Morgunblaðið - 26.03.2000, Page 50
50 SUNNUDAGUR 26. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
HUGVEKJA
ÍDAG
Súdan og
Grímsnesið
Fólk fæðist inn í ólikar fjölskyldu- og
þjóðfélagsaðstæður. Stefán Fríð-
bjamarson ræðir um samstarf þings og
klrkju um mótun íslenzks samfélags.
MEÐ stofnun Alþingis ár-
ið 930 varð ísland að
sjálfstæðu, sérstöku
ríki. Skipan og verkefni þingsins
hafa breytzt mikið frá því það
var allsherjarþing með óskorað
löggjafar- og dómsvald (930 til
1262). Þingræðið hefur þó lengst
af verið - og er enn - annar af
tveimur hornsteinum íslenzkrar
þjóðmenningar. Hinn megin-
hornsteinn menningar okkar og
lífsviðhorfa var lagður með lög-
töku kristninnar trúar á
Alþingi á Jónsmessu skír-
ara árið 1000.
í ljósi baklandsins, sög-
unnar, þeirrar þjóðmenn-
ingar, sem þingræðið og
kristindómurinn hafa
mótað saman, var það
rétt og maklegt, að kirkj-
an kæmi nokkuð við sögu
þegar þinghúsið við Aust-
urvöll var vígt og helgað.
Hornsteinn hússins var
lagður 9. júní árið 1880. í
hann var settur silfur-
skjöldur með áletruninni:
Sannleikurinn mun gjöra
yður frjálsa! Biskup
landsins, dr. Pétur Pét-
ursson, forseti Sameinaðs
þings, steig fram úr hópi
viðstaddra með hamar í
hönd, sló steininn þremur
táknrænum höggum og
mælti: I nafni heilagrar
þrenningar. Síðan var
sungið kvæði góðskálds-
ins á Bessastöðum, Gríms Thom-
sen: Hvern stein ber vel að
vanda, - að stöðugt megi standa.
Og enn stendur Alþingishúsið
við Austurvöll - sannkölluð
borgarprýði - eftir stórt hundrað
ára, við hlið dómkirkjunnar, sem
fullbyggð var fyrir 206 árum.
Orðið dómkirkja merkir höf-
uðkirkja í biskupsdæmi - kirkja
biskupsins. Fyrsta dómkirkja
landsins var reist í Skálholti
seint á 11. öld. Fyrsta dómkirkja
að Hólum í Hjaltadal var reist
snemma á 12. öldinni. Dómkirkj-
an og Alþingishúsið við Austur-
völl hafa lengi staðið hlið við hlið
í hjarta höfuðborgarinnar. Og
samleið kristins dóms og þing-
ræðis í samfélagi okkar spannar
þúsund ár. Það segir síðan meira
en mörg orð að í upphafi hvers
þings sitja þingmenn guðsþjón-
ustu í Dómkirkjunni áður en þeir
hefja störf í löggjafarhúsinu,
húsinu með hornsteinsáletrun-
ina: Sannleikurinn mun gjöra yð-
ur frjálsa.
Sá mæti maður, Hilmar Fin-
sen, landshöfðingi, mælti m.a. á
þessa leið, er Alþingishúsið var
vígt:
„Vér vitum það allir, að sér-
hvert mannaverk er ófullkomið
og valt, ef eigi vor himneski faðir
blessar og varðveitir það. Því
viljum vér vígja þetta nýja al-
þingishús með þeirri innilegu
bæn til hins algóða guðs, að hann
haldi verndarhendi sinni yfir
konungi vorum og ættjörð, yfir
þjóð vorri og fulltrúum hennar.
Að hann blessi og varðveiti þetta
hús og láti ævinlega sannleikann
ríkja í sönnum skilningi þess
orðs, því þá getum vér átt það
víst, að framförum og hagsæld
ættjarðar vorrar sé borgið um
aldur og ævi.“
Sérhvert mannanna verk er
ófullkomið og valt, sagði Hilmar
Finsen, nema það sé unnið í anda
þess Guðs sem er kærleikur.
