Morgunblaðið - 26.03.2000, Síða 30
30 SUNNUDAGUR 26. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Ami Sæberg
Einar Bollason, Sigriín Ingólfsdóttir, Gitta Krichbaum og Bryndís Einarsdóttir.
ÆTLUMAÐBUA TIL
FLEIRIHESTAMENN
VIÐSKIPn AIVINNULÍF
Á SUNNUDEGI
► Einar Bollason er fæddur á Vesturgötu 38 í Reykjavík 6. nóvem-
ber 1943. Hann lauk stúdentsprófí frá MR1963 og stundaði laga-
nám í nokkur ár. Einar kenndi við Flensborg og Víðistaðaskóla
í Hafnarfirði í 20 ár. Frá árinu 1989 hefur hann starfað hjá í
shestum í fullu starfí. Einar lék körfuknattleik með KR og
íslenska landsliðinu í mörg ár. Hann var einnig landsliðsþjálfari
í körfuknattleik og var. formaður Körfuknattleikssambands
Islands um árabil.
Sigrún Ingólfsdóttir er fædd í Reykjavík 22. júlí árið 1947.
Hún lauk Verslunarskólaprófí árið 1966 og prófi frá íþróttakenn-
arskólanum á Laugarvatni árið 1967. Hún lauk stúdentsprófi
frá Flensborg árið 1982. Sigrún starfaði ýmist við kennslu eða í
Verslunarbankanum til 1989 er hún hóf fuilt starf hjá íshestum.
Sigrún lék handknattleik með Breiðabliki og síðar með liði
Vals sem vann oft Islandsmeistaratitilinn. Hún lék einnig með
landsliðinu og varð m.a. Norðurlandameistari árið 1964.
Sigrún og Einar eiga þijár dætur saman og Einar
á son og dóttur frá fyrra hjónabandi.
Einar Bollason íglæsilegu hesthúsi Hestamiðstöðvar
Ishesta í Hafharfirði.
HESTAMIÐSTÖÐIN í
Hafnarfirði var opnuð
formlega á dögunum en
þar reka íshestar ehf.
afþreyingamiðstöð við Sörlaskeið í
jaðri Gráhelluhrauns. Þótt íshestar
hafi frá upphafi sinnt lengri og
skemmri hestaferðum fyrir útlend-
inga og Islendinga verður margt
annað í boði í þessari afþreyingar-
miðstöð.
Einar Bollason og Sigrún Ing-
ólfsdóttir eru meðal stofnenda Is-
hesta og nú starfa þau bæði við fyr-
irtækið ásamt dóttur þeirra
Bryndísi og fleirum og eru meðal
eigenda fyrirtækisins.
Það var í nóvember árið 1982
sem þau ásamt Guðmundi Birki
Þorkelssyni, Bryndísi Guðlaugs-
dóttur, Arna Björgvinssyni og
Jenný Sigmundsdóttur ákváðu að
stofna fyrirtæki sem sérhæfði sig í
hestaferðum með aðsetur í Miðdal í
Laugardal. Lögð var áhersla á
styttri ferðir um nágrennið og
lengri ferðir yfir Kjöl. Arni og
Jenný drógu sig út úr fyrirtækinu
eftir fyrsta sumarið en Guðmundur
Birkir og Bryndís þegar þau flutt-
ust til Húsavíkur árið 1992. Þá
keyptu Einar og Sigrún þeirra hlut
og breyttu rekstrinum í hlutafélag.
Þá var allur rekstur lengri ferða
settur í hendur verktaka. Fyrir-
tækið annaðist hins vegar styttri
ferðir frá Kópavogi og Hafnarfirði.
Síðla árs 1998 komu Kynnisferðir
inn í fyrirtækið með viðbótarhluta-
fé og var það upphafið að byggingu
afþreyingamiðstöðvarinnar í Hafn-
arfirði. Nú eru hluthafar Ishesta
Sigrún, Einar og fjölskylda, Kynn-
isferðir, Nýsköpunarsjóður at-
vinnulífsins, Aflvaki hf., Ferða-
skrifstofa Islands, Asgeir
Thoroddsen og Mjólkurfélag
Reykjavíkur sem rekur útibú frá
hestavöruverslun sinni í húsnæði
Hestamiðstöðvarinnar.
