Morgunblaðið - 26.03.2000, Page 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNl 1,103 REYKJAVÍK, SÍMI3601100, SÍMBRÉFS691181, PÓSTHÓLF3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
SUNNUDAGUR 26. MARS 2000
VERÐ í LAUSASÖLU150 KR. MEÐ VSK.
Tjón vegna
falsaðra
málverka
' 135 til 180
millj. kr.
HEILDARTJÓN vegna falsaðra
málverka sem seld hafa verið á upp-
boðum hjá Galleríi Borg á síðasta
áratug er talið vera á bilinu 135 til
180 milljónir króna samkvæmt út-
tekt Ólafs Inga Jónssonar, forvarðar
hjá Morkinskinnu. Upplýsingar hans
eru byggðar á uppboðsgögnum
Klausturhóla og Gallerís Borgar og
telur hann að um 900 fölsuð verk hafi
verið boðin upp hjá Galleríi Borg.
Ólafur safnaði saman upplýsingum
( jír uppboðsskrám fyrirtækjanna og
íeitaði einnig til safnara sem skráði
öll uppboðsverk uppboðshúsanna.
■ Málverkin/10
----------------
Óká 160 km
hraða undan
lögreglunni
^JfíNGUR ökumaður, grunaður um
ölvun undir stýri, var handtekinn á
hlaupum í Vatnaskógi í gærmorgun
eftir að hafa ekið á ofsahraða undan
lögreglu í Hvalfirðinum.
Lögreglan á Akranesi hugðist
stöðva ökumanninn inni í bænum en
hann sér lét ekki segjast og ók á
brott. Lögreglumenn í tveimur bfl-
um veittu honum eftirför um Hval-
fjörðinn. Þar er talið að maðurinn
hafi ekið á um 160 km hraða á klst.
Eftirförin barst inn í Vatnaskóg þar
sem maðurinn yfirgaf bflinn og var
handtekinn á hlaupum. Að sögn lög-
reglu hefði getað farið mun verr því
maðurinn ók afar háskalega. Mað-
urinn var í vörslu lögreglu í gær.
------♦-♦-♦-----
íslandsflug
leigir fjórðu
þotuna
ÍSLANDSFLUG hefur samið um
leigu á fjórðu þotunni og verður hún
í farþegaflutningum út frá Mallorka.
Hún er af gerðinni B 737-300. Ráða
þarf 30 til 40 flugliða vegna samn-
ingsins og verða það bæði Islending-
ar og útlendingar.
Ómar Benediktsson, fram-
kvæmdastjóri íslandsflugs, sagði
4essa ákvörðun í beinu framhaldi af
ví að draga saman seglin í innan-
landsflugi fyrirtækisins og auka
áherslu á að fá erlend verkefni. Þot-
an verður einkum í flugi milli Mall-
orka og Bretlands en einnig til
Þýskalands.
Híma á höm í Mýrdalnum
Það var kuldalegt um að litast í Mýrdalnum þar sem snjór er meiri en verið þegar ljósmyndara bar að garði, og þau bíða, eins og landsmenn líklega ail-
hefur í áratugi. Hrossin mynduðu einfalda röð undan vindi, hímdu á höm, ir, betri tíðar, þótt enn sé of snemmt að kveðja Vetur konung.
Fyrstu niðurstöður brjóstakrabbameinsrannsókna Krabba-
meinsfelagsins og UVS liggja fyrir
Áður óþekkt tengsl
hafa verið leidd í ljós
RANNSÓKNIR, sem unnar eru í samstarfi
Rrabbameinsfélags Islands og Urðar Verðandi
Skuldar (UVS), á samskiptum próteina brjósta-
krabbameinsgena (BRCA) við önnur frumuprót-
ein hafa bent til áður óþekktra tengsla við önnur
prótein, sem gætu haft þýðingu fyrir myndun
brjóstaæxla.
Sigríður Valgeirsdóttir, doktor í sameindalíf-
fræði hjá Krabbameinsfélagi íslands, gerði grein
fyrir rannsóknunum á alþjóðlegri ráðstefnu í síð-
ustu viku ásamt Hilmari Viðarssyni, sérfræðingi
hjá Krabbameinsfélaginu. Að sögn Reynis Am-
grímssonar, framkvæmdastjóra vísindasviðs hjá
UVS, fengu niðurstöðurnar góðar viðtökur á ráð-
stefnunni.