Þessi staðhæfing gildir ekki hvað
sízt um samfélag mannfólksins,
þjóðfélagsgerðina, þann ramma
um líf landsmanna, sem þeir
hanna og smíða sjálfir. Þess-
vegna er það svo mikilvægt að
flétta það band, sem til framtíðar
liggur, úr kristnum lífsviðhorf-
um og grunnþáttum lýðræðis og
þingræðis. Fram hjá því má hins
vegar ekki horfa að hagkerfið,
Altaristafia og skírnarfontur (Bertils
Thorvaldsen) í Dómkirkjunni í
Reykjavík.
þjóðarbúskapurinn, verður að
geta skilað þeim verðmætum í
bráð og lengd sem rísa þurfa
kostnaðarlega undir mannsæm-
andi lífskjörum og meginþáttum
velferðar í landinu: menntakerfi,
heilbrigðiskerfi, almannatrygg-
ingum, félagslegri þjónustu
o.s.fv. Velferð verður aðeins að
veruleika í krafti verðmæta.
Sérhver einstaklingur - líf sér-
hvers manns - er efniviður, sem
honum er ætlað að vinna úr sjálf-
um, móta og þroska. Það verk
verður „ófullkomið og valt“ -
nema stuðst sé við siðferðilegan
og trúarlegum áttavita. Skylt er
að viðurkenna að aðstaða fólks í
þessum efnum er mjög misjöfn.
Fólk fæðist inn í ólíkar þjóðfé-
lags- og fjölskylduaðstæður,
mismunandi aðstæður til mennt-
unar, þekkingar og þroska.
Hjörtum mannanna svipar að
vísu saman í Súdan og Grímsnes-
inu, eins og Tómas borgarskáld
Guðmundsson segir í kunnu
kvæði. En það eru löng leið á
milli möguleika Islendinga og
Súdana - og fólks í öðrum þriðja
heims ríkjum - til menntunar og
hagsældar. Þessvegna er sam-
hjálp nauðsynleg: samhjálp til
menntunar, þekkingar og
sjálfsbjargar.
Við eigum að leggja okkar af
mörkum til þeirra sem miður
mega sín. Það er hluti af menn-
ingararfleifð okkar, sem rætur
rekur til kristinna mannúðar-
sjónarmiða og viðurkenningar á
mannréttindum, réttindum sér-
hvers einstaklings til mannlegr-
ar reisnar og mannsæmandi lífs.
Á þeim vegi eiga þjóðkirkjan og
þjóðkjörið þing okkar samleið.
Þannig þenkjandi á íslenzk þjóð
að skunda á Þingvöll 1. og 2. dag
júlímánaðar á sumri komandi í
tilefni þúsund ára kristnitökuaf-
mælis.
VELVAKAMII
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Hver þekk-
ir konuna?
ER einhver sem þekkir
konuna á þessari mynd?
Þessi mynd var í eigu Olaf-
ar frá Hlöðum og var tekin
á ljósmyndastofu á Akur-
eyri. Þeir sem gætu gefið
upplýsingar eru vinsam-
lega beðnir að hafa sam-
band við Ólöfu P. Hraun-
fjörð í síma 554-0591.
Óþarfa áhætta
og erfiði
SÍÐASTLIÐINN mánuð
hefur veðrið leikið landann
grátt. Þegar svo ber undir
ætti fólk að sýna þá sjálf-
sögðu skynsemi að halda
sig inni við. Forráðamenn
skóla og stjórnendur fyrir-
tækja ættu að fella niður
skólahald og vinnu.