Hesthús og veitingahús
í sömu byggingu
Bygging Hestamiðstöðvarinnar
hefur tekið skamman tíma og var
fyrsta skóflustungan tekin 22. júlí
sl. Um miðjan desember voru hest-
arnir komnir á hús og mannfólkið
flutti inn um miðjan janúar. Bygg-
ingin er 888 fermetrar að stærð.
Þar eru búningsherbergi, veitinga-
staður fyrir 80-110 manns í sæti,
verslun og skrifstofur.. Þessu teng-
ist með sal eða lítilli reiðhöll hest-
hús fyrir 54 hesta í 27 stíum sem
hver er 6 fermetrar að stærð, hlaða,
saggeymsla og áhaldageymsla .
Einnig er aðstaða fyrir starfsfólk,
þ.e. kaffistofa, búingsherbergi,
sturta og fleira.
Fullkláruð er er gert ráð fyrir að
miðstöðin kosti 110 milljónir króna,
en enn á eftir að ljúka við sólskála,
heita potta og baðhús auk frágangs
á lóð. Einar Bollason segir að með
þessari nýju afþreyingamiðstöð
muni áherslur fyrirtækisins breyt-
ast að mörgu leyti. Ljóst sé að vin-
sældir styttri hestaferða séu alltaf
að aukast og bygging miðstöðvar-
innar hafi að miklu leyti verið svar
við kröfum markaðarins.
Breyttar áherslur
„Eiginlega eru tvær ástæður fyr-
ir því að við erum að breyta áhersl-
unum," segir Einar. „í fyrsta lagi
má nefna umhverfissjónarmið því
við verðum að fara að huga að því
að hálendi íslands tekur ekki enda-
laust við. I áætlunum okkar gerum
við ráð fyrir 10% aukningu í lengri
hestaferðunum næstu fjögur árin.
Eftir það ætlum við að staldra við
og gerum ekki ráð fyrir meiri aukn-
ingu. Við teljum ekki rétt að auka
meira álagið á hálendið og teljum
að núverandi leiðakerfi okkar bjóði
ekki upp á það. Hins vegar munum
við auka frekar framboð á ferðum í
byggð og um sveitir landsins. Ég er
harður talsmaður þess að við förum
varlega með náttúruna. En þar með
er ég ekki að segja að fyrirtækið
geti ekki fært út kvíarnar því það
eru til mörg landssvæði sem ekki
eru enn nýtt til hestaferða og gam-
an væri að ferðast um. Til að mynda
Austfirðir, Vestfirðir og hlutar
Þingeyjar- og Húnavatnssýslna."
Þótt ferðir sem merktar eru sem
langt strik yfir þvert landið á
landakortinu séu alltaf mjög vin-
sælar að mati Einars segist hann
hafa það á tilfinningunni að það sé
eitthvað að breytast. I fyrra slógu
til dæmis ferðirnar í Landmanna-
laugar í gegn en nú ætla Egils-
staða- og Mývatnsferðirnar að slá í
gegn. Hann segir erfitt að segja um
hvað stjórni þessu, en líklega hafi
mikið að segja hvað ánægðir við-
skiptavinir láta berast um ferðirn-
ar. Það sé líka besta auglýsingin.
íslenskir hestar, fossar,
hverir og hraun
„Að öðru leyti er ástæða þess að
við viljum auka veg styttri ferð-
anna, meðal annars með tilkomu
þessarar miðstöðvar, hreinlega við-
skiptalegs eðlis,“segir hann. „Hlut-
fall harðra hestamanna er ekki
stórt í hópi hins almenna ferða-
manns sem kemur til landsins. Því
höfum við sett okkur einfalt
markmið. Við viljum skapa þannig
ímynd íslenska hestsins að hann
verði á sama stalli og fossar, hverir
og hraun. Því geti enginn erlendur
ferðamaður hugsað sér að fara frá
íslandi án þess að hafa komist í
kynni við íslenska hesta. Við stefn-
um að því að íslenski hesturinn hafi
sama sess hér á landi og fíllinn í
Indlandi! Þá geta bændur og búalið
um allt land tekið gleði sína á ný,“
segir Einar hlæjandi og bætir við
að þetta séu alls engir draumórar.