Skoða próteinafiirðir krabbameinsgena
Sigríður sagði í samtali við Morgunblaðið að
um væri að ræða samvinnuverkefni Krabba-
meinsfélagsins og UVS sem byggðist á fyrri
rannsóknum sérfræðinga Krabbameinsfélagsins
á erfðabreytingum í genum brjóstakrabbameins-
sjúklinga.
Þekkt er fylgni milli breytinga í BRCA-genum
og áhættunnar á því að fá brjóstakrabbamein.
Sigríður sagði að rannsóknirnar nú beindust að
því að skoða próteinafurðir BRCA-gena, kanna
hlutverk þeirra í brjóstafiumum og einkum sam-
skipti við önnur frumuprótein. „Tilgangurinn er
að skilja betur hlutverk þessara gena og prót-
einafurða þeirra fyrir myndun brjóstakrabba-
meins. Þetta hefur gengið framar vonum,“ segir
Sigríður. Hún sagði að rannsóknirnar hefðu haf-
ist í haust og fyrstu niðurstöður væru nú að líta
dagsins ljós. „Þær geta kannski varpað ljósi á
hlutverk þessara próteina,“ sagði Sigríður en
kvaðst ekki vilja fara nánar út í niðurstöður
rannsóknanna.
Hún sagði að rannsóknum yrði fram haldið á
sömu braut og kannað nánar hlutverk eðlilegs
BRCA-próteins í frumum og hlutverk stökk-
breytts próteins. „Með því að skilja hvernig eðli-
legt prótein starfar getur maður varpað ljósi á
það hvað fer úrskeiðis þegar þetta gen hefur
stökkbreyst," sagði Sigríður. „Við þurfum að
halda þessum rannsóknum áfram til að geta
fengið skýrari svör um hlutverk þessara próteina
í myndun brjóstakrabbameins. Þetta hefur geng-
ið mjög vel og verið mjög skemmtileg vinna en
við erum ekki með neinar töfralausnir, - ekki á
þessu stigi."
Eigin. rannsóknarstofa
UVS hérlendis í burðarliðnum
Reynir Arngrímsson, framkvæmdastjóri vís-
indasviðs UVS, sagði í samtali við Morgunblaðið,
að þessar fyrstu niðurstöður úr samvinnuverk-
efninu við Krabbameinsfélagið lægju fyrir mun
fyrr en reiknað var með og gleðilegt væri að
samstarfið við Krabbameinsfélagið væri strax
farið að skila árangri en rannsóknarsamningur
aðilanna var gerður í janúar sl.
Hann sagði að UVS væri nú að vinna að skipu-
lagningu og undirbúningi þess að setja upp eigin
rannsóknarstofur hér á landi en fram til þessa
hafa rannsóknir á vegum fyrirtækisins fyrst og
fremst verið stundaðar í Læknagarði og í sam-
starfi við rannsóknarstofu Krabbameinsfélags-
ins, sem hefði gefist vel. „En þetta gefur tak-
markaða möguleika til vaxtar og því erum við að
ganga frá skipulagningu eigin rannsóknarstofu
og munum kynna það íljótlega," sagði Reynir.
1
4
Kynntu þér málið á síðu 28 og 29
® BÚNAÐARBANKINN
Traustur banki
Rfkið ákveður að kaupa
2.200 tonn af áburði
RÍKISIGVUP hafa ákveðið að taka
tilboði Áburðarverksmiðjunnar hf.
í áburðarkaup fyrir nokkrar ríkis-
stofnanir fyrir sumarið. Um er að
ræða samtals tæp 2.200 tonn af
áburði og er kaupverðið rúmar 48
milljónir kr.
Ríkiskaup buðu út áburðarkaup
fyrir Landgræðsluna, Vegagerðina
og Landsvirkjun en allar þessar
stofnanir fást við landgræðslu af
ýmsum toga.
Áburðarverksmiðjan hf. er eina
fyrirtækið sem bauð í allt magnið
en Kaupfélag Húnvetninga bauð í
hluta af áburðarkaupum Lands-
virkjunar.
Ríkiskaup ákváðu að taka tilboði
Áburðarverksmiðjunnar. Þótt
áætlað magn sé tæp 2.200 tonn
geta stofnanirnar keypt allt að
fjórðungi minna eða fjórðungi
meira magn á sama verði. Kaup-
verðið er rúmar 48 milljónir sem
er liðlega 15% hærra verð en á síð-
asta ári, að sögn Birgis Guð-
mundssonar hjá Ríkiskaupum.