Þegar óveður geisar úti
skapar það erfiði og
áhættu fyrir fólk að kom-
ast á milli staða. Á það ekki
bara við úti á landi heldur
einnig í þéttbýlum. Því
ekki að hafa varann á og
halda sig heima við og bíða
þar til veðrinu slotar og
leyfa með því stjórnendum
moksturstækja að vinna
verk sitt fljótt og vel. Utan
þéttbýlis þyrftu lögregiu-
yfirvöld að bregðast skjót-
ar við, taka ráðin af bíla-
eigendum og ioka þeim
vegum landsins í tæka tíð
sem verða illfærir eða jafn-
vel ófærir. Þar sem Islend-
ingar eiga það til að of-
metnast í einu og öllu og
halda að þeir komist allt og
lendi ekki í neinum vand-
ræðum á sínum fínu jepp-
um, bitnar það oft á getu
þeirra til að meta ástand
vega. En það hefur sýnt
sig og sannað að þrátt fyrir
fína jeppa komast þeir ekki
nærri því hvert á land sem
er, oft ekki út fyrir bæjar-
mörkin. Neyðast þeir þá til
að kyngja stolti sínu og
bíða uns hjálp berst. Með
því að hugsa fram í tímann,
þegar stormviðvörun hefur
verið gefin út af veður-
stofu, og loka þeim vegum
sem líklegt er að verði
ófærir, spörum við umtals-
verða fjármuni með því að
þurfa ekki að kalla til
hjálparsveitir.
Tíminn sem fólk ver
heima við er hægt að njóta
og nýta á ýmsa vegu. Það
besta við þetta fyrirkomu-
lag er að við hraða nútíma-
fólk náum þá betur að
rækta og styrkja fjöl-
skylduböndin.
Brá Guðmundsddttir,
Katrín Gfsladóttir,
Guðrún B.
Gunnarsdóttir.
Tapad/fundið
Svart veski hvarf
SVART veski hvarf af
Kaffitári við Bankastræti,
miðvikudaginn 22. mars
sl. I veskinu var ökuskírt-
eini, debet- og visakort og
græna kortið. Þessara
hluta er sárt saknað. Skil-
vís finnandi er vinsamleg-
ast beðinn að hafa sam-
band við Lilju Dögg í síma
567-3663 eða 511-4540.
COSPER
Nei, ég vil ekki að brdðir þinn komi með. Ég þoli
ckki að horfa á hann.
Samkvæmt umsókninni ertu elsti sonur minn.
Geturðu útskýrt það nánar?
Víkverji skrifar...
VINUR Víkverja gat ekki annað
en skellt upp úr í vikunni þeg-
ar hann var staddur í verslun Hag-
kaups í Kringlunni, og svo virtist
sem nærstaddir álitu manninn gal-
inn vegna hlátursins.
Ástæða hans var hins vegar sú
að í þann mund er vinurinn gekk
inn í verslunina glumdi í hátalara-
kerfinu: „Starfsfólk í næríotum
komi í þjónustu."
xxx
SAMSTARFSMAÐUR Víkverja,
sem lengi hefur hrifist af Sin-
fóníuhljómsveit Islands, fór á tón-
leika hennar á fimmtudagskvöldið
þar sem flutt var tónlist úr kvik-
myndum, og skemmti sér konung-
lega. Og hann gladdist mjög þegar
stjórnandinn og einleikarinn Lalo
Schifrin hældi hljómsveitinni í há-
stert.
Eftir að leikin var tónlist Schifr-
ins úr Mission Impossible - (sem
var frábærlega flutt af hljómsveit-
inni, að sögn Bergþóru Jónsdóttur,
gagnrýnanda Morgunblaðsins í
gær) ávarpaði Schifrin áhorfendur
með þessum orðum: „Ég verð að
segja ykkur að þið eruð heppin -
að búa í borg sem á svo frábæra
sinfóníuhljómsveit." Greinilegt var
að þetta gladdi tónleikagesti, en
sannleikurinn er sá að Schifrin hef-
ur lög að mæla. Sinfóníuhljómsveit
íslands er frábær.
Úrslitakeppni íslandsmóts
kvenna í handknattleik hefur vakið
mikla athygli Víkverja undanfarið.