„Auðvitað voru Ishestar stofnað-
ir í kringum hestaferðir á fjöllum
og tilgangurinn var að gefa ferða-
fólki, innlendu sem erlendu, kost á
að kynnast unaðssemdum fjalla-
ferða. Þessar ferðir voru og eru
okkar stolt og Ishestar munu bjóða
upp á þær svo lengi sem ég starfa
hjá fyrirtækinu.
Á sama tíma erum við einnig stolt
af því að byggja upp þessa afþrey-
ingamiðstöð þar sem mikil áhersla
verður að sjálfsögðu lögð á hesta-
mennsku. Enda hefur áhugi á sutt-
um hestaferðum aukist gífurlega á
síðustu árum. Árið 1997 komu 3.480
manns í stuttar ferðir. Árið 1998
voru þeir orðnii' 5.977 og 9.762 á
síðasta ári. Ekki er því óeðlilegt að
búast við um 15.000 manns í stuttar
ferðir á þessu ári þar sem aðstaðan
hefur batnað gífurlega mikið.
Til samanburðar fara um 800-
1000 manns í löngu ferðirnar á ári
hverju, alltaf fleiri á landsmótsári
og er aukningin mun hægari í löngu
ferðunum.
Við erum mjög bjartsýn á fram-
tíð styttri ferðanna og í framtíðar-
áætlun íshesta er gert ráð fyrir að
árið 2004 fari talan í 30.000 gesti.
Jákvætt viðhorf bæjaryfir-
valda réð úrslitum
En þetta verður afþreyingamið-
stöð og útivistarparadís þar sem
fólk getur stundað auk hesta-
mennsku, göngu og hjólreiðar. Hér
ættu allir að finna eitthvað við sitt
hæfi í fjölbreyttri náttúru og mikilli
náttúrufegurð. Hér verður þróað
göngustíganet og það tengt göng-
ustígum Skógrætkarfélags Hafnar-
fjarðar. Því má heldur ekki gleyma
að við erum utan í Reykjanesfólk-
vanginum og við stefnum að því að
tengjast því göngustíga- og reið-
vegakerfi sem þar er fyrir og er
verið að leggja.
Möguleikarnir eru miklir bæði
hvað varðar umhverfið, því hér eig-
um við stóra lóð með ýmsa stækk-
unarmöguleika, og einnig afþrey-
ingu. Við stefnum til dæmis að því
innan ekki of langs tíma að endur-
vekja gömlu Selvogsgötuna, um
brennisteinsnámurnar og niður í
Selvoginn.“
Frá því hugmyndin um Hesta-
miðstöðina kviknaði veltu menn
fyrir sér staðsetningu hennar. Ein-
ar segir að fyrst hafi íshestar feng-
ið úthlutað lóð í Kópavogi en horfið
var frá þeirri staðsetningu.
„Á sama tíma voru Hafnfírðingar
að byrja að skipuleggja þetta
svæði,“ segir hann. „ið settum okk-
ur í samband við bæjaryfirvöld og
okkur var tekið feykilega vel.
Óhætt er að segja að þetta jákvæða
viðhorf bæjaryfirvalda og forsvars-
manna Hestamannafélagsins Sörla
í Hafnarfirði hafi ráðið úrslitum um
staðarvalið. Ekki spillti fyrir að
reiðleiðanetið hér er ótrúiega gott.
Skilningur bæjaryfirvalda og sam-
starf þeirra við Sörla hefur verið til
fyrirmyndar. Það sama má segja
um samstarfið við Skógræktarfélag
Hafnarfjarðar, en svæðið hér er
hluti af svæði Skógræktarfélagsins.
Ég vona að hestamenn og skó-
græktarfólk víðar á landinu geti
tekið það til fyrirmyndar. Það lítur
ekki út fyrir að hagsmunir þessara
félaga fari saman við fyrstu sýn, en
hér gengur samstarfið svo sannar-
lega vel.“
Reiðhöll Hestamannafélagsins
Sörla er í næsta nágrenni Hesta-
miðstöðvarinnar. Fyrirhugað er að
bjóða upp á hestasýningar sem
fram fara í Reiðhöllinni og segir
Einar að áhugi á slíkum sýningum
sé alltaf að aukast hjá erlendum
ferðamönnum.