hingað en áður tók
það mig jafnvel margar vikur,“ segir
hann.
„Ef ég er að leita að bókum um
sértæk efni get ég nálgast þær á
nokkrum dögum frá Bretlandi í
gegnum Netið einnig kaupi ég
geisladiska, myndbönd og DVD-
diska af Netinu," segir Margrét
Dóra. „En ég er ekki viss um að ég
myndi treysta mér til að kaupa fatn-
að á Netinu enn sem komið er.“
Fólk kaupir í auknum mæli flug-
ferðir og aðra ferðaþjónustu á Net-
inu. Talið er líklegt að á næstu ámm
muni því ferðaskrifstofum fækka.
Viðmælendur okkar sögðust flestir
kaupa farmiða á Netinu og nokkrir
þeirra sögðust einnig leita sér þar að
gistingu.
„I nóvember síðastliðnum átti ég
erindi til Santiago í Chile,“ segir
Tryggvi. „Ég hringdi í íslenska
ferðaskrifstofu og spurði hvað það
mundi kosta mig að að fara þangað.
Mér var sagt að það kostaði 3.000
dollara frá London. Þá fór ég á Netið
og leitaði að lægsta fargjaldinu og
það var 500 dollarar. Ég hringdi í ís-
lensku ferðaskrifstofuna og lét
starfsmanninn bóka þennan farm-
iða.“
Flugleiðir hafa komið upp mjög
fullkomnu bókunarkerfi á Netinu
fyrir almenning, þar sem menn geta
leitað að bestu leiðinni, hagstæðasta
verðinu og bókað það heima í stofu
hjá sér. Flugfélag íslands býður
einnig upp á kaup á farseðlum í inn-
anlandsflugi á Netinu.
Nýlega var stofnuð Bókunarmið-
stöð íslands sem á að gefa aðilum í
ferðaþjónustu tækifæri til að byggja
upp einn heildarvef og markaðssetja
Island bæði heima og erlendis. En
töluvert er að gerast á þessu sviði
hér á landi.
Erlendis hefur þróunin verið mjög
hröð. Árið 2003 er til dæmis áætlað
að um 20 milljónir pakkaferða verði
seldar í gegnum Netið í Evrópu af
400 milljón ferðum.
Listamenn hafa nýtt sér mögu-
leika Netsins en flestir listamenn
eru komnir með heimasíðu þar sem
þeir kynna list sína og sjálfa sig.
Gunnar Karlsson myndlistarmaður
rekur fyrirtæki sem heitir Skrípó og
býr til sjónvarpsteiknimyndir. Hann
notar Netið til að kynna list sína eins
og fleiri íslenskir listamenn. Hann
hefur hannað þrívíddarteikningu af
sal þar sem hann sýnir nokkur verka
sinna.
Á Netinu er einnig að fínna net-
gáttir sem bjóða upp á málverkaupp-
boð.
Hjólin snúast
I NANOQ
[ Nanoq er mikið úrval af hjólum, t.d. frá Diamant, K2 og Scott.
NANOQ*
Krlnglunni 4-12 ■ Slml 575 5100