Víkverji hefur séð nokkra leiki,
bæði í sjónvarpi og eins mætt sjálf-
ur á vettvang, og ekki fer á milli
mála að íslenskum stúlkum hefur
farið gríðarlega fram í þessari
íþrótt á síðustu árum.
Víkverji hefur satt að segja orðið
meira gaman af kvennahandboltan-
um, að sumu leyti að minnsta kosti,
en af leikjum karlanna. Ástæðan er
sú að stúlkurnar eru margar orðn-
ar mjög góðar; hafa mikla tækni,
gott auga fyrir spili, eru góðar
skyttur, markverðir hafa tekið
stórstígum framförum og síðast en
ekki síst er leikgleðin mjög mikil
hjá flestum liðunum. Harkan er
hins vegar ekki jafn mikil og hjá
körlunum og það gerir það að verk-
um að Víkverji tekur kvennaleik
jafnvel framyfir leik í karladeild-
inni.
xxx
FYRIR nokkrum árum voru
nokkrir mjög góðir leikmenn í
íslenskum kvennaliðum, til að
mynda sú frábæra handboltakona
Guðríður Guðjónsdóttir í Fram
sem þá var langbest að mati Vík-
verja, en munurinn á liðunum nú
og þá er að góðir leikmenn eru
orðnir miklu fleiri, liðsheildirnar
mun jafnari og Víkverji veltir þvi
fyrir sér hvort þróunin verði eins
og t.d. í Noregi og Danmörku þar
sem kvennaleikir í handboltanum
eru miklu vinsælli en hjá körlun-
um. Að minnsta kosti er ljóst að
hérlendis verður að fara að sinna
uppbyggingu kvennaíþrótta af
sama krafti og íþróttum pilta.
Fjölmiðlum er stundum kennt
um að þeir standi kvennaíþróttum
fyrir þrifum vegna þess hve lítið er
fjallað um þær, en Víkverji hefur
aldrei getað fallist á þá skoðun.
Þvert á móti. Nú sýnir það sig líka;
um leið og leikirnir eru orðnir
skemmtilegir, spennandi og fólk
farið að hafa áhuga á þeim gera
fjölmiðlar þeim mjög góð skil.
Vala Flosadóttir og Guðrún Arn-
ardóttir eru góð dæmi um að fjöl-
miðlar sinna íþróttakonum sem
standa sig vel. Mjög mikið hefur
verið fjallað um afrek þeirra í ís-
lenskum fjölmiðlum hin síðari ár.
Ástæða þess er ekki sú að þær eru
konur, heldur afreksmenn. Og ekki
hefur verið fjallað jafn mikið og
raun ber vitni um Jón Arnar
Magnússon og Örn Arnarson
vegna þess að þeir eru karlar, held-
ur vegna þess að þeir eru afreks-
menn. Þetta er staðreynd málsins.
xxx
NÝKAUP í Kringlunni lofar við-
skiptavinum sínum ferskleika,
gæðum, vöruúrvali, þjónustu, nýj-
um og undraverðum tilboðum á
stórri auglýsingu í versluninni.
Hvenær ætlar verslunin að standa
við þessi loforð?
Fyrir skömmu var dregið úr
þjónustu, þ.e. verslunin lokar nú kl.
19 en ekki 20 á virkum dögum. Vík-
verji telur það einnig óviðunandi
þjónustu að bíða iðulega í allt að 10
mínútum við kassa með eina sam-
loku í hendinni á hádegistíma, þeg-
ar verslunarstjórum mætti vera
ljós þörfin á því að hafa nægilega
marga starfsmenn við afgreiðslu á
kassa. Jafnframt telur hann óvið-
unandi að uppgötva oft og iðulega
að nefnd samloka sé eins til
tveggja daga gömul. Það samræm-
ist varla loforðum verslunar um
ferskleika að hafa gamlar samlokur
á boðstólum.